Vísir - 12.08.1969, Page 1

Vísir - 12.08.1969, Page 1
Ungfrú ísafjörður, Anna Lára Gústafsdóttir Ný herferð ibigerð til að aá itttt ólöglegum vopnum Þegar við fáum sól, 1 Norðlendingar regn — „bjart fyrir sunnan i dag" — segir Páll Bergbórsson, veðurfræðingur „Nú hefpr snúizt í norðanátt, og birt til hér á Suðurlandinu, komið sólskin fyrir austan f|a.ll, og allar líkur á þurru og björtu veðri i dag.“ sagði Páll Bergþórsson, veð- urfræðingur í viðtali við blaðið í morgun. „Ekki er ég nú sannfærður um að hér verði um verulega veður- breytingu að ræða, en það verður að minnsta kosti þurrt I dag hér fyrir sunnan“. Hins vegar hefur veðrið nú breytzt til hins verra fyrir norðan og vestan, um leið og hér birtir, dregur þar fyrir sólu og fer að rigna“, sagði Páll enn fremur. Mikil rigning var á Vestfjörðum í morgun og nokkur fyrir norðan, en bjart allt frá Mýrdal og vestur fyrir Reykjanes. * Ungfrú Isaf jörður • í bezta veðri s. 1. sunnudag kusu ísfirðingar sér fegurðar- drottningu og varð hlutskörpust Anna Lára Gústafsdóttir, 22ja ára gömul skrifstofustúlka hjá Landsimanum á ísafirði. Hún er dóttir Gústafs Lárussonar skóla síjóra gagnfræðaskólans á ísa- firði og konu hans, Kristjönu Samúelsdóttur. Anna Lára er 167 cm á hæð, vegur 60 kg og málin 94-60-94. Áhugamál henn- ar eru tónlist, lestur og ferðalög. Númer tvö varö Sigríður Júl- íana Kristinsdóttir, en hún vinn ur í Kaupfélagi ísfirðinga. Trommuleikari Trúbrots, Gunnar Jökull, í átökum viö dyra- vörð Klúbbsins. „Pop“-liátíðinni lauk með ryskingum Trúbrot vildi halda grininu áfram • Troðiö hús var í Klúbbn- um í gærkvöldi á „Pop-festi- val ’69“, þar sem fram komu 10 íslenzkar bítlahljómsveitir og skemmtu, en hljómleikarn ir hlutu snubbóttan endi, þeg- ar síðasta hljómsveit kvölds ins, Trúbrot, ætlaði að ieika aukalag eftir kl. 1, þegar hús- inu skyidi lokað. Gripið var til þess ráðs að rjúfa rafstrauminn, svo að svið ið huldist myrkri og hljóðfæri hljómsveitarmannanna þögnuðu, en þeir höfðu þrjózkast við að hætta, þótt tíminn væri runninn út, sem skemmtunin mátti standa. Þessi ráðstöfun dugði samt ekki til, því trommuleikarinn Gunnar Jökull, gat haldið áfram sinu spili, óháður rafmagninu, og naut hann þess, þar til grip- ið var fram fyrir hendurnar á honum. Kom tii nokkurra rysk- inga milli hans og mannsins, sem ætlaði að stöðva hann. Sum ir héldu það starfsmann húss- ins, en aðrir, að það væri óein- kennisklæddur lögreglumaður. Áhorfendur gerðu að þessu hróp og á einu andartaki leit út fyrir, að skemmtunin, sem hafði að öllu leyti farið ágæt- lega fram um kvöldið, mundi enda með uppþoti, en átökin á sviðinu fjöruðu út og ró komst á gestina. Skemmtiferðaskipið kom Seyðtirðingum á óvart ■ Seyðfirðingar urðu ekki lít- íð undrandi, er þeir sáu skemmti ferðaskip sigla inn fjörðinn á sunnudagsmorguninn milli klukkan 8 og 9. Þetta er senni lega fyrsta skemmtiferðaskipið æm tii Seyðisfjarðar kemur, að hví er eiztu menn muna Skipið heitir Varna og kom frá Búlgar lu og er áhöfnin þaðan. Far- þegar voru flestir þýzkir með Frakka ívafi og komu margir þeirra í land. Skruppu þeir í smá ferð upp á Hérað og virtust hin- ir ánægðustu. Þegar þetta glæsilega skip sigldi iftur út úr firðinum um tvöleytið ’oru Seyðisfjarðarbúar varla búnir ið átta sig á hvað átt hafði sér stað. Svo á óvart kom þessi heim- sókn. Þetta skip var hér í og með á vegum Ferðaskrifstofu Zoega og kom fyrst við hér £ Reykjavík. Er það kom síðan austur fyrir land tóku skipverjar fyrirvaralítið þá á- kvörðun að bregða sér inn til Seyð- isfjarðar. Hafa Búlgararnir senni- lega haldið af frásögnum vinanna í austri, að þarna fyndu þeir mesta athafnabæ landsins. Vegna þessa var koma skipsins ekki nægilega undirbúin, en við þetta vaknar sú spurning, hvort ekki sé einmitt grundvöllur fyrir að taka á móti slíkum hópum á Seyöisfirði og aka þeim um nærliggjandi sveitir. Skemmtiferðaskipið Varna fór til Noregs og Þýzkalands, en kem- ur sennilegast aftur þann 22. ágúst og fer þá til Akureyrar. Alls 162 skammbyssum hefur verið skilað til Reykjavikurlögreglu □ Ólögleg vopn eru enn að berast lögreglu Reykja- víkur, en fólk, sem finnur þessi vopn á háaloftum, þegar þar er tekið til eða Ásgeir með rúmar þúsund tunnur Reykjavíkurbáturinn Ásgeir kom til Seyðisfjarðar í gær kl. 15 með þúsund tunnur af saltaðri síld og þar að auki 20 tonn af lausri. Báturinn lagði af stað á laugardag- inn og fékk þennan afla á Hjalt- landsmiðum. Þau 20 tonn, sem ekki tókst að koma í tunnur fara í bræðslu á Seyðisfirði. viö skiptingu dánarbúa skilar þeim til okkar, sagði Bjarki Elíasson, yfirlög- regluþjónn í viðtali við Vísi. — Þannig hafa komið inn í sumar 6—8 byssur, sem fólk hafði ekki hug- mynd um, að það ættu Nú er í undirbúningi ný herferð til að ná inn ólöglegum vopnum, en lögreglan hefur ástæðu til að ætla að enn sé töluvert til af ólög- legum vopnum í landinu. að því er Bjarki segir. Lögreglunni er t d. kunnugt um nokkrar skammbyssur í eigu ein- stakra manna, en hefur ekki viljað fara í hart til að ná þeim inn. Það hefur þó verið látið berast til við- komandi eftir öörum leiðum að skila þeim inn. Eins og kunnugt er hóf lögregl- an herferð fyrir ári til að ná inn ólöglegum vopnum. Þessi herferð bar mjög góðan árangur. Alls hef ur 162 skammbyssum verið skilað til Reykjavíkurlögreglunnar, 6 hríð skotabyssum, 10 fjárbyssum, 8 riffl um og einni gasbyssu. Auk þess hefur verið skilað inn alls kyns vopnadrasli og lögreglan hefur gef ið út fleiri hundruð byssuleyfi. 4000 tonn á leiðinni upp © Þeim gengur oröið greiðlega við jámgröftinn austur á Mýrdalssandi, og stór grafa var á leiðinni til þeirra síðast er fréttist. Þarna liggja um fjögur þúsund tonn af jámi grafin, en gert er ráð fyrir að um 8—9 þús und krónur fáist fyrir tonnið á innlendum markaði, eitthvað minna ytra. Vinna 7—8 menn að uppgreftrinum núna, og er unnið meira og minna nótt og dag. Myndin er tekin við upp- gröftinn um helgina, en kraninn hífir járnið upp úr fimm metra djúpri holu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.