Vísir - 20.05.1969, Blaðsíða 13
V Í SI R . Þriðjudagur 20. maí 1969.
13
KJALLARASIÐAN
Þeir, sem- einir geta
stjórnað ríki?
■ Aldrei hvarflaði að Fram-
sóknarmönnum að kenna
stjórnarstefnunni um það,
hversu Islendingar voru óvið-
búnir kreppunni, sem hófst
hér á landi 1930 og stóð með
vissum hætti aiít fram í
seinni heimsstyrjöid.
Framsóknarmenn höföu setið
einir í rikisstjórn frá 1927 og
var tímabilið fram að kreppunni
eitt mesta góðæristímabil, sem
landsmenn mundu frá aldamót-
um. Framkvæmdir jukust veru-
lega, eftirspurn eftir lánsfé varð
meiri en góðu hófi gegndi, skatt-
ar hækkuðu og erlendar skuldir
höfðu margfaldazt um það levti,
sem kreppan hófst. Landsmenn
voru þrátt fyrir góðærið gjör-
samlega ófærir um að mæta
þeim áföllum, sem nú tóku að
dynja á þeim vegna verðfalls á
erlendum mörkuðum og sölu-
tregðu. Skuldir bænda og út-
vegsmanna voru svo miklar að
beir fengu með engu móti risið
undir þeim, þegar verðfalliö tók
að segja til sín. Ástandið fór
hraðversnandi á fyrstu tveimur
árum kreppunnar og var síðar
gripið til skuldaskila, sem í flest
um tilfellum voru alls ekki full-
nægjandi. Til meiriháttar stjórn-
arráðstafana var ekki gripiö fyrr
en u. þ. b. einu og hálfu ári
eftir að kreppan skall á.
Tvennir tímar?
Eitthvað svipað þessu gerðist
nú rúmlega 35 árum seinna.
Þó má fullyrða að landsmenn
hafi verið færari um að mæta
sfðara verðfallinu en hinu fyrra.
í útvarpsumræðunum á dög-
unum lögðu stjórnarandstæðing-
ar sig alla fram við aö gera
stjórnarstefnuna tortryggilega
sem aðalorsök efnahagsvand-
ræða okkar. Verðfall og afla-
brestur var, eftir orðum þeirra
að dæma, nánast algjört aukat-
riði. Hvað mundu Framsóknar-
menn segja, ef stjórnarstefnunni
væri kennt um allt, sem aflaga
fór á fjórða áratugi aldarinnar,
og ekkert tillit tekið til óviðráð-
anlegra aðstæðna? í sögu Fram-
sóknarflokksins, sem Þórarinn
Þórarinsson ritstjóri tók saman,
og nær yfir tímabilið frá 1916
—1937, segir höfundur um góö-
ærisárin 1927—1930: „Næstu
fjögur árin urðu hér meiri al-
hliða framfarir en nokkru sinni
fyrr eða síðar.“ Hann vill ekki
þakka þetta góðærinu eingöngu
og segir: „Framfarasóknin hefði
samt ekki orðið eins mikil og
raun varð á, ef ekki hefði notið
við hinnar framsæknustu stjórn-
arforustu." Fáeinum blaðsíðum
síðar er skýrt frá lausn togara-
verkfallsins 1929. „Náðist sam-
komulag í togaradeilunni að lok-
um heima hjá Tryggva að nætur-
lagi. Sjómenn fengu verulega
kjarabót, en útgerðarmenn íviln-
un í sköttum". Ekki voru mögu-
leikar sjávarútvegsins tii að
veita kjarabætur orðnir meiri
en þetta. í bók sinni um Fram-
sóknarflokkinn gengur Þórarinn
Þórarinsson eðlilega út frá því
sem gefnu að verðfallið en ekki
stjórnarstefnan hafi verið aðal-
orsök efnahagsörðugleikanna.
Þórarinn Þórarinsson og flokks-
bræður hans hafa hins vegar
allt aðra skoöun á hliðstæðu
máli núna.
Oftrú
Þetta má auövitað afsaka og
segja: „Þetta er aðeins pólitísk-
ur áróður. En sú skýring er eng-
an veginn fullnægjandi. Það er
mikið til í því, sem Bjarni Bene-
SS « 33 4 35
HURÐIR - INNRETTINGAR
Innihurðir:
Eldhúsinnréttingar
— Sólbekki.
Smíðum
einnig:
Klæða-
skápa
Viðarþiljur
Leitið tilboða — Góðir greiðsluskilmálar
HURDIR OG KLÆÐNINGAR
Dugguvogi 23 - Simi 34120
diktsson forsætisráðherra segir,
þegar hann sakar Framsókn.ir-
menn um að tala í þeirri trú
að þeir séu einir færir um að
stjörna landinu. Þeir fullyrða og
ganga lengra en allir aðrir í þeim
efnum, að ekki hefði þurft að
koma til hinna miklu efnahags-
örðugleika nú, aðeins ef stjórn-
in hefði verið skipuð ráðvandari
og skynsamari mönnum, og vit-
urlegri ráðstöfun fjármuna hefði
átt sér stað. Nú þvkist ég vita,
að Framsóknarmenn vilji ekki
setja sama stimpil á ráðherra
sína frá fyrri kreppuárunum,
Tryggva Þórhallsson, Jónas
Jónsson og þá tvo menn, sem
gegndu fjármálaráðherraemb-
ætti fyrir kreppuna Einar Árna-
son og Magnús Kristjánsson. Og
enginn sakar Ásgeir Ásgeirsson,
sem siðar fór með fjármálin, um
það að innflutningshöiftin, sem
hann beitti sér fyrir 1931, komu
ekki fyrr en raun varö á, og
voru fyrstu meiri háttar gagn-
ráðstafanirnar í kreppunni. Það
sem tafði fyrir róttækum ráð-
stöfunum, ekki síður en trú
manna á því að um bráðabirgða-
ástand væri að ræöa, var þjark-
ið í byrjun kreppunnar um kjör-
dæmaskipunina. Framsóknar-
menn höfðu hlutfallslega miklu
fleiri þingmenn en aðrir flokkar
miðað við kjósendatölu. Þeir
héldu stjórn landsins í sínum
höndum í krafti úreltrar kjör-
dæmaskipunar. Eins og á stóð
virðist beinast liggja við að ætla,
að það hafi, aðeins. verið végna
þess að þeir trúðu því raunveru-
lega að þeir einir væru hæfir
til aö stjórna landinu, að þeir
gerðu allt sem í mannlegu valdi
stóð til þess að hindra breyt-
ingar á kjördæmaskipuninni, m.
a. meö þingrofi og nýjum kosn-
ingum meðan kreppan stóð sem
hæst. Þetta hugarfar virðist lítið
hafa breytzt úr því að þeir
standa í þeirri meiningu að unnt
hefði verið að forðast núverandi
efnahagsörðugleika, aðeins ef
þeirra stefna í efnahagsmálum
hefði fengið að ráöa.
fökum aö okkur hvers konar mokstur
jg sprengivinnu ( húsgrunnum o'g ræs-
um. Leigjum 'it loftpressur og víbra-
^leða. — Vélaleiga Steindórs Sighvats-
sonai Álfabrekku við Suðurlands-
Praut. slmi 30435.
Jfyí&ub&iGöúz
Deilt og þrasað
Það er deilt um allt milli him-
ins og jaröar, og ber það óneit-
anlega vott um nokkra grósku
flmönnum, og sýnir að íslending
ar eru ekki dauðir úr öllum æð-
um. Að visu e^u jdeilurnar um
kaup óg k|ör farnar að æra ó-
stöðugan og vildu flestir, að rík
isvaldið helði gripið inn í málið
fyrir löngu. Æ fleiri eru að kom
ast á há skoðun, að til bess hafi
þeir kosið yfir sig stjórnarherra,
að þcir taki í taumana og
stjórni röggsamlega þegar með
þarf. Forysta verklýðsstétta og
einnig forysta i samtökum
vinnureitenda Kefur sýnt, aö
hún veldur ekki erfiðri aðstöðu
á erfiðum tímum. þess vegna
ætti ríkisvaldið að hafa þegar
gripiö inn í deilumálin til að
vinnufriður héldist.
En bað er deilt á fleiri svið-
um. Popp-messur eru vinsælt
deiluefni, jafnvel meðal þeirra
sem aldrei fara í kirkjur, nema
til að vera við jarðarfarir. Prest
arnir virðast ekki lengur ná til
eyrna fólksins, svo að örvænt-
ingarfullar tilraunir eru gerðar
án þess að sýnilegt sé, að prest-
arnir mjókki bað bil sem mynd-
azt hefur á milli fólksins og
starfs þeirra.
Og svo eru það næturklúbb-
arnir, en um bá hefur staðið
nokkur styrr, sem vonlegt er.
Líkur eru samt fyrir því að
þeirri deilu sé að ljúk . þar eð
ekki sé allt með felldu að því
er varðar þessa klúbbstarfsemi.
IVIunu klúbbarnir vart rísa upp
að_ nýju t-svinaðri mynd, enda
stofnaðir eingöngu til að fara á
b'ak við gildáiidi lög um veitinga
húsarekstur. Hins vegar eru
mjög margir hlynntir því, að
settir verði á stofn næturklúbb-
ar, en þaö má alls ekki gera
þannig, að þeir hlíti ekki á-
kveðnum rekstrarlögmálum, og
þeir mega ekki verða óþverra-
búlur, þar sem drykkjusjúkir
eiga athvarf í niðurlægingu
sinni.
Og ekki rná gleyma bjórnum
þegar rætt er um vinsælustu
deilumálin, því fátt hefur þótt
meira gaman en jagast um björ-
inn. Talið er að Pétur og bjór-
inn séu að vinna á, en hins veg-
ar er fólk mjög áhyggjufullt
vegna bessa máls, því fæstir
gera sér grein fyrir, hvort
drykkjuástand þeirra sem veikir
eru fyrir muni versna eða að-
eins breytast. Sumir halda fram
að slæmt ástand muni batna,
en þetta verður fólk varla á-
sátt um, fyrr en á reynir.
Meðal kvenþjóðarinnar aðal-
Iega og unga fólksins var mikið
déilt um nýafstaðna fegurðar-
samkeppni, en auðvitað er fjar-
stæða að vera sammála um feg-
uröina frekar en annað, Enda
mundi það skapa slæmt ástand,
ef allir væru í þeim efnum á
sama máli. Aðrir létu sér fátt
um finnast og sögðu að allar
stúlkurnar hefðu bara verið hin
ar snotrpstu, bæði laglegar og
vel vaxnar.
En það er fleira vel vaxið á
islandi en uneu stúlkurnar, því
komið hefur í ljós, að íslenzka
sauðkindin er framúrskarandi
vel vaxin og hárrétt byggð. Það
er ekki íslenzkur sérfræðingur,
sem heldur þessu fram, heldur
hafðl eitt blaðið þetta eftir
sænskum sérfræðingi, svo þetta
hlýtur að vera næstum því satt.
Deiluefnin eru sem sagt mörg
og margslungin, og sýna þrátt
fyrir allt talsverðan lffsvott.
Hitt yrði vafalaust miklu í-
skyggilegra, ef þjóðin doðnaði
svo að hún nennti elcki að rífast.
Þrándur í Götu.
Gardinia gluggatjaldabraufir
fást einfaldar og tvöfaldrr. Með eða án kappa. Vegg-
eða loftfestingar.
GARDINIA-umboðið sími 20745.
Skipholti 17 A, III. hæð
STAL-
HÚSGÖGN
Viðgerðir
og bólstrun,
áklæði
í litaúrvali.
Mjög hagstætt
verð.
Sækjum —
sendum yður
að kostnaðar-
lausu.
SÍMI:
92-2412.