Vísir - 09.05.1969, Blaðsíða 2

Vísir - 09.05.1969, Blaðsíða 2
VINNUM VIÐ NORRÆNU SUND- KEPPNINA EFTIR FIMMTÁNÁR? I sumar verða 55 þús Islendingar að synda 200 metrana eigi jbað að takast □ í ár þarf 55 þús. ís- lendinga til að synda 200 metrana, eigi ísland að fara með sigur af hólmi í Norrænu sundkeppn- inni, sem verður nú hald- in í 7. skipti. Meira en fjórði hver landsmaður þarf því að synda þenn- an spöl, eigi bikarinn, sem Friðrik 7. Dana- kóngur gaf, að hafna hér heima. Norræna sundkeppnin hefst 15. maí þ.e. á fimmtudaginn kem ur, sem er uppstigningardagur. Stendur keppnin í sumar og til 15. september. Síðast, þegar keppt var, fyrir þremur árum, syntu alls 32836 íslendingar eöa 17% af þjóðinni. Bezt var þátt- takan 1954, þá syntu 38 þUs. manns, eða 25,2%, fjórði hver maður, einmitt eins og þarf í dag að sögn sérfræðinganna, til aö við sigrum. ísland sigraöi 1 fyrstu keppninni, þá syntu 25% eða 36037 manns. Sigurvegarar síðan hafa ver- ið Svíar, þ.e. 1954 og 1957, Norðmenn 1960 og 1966, og Dan ir 1963. — í ár vonast menn til að rööin sé aftur komin aö íslandi eftir 15 ár. íslendingar hafa löngum verið óánægðir með þær grundvallar tölur, sem miðað hefur verið við, en tillögur Sundsambands íslands f þessu efni hafa verið teknar til greina að nokkru leyti. Var þannig samþykkt á ráð- stefnu sundsambanda Norður landanna 1965 að taka til grund vallar summu tveggja hundraös talna þ.e, miðað við þátttöku hverrar þjóðar miðað við íbúa- fjölda, og bætt við þaö aukningu frá síðustu keppni. f ár er raunar stefnt aö því að aðeins betur en fjóröi hver maður syndi eða 27%. Mjög mikil aukning hefur orð ið á fólki með sundkunnáttu und anfarin ár og sömuleiðis hefur sundstöðum fjölgað, og aðsókn að þeim farið stórvaxandi. Gera menn sér þvf góðar vonir um sigur að þessu sinni, — en ef svo á að verða þarf sterk sam tök um allt land. Kastæfingar utanhúss Æfingar stangaveiðimanna og keppniskastmanna innanhúss sl. vetur voru ákaflega vel sóttar, eða stundum um og yfir 60 manns i Laugardalshöllinni á sunnudags- morgnum, sem var æfingatíminn. — Inni-æfingunum er nú lokið, en úti-æfingarnar að hefiast. Þær verða í maí og fram yfir miðjan júní á þriðjudags og fimmtudags- kvöldum kl. 20—22 viö Rauðavatn, og á „Háskólatúninu“ sunnudaga kl. 9—12 og miðvikudagskvöld kl. 20—22. Öllum áhugamönnum er heimil þátttaka og menn geta mætt beint á æfingastöðunum án fyrir- fram þátttökutilkynninga. Á æf- ingunum eru að jafnaði til staðar vanir leiðbeinendur til aðstoðar þeim sem þess kunna að óska. FÉLAGSLÍF Knattspyrnufélagið Víkingur. — 2. flokkur. Æfingar í sumar verða á mánud., miðvikud. og föstudög- um kl. 8.15. — Þjálfari. EVA SIGG í Laugardalslauginni i góða veðrínu snemma í morgun. Hún er 17 ára og Norðurlandamethafi í fjórsundi. F innskur methafi Norðurlanda- þjálfar hér Eva Sigg verður meðal þáttakenda á 70 ára afmælismóti KR I. júni EVA SIGG heitir Norðurlanda meistarinn í 400 metra fjórsundi kvenna. Hún er aðeins 17 ára og finnsk. Þessa dagana dvelur hún á íslandi og æfir undir hand- leiðslu þjálfara sins, sem heitir þvi dæmalausa erflða nafni Myyrryalainen og var „rænt“ frá Finnum af KR-ingum s.l. haust. Eva Sigg verður meðal þátt- takenda í afmælissundmóti KR í Laugardal sunnudaginn 1. júní en hún er mjög góö skriðsunds- kona og þá einkum i lengri vega lengdunum. Eva stundar æfingar af miklu kappi syndir snemma á morgn- ana í Laugardalslauginni, en á kvöldin í Vesturbæjarsundlaug inni. Á sundmóti KR verður keppt i 11 greinum karla og kvenna og tveim sundum fyrir sveina og telpur. Tilkynningar um þátt- töku eiga að berast Erlingi Þ. Jóhannsyni, Sundlaug Vestur- bæjar fyrir 22. maí. /Sf>iíír*<S\ \m) ^vroiKJ*1 ^ FÉLAG ISLENZKRA BIFREIÐAEIGENDA efnir til almenns félagsfundar í Sigtúni við Austurvöll mánudaginn 12. maí kl. 20.30. Fundarefni: Vegamál og bensínverðið Afnotagjald útvarpstækja Félagsmenn, fjölmennið og takið með ykkur gesti. FÉLAG ÍSLENZKRA BIFREIÐAEIGENDA NÝ SKÓSENDiNG ÍTALSKIR KVENSKÓR ÍTALSKIR KARLMANNASKÓR ÍTÖLSK LEÐURVESKI SÓLVEIG Lougavegi 69 Hofnarstræti 15

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.