Vísir - 14.06.1969, Blaðsíða 13

Vísir - 14.06.1969, Blaðsíða 13
V í S IR . Laugardagur 14. júní 1969. Úrval úr dagskrá næstu viku SJÖNVARP • Sunnudagur 15. júní 18.00 Helgistund. Séra Jakob Jónsson, dr. theol, Hallgríms- prestakalli. 18.15 Lassí. Stríðshundurinn. 18.40 Sumarið og börnin. Frá sumarbúðum Þjóðkirkjunnar við Vestmannsvatn. 18.50 Fífiiamma. Sumarævintýri eftir Allan Rune Pettersson. 3. og 4. hluti. 20-25 Islenzkir tónlistarmenn. 20.45 Myndsjá. Aðdragandi inn- rásarinnar í Normandie, höfr- ungar, eggjataka í Eyjum, fall- byssusmiður á Sauðárkróki o. fi. 21.15 Kirsuberin kátu. Brezkt sjónvarpsleikrit eftir Donald Churchill. 22.10 í upphafi geimaldar I. — Gemini. 1 næsta mánuði er ráð- gert að menn stígi í fyrsta sinn fæti á tunglið. í tilefni af því sýnir sjónvarpiö sex myndir um geimrannsóknir og '■geimferðir fyrir lok þessa mánaðar. Mánudagur 16. júní 20.30 Karlakórinn Vísir syngur. Stjómandi Geirharður Valtýs- son. 20.55 Söngur eftir Saki. Séð í gegnum fingur, Lynghænufræ, Sjöunda hænan og Músin. 21.40 í upphafi geimaldar II. — TM tunglsins. 22.30 Iþróttir. Þriðjudagur 17. júní 18.00 Lýðveldishátíðin 1944.Segja má að inngangur þessarar sögu frægu kvikmyndar sé ísland í myndum. En aöalefni myndar- innar er undirbúningur lýðveld isstofnunarinnar og sjálf lýð- veldishátíöin á Þingvöllum 17. júní 1944. 20.00 Ávarp forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárns. 20.35 Þjóðhátíðarræða forsætis- ráðherra, dr. Bjama Benedikts- sonar. 20.45 Ávarp fjallkonunnar. 20-50 Jón Sigurðsson. Sjónvarpið hefur gert kvikmynd um líf og störf Jóns Sigurðssonar forseta, í tilefni þess, að tutt- ugu og fimm ár eru liðin frá stofnun íslenzka lýðveldisins. 21.35 Maður og kona. Alþýðu- sjónleikur, saminn af Emil Thoroddsen og Indriða Waage eftir skáldsögu Jóns Thorodds- ens. Leikritið er hér nokkuö stytt. Leikstjóri og sögumaður Jón Sigurbjörnsson. Miðvikudagur 18. júní 20.30 Hrói höttur. Köttur í bóli bjarnar. 20.55 Ellen systir mín. Bandarísk kvikmynd gerð árið 1955. Leikstjóri Richard Quine. Aðal hlutverk Janet Leigh, Jack Lemmon og Betty Garrett. 22.35 í upphafi geimaldar III. — Ókunnar slóðir. Föstudagur 20. júní 20-35 Þórir Baldursson leikur vinsæl lög á orgel. 20.50 Dýrlingurinn. Á landamær- um lífs og dauða. 21.40 Erlend málefni. 22.00 í upphafi geimaldar IV. — Heilir heim. Laugardagur 21. júní 18.00 Endurtekið efni: Litblindur. ÁÖur sýnt 9. júní s.l. 20.25 Draumar á dagskrá. Leikrit eftir Johannes S. Möllehave og Benny Anderson. Leikstjóri Benny Anderson. 21.25 í Mexíkó er margt að sjá. 1 Mexíkó eru nýtízkulegar borg ir og baðstaðir, s,em frægir em víða um heim. En þar eru líka ótal sveitaþorp, sem lítil kynni hafa haft af nútíma lífsháttum. 22.00 Rheinsberg. Þýzk kvik- mynd byggö á sögu eftir Kurt Tucholsky. ÚTVARP • Sunnudagur 15. júní 19.30 Sagnamenn kveða. Ljóð eft ir Þórberg Þórðarson, Benedikt Gíslason og Friörik Á Brekkan. Baldur Pálmason sér um þátt inn og les ásamt Gunnari Eyj- ólfssyni leikara. 20.25 Brot úr mannlífinu á Is- landi 1944. Jónas Jónasson flett ir blöðum og minnir á ýmis- legt I tali og tónum, fyrri hluti dagskrár. 21.00 Þjóðlífskviður úr Eyjum. Árni Johnsen sækir útvarpsefni til Vestmannaeyja. Mánudagur 16. júní 19.30 Um daginn og veginn. — Gunnar Benediktsson rithöfund ur talar. 20.20 Millirikjaverzlun þróunar- mál og þriðji heimurinn. Sig- urður Gizurarson lögfræðingur flytur fyrra erindi sitt. 21.00 Búnaðarþáttur: Or heima högum. Gísli Kristjánsson rit- stjóri ræðir við Pétur Sigurðs son bónda i Austurkoti í í Flóa. Þriðjudagur 17. júní 14.10 Frá þjóðhátíð í Reykjavík: Hátíðarathöfn á Laugardalsvelli Ellert B. Schram lögfræðing- ur, formaður þjóðhátíðarnefndar flytur ávarp. Forsætisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, flytur ræðu. Ávarp Fjallkonunnar. Lúðrasveitir leika. 18.00 Frá þjóðhátíð í Reykjavík: íþróttir í sundlaug og á leik- vangi. Sigurður Sigurðsson og Jón Ásgeirsson lýsa keppni. 19.30 Lýðveldishátíðin á Þingvöll- um fyrir 25 árum. Viðburðir dagsins rifjaðir upp í tali og tónum, Haraldur Ólafsson dag- skrárstjóri tengir atriðin sam- an og Hjörtur Pálsson les. 22.15 Veðurfregnir og danslög. Fyrstu þrjá stundarfjórðungana kynnir Jónas Jónasson lög, sem voru vinsæl 1944. — eftir það önnur lög við nýja og gamla dansa. Miðvikudagur 18. júní 19.30 Tækni og vísindi. Páll Theodórsson eðlisfræðingur talar um útvarpslampa og upphaf rafeindatækninnar. 20.15 Sumarvaka. a. Bjólfskviða hin engilsaxneska, Þorsteinn Guðjónsson les úr hennj kvæði og talar um hana. b. Lög eftir Bjarna Böðvarsson. Sigurveig Hjaltested syngur. c. Yfir Kiettháisinn. Hallgrím ur Jónsson kennari flytur ann an hluta ferðaþáttar síns. d. í dögun. Elín Guðjónsdóttir les ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Fimratudágur 19. júní 19.35 Maddama, kerling, fröken, frú. Samfellt efni úr sögu kven réttindabaráttunnar í gerð og flutningi Ásdísar Skúladóttur, kennara. Ástu Bjartar Thorodd sen, tannlæknis og Guðfinnu Ragnarsdóttur jarðfræðings. 20.55 Á rökstólum. Björgvin Guð- mundsson viðskiptafræðingur gerir að umræðuefni spurn- inguna: Er æskilegt að konur taki aukinn þátt í stjórnmálum Föstudagur 20. júní 19.30 Efst á baugi. Tómas Karls- son og Magnús Þórðarson fjalla um erlend málefni. 20.00 Tónlist eftir Herbert H. Á- -gústsson, tónskáld mánaðarins. 20.35 Efnahagsleg samvinna. Guðlaugur Tr. Karlsson hag- fræðingur flytur erin^i um tolla-, fríverzlunar- og efnahags bandalög. Laugarúagur 21. júní 19.30 Daglegt líf. Árni Gunnars- son fréttamaður stjórnar þætt- inum. 20.20 Leikrit: „Ættingjar og vin- ir“ eftir-St. John Ervine. Áður útvarpaö í nóvember 1957, Leik stjóri og þýðandi Þorsteinn Ö Stephensen. GoíJt Arama á reiðhjóli Margt í fari útlendinga kemur okkur spánskt fyrir sjónir, þvi sinn er siöur í landi hverju. Til dæmis tiökast það mjög lítið hérlendis, þó þaö sé algengt og þyki sjálfsagt erlendis, að eldri konur hjóli. Þannig er það van- inn og hinir daglegu siðir, sem ráða geröum okkar og venjum. Mér datt þetta í hug, þegar ég einn góðviðrisdaginn hitti tvær útlendar konur á förnum vegi, hjólandi, en þær voru að spyrja til vegar. Þær hafa vafa- laust verið á sextugsaldri, en hressar og kátar af áreynslunni. Mér fiaug þegar í hug, hversu frábitinn slíkur ferðamáti mundi vera ömmunum í minni fjöl- skyldu, og þegar ég fór að hugsa um þaö, þá fannst mér það jafnvel hiægilegt að hugsa sér þær á reiðhjóii. En einnig er ekki hægt að neita þvi, að vart finnst hressilegri og skemmti- legri ferðaháttur fyrir fólk á öllum aldri, að minnsta kosti á leiðum þar sem rykið verður ekki of mikið. íslendingar gera of mikið af því aö miða allar sínar ferðir við þaö sem bíllinn getur flutt fólk. Það er gert of lítið af því að ganga og hjóla. Ferðaíog á hjólum veita hæfilega hreyfingu til dæmis eldra fólki. Velmegun in hefur gert okkur aö allt of miklu kyrrsetufólki, svo raunar væri nauðsyn á þjóðarvakningu til að fá fólk til að hreyfa sig. Nú er kominn sá árstími, að gönguferðir og útivera alls kon ar er æskilegt og ákjósanlegt sport. Og einnig gætum við eins og flestar aðrar þjóðir gera, not- að reiöhjólið til ferðalaga, ekki bara fyrir böm og unglinga, heldur einmitt fyrir eldra fólkið, sem þarf að lyfta sér upp frá daglegu amstri. Mjög margir eru sammála mér í því, að fólk þurfi að gera meira af því að hreyfa sig, ganga og hjóla, úti í frisku lofti sér til hressingar. En samt sem áður kemur hinn daglegi vani í veg fyrir að fólk hreyfi sig úti til upplyftingar. Hins vegar væri ekki ólfklegt ef það yrði gert að eins konar tízku að ganga eða hjóla, að bókstaflega allir, sem vettlingi gætu valdið færu á stjá, og þá Iafnvel í tíma og ótima. Og það er einmitt það, hvort ekki væri hreinlega æskilegt að til slíkrar hreyfing- væri stofnaö, Til dæmis mundi það hafa góð áhrif, ef hinir framtakssömu Ijónaklúbbar tækju sig til og hjóluðu spottakorn, þó ekki væri nema eins og upp á Sand skeiö. Eða ef eitthvert hinna virðulegu kvenfélaga boðaði til fjölmennrar hiólaferðar eða göngu. Þessi siður gæti því hæg lega breiðzt út eins og skóg- ræktaráhugi eða hestamennska, og orðið stórum hópum fólks, sem annars hreyfir sig Iítið til góðrar hressingar. Það sæti far ið svo að okkur þætti það ekki koma okkur spánskt fyrir sjónir að sjá eldra fólk hjóla sér til hressingar í nágrenni borgarinn- ar. Þrándur í Götu. Eigno - umsýsln, kaup og sola BÓKHALD OG UMSÝSLA H/F ASGEIR BJARNASON Laugavegi 178 • Box 1355 • Símar 84455 og 11399

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.