Vísir - 28.06.1969, Blaðsíða 1
VISIR
59. árg. — Laugardagur 28: júní 19S9. — 142. tbl.
Réttur til hafsbotnsins mið-
aður við 500 metra dýpi?
■ Hver á auðæfi hafsbotnsins?
Edvard Hambró, ambassador
Noregs hjá Sameinuðu þjóðun
um, ræddi þessa spurningu á
fundi í Sigtúni í gær. Taldi hann
ekki óliklegt, að miða mætti rétt
þjóða til þessara auðæfa tið 500
metra dýpi.
Hótelherbergi losna í stórum stíl
Ómæld auðæfi eru á botni hafs-
ins. íslendingar hafa gert sér þetta
ljóst og slegið eign sinni á land-
grunniö allt. Spurningin er þó
miklu víðtækari. Sumir segja, að
hverri þjóð beri réttur til athafna
á hafi og í eftir tækni og styrk.
Margir vilja þó setja ákveðnar regl-
ur á grundveíli Sameinuöu þjóðanna
eða annarra alþjóðastofnana.
Helzt er rætt um takmarkanir á
rétti til nýtingar auðæfa á hafs-
. r_, :■
botni utan landhelgi, sem miðaðar
væru við 50 milur eða ákveðið haf-
dýpi. Hambro, sem er sérfræðingur
í þessum efnum, kvað þjóðir heferxs
verða að vinda bráöan bug aö
samningum um málið, eig; ekki
að hefjast grimmilegt nýlendustr-RS
um auðæfi hafbotnsins, þar sem
hagur smáríkja yrði fyrir borð hor-
inn.
— Ferðaskrifstofurnar standa ekki við pantanir
sinar — Hættuleg vinnubrögð, segir Konráð
a Sogu
■ Ferðaskrifstofurn-
ar okkar virðast ha'
verið full ákafar við að
tryggja sér hótelpláss
að selja þessi pláss á hótelun-
um og væru þau yfirleitt full
þessa dagana, þrátt fyrir af-
pantanir, enda er nú mesti
annatími ársins í ferðamálum.
— Árni Stefánsson, hótelstjóri
á Höfn í Hornafiröi, sagði að
talsverð bragð væru að því að
fækkaði í ferðamannahópunum
frá því sem pantað hefði verið.
Pantanir, sem Ferðaskrifstofa
ríkisins hefði átt hefðu brugðizt
til dæmis og einnig hefðu pant
anir frá erlendri ferðaskrifstofu
sem skipti við hótelið brugðizt.
— Þetta kemur alltaf fyrir öðru
hverju, sagði Árni og getur ver
ið erfitt að ráða við það, en slíkt
getur auðvitað komið sér mjög
bagalega.
Árni kvað hótelið ekki alveg
fullskipað núna. „Vertíðin" hjá
þeim þar eystra byrjaði í seinna
lagi. Aðalferðamannastraumur-
inn þangaö austur yrði í júlí og
ágúst og þá mánuði væri mikið
pantað fyrirfram.
fyrir gesti sína i sumar
Hótelin hafa bókstaflega
verið upppöntuð löngu
fyrirfram yfir sumar-
mánuðina.
Svo kemur í ljós að feröaskrif
' stofurnar hafa ekki getað selt
upp í áætlanir sínar og herbergi,
sem pöntuð voru snemma í vet
ur á hótelunum eru nú aö losna
unnvörpum. — Þetta kemur sér
að sjálfsögðu bagalega fyrir
hótelin, þar sem þau hafa orðiö
að neita fjölda ferðamanna um
gistingu, jafnvel þótt falazt hafi
verið eftir plássi snemma í vet-
ur.
— Vísir ræddi í gær við
Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóra á Hótel Sögu og spurðist
fyrir um þetta og sagði hann að
því væri ekki að neita að pantan
ir ferðaskrifstofanna hefðu
brugðizt að talsvert stórum
hluta og yrðu þetta að teljast
hættuleg vinnubrögð. Hins veg-
ar sagði hann, að tekizt hefði
Liósmyndarinn gat ekki staðizt þessa freistingu eins og gefur að skilja. Hún talar sínu máli um sólskinið og sumarhitann í Reykja-
vík síðustu dagana. — Þær þurfa ekki að sækja sólböð á Mallorca þessar til þess að fá ofurlítinn sólroða á kroppinn. — Og vonandi
helzt góða veðrið áfram, svo að'slík sjón megi sjást sem víðast.
Læknanemar óánægðir með próffyrirkomulagið:
56 FÍLLU AF 84
1 Úrslit fyrstaárs prófanna í
æknadeild Háskólans urðu þau
ið 28 læknanemar stóðust bæði
ikriflegu prófin, en 84 létu innrit
ist til prófanna, þess verklega
>g hinna skriflegu.
Þessi tala samsvarar þvi, aö um
>riðjungur læknanema hafi náð
irófunum að þessu sinni.
Mikillar óánægju gætir meðal
læknanema um próffyrirkomulagið
í fyrstaársprófunum að þessu sinni
en ný reglugerð tók þá gildi. Var
krafizt að lágmarkseinkunninni
7 væri náð í báöum skrifiegu grein
unum. Þessi krafa varð til þess, að
margir létu hugfailast og fóru ekki
í seinna skriflega prófið. Af þeim
77, sem fóru í skriflega prófið í
vefjafræði, hættu 25 við frekari
prófraunir og voru því 52, sem
Harður árekst-
ur á Hringbraut
Mjög harður bifreiðaárekstur
varð á gatnamótum Hringbrautar
og Sóleyjargötu um miðjan dag í
gær. Fólksbifreið var ekið inn á
austurakrein Hringbrautar og í veg
fyrir Reykjavíkurbifreið, sem ekið
var austur Hringbrautina. Varð
areK'Uuriim mjög> harðnr Úku-
menn beggja bifreiðanna, kven-
maður í Akureyrarbifreiðinni en
karlmaður í Reykjavíkurbifreiðinni,
voru báðir fluttir á slysavarðstof-
una. Akureyrarbifreiðin er mjög
mikið skemmd, enda lenti hin bif-
reiðin í miðja hlið hennar.
tóku seinna skriflega prófið, sem
var efnafræði.
Einn læknanemanna náði 14, eða
næsthæstu einkunn i efnafræðinni
að þessu sinni, en 5 í vefjafræði,
sem er neðan lágmarkseinkunnar
og er því fallinn. Eru læknanemar
mjög óánægðir með einkunnafyrir-
komulagið og prófafyrirkomulag,
en í vefjafræðinr.i er lesinn doðr-
antur mikill en hver læknanemi
prófaður úr tveim litlum köflum
hans. — Telja þeir þennan
sparðatíning óheppilegt fyrirkomu-
lag, sem ekki veiti læknanemum
tækifæri til að sýna raunverulega
þekkingu á námsefninu.
Vfsir hefur fregnað að mennta-
málaráðherra hafi nú heimilað
iæknadeildinni, að sett yrðu inn-
tökuskilyrði í deildina fyrir næsta
námstimabil, en deildin hefur átt
vð mikinn húsnæðisskort að stríða. >
Má því búast við að vissra lág- ]
markseinkunna verði krafizt af ný- '
stúdentum. Nefndar hafa verið töl- ]
urnar 7.25—8. 1
I
Blaðiö talaði við menntamálaráð- 1
herra, sem vísaði frá sér en sagði i
að fréttatilkynningar yröi að vænta J
frá lækmdeildinni um helgina.
— samkvæmt veðurspánni
■ Lánið mun leika við þá, sem hafa hugsað sér að skreppal;
út úr bænum um helgina — það er að segja, ef spá veðurfræð-I"
inganna rætist. Samkvæmt upplýsingum eins af veðurfræðing-jí
um Veðurstofunnar verður tilvalið ferðaveður um helgina, aðí
minnsta kosti hér á Suðvesturlandi. t
Spáin hljóðar upp á hæga
norðaustanátt og bjartviöri með
12 til 14 stiga hita, þegar bezt
lætur. Aftur á móti mun ekki
eins mikil hætta á að menn fái
sólsting noröan lands og austán,
því að þar er gert ráð fyrir
þokulofti og úrkomu og lágu
hitastigi, einkum á annesjum.
Þrátt fyrir góða spá hér á
Suðurlandi telja veöurfræðingar
heppilegast fyrir ferðafólk að
hpyja sig heim fyrir sunnudags-
kvöld, því að aðsteðjandi lægð
fyrir sunnan landið gæti vel
veriö á þeim buxunum að valda
úrkomu syðst á Suðurlandi á
sunnudagskvöldið.
Ekki munu þó allir Reykvík-
ingar bregða sér í skemmtiferðir
um helgina, enda ýmislegt við
að vera í höfuðstaðnum. Til
dæmis má nefna, að útiskemmt-
un verður haldin að Árbæ á
sunnudag að frumkvæði Fram-
farafélags Seláss og Árbæjar-
hverfis í tilefni 15 ára afmælis
félagsins.
Klukkan 2 á sunnudag fer
skrúðganga frá barntskólanum
að Árbæ og lúðrasveit leikur,
en útiskemmtun með dagskrá
verður á Árbæjartúni frá kl.
3—6 og 8.30—1.
Þeir, sem ætla að leggja land
undir föt um helgina, geta fund-
ið ýmsar nytsamlegar ráðlegg-
ingar um útbúnað og annað þess
háttar á bls. 5 í Vísi í dag.