Alþýðublaðið - 23.12.1981, Síða 5

Alþýðublaðið - 23.12.1981, Síða 5
AAiðvikudagur 23. desember 1981 5 rétti i staðinn helzta keppinaut sinum, Bjarna Benediktssyni. En Bjarni fiilsaði svo mjög við þeim bikar að hann hótaði þvi að halda áfram sem stjó'-n- málaritstjóri Morgunblaðsins og taka aíls ekki sæti i viðreisn- arstjórninni, nema hann fengi önnur embætti. Flokkur einka- framtaks og atvinnurekenda vildi m.ö.o. fyrir enga muni taka að sér lykilembættið við mótun efnahagsstefnunnar. Hér ræður nokkru, að embætti fjár- málaráðherra hefur jafnan ver- ið talið litt fallið til vinsælda. Þess vegna gátu þeir Gunnar og Bjarni vel unnað hvor öðrum þess hlutskiptis. En hitt kemur einnig til, að efnahagsstefna viðreisnarinnar var fyrst og fremst mótuð af Alþýðuflokkn- um og aðalforystumanni hans á þessum tima, sem var dr. Gylfi Þ. Gislason. Flest bendir til þess að rikis: stjórn Gunnars Thoroddsens vinni ekki önnur afrek i efna- hagsmálum en þau, að fram- lengja Framsóknar- og vexð- bólguáratuginn framá ftnd.a ára- tuginn. Þá verður meira en timabært að stofna til nýrrar viðreisnar. Spruningin er bara, hvort þá finnast jafnhæfir menn i aðalhlutverkin, eins og vissu- lega var reyndin i upphafi við- reisnartimabilsins um 1960. Að sumu leyti er þessi bók merkilegust fyrir það sem TiUn þegir um. Hvernig má það vera, að Gunnar Thoroddsen vikur hvergi einu aukateknu orði að þvipólitiska embætti sem hann gegndi hvað lengst og var hans helzta valdatæki innan Sjálf- stæðisflokksins. Hér er að sjálf- sögðu átt við embætti borgar- stjórans i Revkiavik sem Gunn- rar gegndi i ein þrettán ár. Um það segir ekki eitt aukatekið orð. Hvers vegna? Sama máli gegnir um ýmis stærstu málin sem voru við- fangsefni þings og þjóðar á 4ða og 5ta áratugnum. Kreppuárin er hvergi að finna i þessari við- talsbók. Kannski kreppan hafi alveg gengið hjá garði Gunnars Thoroddsens? Og hjaðningavig- in út af Keflavikursamningi, At- lantshafsbandalagi og varnar- samningnum við Bandarfkin, þessi eldfimu stórmál sem klufu þjóðina i tvær fjandsamlegar fylkipgar, þeirra er einfaldlega hvergi getið i þessari sléttmálu viðtalsbók. Kannski það hafi ekki talizt „pólitiskt heppilegt” mtíi hliðsjón af hinum nýju fóst- bræðrum Gunnars Thoroddsens i rikisstjórn,arftökum hins is- lenzka Sovéttrúboðs. Sú var tið, að sá söfnuður vandaði Gunnari Thoroddsen ekki kveðjurnar. Þjóðviljinn er að visu gamalt málgagn Thor- oddsenættarinnar. Það var ekkja Skúla Thoroddsen, Theó- dóra skáld sem færði Einari 01- geirssyni þetta blaðheiti að gjöf árið 1936. En það væri synd að segja að það blað hafitekið með silkihönzkum á ættarlauk Thor- oddsenanna i Sjálfstæðisflokkn- um hér fyrr á árum. Um það leyti sem ,,Gunnar snéri aftur” úr útlegðinni i Kaupmannahöfn og tók að brjóta sér braut til frama og valda á nýjan leik i Sjálfstæðisflokknum sendi Magnús Kjartansson (Austri) Gunnari kveðju Guðs og sina. Hann likti honum i upphafi við Gissur Isleifsson, þann er Har- aldur konungur Harðráöi sagði um að gera mætti Ur þr já menn : Vikingahöfðingja,konung og Sigurður Thoroddsen, landsverkfræðingur og stærðfræðikennari, faðir Gunnars, og kona hans Maria Kristln (Claessen) ásamt börn- unum sex. Þau eru talið frá vinstri. Jónas, Valgarð, Margrét, Kristin, Gunnar og Sigriður. biskup, — og væri hann jafnvel til allra þeirra verka fallinn. Þvi næst sagði Austri: ,,Um alllangt skeib hefur harðsnúinn hópur manna vakið athygli á þvf að af Gunnari Thoroddsen mætti ekki aðeins gera þrjá menn, heldur þrjátiu eða þrjú hundruð, og væri hann til allra verkanna jafn vel feng- inn. Hefur ekkert tignarstarf losnað svo á Islandi árum sam- an að ekki væritalið sjálfsagt að Gunnar rækti það, og hefur þeim skoðunum ævinlega verið fylgt eftir með samtökum, und- irskriftum og áskorunum. Að- eins siðsta árið eða svo hefur Gunnar þótt sjálfkjörinn i emb- ætti Landsbankastjóra, Há- skólaprófessors, Hæstaréttar- dómara, Alþingismanns, vara- formanns Sjálfstæðisflokksins og formanns Sjálfstæðisflokks- ins en áður hafði hann sem kunnugt er verið m.a. borgar- stjóri, fjármálaráðherra, sendi- herra og f’orsetaframbjóðandi og er þá engan veginn fulltalið. NU siðast er hafin harðvítug sókn fyrir þvi að gera þennan fjölhæfasta Islending allra tfma að dómsmálaráðherra. Um Gunnar Thoroddsen má þannig segja með hliösjón af þvi sem Jón biskup ögmundsson mælti um Isleif Gissurarson, svo að enn sé haft mið af þvi sem bezt hefur verið sagt um hina mæt- ustumenn: Þá kemur mér hann ihug, er ég heyri lausrar stöðu getið.” Þetta er ekta Austra-still: Ó- Vala og Gunnar viö upphaf kosningabaráttunnar fyrir forsetakjörið i júni 1968: „Þau hefðu sómtsér velá Bessastöðum.” Jón Baidvin Hannibalsson skrifar þokkaleg illkvittni og — leiftr- andi still. NU hefur sem kunnugt er heldur betur orðið póliti'sk loftslagsbreyting á ritstjórnar- skrifstofum Þjóðviljans. Aya- tollah Thoroddsen hefur þar fyrir löngu verið tekinn f dýrl- ingatölu og er skipað á bekk með byltingarforingjum 3ja heimsins þeim félögunum Che Guevara, Castro og Arafat. Þvi hafði nU ekki verið spáð hér áð- urfyrr um hinn stórættaða höfð- ingjason Sjálfstæðisflokksins, af ættum Thoroddsena, Claessena, Sivertsena, og Briema! Meira en helmingur bókar- innar ereins og áður sagðihelg- aður atburðum seinustu ára og áratugar: Póltisku heljarstökki söguhetjunnar úr Hæstarétti yf- ir I hibýli forsætisráðherra i gamla StjórnarráðshUsinu við Lækjartorg. Sú saga er næsta kunn flestum áhugamönnum um stjórnmál. Satt að segja bætir Gunnar fáu nýju við þa sögu. Undirrituðum lék nokkur for- vitni á að vita, hvernig Gunnar skýrði það, að á blaðamanna- fundi fyrir kosningarnar 1979, þegar „leiftursóknin” umdeilda var kynnt sem kosningastefnu- skrá Sjálfetæðisflokksins, sat Gunnar Thoroddsen Geir Hall- gri'mssyni, formanni, á vinstri hönd, og lagði fram sinn skerf við að kynna stefnuskrána. Menn sem eru vel húsum kunn- ugir innan Sjálfstæðisflokksins, vilja ekki kannast við, að Gunn- ar Thoroddsen hafi fyrirfram gert nokkurn ágreining um þessa stefnuskrá, enda þótt hann, eftir á, réttlætti stjórnar- myndun sina m.a. með visan til sliks ágreinings. Og þegar Ólaf- ur spyr um efnisatriðin: „Varstu andvigur einhverjum þeirra?” —verðurfáttum svör. I stað þess að gera grein fyrir slikum ágreiningsefnum fer Gunnar að ræða um Búrfells- virkjun (bls. 174) sem varla get- ur talizt kjarni málsins. Eitt er það i sambandi við að- dragandann að stjórnarmyndun Gunnars, sem vekur sifellt upp spurningar, sem enn hefur ekki verið svarað. Það er spurningin um sætaskiptingu þingmanna i efri og neðri deild, sem i reynd réði úrslitum um það, að Gunn- ari tókst að merja þingmeiri- hluta i báðum deildum. Um þetta segir Gunnar (á bls. 176): „Ef pólitisk hugsjón var á bak við samstarf formanna Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins um myndun flokks- stjórnar Alþýðuflokksins I októ- ber 1979, mátti ætla, að reynt yrði að tryggja, að þessir flokk- ar gætu náð saman um stjórnar- samstarf eftir kosningar. Frumskilyrði þess var að sjá svo um að þessir flokkar, sem voru með 32 þingmenn á móti 28 þingmönnum hinna tveggja flokkanna, hefðu meirihluta i báðum deildum Alþingis.” Þetta fór þannig að Framsókn og Alþýðubandalag gerðu með sér bandalag og fengu með sér 10 menn kosna til efri deildar, á mótí 10 þingmönnum Sjálfstæð- isflokks og Alþyðuflokks. Þann- ig tryggðu þeir sér stöðvunar- vald f efri deild og Utilokuðu i reynd, að tilraun yrði gerð til myndunar viðreisnarstjórnar. Þetta gátu Sjálfstæðis- og Al- þýðuflokksmenn útilokað, með sameiginlegu framboði, sem hefði tryggt þeim 11 þingmenn gegn 9 i efri deild, 21 gegn 19 i neðri deild og 32 gegn 28 i' Sam- einuðu þingi. Um þetta segir Gunnar: „Þessi möguleiki var ekki nýttur, hvort sem það hefur stafað af þvi að Alþýðuflokkinn brast kjark til að taka upp slika Framhald á bls. 12 ^HITACHI RYKSUGUR Verð kr. 1.295,- og kr. 1.450,- IVilberg & Þorsteinn I |Laugavegi 80 símar10259-12622j

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.