Vísir - 14.06.1969, Side 16

Vísir - 14.06.1969, Side 16
TRYGGING ///. * *■ * H\G I LAUGAVEGI 178 M SÍMI21130 J Sparka bolta þegar atvinnan minnkar 40 Norðfirðingar fara til Færeyja Hafþór fínnur kolmunna■ Bætt aðstaða fyrir hjartasjúklinga — Fjórar deildir baetast við Landspitalann ■ Nær helmingur hllra dauðsfalla á ís landi stafar af hjarta og æðasjúkdómum. Það hlýtur því að vera mikið fagnaðarefni að aðstaða til að stunda lækningar á sjúkdómum þessum hef- ur stórum batnað með tilkomu nýrra deilda í Landspítalanum, en í gær voru þær formlega opnaðar að viðstöddum æðstu mönnum heil- brigðismála á íslandi. „Við teljum okkur nú standa nokkurn veginn jafnfaetis ná- srannalöndum okkar á þessu 'ði“, sagði próf. Siguröur ’.múelsson, yfirlæknir í gærdag við blaðamann Vísis, er hann greindi frá þeim margflóknu tækjum og búnaði, sem spítalinn hefur yfir að ráða. Alls bættust 23 ný sjúkrarúm við í vikunni á Landspítalanum, er þarna um venjulega lyflæknis deild að ræða. Önnustudeild er það aftur á móti kallað, þar sem tekið verður við mjög bráðum til fellum þar veröa 3 rúm fyrir kransæðatilfelli. Langalgengast er að 2 fyrstu sólarhringarnir skeri úr um hvernig sjúklingi reiðir af. Verða sjúklingar þar undir umönnun þar til séð verð ur hvernig þeim reiðir af. Læknar munu geta fyigzt með hvernig hjartsláttur sjúklings er með því að horfa á hjartarafsjá, en hjartaiínurit birtist á sér- stöku tæki. Sé um eitthvað at- hugavert að ræða, hljómar að- vörunarbjalla og kallar sjúkra- liðið á vettvang. Próf. Sigurður greindi í þriðja lagi frá hjartaþræðingastofu, sem er algjör nýjung hér á landi og mun Árni Kristjánsson, lækn ir, menntaður frá London, verða sérfræðingur deildarinnar. Tæk in í deildina kostuðu 4,5 millj. kr. á gamla genginu. 60 sjúkl- ingar bíða nú hjartaþræðingar, en hún er framkvæmd á börn- um með meðfædda hjartagalla og fólki með áunna galla, sem oft koma vegna gigtarsjúkdóma. Aðgerðin fer þannig fram að pípu er stungið inn um olnboga bót og þrædd inn í hjarta sjúkl ingsins. Er aðgerð þessi sársauka laus og gerð á sjúklingnum vak andi. Þá er loks að geta gervinýrna deildarinnar, sem hefur nú yfir að ráða tveim gervinýrum, en annað þeirra er mjög nýtt af nálinni, og hentar öllu betur við blóðhreinsun vegna eitrana. Páll Ásmundsson, læknir verð ur sérfræðingur þeirrar deildar. Þjónusta sú, sem læknar við Landspítalann geta nú innt af hendi, sparar áreiðanlega marga utanförina í framtíðinni, því mörg þeirra tilfella, sem nú veröa meðhöndluð hér heima, varð áður að senda á sjúkrahús erlendis, einkum í Danmörku. • Páll Ásmundsson lýsir gervinýrnatækjunum, — það nýja, af amerískri gerð er til vinstri, en það eldra, sem fengið var frá Svíþjóð til hægri. Heiibrigðismáiaráð- herra, Jóhann Hafstein er moA Pú 1 í ó mirn/línnf 9 Nokkur afturkippur hefur nú hlaupið í atvinnulífið á Nes- kaupstaö en hins vegar eru kaupstaðarbúar haidnir sömu at- hafnaþrá og endranær, en hún v?inist nú einkum að íþróttalíf inu. Togbátarnir, sem að undanförnu hafa aflað mjög vel við Norö-aust urland eru nú að leggja upp sína síðustu titti f bili og menn hverfa frá því að berja á þorskinum og taka að berja á Færeyingum. Um næstu mánaðamót fer 40 manna lið utan frá Neskaupstað til Færeyja og dvelur um viku tíma í Sandvogi, þar sem keppt verður í handknattleik karla og kvenna og fótbolta. — Er þetta endurgjald fyrir heimsókn Færeyinga til Nes- kaupstaðar í fyrra. Ennfremur stendur til að lands liðið í fótbolta ásamt unglingalands liðinu heimsæki Norðfjörð um næstu helgi og keppi þar. Ungl- ingalandsliðið mun svo keppa við heimamenn. torfur viB Aastfírði Hægt oð veiða hann grynnra en búizt hafði verið við • Leitarskipið Hafþór hefur fundið kolmunnatorfur grunnt út af Gerpi eða um 70—80 míl- ur úti og er jafnvel talið að hann sé veiðanlegur þar, en skipið mun leita hans dýpra næstu daga. Vísir ræddi i morgun viö Ásmund Jakobsson um borö f Hafþóri og sagði hann aö kolmunninn heföi fund izt þarna grynnra en búizt hefði veriö við. Hefðu þeir fundið þama eina torfu 20 íaöma þykka, en hún hefði þó virzt dálítið rytjuleg. Einnig urðu þeir varir við smærri torfur og sagði Ásmundur að sér hefði jafnvel virzt þær þesslegar að hægt hefði verið að kasta á þær, þótt þær væru þama fremur ræfils legar. Kolmunninn virðist nú nærtæk- asta hráefnið fyrir verksmiðjumar eystra, sem nú bíða verkefnalaus ar, en kolmunni hefur til þessa verið svarinn óvinur síldarsjó- manna sökum þess hve hann á- netjast síldarnótinni. — Skip hafa oft orðið að fara í land úr góðri veiði til þess aö hrista kolmunnann úr nótinni. Hafþór verður hálfan mánuð við þessa kolmunnaleit úti af Aust- fjörðum og kemur til Reykjavíkur 26. júní. Nú á að hrista síldina I Sildarskipin orðin að fljótandi verksmiðjum • Síldveiðiskipin, sem nú eru að undirbúa sig á sumar- síldveiðar langt norður í höf um eru orðin býsna ólfk því sem var fyrir aðeins 2—3 ár- um. Með breyttum viðhorf- um hafa sildveiðiskipin breytzt í eins konar fljótandi verksmiðjur með tækjabún- aði eftir því. Seinast I gær var nýtt tæki, sem sennilega á eftir að verða ómissandi, kynnt fyrir blaða- mönnum. Þetta er „hristari", sem Heiðar Marteinsson, vél- smiður í Kópavogi hefur teiknað og smíðað, en 10 síldveiðibátar hafa þegar pantað sér þetta tæki. „Hristarinn" mun hrista til saldsíldinni í tunnunum og gera það að verkum, að ekki þarf að raða síldinni upp á gamla móð- inn og einnig kemst meira magn af síld í hverja tunnu með þessu lagi. Talið er að auka megi síld armagnið úr 85 kg. f tunnu í ca. , • 95 kg., sem hefur ekki svo lkla • þýðingu, þegar það er haft í J huga, að síldarskipin geta ekki • tekið með sér nema 700—1500 ■ tunnur til að salta í. „Hristarinn" J kostar ekki nema 22. þús. kr. • og verður því fljótur að borga • sig með auknum afköstum og • nýtingu. • Gróflega reiknað kostar allur J sá tækjabúnaður, sem sildveiði • skipin þurfa nú að hafa umfram • það, sem þau þörfnuðust fyrir J 2 — 3 árum, um 300 þús. kr. Þessi - tæki eru hausskurðarvél, hrist- J arinn og tvö færibönd. Að sjálf • sögðu þarf svo enn að notast • við öll gömlu tækin, kraftblökk- J ina, asdic-tækið eða tækin og • síldardæluna. J Hristarinn er ekki ýkja stórt eða flókið tæki eins og sjá má, en vél Heiðars mun þó koma i mjög góðar þarfir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.