Vísir - 09.05.1969, Blaðsíða 7

Vísir - 09.05.1969, Blaðsíða 7
VÍSIR . Föstudagur 9. maí 1969, 7 STÁL- HÚSGÖGN Viðgerc&r og bólstrun, áklæði í litaúrvali. Sækjum — sendum. SÍMI: 92-2412. • Norræn leikaravika hefur staðiö yfir i Reykjavík að undanförnu. A myndinni eru Klemens Jóns- son leikari, Brynjólfur, Bessi, Kristbjörg Kjeld og Gísli Alfreðsson meö fjórum leikkonum, sem hingað komu í tilefni af vikunni. • Opið hús fyrir gamla fólkið hefur gefizt vel og lofar góðu um framtíðina. Myndin var tekin af gamla fólkinu i Tónabæ, sem raunar flestir kalia enn Lidó, — þar sem það situr við blaðalestur. • Hvaö er list? H.vaÓ er listrænt fáim og fákunnátta? Myndlist- aemenn hékia nýlega fond og beindu áskorun til útvarpsráðs um að almenn myndlistarfræðsia veröi tekin upp í sjónvarpinu. Segja myndlistarmenn, að vaxandi sé uppvöðslusemi fúskara og fákunn- andi í þessari grem og hér skorti aðhald og vilja til að glöggva sig á hvaö myndlist sé og hvað ekki. Lögöu myndlistarmenn til á fund- inum að stofnað verði sérstakt emb- ætti við sjónvarpið, — myndlistar- fuiltrúi. • Menntaskólakennarar hafa sent Alþingi bréf, þar sem fagnaö er undirtektum, sem frumvarp til laga um menntaskóla hefur hlotið á þingi. Er skorað á alþingismenn að veita frumvarpinu fullnaðaraf- greiösiu þegar á yfirstandandi þingi. # í blaðinu Neisti, sem Æskulýðs- ■fylkingin gefur út er eytt hátt í síöu í autt rúm, en þar stendur aðeins: VIÐTAL viö Guðmund J. Guðmundsson, varaformann Dags- brúnar, átti að vera hér. En reynd- ist ófáanlegt. ® Jóni Leifs var reistur minnis- varði nú nýlega í Fossvogskirkju- garði og stendur varðinn á leiði tónskáldsins, sem hefði orðið 70 ára 1. maí s.l. Fór fram athöfn af þessu tilefni og kom þá fram hjá þeim Skúla Halldórssyni og Jóni Ásgeirssyni, formönnum STEFs og Tónskáldafélagsins, að gefin verður út bók um ævi Jóns Leifs að til- hlutan síðamefnda félagsins. ® VOLCANO: BIRTH OF AN IS- LAND er yfirskrift í geysimikilli auglýsingu CBS-sjónvarpsstöðvar- innar í Bandaríkjunum i amerísk- um dagblöðum nýlega. Þar er aug- lýst „fæðing Surtseyjar“, sem va'r sjónvarpsefni hjá stöðinni í frétta- auka, sem Charles Kuralt stjórnaði. • K. Einarsson og Björnsson, eitt elzta leikfanga- og búsáhaldafirma höfuðborgarinnar hélt upp á 50 ára afmæli sitt 7. maí s.l. Fyrirtækið var stofnað af Kristni Einarssyni og Hjalta Björnssyni. Framkvæmda- stjóri nú er Rúdolf Kristinsson. Ottó Schopka: SPiALLAÐ m IÐNÞRÓUNINA NÝJAR FJÁR- ÖFLUNARLEIÐIR jyjeistarasamband bygginga- manna hélt aðalfund sinn í síðasta mánuði, þar sem ýmis hagsmunamál byggingameistara voru rædd. Fundurinn gerði ýms ar ályktanir, m. a. lýsti hann stuðningi við framkomið laga- frumvarp Matthíasar Á. Mathie- sen um skattfrelsi hlutabréfa og arðs af þeim, en það ætti að geta oröið til þess að ýta veru- lega undir áhuga almennings á fjárhagslegri þátttöku í atvinnu- rekstri. Athygli margra ráöamanna þjóðfélagsins beinist nú mjög að þeim mikla skorti á eigin fjár- magni, sem er eitt meginein- kenni íslenzks atvinnurekstrar í dag. Til þess aö ráða bót á því eru einkum til tvær leiðir og verður að fara báöar samtímis. Önnur er sú að stuðla að aukinni eiginfjármyndun í rekstri fyrir- tækjanna, þ. e. að auka arðsemi þeirra og stuðla að því að sú eiginfjáraukning verði áfram í fvrirtækjunum og notuð til á- framhaldandi uppbyggingar og aukningar á rekstrinum, en hin leiðin er að fá nýtt fé inn í fyrir- tækin frá utanaðkomandi aðil- um. Á því sviði eru miklir mögu- leikar fyrir hendi og með til- tölulega einföldum breytingum á skattalögunum má áreiðanlega ná verulegum árangri. Um leið er nauðsynlegt, að komiö sé á fót opnum markaði fyrir hluta- bréf í þeim hlutafélögum, sem hæf þykja, þar sem opinber verðskráning færi fram. Fyrrgreint lagafrumvarp mió- ar að því aö leiðrétta þaö mis- rétti, sem nú á sér staö við skattlagningu annars vegar hluta bréfa og arös af þeim og hins vegar sparifjár og vaxta af því. Raunar væri misréttið ekki að fullu leiðrétt á meðan sparisjóðs innistæöur og vissar tegundir skuldabréfa eru jafnframt ekki framtalsskyldar og væri því nauðsynlegt og réttmætt að taka upp framtalsskyldu fyrir þess- ar tegundir eigna ekki síður en aðrar. 1 álvktun aóalfundar Meistara- sambandsins segir ennfremur, að ekki megi dragast að opnað- ur verði veröbréfamarkaður, þar sem skipuleg verðbréfaviðskipti fari fram, en með því móti mundi byggingariðnaðinum verða skapaðir nýir möguleikar til fjármagnsöflunar. Sá samdráttur í almennum byggingaframkvæmdum, sem átt hefur sér stað á undanförnum 2 árum á ekki rætur sínar að rekja til þess, að ekki sé þörf fyrir eins mikið íbúðarhúsnæði og byggt hefur verið á undan- förnum árum. Meginorsök sam- dráttarins er fjármagnsskortur veðlánakerfisins og húsbyggj- enda almennt. Þess vegna þarf að gera veðlánakerfinu kleift að afla sér verulega aukins fjár- magns nú á næstunni, ef það á að geta gegnt hlutverki sínu ms-1 viðunandi móti. Kemur þá mjög til greina, aö veðlánakerfið afli sér starfsfjár með sölu skuldabréfa á opnum markaði, en til þess að slík bréf séu seljanleg þyrftu þau að vera með nokkuó hliðstæðum kjör- um og spariskírteini rikissjóðs. Bréfin þyrftu ekki að verá til jafnlangs tíma og lánin til hús- byggjenda, því a-ð auðvelt ætti að vera að afla fjár til enaur- greiðslu skírteinanna umfram. það sem endurgreiðist af lán- unum, með útgáfu og sc.!u nýrra skirteina. Ef rétt er á málum haldið, væri tvímælalaust hægt að gera mikið átak í þessum efnum Um leió þyrfti að gera bönk- um og öörum innlánsstofnunum kleift að bjöða innstæðueigend- um hliðstæö kjör, til þess að koma í veg fyrir að þessar lána- stofnanir missi starfsfé sitt. í miklum mæli, og um leið þarf að skapa þeim nýja útlánamögu- leika, þar sem heimild til vísi- tölubindingar væri tekin upp. Þessir möguleikar, sem hér hefur verið drepið á, og ýmsar fleiri mundu opnast, ef tekin væru upp opinber verðbréfavið- skipti. Mikil nauðsyn er á stórauk- inni innlendri fjármagnsmyndun ef hægt á aö vera að halda á- fram þeirri öru uppbyggingu, sem hér er svo nauðsynleg. Sú fjármagnsmyndun mun aldrei geta átt sér stað við það stöð- uga og langvarandi verðbólgu- ástand, sem hér hefur verið, nema fjármagnseigendum sé tryggt, að verðmæti sparifjár þeirra verði ekki að engu í verð- bólgunni. Þess vegna er nauösyn legt.að taka upp miklu almenn- ari verðtryggingu sparifjár og lána en nú á sér stað. Aöeins með því móti er hægt að búast við aukinni innlendri fjármagns- myndun. A EIJVUM STAÐ TEPPAHUSIÐ FóiS þér íslenzk gólfteppi frót TEPPIV ILltinta Ennfremur.ódýr EVLAN feppf. Spadð tíma og fyrirfiöfn, og varzflÖ ó etnunvsföíf. ISUÐURLANDSBRAUT10. REYKJAVHC PBOX1311

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.