Vísir - 27.01.1969, Qupperneq 3
Loks unaum við„stórt"í Luugurdul
Island — Spánn 25:17 i gær — Áhorfendur
fögnuðu sigrinum innilega — Sigrarnir aðeins
4 i 21 leik frá opnun Laugardalshallar
□ Það er sjaldgæft, því miður, að áhorfendur að
landsleik yfirgefi Laugardal eins glaðir í bragði
og í gær. Þá loks vann íslenzkt landslið stóran sig-
ur yfir erlendum keppinaut. Þetta var 21. landsleik-
ur íslands í höllinni, — og aðeins 4. sigurinn. 1 þess-
um leikjum hefur fsland tapað 16 sinnum og gert
eitt jafntefli, gegn Svíum. Þeir, sem við höfum unn-
ið, eru Spánverjar í tvígang, Danir í fyrra með 15:10
og Pólverjar í HM.
Vissulega var gaman að sjá
einbeittan og stórkostlegan sókn
arleik liðsins, frábæran leik
Geirs Hallsteinssonar og Hjalta
Einarssonar í markinu. Og sig-
urinn, — 25:17 var stór og
gerði hvort tveggja, gerði leik
menn ánægðari og sjálfsörugg-
ari, og áhorfendur fengu lang-
þráðan draum, SIGUR. Það hef-
ur verið hamrað á því við HSl
að reyna að fá léttari andstæð
inga, en þau lið sem hingað
Öxar v/ð
I /
ana
Bfct er það, sem oft gleymist
í frásögnum af íþróttaviðburðum
í Laugardal, en það er skemmti-
leg framkoma og leikur Lúðra-
srveitar Reykjavíkur. Er ástæða
til að þakka hljómsveitinni og
stjómanda hennar, Páli P. Páls-
syni fyrir gott framlag fyrir
leiki.
Nú um helgina tók hljómsveit
in upp á því að leika „Öxar við
ána“ þegar leikmenn gengu inn
á völlinn til leiks. Lagið er sann
kallaður hvatningasöngur, —
og hver veit nema þetta hafi ó-
bein áhrif á liðsmenn, ekki er ég
í vafa um að þetta gerði tals-
verða stemningu í röðum á-
horfenda.
—jbp—
hafa komið sem hafa ævinlega
veriö í hópi þeirra sterkustu.
Geir Hallsteinsson og Hjalti
vom svo sannarlega mennirn-
ir bak við sigur Íslands. Hjalti
varði betur en nokkru sinni og
Geir var sannarlega í essinu
sínu. Hvað eftir annað fékk
Hjalti langvarandi klapp frá á-
horfendum og Geir sömuleiðis
en liðið í heild fékk mikið
klapp og húrrahróp að laun-
mn eftir leikinn.
Samt virðist þessi leikur ætla
að verða einhvers konar mar-
tröð. Eftir tiltölulega léttan sig-
ur daginn 'áður, opna Spánverjar
með því að leika sér aö vöminni
okkar og skora 2 fyrstu mörkin.
Öm skoraði fyrsta mark íslands
eftir 5 mínútur, en Geir jafnar
úr víti. Spánverjar skora 3:2,
en Geir jafnar og enn halda
Spánverjar forystunni en Geir
jafnar.
Loks skorar Sigurður Einars-
son laglega af línu, en Geir gaf
á hann fallegan bolta, og þetta
varð upphafið af fslenzku línu-
spili, sem átti eftir að gefa
góða raun. Um miðjan hálfleik
var staðan 6:5 en þá skora fyrst
Geir og síðan Stefán Jónsson af
línu. Þá kemur 8:6, en Geiir og
Ólafur Jónsson skora. Þá eru
10 min til hálfleiks og staðan
10:6 fyrir Island. Spánn nær'
10:7, en nú tekur ísland öll
völd, örn skorar úr vítakasti,
Stefán skorar af línu með harö-
fylgi sínu með sendingu frá
Emi, Hjalti ver hvað eftir ann-
að, en Jón Karlsson bætir við
GEIR HALLSTEINSSON, maðurinn bak við tvo sigra Iandsliðsins um heigina. Hér skorar
Geir ákaflega léttilega af iínunni.
13:7 og Örn á síðustu sekúndu
leiksins beint upp úr auka-
kasti 14:7. Þessir yfirburðir í
hálfleik áttu að verða nægir.
Seinni hálfleikurinn varð jafn
ari, þótt munurinn færi upp í
9 mörk. Sigur íslenzka liðsins
var aldrei í nokkrum vafa. Lið-
ið reyndi sig áfram með leikað-
ferðir sfnar og tókst misjafn-
lega. Þaö var hraöi og fjör í
sóknunum, en persónulega
fannst mér vörnin slök, en
Hjalti og síðast hinn ungi Emil
Karlsson stóðu sig vel engu aö
síður. Greinilegt er aö miðja
vamarinnar er stórt vandamál.
Það sem fslenzka liðiö vinnur
á er að allir geta skotið. Þannig
var gaman að sjá Jón Karlsson
og Ólaf Jónsson reyna skot sín,
að maður tali ekki um Örn Hall
steinsson og Geir. Þá var greini
legt að Ólafur Ólafsson getur
skotið, en hann var dálftið út úr
spilinu hjá liðinu og komst því
ekki í mörg tækifæri. Þá sýndi
Bjami Jónsson greinilega aö
hann getur skotið í gegn. Vissu-
lega er þetta stór kostur. Spán-
verjar höfðu aðeins 3 menn, sem
virtust geta skotið
Leikurinn fór svo að ísland
var með 8 mörk yfir, þegar dóm
ararnir dönsku flautuðu af. Þeir
höfðu átt heldur lélegan dag.
Spánverjarnir léku allt of rudda
lega vöm, sérstaklega f seinni
hálfleik, og hefðu 2—3 þeirra
mátt ,,hvila sig“ ofurlítið. —
Gengu sumir algjöran bersherks
gang og vom líkastir nautum í
nautaati.
Islenzkt lið hefur oftast verið
leikreyndara en það sem átti við
Spánverjana. Samt tókst liðinu
mætavel upp þótt eflaust megi
lagfæra það fyrir leikinn viö
Dani og Svía í byrjun næsta
mánaðar ... Greinilegt er að hér
er uppistaðan, — en Jóns
Hjaltalíns og Ingólfs var vissu-
lega saknað.
375 gegn 402
• Eins og fram kemur hér
í blaðinu hefur islenzka
landsliðið nú leikið 21 landsleik
í Laugardalshöllinni frá opnun
hennar 12. des. 1965. Hafa 16
leikjanna tapazt en fjóra unnu
íslendingar og einn varð jafn-
tefli
• Markatalan úr þessum leikj
um er okkur heldur óhag-
stæö, en hefur rétt við nokkuð
eftir leikina við Spán, er nú
375 skomð af Islandi gegn 402,
sem erlend lið hafa skorað.
Flugfrakt
Vöruflutningar í lofti fara stöðugt
vaxandi um allan heim. Flugfraktin
er lyftistöng nútíma-
viðskipta, svo á
íslandi sem annars
staðar í heiminum.
Flugfélagið veitir beztu þjónustu
í vöruflutningum innanlartds og milli
landa.Hinar tíðu ferðir
félagsins auðvelda og flýta
fyrir viðskiptum heima
fyrir og við umheiminn.
Hraði,
sparnaöur
ÞOTUFRAGT
FLUCFÉLAG ÍSLANDS
________FORYSTA í ÍSLENZKUM FLUGMÁLUM
mmmmmmmmmmummmmmunmmmmmmmummmm^
©AUGLÝSINCASTOFAN