Alþýðublaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 8
alþýðu l.imiJi Útgefandi: AlþýOuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Jón Baldvin Hannibalsson. Ritstjórnarfulltrúi: Guömundur Arni Stefánsson. Blaöamenn: Einar Gunnar Einarsson, Ólafur Bjarni Guönason og Þráinn Hallgrimsson. Útlitsteiknari og ljósmyndari: Einar Gunnar Einarsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Sigrföur Guömundsdóttir. Dreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru aö Siöumúla 11, Reykjavik, simi 81866. Áskriftarsíminn er 81866 Fimmtudagur 15. október 413 fengu lausa- skuldum breytt i föst lán Samkvæmt samkomuiagi viö rikisstjórnina ákváöu viöskipta- bankar og sparisjóöir í april- mánuöi s.l. aö breyta lausa- skuldum húsbyggjenda I bönk- um og sparisjóöum I föst lán til 8 ára. Skilyröi fyrir skuldbreytingu voru: Að umsækjandi hefði fengið lán hjá HUsnæðismálastjórn rikisins á árunum 1978, 1979 og 1980 eða verið lánshæfur á þessum árum, samkvæmt núgildandi reglum stofnunar- innar. Að umsækjandi ætti aðeins eina ibdð eða ibúöarhús, byggt eða keypt á þessum árum til eigin afnota. Að umsækjandi hefði fengið lán hjá banka eða sparisjóði til ibúðakaupa eða byggingar og skuldað i árslok 1980 vegna slikra lána 20.000 nýkrónur eða meira, enda hefðu lánin upphaf- lega verið veitt til skemmri tima en fjögurra ára og ættu að greiðast upp á næstu þremur árum eða skemmri tima. Undanskilin væru skammtimalán veitt vegna væntanlegra húsnæðislána, h'f- eyrissjóðslána eða annarra timasettra greiðslna. Nýju lánin áttu að vera til 8 ára, eða skemmri tima sam- kvæmt ósk lántakenda, bundin lánskjaravisitölu með 2 1/2% vöxtum. Lánin væru veitt gegn fasteignaveði, og veðsetning eignar mátti ekki nema hærra hlutfalli en 65% af brunabóta- mati. Lánsfjárhæð skyldi ekki nema hærri upphæð en 100.000 kr. og endurgreiðast meö árs- fjórðungslegum afborgunum lánstimabilið. Akveöið var að viðskipta- bankarnir afgreiddu sameigin- lega sin á milli þau lán, sem væru i bönkunum, en spari- sjóðirnir þau, sem hjá þeim væru. Sérstök samstarfsnefnd banka og sparisjóða sá um undirbúning og framkvæmd skuldbreytingarlánanna. Út- búin voru umsóknareyðublöð, þar sem skrá átti öll skammtímalán sem óskað var að breyta. Umsóknina sendi umsækjandi í þann banka eða sparisjóð, sem hann hafði aðal- iðskipti sin við. Sá banki eða sparisjóður gekk frá endanlegu lani. Umsóknarfrestur var til 31. mai, en afgreiðslu allra umsókna lauk i ágústmánuði sl. Alls barust 427 umsóknir til viðskiptabankanna og var orðið við þeim öllum, nema 14. Alls voruþvíveitt 413 lán er greiddu upp samtals 1485 lán. Heildar- upphæð lána nam 24.157.000 kr. „Sef alveg fyrir þessu,” segirMatthías Bjarnason og á þá viö varaformannssætiö i Sjálfstæöisflokknum. Þaö er ekki aö spyrja aö eigingirn- inni. Gerir Matti sér ekki grein fyrir þvi, aö þaö eru aörir sem liggja andvaka heilu næturnar og bföa ákvöröunar hans. Hugsaöu um Friörik og hina strákana, Matti, þótt þú sofir meöan Róm, ég meina Valhöll, brennur... Alþingi: Sjónvarpið sendi út dagskrá allan ársins hring — tillaga Eiðs Guðnasonar alþingismanns Eiður Guönason alþm. hefur lagt fram tillögu um breytingar á útvarpslögum i þá veru, aö Rikisútvarpið skuli útvarpa og sjónvarpa dagskrá hvern dag, árið um kring. t viðtali við Alþýðublaðið sagði Eiður að i' upphafi muni fimmtudagslokun og lokun i sumarleyfum ekki hafa verið hugsuð til frambúðar og nú væri orðið vart við töluverðan þrýst- ing á að dagskráin yrði lengd. Eiður bætti þvi við, að auðvitað þýddi þetta útgjaldaaukningu fyrir Sjónvarpið, og þvi yrði sjálfsagt að mæta með hækkun afnotagjalda sem þvi næmi. Menn kvarta yfir flestu áður en þeir kvarta yfir afnotagjöldun- um hjá sjónvarpinu sagði Eiður, enda eru þau lág, miðað við þá þjónustu sem fólk fær fyrir þau. 1 greinargerð meö tillögu Eiðs erm.a. vakin athygli á þvi, að á þeim fimmtíu árum, sem útvarp ið hefur starfað hefur dagskrá þess lengst jafnt og þétt svo nú er þar komið að það er útvarpað 15 til 16 ti'ma á sólarhring allt árið. Hinsvegar hefði dagskrá sjónvarps ekki lengst nú um hrið, og hefði reyndar verið styttvegna fjárhagsörðugleika. Siðan segir i greinagerðinni: ,,Sú ákvörðun aö hafa ekki sjón- varp á fimmtudögum mun á sinum tima hafa átt rætur að rekja til þess, að við upphaf sjónvarpsins voru þeir býsna margir sem horfðu á alla dag- skrána alla daga sem sent var út. öttuðust menn að stofnun sjónvarps mundi hafa lamandi áhrif á félagsstarfsemi og fundahöld og væri þvi ákjósan- legt að hafa einn sjónvarpslaus- an dag. Það mun og hafa átt sinn þátt i þessari ákvörðun að nauðsyn var talin bera til að hafa einn dag vikunnar, þar sem væri ekki útsending, til þess að fámennu starfsliði á upphafsárum Sjónvarpsins gæf- ist kostur að hlúa að og viðhalda tækjakosti stofnunarinnar sem að hluta var fenginn erlendis frá. NU eru fimmtán ár siðan Sjónvarpið tók til starfa. Fé- lagslif hefur aðlagast tilvist og tilveru þessa fjölmiðils, sem hvorki verður séð að hafi lamað félagslff né menningarstarf- semi — miklu fremur hið gagn- stæöa. Þá hefur starfsliði Sjón- varpsins f jölgað verulega og eru þvi röksemdir fimmtudagslok- unar brott fallnar. Ekki verður séð að sú ákvörð- un að loka Sjónvarpinu vegna sumarleyfa starfsfólks i júli- mánuði hafi verið ætluð til frambúðar.Hún var til komin af illri nauðsyn. Er sjónvarp hófst voru fáir einstaklingar sem kunnu til verka við þá tækni sem þar er beitt, og þeir störf- uðu nær allir hjá Sjónvarpinu. NU er nægu tækni- og dagskrár- Eiöur Guönason menntuðu starfsfólki til að dreifa i landinu sem getur leyst fasta starfsmenn Sjónvarps af i sumarleyfum, þannig meginrök fyrir sumarleyfislokun, sem voru í upphafi, eru ekki lengur til staðar. Þá er þess að geta að vaxandi óánægju virðist gæta með sumarlokun Sjónvarps. Hefur þess ekki sist orðið vart hjá öldruðu fólki, öryrkjum, sjúklingum ogþeim sem ýmissa hluta vegna eiga ekki heiman- gengt, en eru tryggustu áhorfendur sjónvarpsins. Rikis- útvarpið hefur vissulega skyld- um að gegna gagnvart þessum aðilum. Vist er að fullfriskt fólk, sem ferallra sinna ferða,saknar ef til vill ekki sjónvarps um hásum- arið.en það er ekki meginatriði þessa máls. Þetta frumvarp er flutt til að taka af tvfmæli um að útvarpa skuli og sjónvarpa alla ársins dagá og að með þvi verði bætt og aukin þjónusta þessarar mestu menningarstofnunar okkar,sem er sameign islensku þjóðarinnar.” A RATSJÁNNI 1 gamla daga, þegar Þagall var i skóla, fengu nemendur sérlega einkunn á hverju ári, fyrir hegö- un. Ef menn forðuðust aö rifa kjaft viö kennarann, hrekktu ekki bekkjarsystkini sin I timum eða frimlnútum, og almennt hegöuöu sér eins og mýs undir fjalaketti, fengu þeir góöa einkunn fyrir hegðun. Stundum tiu. Nú munu nemendur I skólum á íslandi ekki lengur fá einkunnir fyrir kunn- áttu i mannasiðum. Þó hefur Þagall þaö fyrir satt, að einn skólastjóri hafi aldrei gef- iö mönnum einkunnir fyrir hegð- un. Hann gaf mönnum hinsvegar á hverju vori einkunn fyrir „manndóm”. Og Þagall veit, að um málift og munu i dag ganga —go .Aðför að áfangakerfínu - segja nemendur í Nli tilfollum ^úUl'ökað‘fyrir 'hanfáí PP PPl afburhanemendum ^þannie _gerterf,ttfyrir, MætinJ^i'.1,? TilUneiging lu ofsijðrnunar, Kennarar hér t u_ ogefeng?6r8 Um hvorki fug^nffiskur " * Ifgb" him wfrar hér 1 Hamra- hifharskóianum eru cindregi6 á móo þessari nýju regiugerft og telja hana tilhneigingu til of- , ,;,.b'r8ta !agi erum vift mot- ítlln!ir hyi aft settar séu sam- ræmdar reglur um ýmis atrifti sem vift telium „ií; .a..!ð! - segir Gunnlaugur Áslgelrsson kennari í Hamrahiíð bókstöfum i tölustafi. Vift höfum þmgaft um þetta mál og munum ?nm°ÁÍUn ganga frá mbtmælum til ráöherra. hJrU"!^arp um áfangaskóJa hefur siöustu ár leeiö fra Sjö grönd, dobluð og redobluð einn nemenda hans a.m.k. fékk eitt sinn núll með gati, fyrir manndóm. Sá maöur hefur ef- laust einhverntimann siöar á æv- inni oröiö þingmaður, ráðuneytis- stjóri eða forrikur heildsali. Slðan þá hafa mörg frumvörp um menntamál veriö lögö fyrir hið háa Alþingi. Sum hafa verið lögö oft fyrir þá visu samkundu. Eitt þeirra er „framhaldsskóla- frumvarpið” svokallaða. Það er aö þvl leyti merkilegra öörum lagafrumvörpum, að byrjaö er að framfylgja þvi, og þaö fyrir löngu, þó aldrei hafi það verið samþykkt. Nú las Þagall það i Visi I gær, að nemendur jafnt sem kennarar i Hamrahliö hafi fengið drög að almennum reglum um starfshætti I áfangaskólum. Hafandi lesiö þessi drög, luku nemendur og kennarar upp einum munni um aö öllu hraklegri vitleysa hafi lik- lega aldrei verið send út frá einu ráöuneyti, eftir stofnun lýöveldis á tslandi, og er þá langt til jafnaö. Nemendur segja að hér sé um aö ræða „aðför að áfangakerf- inu”. Kennarar segja að hjá ráöuneytinu gæti „tilhneigingar til ofstjórnunar”. Af málflutningi þessara tveggja hagsmunahópa má ráða að það sem mest fer i taugarnar á þeim er það að sam- kvæmt drögunum skal framvegis gefa einkunnir i tölustöfum en ekki i bókstöfum, eins og tiðkast hefur upp á síökastið. Nemandi segir: „Þaö er að mörgu leyti táknrænt fyrir þessa afturhalds- reglugerð að einkunnir veröa gefnar i tölustöfum en ekki bók- stöfum”. Og kennari segir: „Nokkur atriði i reglunum teljum við augljósa afturför eins og að einkunnagjöf er breytt úr bók- stöfum I tölustafi.” Þagall skilur ekki alveg, hvers- vegna menn eru á móti þvl að einkunnir séu gefnar i tölustöfum. Ef einhverjar einkunnir eru gefn- ar á annað borð, getur varla skipt höfuðmáli hvaöa táknkerfi er not- aö. Tölur i venjulegu einkunna kerfi tákna þvi betri árangur sem þær eru hærri. Bókstafir i nýja kerfinu tákna því lélegri árangur, þvi aftar úr stafrófinu sem þeir eru valdir. Kannski hægt væri aö sættast á aö nota eitthvað alveg nýtt táknakerfi i einkunnagjöf. T.d. aö nota kyrilliska starfrófiö. Eða jafnvel að nota sagnakerfi úr bridge, þannig t.d. aö besta einkunn, sem nemandi getur fengiö I stærðfræði væru sjö grönd, dobluö og redobl- uö, en sú lélegasta og þar meö hrein falleinkunn væri eitt lauf. Þá mætti t.d. krefjast þess,að meöaleinkunn á stúdentsprófi væri a.m.k. grandsögn. Auðvitaö er ástæöan fyrir óánægjunni með breytinguna sú, að mönnum finnst einkunnagjöf i tölum óþörf, eöa óþægileg. En þá vaknar spurningin; til hvers halda þessir menn eiginlega að rikisvaldiö vilji samræma allt framhaldsskólakerfið? Það er mikil fyrirhöfn, og dýr. Auðvitað veröur rlkisvaldið aö fá nákvæm- ar og haldgóðar upplýsingar um afurðirnar. Sá sem borgar ræður. Miðstýring er óhjákvæmileg. Það þykir nú vist framsækiö og flnt og róttækt aö styðja fram- haldsskólafrumvarpiö. Það hefur þann yfirlýsta tilgang að laga menntunina að þörfum þjóöfé- lagsins og atvinnuveganna. Slikt kerfi hlýtur óhjákvjemilega að veröa ihaldssamt. Og vont, nema menn séu þeim mun ánægðari með þjóöfélagiö eins og það er. En framsækið? Varla! —Þagall

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.