Vísir - 08.09.1969, Side 2

Vísir - 08.09.1969, Side 2
VI S IR . Mánudagur 8. september 1969. j Enn eiga þrjú lið möguleika AKRANES með sitt unga og spræka lið er búið að missa sjónar á Islandsbikarnum í ár. Þetta gerðist þegar iiðið tapaði fyrir Val 0:3 á gjör- ónýtum grasvellinum í Laug- nrdal. Reykjavíkuriiðin, KR og Valur eygja hins vegar von um að verða Islandsmeistar- ar í ár, enda þótt Keflavík standi langbezt að vígi. Það verður leikurinn i Kefla vík á laugardaginn kemur, sem sker líklega úr um þetta. Vinni Keflavík Akurnesinga I þeim leik hefur liðið 15 stig og gæti þá hafa unnið íslandsbikarinn öðru sinni. Fer þetta eftir leik Eyjamanna á Akureyri. KR hefur ekki lengur mögu- leika á að sigra í 1. deildinni. Vestmannaeyingar geta hins- vegar enn blandað sér í þetta stríð, en þá verður liðið líka að taka á honum stóra sínum. Krafan um „BIKARINN HEIM“ gæti orðið að veruleika. 1 gær tókst Eyjamönnum ekki að fá Fram til Eyja vegna þess að flugveður var ekki. Vinni Eyja- strákarnir Fram, Akureyri og Akranes hafa þeir hlotið 15 stig en það geta Keflvíkingar einnig fengið með því að vinna annan leikjanna, en með því að vinna báða eða gera jafntefli í öðrum 17 eöa 16 stig. Sá möguleiki er enn fynr hendi að Keflavík, Vestmanna- eyjar og Valur verði efst og jöfn með 14 stig. Til þess að svo færi þurfa Keflvíkingar að tapa fyrir Val, gera jafntefli við Akranes. Valur að vinna Keflavík og Vestmannaeyjar að vin.na Fram og Akureyri en gera jafntefli við Akranes, allavega að fá 5 stig úr þessum 3 leikj- um sínum. Hafsteinn Guðmundsson sagði í Keflavík fyrir helgina: Strák arnir æfa vel, — og nú hafa þeir loks fundið fyrir góðum heimaáhorfendum, er hvetja þá vel, það er mikils virði. —jbp— Leðjan á vel við Valsmenn Haildór Einarsson og Jóhannes Edvaldsson í oaráttu við tvo Ak- urnesinga í leðjunni í LaugardaL Unnu þriðja leðjuleikinn i röð og settu Akur- nesinga úr leik i 7. deild. Leikmenn fluttir af velli blóðugir — Dómari varð fyrir aðkasti að loknum leik ■ Valsmenn setta rautt Ijós á frekari vonir Skaga- manna um íslandsbikarinn í gær. í leðjunni í Laugar- dal skoruðu þeir 3 mörk hjá vörn Akraness, sem til þessa hafði aðeins fengið á sig 4 mörk í 9 leikjum. Eftir fremur jafnan fyrri hálf- leik með tækifæri á báða bóga, yoru Skagamenn gjörsamlega brotn ir niður, eftir að Valur komst í 2:0 var uppgjðfin algjör. Á 18. mín. leiksins skoraði hinn efnilegi nýliði Vals Jóh. Edvaldsson mark úr erfiðri stöðu af þeim stað þar sem á venjulegum völlum er merkt fyrir vítateig. Skot hans kom eftir margmisheppnaðar til- raunir Valsmanna, sem strönduöu alltaf i vamarveggnum. Af nögu- leikum Akraness má nefna það þegar Guðjón Guðmundsson var tví vegis kominn inn fyrir en skaut I hliðarnet, og Matthías, sem brenndi yfir markið úr opnu færi. 1 seinni hálfleik var vist flestra álit að vítaspymu hefði átt að dæma. Matthíasi var brugöið harka lega, en enginn dómur. Síðar var sama uppi á teningnum, þegar hin um unga h. útherja var brugðið og sparkað var utan í andlit hans. Var hann fluttur blóðugur af velli. Alexander Jóhannesson átti góöa sendingu fyrir markið til Ingvars, sem skallaði í netið, 2:0. Minútu síðar endurtók það sama sig, en glæsilegur skalli Yngvars lenti i stöng. Síðasta markið kom, þegar 2 min. vom eftir og burðarrás Akraness liðsins, Haraldur Sturlaugsson, bú- inn að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Mistök f þessari sterku vörn, sem hefur fengið mun færri mörk á sig í sumar en aðrar vamir, áttu sér nú stað. Reynir Jónsson fékk skottækifæri, sem hann not- færði sér vel og skoraði 3:0. , .v-v* Þama er Þórður Jónsson, KR, í baráttu við hægri útherja ÍBA í einum pollinum. Dómarinn í leiknum, Jörundur I fyrir aðkasti, kastaö var í hann i unni. Kvenfólkið okkar getur verið Þorsteinsson var e.t.v. slakur, en I rusli, og flaska sprakk á stein- skapheitt. Hins vegar verður aö það vom allir, sem börðust um í | vegg skammt frá honum. Ung girða fyrir að svona lagaö geti Ieðjunni þennan dag. Varð hann stúlka var sögð hafa kastað flösk I komið fyrir, því hættan er augljós. Hvað er að, aorðanmenn? Leikur Akureyringa kom upp um alvarlegar veilur i liðinu. — KR-ingar unnu jbó létt 2:0 og hefðu getað skorað meira 0 Eitthvað alvariegt er að liði Akureyringa. Menn sem þekkja gjöih til segja að liðsandinn aé ekki upp á það bezta og má vera að það sé rétt. Örugglega hafa Akureyringar ekki sýnt eins léiega leiki lengi í Reykjavík og nú undan- farið, einkanlega í gær gegn KR. Segja má, að varla hafi sézt glæta í leik þeirra, ef Gunnar Aust- fjörð er undanskilinn. Á- hugaleysi markvarðarins er hrein móðgun við knatt Spyrnuna sem íþrótt. KR-ingar, sem urðu að leika án fyrirliða síns, Ellerts Schram átt.u mun meira í leiknum öllum og 2:0 sigur var of lítill aö mér fannst, því að tækifæri þeirra og tilraunir voru mjög jákvæöar, og mörkin komu eftir góðan sóknarleik, sem var lokið með góðum endahnút. Fyrra markið skoraði Baldvin Baldvinsson á 7. mín. í fyrri hálf- leik. Hann komst upp miðjuna, renndi sér fram fyrir varnarmenn- ina, ákveðinn í að skora, og hann skoraði af stuttu færi með föstu skoti, en Samúel markvörður hreyfði sig lítið sem ekkert. Seinna markið skoraði annar sókndjarfur KR-ingur, Ólafur Lár- usson, skot af vítateig, sem hafn- aði neðarlega í horninu hægra meg in. mjög glæsilega gert. Mörg tækifæri áttu KR-ingar, en Akureyringar fá og smá, t.d. var ekki hægt að telja nema eitt ein- asta markskot á KR-markið í seinni hálfleik og í þeim fyrri hafði Guð- mundur Pétursson ákaflega lítið að gera í markinu. Leikurinn hvíldi verulega á ágæt- um tengiliöum KR, og átti Eyleifur Hafsteinsson mjög góðan leik. í framlínunni voru þeir Sigurþór, Baldvin og Ólafur allir mjög virkir. Athygli vakti leikur Jóns Ólason- ar, h. bakvarðar KR. Það er óvenju legur bakvörður, nettur og laginn með boltann, en Jón er sonur Óla B. Jónssonar þjálfara KR og áður leikmanns og margfalds íslands- meistara með liðinu. Leikurinn fór fram á Melavelli enda ógjörningur að leika á Laug- ardalsvelli. Veðrið var eitt hið versta fyrir knattspyrnu, sem hugs- ast getur, úrfelli og rok. KR-ingar voru heppnir, því þeir léku að mestu undan vindi allan leikinn, því í hálfleik sneri vindurinn sér. Er það ekki í fyrsta skipti, sem siíkt hendir KR á Melavellinum Dómarinn, Carl Bergmann dæmdi vel. Áhorfendur voru margir miðað við veðurlagið. —jbp—

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.