Vísir - 14.06.1969, Blaðsíða 4
Robert Taylor — síðasti gull-
_ - *
drengurinn í Hollywood er látinn
Joseph
Kennedy í
sviðsljósinu
Maðurinn hér á myndinni er J
Joseph Kennedy, elzti sonur Ro-«
berts Kennedy, en myndin var*
tekin fyrir nokkrum dögum, þegj
ar Joseph kom fram við hátíð-•
legt tækifærí, þegar stærstaj
íþróttaleikvangi Washington-borg«
ar var gefið nafnið Robert KenneJ
dy-leikvangurinn. J
Joseph Kennedy er elzturj
þeirra barna, sem Robert Kenne-*
dy lét eftir sig, og hann var viðj
staddur þessa athöfn fyrir hönd •
fjölskyldu sinnar og flutti þakkir J
frá henni fyrir þennan heiðurs-J
vott. •
. •
Joseph Kennedy er 18 ára aö«
aldri og líkist mjög föður sínum. •
Hinn frægi kvikmyndaleikari,
Robert Taylor, er látinn. Vinsæld
ir hans voru i hámarki á fjórða
og fimmta tug aldarinnar, og þá
var hann í flokki hæstlaunuðu
leikara í veröldinni.
Robert Taylor lézt áttunda
þessa mánaðar á sjúkrahúsi í
Santa Monica í Kaliforníu. Hann
hafði lengi veríð sjúkur af krabba
meini og annað lunga hans var
tekið burt með uppskurði í októ-
ber í fyrra, en fékk lítinn bata
við þann uppskurð, svo að hann
vissi vel hvert stefndi.
Taylor, sem hét réttu nafni
Spangler Arlington Brough, kom
fyrst fram i myndinni „Handy
Andy“, sem gerð var árið 1934,
og eftir það lá framabraut hans
sífellt upp á við, og þremur árum
siðar, þegar hann lék á móti
Grétu Garbo í „Kamelíufrúnni"
var hann naestvinsælasti elskhugi
kvikmyndanna — aöeins Clark
Gable skyggði á hann. Konur um
víða veröld tilbáðu Robert Taylor,
með fallegu bylgjurnar í hárinu
og mjóa yfirvararskeggið.
Ásamt Clark Gable, Eroll Flynn
og Gary Cooper tilheyrði Robert
Taylor gulldrengjum Hollywood.
Konur hópuðust að honum hvar
••••••■•••••••■
sem hann kom, og sumar reyndu
meira að segja að komast í kynni
við hann með því að fela sig
undir rúmum í hótelum, sem
hann bjó á. Og til marks um hina
dæmafáu kvenhylli hans má
nefna, að í Bandaríkjunum var
stofnaður kvennaklúbbur með
meira en 2500 félagskonum, sem
hver og ein unnu eið að því að
lifa ógiftar alla sína daga, nema
því aðeins að þeim auðnaðist að
krækja i Taylor.
1 Hollywod þurfti Taylor held
ur ekki að kvarta undan kven-
mannsleysinu, því að hann lék í
kvikmyndum á móti flestum
Robert Taylor ásam' Vivien Leigh í „Waterioo-brúin“
helztu þokkadísunum: Grétu
Garbó, Jean Harlow, Övu Gardn-
er, Elisabeth Taylor, Myrna Loy,
Joan Crawford, Hedy Lamarr,
Katherine Hepburn og mörgum
öðrum.
I ellefu ár var Robert Taylor
kvæntur ieikkonunni Barböru
Stanwyck, en þau skildu öllum
á óvart árið 1952. Þá kvæntist
Robert Taylor þýzku þokkadís-
inni Ursúlu Thiess.
í -iiJiiáfrióG i 'tiðajv i*)£bibf!r.>
•••••••••••••••••••••••••
am<: atintíb : Ji.t.v uíuíi-/: riít.
1959 rann út samningur Ro-
berts Taylor við MGM-kvikmynda
fyrirtækið, og sá samningur var
ekki endurnýjaður, vegna dvín-
andi „sjarma" Taylors og síðustu
æviár sín græddi hann rneira á
hesta- og kjúklingarækt heldur
en kvikmyndaleik. Þó lék hann
í fáeinum ódýrum kvikmyndum,
sem vöktu ekki sérlega athygli,
enda mátti þessi hjartaknúsari
muna fifil sinn fegri.
•••••••••••••••••••••••«
Robert Taylor
Joseph Kennedy
T. TTTT !! T. y~\ SKEIFAN 3B
vcktœti & járnvon), h.f. ^ S,M1
B 82120
rafvélaverkstædi
s.melstcds
skeifan 5
Tökum -o okkur:
Viðgerðir á rafkerfi
dfnamóum og
störtirum.
H Mótormælingar.
^ Mótorstillingar
■ Rakaþéttum raf-
kerfið
"-irahlutir á staðnum
mmm
ANNAÐ EKKI
Spáin gildir fyrir sunnudaginn
15. júní.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.
Þaö lítur út fyrir aö dagurinn
byrji meö einhverjum töfum,
sem fljótlega greiðist þó úr, og-.
betur en á horfðist, og eftir það
ætti flest að ganga að óskum, til
dæmis á ferðalagi.
Nautið, 21. apríl—21. maí,
Aö einhverju leyti hefur þú for-
ystuna á hendi í dag, þú fagnar
ef til vill ekki sérstaklega, en
þeir sem hennar njóta munu
verða þér þakklátir, og telja að
vel hafi til tekizt.
Tvíburarnir, 22. maí til 21. júní.
Það er tvennt til með daginn —
ef þú heldur þig heima, annríki
og nokkurt vafstur, ef þú ferð
- í ferðalag, þá munu einhverjar
tafir valda því að þú kemur
sennilega þreyttur heim.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí.
Þetta getur orðið skemmtilegur
og jafnvel alleftirminnilegur
dagur, og einhvern þátt á góður
vinur að því, og gagnstæða
kyniö kemur þar eitthvað við
sögu, einkum hjá yngri kyn-
slóðinni.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst.
Skemmtileg helgi, feröalag gæti
ef til vill gengið dálítið skrykkj
ótt, en varla fram yfir þaö að
þú hefðir gaman af öllu saman.
Ileima ætti allt að verða ánægju
legt, einkum er á líður.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.
Gagnstæða kynið setur að miklu
leyti svip sinn á daginn hjá
þeim sem yngri eru, skemmtileg
an eða miður skemmtilegan eft
ir atvikum. Þeim eldri verður
' dagurinn flestum ánægjulegur.
Vogin, 24. sept til 23. okt.
Nokkrar tafir fram eftir degi
munu meðal annars hafa það í
för með sér, að þér finnst dag-
urinn allt of skammur eftir aö
allt fer aö ganga að óskum —
en góð helgi samt þegar á allt
er litið.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.
Það gerist ýmislegt í dag, og
sumt kannski með nokkrum ó-
líkindum, en skemmtileg mim
helgin verða flestum, þrátt fyrir
nokkurt umstang. Gagnstæöa
kynið setur sinn svip á hann
að nokkru.
Bogmaöurinn, 23. nóv. til 21. des
Gættu þess vandlega að ekki
komi til árekstra innan f jölskyld
unnar, fyrir lítilfjörlegan mis-
skilning. Það gæti sett, leiðin-
legan svip á daginn, sem ann-
ars ætti að verða ánægjulegur.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.
Þetta getur orðið hinn skemmti
legasti dagur, ef þú einungis
gætir þess að hafa hóf á öllu —
o/g gefa ekki þau loforð, sem
pú treystir þér ekki síðar til að
standa við.
Vatns’ rinn, 21. jan. til 19. febr.
Þú átt um fleiri en einn kost
aö velja, og virðast allir nokk-
uð góðir — hættan er helzt sú
að þú tvínónir of lengi við valiö
og tækifærin gangi þér úr greip
um.
Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz.
Gættu vel að þér í peningamál-
um, og ef þú ert á ferðalagi,
skaltu gæta vel farangurs þíns,
annars er hætt við að þú getir
orðið fyrir einhverju tjóni,
kannski ekki stórvægilegu, en
Þó.
I
/