Vísir - 21.05.1969, Blaðsíða 8

Vísir - 21.05.1969, Blaðsíða 8
8 VÍSIR . Miðvikudagur 21. maí 1969. VÍSIR CTtgeíandi: ReyKjaprent b.t. Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjóifsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jöhannesson Auglýsingar : Aðalstræti 8. Simar L5610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðaistræti 8. Simi 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 145.00 *. mánuði innanlands I iausasöiu kr. 10.00 eintakið Orentsmiðja Vísis — Edda h.f. Olíuhreinsun athuguð á ný Jóhann Hafstein iönaðarmálaráöherra lagði á föstu- daginn fyrir Alþingi greinargerð um olíuhreinsunar- stöð á íslandi. Kemur þar fram, að málið er nú aftur komið í fullan gang eftir nokkurt hlé. Ýmsir erlendir aðilar hafa látið í ljósi áhuga á samstarfi að fram- kvæmd málsins. Viðræður hafa farið fram undan- farna mánuði og margþættar athuganir gerðar. Hitt er svo einnig ljóst af greinargerðinni, að enn ríkir óvissa um, hvort af framkvæmdum verður. Eitt meginsjónarmið íslendinga í þessum viðræðum hefur verið, að íslenzkir aðilar ættu stöðina að meiri- hluta og aö þar að auki mundu hinir erlendu aðilar skuldbinda sig til að selja íslendingum sín hlutabréf síðar. í greinargerðinni kemur fram sú hugmynd, að almenningi verði gefinn kostur á nlutafjáreign og fé- lagið verði opið hlutafélag. Það er rétt stefna að sækj- ast sem mest eftir þess háttar fjármögnun. Almenn- ingur hefur hingað til átt þess takmarkaðan kost að eignast hluti í góðum fyrirtækjum, — að taka þátt í uppbyggingu atvinnulífsins og hafa arð af henni, í stað þess að eyða fé sínu í margvíslegan óþarfa. Kostir olíuhreinsunarstöðvar eru margir. Áætlað er, að gjaldeyrissparnaður af henni muni nema um 300 milljónum króna á ári í upphafi oct síðan 400 milljón- um króna á ári. Slíkar upphæðir skipta verulegu máli í gjaldeyrisbúskap okkar. Þá munu um 300 manns fá vinnu við byggingu stöðvarinnar og um 150 manns við rekstur hennar. Ef til vill er samt mikilvægust hin efnafræðilega þekking, sem fylgir starfrækslu slíkrar stöðvar. Efna- iðnaður er einhver mesta framtíðargrein iðnaðar- þjóðanna um þessar mundir og krefst mikillar vís- indalegrar þekkingar. Efnaiðnaður byggist að miklu leyti á olíu, því að mikill hluti gerviefna nútímans er unninn úr henni. Það vill líka svo vel til, að olíuhreins- unin stuðlar að hagkvæmni sjóefnavinnslunnar, sem nú er verið að undirbúa. í sjóefnavinnslunni yrði með- al annars framleiddur klór. Úr klórnum og einni af- urð olíuhreinsunarstöðvarinnar, nafta. er framleitt plast. Þessi tenging sjóefnavinnslu og olíuhreinsunar skapar ótæmandi möguleika á plastiðnaði, — iðnaði framtíðarinnar. Olíuafskipti Rússa Qlíukaup íslendinga af Rússum hafa valdið miklum vandamálum og jafnvel vandræðum, þegar Rússar hafa ekki þótzt geta staðið við samninga um olíuflutn- inga hingað. Og í tveimur síðustu allsherjarvinnudeil- um hafa Rússar haft bein afskipti af innanríkismálum okkar með því að hafa uppi hótanir um að snúa við olíuskipum. íslendingar kunna þessari íhlutun illa, enda nær kenning Brehznevs flokksleiðtoga um tak- markað fullveldi sósíalistaríkja enn ekki til íslands. 'vl ) >f ■ Deilan um breytingar á vinnumálalöggjöfinni og andspyrna Callaghans innanríkis ráðherra gegn henni leiddi tii þess, að Wilson „auð- mýkti" Callaghan með því að víkja honum úr „innri stjóm- inni“ svonefndu eða „inner cab- inet“, sem helztu ráðherrar og trúnaðarmenn forsætisráðherr- ans eiga sæti í. I jyjiklar getgátur hafa síöan ver ið uppi um það hversu lengi Callagan geti þráazt við Callaghan var broshýr, er hann kom af fundi Wilsons, en á 25 mínútna viöræðufundi þeirra tjáði Wilson honum, að hann óskaði ekki lengur eftir að hann sæti fundi aðalstjórnarinnar. Sama óvissan og áður í brezkum verkalýðsmálum að biðjast lausnar, en það er eng um blöðum um það að fletta, að frávikningin úr innri stjóm- inni átti að vera skref í átt ina til þess, og um það efast enginn lengur, að Wilson finnst óþolandi að hafa Callaghan á- fram í stjóminni. Afstaða Callaghans í um- ræddu máli er hin sama og verkalýðshreyfingarinnar, for- ustu hennar og félaganna. Og í stjóminni hefir Callaghan greitt atkvæði gegn tillögum Barböru Castle, sem miða aö þyí að lengri tímí sé ætlaður til sam- komulagsumleitana, og að girt veröi fyrir skæruverkföll, en það eru einkum ákvæðin um hegn- ingu ef banniö við skæruverk- föllum er rofið, sem er verka- lýðnum þyrnir í auga. Aðalráðherrarnir styðja allir Wilson og Barböru Castle, vinnu og framleiðslumálaráðherra í málinu, en kurr hefir verið með- al yngri ráðherra, en Wilson tók þá til bæna í ræðu fyrir nokkru, og hafa þeir haft hægara um sig síðan. Hvemig þessum málum reiðir af er enn ekki vitað þegar þetta er skrifað en menn munu minnast þess, aö Wilson slakaði nokkuð til, er hann ræddi við forustumenn verkalýösins fyrir nokkrum dögum, þ.e.a.s. hann kvaðst geta fallizt á tillögur verkalýösforustunnar sem næðu sama tilgangi, en frá markinu yrði ekki hvikað. Um 60 verkalýðsþingmenn virðast enn staðráðnir í að greiða atkvæði gegn fmmvarp- inu, og gætu oröið fleiri. Wilson hefir einhuga stuðn- ing þeirra, sem nú em í innri stjórninni, en þeir eru auk Wil- sons og frú Castle: Roy Jenk- ins fjármálaráöherra, Michael Stewart utanrikisráðh., Denis- Healy landvarnaráðherra, Rich- ard Crossman félags- og trygg- ingamálaráðherra og leiðtogi flokksins í neðri málstofunni Fred Peart. Ekki þarf að minna á, að skæruverkföllin hafa orðið til stórkostlegs efnahagslegs tjóns, þar.sem framleiðslan hefir drég izt saman af þeirra völdum, út- flutningur minnkað, og útflytj- endum gert erfitt fyrir til fram- búðar, þegar þeir geta ekki stað- ið viö gerða samninga. Skæru verkföll tiltölulega fárra manna hafa iöulega leitt til þess, að þúsundir, jafnvel tugþúsundir manna hafa orðið að hætta störf um. Wilson lítur á Callaghan sem keppinaut, er vill taka við stjómarforustunni, og Callag- han hefir áður verið keppinaut- ur hans, en þótt hann fengi ekki mikið fylgi mun það ekki hafa dregið úr metnaði hans. Hann telur sig þann mann inn- ar ríkisstjómarinnar sem beri fyrir brjósti mál verkalýðsins, lítur á sig sem talsmann verka- lýðsforustunnar, félaganna og alls verkalýðsins. Hann hefir lýst Wilson og liði hans sem menntamönnum, er í umræddri deilu hafi komið fram sem féndur verkalýösins. Callaghan hefir fyrr deilt við Wilson og aöra ráðherra, Hann haföi verið 3 ár fjármálaráð- herra er hann lét af því emb- ætti vegna þess, að hann var mótfallinn gengisfellingunni. — Tók hann þá við embætti innan- ríkisráðherra. Ekki er talið fyrir það girt, aö áliti sumra blaða, að Callag- han segi af sér, en í Lundúna- útvarpinu var í fréttaauka talið að hann myndi ekki gera það, að minnsta kosti ekki eins og sak- ir stæðu. Það mæðir mikið á stjórn Wil sons eins og komið héfur fram í fréttum, og það er eins og allt af sé að koma eitthvað til við- bótar til sögunnar, sem gerir henni erfitt fyrir. Má þar til nefna hrakfarir í aukakosning- um, umdeildar ákvarðanir ein- stakra ráðherra og orðróminn um, að Alþjóða gjaldeyrissjóður- inn raunverulega krefjist eftir- lits með efnahagsstjóm lands- ins og setji það að skilyröi fyrir lánum, sem stjórnin hefir óskað eftir og nemi einum milljarði dollara. i Viðurk. var, að lántakan væri til umræðu, a'f hálfu stjórnar- innar, en tekið fram að orðróm- urinn um eftirlit væri ekki á rökum reistur — og formleg umsókn um lánið hefði ekki ver- iö lögð fram. Um það, hvað ofan á veröur, um það er lýkur verður vitan- lega engu spáð, en það verður áreiðanlega ekki tíðindalaust á brezkum s tj ómm álavettvangr næstu daga og vikur. Stúdentaóeirðir í Bandaríkjunum. Myndin er frá Berkeley háskóla í Kalifomíu og sýnir meðferöina á stúdentum og hippíuni, eftir ð Reagan ríkisstjóri haföi sent 1000 þjóðvarnarliösmenn til þess að hrekja þá burt, en þeir höfðu lagt undir sig hluta af háskólalóðinni. Þjóðvamarliðsmenn ruddust fram með gasgrímur og vörpuðu táragassprengjum. Hendur hinna hand- teknu voru bundnar á bak aftur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.