Vísir - 06.01.1969, Side 3
V1SIR . Mánudagur 6. janúar 1969.
PRESSULEIKURINN VARÐ AÐ
HÁLFGERÐUM SKRÍPALEIK
Kæruleysi „pressu"manna um oð kenna —
landsliðsvörnin fékk fá tækifæri fil oð
spreyta sig
0 VONANDI var sigur
landsliðsins okkar yfir
pressuliðinu ekki eintóm
heppni, — það væri ósk-
andi að geta liðsins sé í
réttu hlutfalli við sigur-
inn, 21:15, en það er orð-
in nokkuð langt síðan lið
blaðamanna hefur beðið
slíkan ósigur sem þennan
fyrir landsliði, — oftast
hefur leikur liðanna ver-
ið mjög jafn.
Engu að síður var eins og
menn hefðu það á tilfinning-
unni að ekki væri allt eins og
það átti að vera í seinni hálfleik
hjá pressuliðinu. Þá misheppn-
aðist flest í sóknaraögerðum liðs
ins, en boltanum gloprað hvaö
eftir annað til landsliðsmanna,
sem áttu greiðan aðgang aði
marki mótherjanna.
Pressuliðið virtist missa trúna
á sjálft sig í síðari hálfleik,
varnarmennirnir góöu voru þá
hvorki góðir vamarmenn né
heldur sóknarmenn, yfirburöir
landsliösmanna voru algerir á
öllum sviðum. Nálgaðist leikur
pressuliðsnis að vera tómt kæru
leysi.
í dag mun stjóm Handknatt-
leikssambands íslands tilkynna
blaöamönnum um val landsliðs-
nefndar á landsliðinu, sem kepp-
ir um næstu helgi gegn Tékkum
Geir stekkur léttilega inn á línuna og skorar hjá Pétri.
Júdódeild
Armanns
Vegna mjög mikillar aðsóknar að æfingum
hjá deildinni, bæði í Júqó og líkamsrækt, eru
þeir, sem ætla að æfa í jan., febr., marz, beðn-
ít um ao hafa samband við skrifstofuna nú
þegar, að Ármúla 14. Sími 83295, eftir kl. 13.
í Laugardalshöillinni, E. t. v. hef-
ur leikurinn í gær verið þörf
áminning til nefndarinnar um
hvemig EKKI á að velja lið, —
liðin vom nefnilega ákaflega
undarlega samansett, sitt á
hvom mátann, landsliðið hlaðið
upp með skyttuliði félaganna,
blaðaliðið með varnarmönnum.
Það hefur oftast reynzt bezta
lausnin aö blanda þessu saman
í eina Ijáfa blöndu og eflaust
veröur það reyndin hjá hinni
alvísu landsliðsnefnd.
Leikurinn þróaðist allvel fyrir
landsliöiö í byrjun, 3:0 áður en
pressuliðið skoraði. Engu að síö-
ur tókst pressuliðinu að ná sér
á strik, jafnaði í 6:6 og komst
yfir og í hálfleik var staðan 8:7
eftir allgóðan leik beggja liða.
Seinni hálfleikurinn var eins
og kæruleysisleg og vandræða-
leg æfing hjá pressuliðinu, — en
landsliðið slakaði ekki hið
minnsta á, sigurinn var því þess
mjög örugglega og benti allt til
þess mjög snemma. Jafnvel úr
vítaköstum reyndist pressu-
mönnum ekki unnt að skora.
Sigurinn varð 21:15 fyrir lands-
liðið og má það vel við una.
í raun réttri fékk landsliðs-
vörnin ekki rétta mótstöðu í
þessum leik, það vantaði virki-
lega ógnandi leikmenn til þess
að svo yrði. Mitt álit er það,
aö vörnin sé ekki nægilega sterk.
Hún þarf að lagfærast, nóg er
til af sterkum varnarmönnum,
sem örugglega þarf á að halda
gegn Tékkunum.
Áhorfendur voru margir að
þessum leik og fengu ekki þá
skemmtun, sem búast mátti við.
Bræðurmr áttu 17 skot og
skoruðu 12 mörk
Landsliösþjálfarinn, Hilmar Björns-
son, lét gera fyrir sig skrá yfir ein-
staka leikmenn í pressuleiknum, til
að geta áttað sig á getu þeirra.
Bræðurnir Öm og Geir Hall-
steinssynir komu sannarlega vel út
í skotum sínum, öm skaut 9 sinn-
um og skoraði 6 mörk, en Geir
skoraöi 6 mörk úr aðeins 8 skotum.
Ölafur Jónsson átti 4 skot og skor-
aði úr þeim öllum! Þó var bezti
maður pressuliðsins i markinu,
Hjalti Einarsson.
Þá var ýmislegt fleira um þá
bræður að segja, t. d. vom línu-
sendingar Geirs mjög vel heppn-
aðar og átti hann þannig 5 línu-
sendingar í Ieiknum.
Kennum í Árbæjarhverfi.
DANSSKÓLI
Kennsla hefst frá og með
þriðjudeginum 7. janúar.
Nemendur mæti á sömu
dögum og tímum og þeir
höfðu fyrir jól.
ASTVALDSSONAR
Innritun nýrra nemenda
í barnaflokka, unglinga-
flokka og fullorðinsflokka
(einstaklinga og hjóna)
er hafin.
Reykjavík sími 2-03-45 kl. 2—7
Kópavogur sími 3-81-26 kl. 2—7
Hafnarfjörður sími 3-81-26 kl. 2—7
Keflavík þriðjudaginn 7. jan. kl. 2—7
í Ungmennafélagshúsinu sími 2062.
Athugið: Nemendur, sem ætla í framhaldsflokka eru beðnir að panta
strax, því kennsla hefst frá og með 7. jan. Byrjendur byrja eftir 10. jan.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
000
B0I