Vísir - 20.05.1969, Side 4
■R!'^•i'wnnmwiunmiJk ,w«w' ■aro^BjBSiaw!1"
ístenzkur sjómaður
nær í eiginkonu
með fiöskuskeyti
Brezka blaðið „News of the
World“ hefur efnt til samkeppni
meðal lesenda sinna um ástarsög
ur. Þessar sögur eiga að vera
sannar, og fjalla um eigin reynslu
höfundanna af ástinni.
I þessari keppni mun hafa verið
skýrt frá fjölmörgum furðulegum
atvikum, en einna furðulegust er
sagan af íslenzka sjómanninum,
sern var svo einmana, að hann
skrifaði ástarbréf og setti það í
flösku, sem hann fleygöi síðan
útbyrðis,
Flöskuskeytinu skolaði svo upp
að Englandsströndum, þar sem
einhver yngismær fann það ög
komst við af raunum sjómanns-
ins norður í höfum.
Þetta varð tilefni frekari kynna,
og segir blaðið að höfundur
bréfsins í flöskunni, og stúlkan,
sem fann það, séu trúlofuð og
muni ganga í heilagt hjónaband
á næstunni.
Frá þessu segir sem sagt í blað-
inu, og við seljum það ekki dýr-
ara en við keyptum það.
Handa stórreykingamönnum
Þau hafa gifzt 17 sinnum
Það mundi taka stórreykinga-<»>-
mann um það bil 3 ár að reykja i
þessa risapípu, sem tekur 23,5 kg |
af tóbaki í einu.
Pípusmiðurinn, Otto Pollner, I
fullyrðir að þessi pípa sé af fyrsta ]
gæðaflokki. Hann er pípukaup- j
maður að atvinnu, og býður
gjarna kúnnum sínum að fá sér
reyk úr pipunni, en við munn-
stykkið er fest gúmmíslanga, sem
menn geta sogið, ef þeir treysta
sér ekki til aö spígsporá með fer-
líkið í munninum.
Bandarísk hjónakorn hafa veriö
gefin saman í hjónaband alls tutt-
u0u og sjö sinnum. Þau hafa það
að takmarki að láta gefa sig sam
an í öllum hinum fimmtíu fylkj-
um Bandaríkjanna. Hjónin eru
Jim og Mary Grady frá Spring-
field í Illinois.
Þau segjast gera þetta til að
leggja áherzlu á, að þau séu mjög
mótfallin hjónaskilnuöum.
Ennfremur.ódýr EVLAN feppT.
Spaiíð tíma og fyrlrihðfn; og verziiS 6 einum sfaS.
SUÐURLANDSBRAUT10. REYKJAViK PBOX1311
BRÚÐARKJÓLL ÚR PAPPÍR
Hollywood-stjörnurnar, sem
gifta sig tíu—tuttugu sinnum á
ævinni, geta nú andað léttara, því
fram er komin nýjung í brúðar-
kjólagerð, sem gerir þá ágætu
flík mun ódýrari en verið hefur
til þessa.
Brúðarkjólar úr pappír eru ein
helzta nýjungin í tízkuheiminum,
og þeir hafa fleira til síns ágætis
en lágt verð, því að hinar marg-
giftu stjörnur eignast þar með
eiginhandaráritun eiginmanna
sinna til minja, því að pappírinn
í kjólnum er líka prýðilegur til
að skrifa á.
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••>
Spáin gildir fyrir miðvikudaginn
21. maí.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.
Leggðu sem mesta rækt viö
hversdagsstörfin, og minnstu
þess að margt smátt gerir eitt
stórt. Allt bendir til að þú getir
litið ánægður yfir dagsverkið að
því loknu.
Nautið, 21. apríl—21. maí.
Þú getur komið miklu í verk í
dag, en það kostar þig að vísu
nokkurt átak. Ef þú leitast við
að skipuleggja starfið nógu
snemma, þarftu minna fyrir því
aö hafa.
Tvíburamir, 22. maí—21. júni.
Þaö getur reynzt dálítið erfitt
fyrir þig að ná þeim afkasta-
hraða, sem með þarf í dag.
•Láttu það ekki hafa þau áhrif
á þig, að þú vandir ekki störf
þín eins og þú mundir ella gera.
Krabbinn, 22. júní—23. júli.
Það er ekki ólíklegt, að þú þurf
ir að koma fram í dálítið óvenju
legu hlutverki í dag — og stand
ir þig þar betur, en þú þorðir
að vona. Þetta getur haft tals
verða þýðingu fyrir þig.
Ljónið, 24. júlí—23. ágúst.
Þú virðist eiga góðu gengi að
fagna í dag. Taktu það samt
með í reikninginn að gengi er
oft valt, en ef þú tekur þessu
rétt og rólega, getur orðið nokk
urt framhald á þessu.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept.
Dagurinn er ekki sem bezt til
viðskipta eða verzlunar fallinn,
en hins vegar góður varðandi
ýmis þau mál, sem snerta til-
finningarnar. Gagnstæða kynið
kemur mjög við sögu.
Vogin, 24. sept.—23. okt.
Gamlar væringar, sem þú hélzt
eflaust löngu gleymdar, geta
minnt á sig i dag, sennilega þó
fremur á broslegan hátt en ó-
þægilegan. Allgóð aðstaöa i pen
ingamálum.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv.
Það lítur út fyrir að þú þurfir
að taka framkomu þína í ein-
hverju máli til gagngerrar at-
hugunar. Gerðu þér grein fyr-
ir þvi, að enginn minnkar við
það að stíga fyrsta skref til
sátta.
Bogmaöurinn, 23. nóv.—21. des.
Gefðu gaum að leiðbeiningum,
athugaöu hvað þar kemur að
einhverju leyti heim við skoðan
ir þínar, og hagnýttu þér það.
Þetta á einkum við hvað snertir
fjármál og atvinnu.
Steingeitin 22. des.—20. jan.
Það er ekki að vita nema þú
fáir einhverjar góðar hugmyndir
£ dag. Þú ættir aö minnsta kosti
ekki að varpa þeim fyrir róða,
einhver þeirra getur við athug
un reynzt nokkurs virði.
Vatnsberinn, 21. jan.—19. febr.
Þú lendir i eins konar einvígi
við aðila, sem ætlar sér að kom
ast fyrir sama hlut og þú, helzt
um stöðu eða aðstöðu sé að
keppa, og máttu hafa þig allan
við.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz.
Þú kynnist að öllum líkindum
einhverjum í dag, sem á eftir að
hafa talsverð áhrif á gang ým-
issa mála, sem ssierta þig sér-
staklega. Gerðu þér ekki of dátt
viö hann fyrst i stað.
• *••••••••••••€>••••••••• ••••••••• • •« ••••••••• •