Alþýðublaðið - 19.09.1981, Side 6
6
Laugardagur 19. september 1981
Aðbunaðurinn \ gömlu fiugstöðvarbyggingunni:
„Hreint kraftaverk hvað hægt er
að gera við þessar aðstæður”
Karl Steinar Guðnason:
á undanförnum dögun^.nnu
olaöiö ðbýnaö starís o Bened\kt
3 viðtöl »xn j viðtali v‘° umum
f *ef‘aV^öm fram, aö aöbunaður^á^ a„ar
i vikunm k ðin0 væri W fjugStöövar
öum a va‘,arnre\nd\ hann gom‘u ‘ 9 Aiþýðu
érstaklegatd9r a AðaWerktaka^ og
una og s vikunni ástan Þ á setn hlut
2nn könnuöu'^ tööinniogaöraP rmann
/iöstartsfoik. tW9ste.nar Guönasomnn verka.
\ máli' m.a. ^eflaVik °9 st® saman '» t‘ug'
ýöstéiagsms nafa árum
lags.ns/ sem
Höfum lengi barist fyrir
viðunandi vinnuaðstöðu
í flugstöðinni
Varðandi vinnuaðstöðu i flug-
höfninni og sérstaklega eldhúsi
flugstöðvarinnar, vil ég segja
það, að viö höfum lengi barist
fyrir þvi að koma þarna á við-
unandi ástandi sagöi Karl Stein-
ar Guðnason, þegar Alþýðu-
blaðiö leitaði álits hans á þeim
ummælum Benedikts Gröndals
að vinnuaöstaða á sumum
vinnustöðum á Keflavikurflug-
velli þar á meðal I flugstöðinni
væri fyrir neöan allar hellur.
Ég get vel tekið undir sjónar-
I mið nefndarmanna I utanrlkis-
jmálanefnd. Við höfum marg-
Itrekað óskir okkar um að úr
þessu verði bætt i flugstöðinni
sagði Karl Steinar, en þvi hefur
jafnan verið svarað þannig.að
ný flugstöð sé i undirbúningi og
ekki sé rétt að fara á staö með
bráðabirgðaframkvæmdir, sem
kosti stórfé og verði einungis til
skamms tima. Ráöamenn Flug-
leiða voru á timabili að hugsa
um að láta endurbæta og byggja
viö húsnæðið, en frá þvi var
horfið af fyrrgreindum ástæð
um. Ég veit þvi að það er mjög
sterkur vilji hjá Flugleiöum að
fá þessi mál á hreint en það mun
að öllum likindum biða meðan
ekki er tekin ákvörðun um nýja
flugstöð á vellinum. Það er
engin frambúðarlausn að lappa
upp á það sem ónýtt er og það er
kjarni málsins að fá flug-
stöðvarmálið á hreint, þá mun
þetta leysast af sjálfu sér. Hinu
er ekki að leyna, að við erum
ákaflega óánægðir meö það
hvernig þetta hefur dregist,
sagði hann.
Varðandi Aðalverktaka og
ófullnægjandi aðbúnað starfs-
manna hjá þeim vil ég segja, að
við höfum reynt að knýja fram
úrbætur hjáþeim. Þeir hafa bor-
iö það fyrir sig, aö viðsemjend-
ur þeirra, þ.e. Bandarikjamenn,
eigi að greiða fyrir þessar úr-
bætur. Ég hygg, að það hafi
staðiö á þvi. Við hjá verkalýös-
félaginu litum hins vegar svo á,
að þaö skipti ekki máli hvaðan
fé kemur til að vinna þessa
hluti, það sem viö viljum er að
þetta verði unnið og ég veit, að
Benedikt Gröndal lagði mikla
áherslu á þessi mál þegar hann
var utanrikisráðherra. Við
munum auðvitað reyna aö beita
okkur i þessu máli hér eftir sem
áður, sagði Karl Steinar Guðna-
sonaðlokum. Þ
STARFSFOLK ELDHÚSS FLUGSTÖÐVARINNAR:
„Þrengsli mikil en góður starfsandi”
Blaðamaður var lóðsaður I
gegnum þrengslin i eldhúsinu,
þangaö sem fjórar hressar
starfsstúlkur voru að hella app-
elsinusafa i glös. Eftir að hafa
skáskotiö sér milli grinda og
vagna náði hann tali af þeim.
„Vinnuaðstaða hérna er
engan veginn góð” sagði Ólafía
Guðmundsdóttir og Hulda
Gestsdóttir bætti viö, „þú hefðir
átt að koma hérna i sumar, þá
var hér allt vitlaust. Hérna er
loftlaust, ýmist of heitt eða of
kalt, sérstaklega á veturna
þegar allt er opið út.”
Þær sögðu að lager og búr
væru i sama herbergi, sem er
um 30 fermetar. „Maður er
bara mest hissa á þvi að ekki
skyldi verða stórslys þegar
mest er að gera, þvi þá eru hér
staflar af matarbökkum út um
allt og varla hægt að þverfóta.”
Nú voru fleiri konur mættar i
hópinn og allar höfðu eitthvaö til
málanna aö leggja. „Kaffi-
stofan hérna er fyrir 20 manns
og þangað veröa menn að fara i
hollum”, sagði ein og önnur
bætti við að það vantaði alveg
fatageymslu fyrir starfsfólk.
„Og salernið er i órafjarlægð i
kjallaranum” sagði sú þriðja.
„Áhaldaleysi er mikið
hérna”, hélt Hulda áfram, „og
svo er sitt á hvað með vatnið,
þaö er ýmist heitt eða kalt.”
En eru þær óánægðar á vinnu-
staðnum?
„Nei við erum orönar vanar
þessu”, sögðu þær, „þetta geng-
ur allt ágætlega”.
„Það er sama hvað kemur
uppá, það er öllu reddað”, sagði
Hjördis Guðmundsdóttir.
„Það er svo rúmt núna að við gætum dansað á gólfinu.sagöi Huida.