Vísir - 14.10.1969, Síða 1
59. árg. — Þriðjudagur 14. október 1969. — 226. tbl.
aKKUS VI'
vélbáts í höfninni
Olvaður maður tók 37 sml bát og sigldi úr höfn
MÖNNUM viö höfnina varð ekki
um sel í gærmorgun, þegar þeir
sáu 37 smálesta eikarbát líða frá
bryggju vestur við Granda, en
í gegnum rórhúsgluggann sáu
þeir, að stóð við stýrið maður,
sem nokkrum mínútum áður
hafði verið á rjátli á bryggjuhni
slompfullur!
Um ölvun við akstur eru sorg-
lega mörg dæmi, en ölvun við
stýri vélbáts er sem betur fer,
fátíð en hreint ekkert grín frekar
en hitt.
, Bátsþjófnum voru því ekki valinn
fögur orð af þeim, sem stóðu á
.,kajanum“, og horfðu á hann
bakka bátnum frá bryggjunni, snúa
honum innan um hina bátana við
bryggjurnar, sleppa naumlega við
árekstur og hringsóla síðan um
höfnina, en auka síöan olíugjöf
ina og taka strikið út fyrir hafnar-
garðana.
„Hvum dj.... ætlast maðurinn
fyrir eiginlega? Er’ann orðinn kol-
brjálaður?!" sögðu menn, og eig-
anda, hafnaryfirvöldum og Slysa-
varnafélaginu var gert viðvart, en
aðrir biðu milli vonar og ótta. Ein
hverjir höfðu orð á því, að iíklega
þyrfti að senda varðskipeftirmann
inum, en aðrir töldu, að kauði
mundi skila sér aftur.
„Hann hefur verið á bátnum áð-
ur, kann á hann og hefur fengið
einhverja fylliríisdillu, en hlýtur
að skila sér“, sögðu einhverjir sem
borið höfðu kennsl á þann, sem
við stýrið stóð.
Stuttu seinna sáu þeir, hvar bát-
urinn hætti hringsólinu úti á ytri
höfn og tók stefnu á innsiglinguna.
Stýrimaður sló af og lagöi bátn-
um að — öaðfinnanlega — en marg
ar hendur voru til þess að grípa
endanna, sem hinir fleygðu f land,
er stokkið höfðu strax um borð.
Enga þökk fékk maðurinn fyrir
tiltækið, heldur var hann umsvifa-
laust fenginn í hendur lögreglunni
og voru honum ekki valdar kveðj- Trollbáturinn, sem ölvaður maður tók traustataki í gærmorgun og sigldi út úr Reykjavíkurhöfn til
umar. mikillar hrellingar öllum, sem við höfnina voru og til sáu.
Bjóða / hafrannsóknarskip
og rækjubáta í S-Ameríku
Islenzkar skipasmíðastöðvar leita víöa fyrir sér
£ Að undanförnu hefur
verið unnið að því að
tilstuðlan iðnaðarmálaráðu
neytisins að kanna, hvort
unnt væri að hefja útflutn-
ing fiskibáta frá íslandi. —
Hefur þetta m. a. orðið til
þess, að nokkrar íslenzkar
skipasmíðastöðvar eru nú
að undirbúa tilboð í 400
tonna hafrannsóknarskip í
Chile og í fimm 70 tonna
rækjubáta í Brazilíu. Skipa
smíðastöðvarnar hafa einn
ig sjálfar kannað mögu-
leika á útflutningi til Kan-
ada og Evrópu.
Forsaga þessa máls er sú, að f
vor var hafin samkvæmt tilstuðlan
iðnaðarmálaráðuneytisins könnun á
því, hvort ekki væri unnt aö afla
skipasmíðastöðvum verkefna með
útflutning í huga. í fyrstu var hug-
myndin að reyna við útflutning
skemmtibáta á Bandaríkjamarkað,
en víð nánari könnun var álitið,
að’þetta væri mjöig fjárfrekt og sér-
hæft svið, þar sem við mikla sam-
keppni væri viö að etja.
Samband náðist við bandarískt
fyrirtæki, Stokie International í
Bandaríkjunum, sem hefur söluskrif
stofur víðs vegar um heim, sérstak-
iega í þróunarlöndunum og sér um
sölu á fiskibátum. Þetta fvrirtæki
tók að sér að kanna möguleika
á útflutningi héöan og var í því
sambandi gerður bæklingur á veg-
um ráðuneytisins til að kynna is-
lenzkar skipasmíðastöðvar.
Þetta hefur orðið til þess, að fyr-
irspurnir hafa borizt og útboðslýs-
ingar, en nú er veriö að vinna að
tilboðum í þessi skip eins og skýrt
er frá hér að ofan.
Stokie International mun fylgjast
meö þvf, ef möguleikar opnast víð-
ar, en of snemmt er að spá um,
hvaða ávöxt þessi tilraun ber.
Fyrir hönd iðnaðarmálaráðuneyt-
isins hafa þeir Steinar Berg Björns-
son og Pétur Pétursson aðallega
unnið að þessum athugunum.
verk^ðtáKtknum BÆNDUR VEFENGJA
• Loöskinn h.f. er nú að und-
irbúa mikinn sútunariðnað á
Sauðárkróki eins og kunnugt er.
Gerð verksmiðjuhússins er nú
langt kominn, en það hefur vak-
ið athygli, að engir gluggar
verða á húsinu nema fyrir
skrifstofur og kaffistofur. Sjálf
ir verksmiðjusalirnir verða al-
gjörlega gluggalausir.
Staðreyndin er sú, að gluggabirta
er alls ekki nógu góð, sagði Björg-
vin Ólafsson, einn af foráðamönn-
um Loðskinna í viðtali við Vísi i
morgun. Rafmagnslýsing verður
miklu jafnari og betrí og því
heppilegri vinnulýsihg.
Þetta verðúr fyrsta gluggalausa
verksmiðjan á lslandi, sem Vísi er
kunnugt um, en erlendis er orðið
nokkuð algengt, að
nota aðeins
á 10. síðu.
Vcrzlanir fyrir
fuglinn fljúgandi
u
LAXARDALSNEFND
— Senn látið til skarar skriða i virkjunarmálum Þingeyinga
— nefnist grein um óvenjulegt mál,
sem kom upp fyrir nokkru í
Kópavogi. Með þeim miklu breyt-
ingum, sem urðu á vegakerfinu
gegnum kaupstaðinn urðu nokkrar
Á næstunni má búast við að til
skarar verði látið skrfða í virkjun-
armálum Þingeyinga. Héraðsnefnd,
sem kosin var til þess aö gæta
hagsmuna bænda vegna fyrirhug-
aðra vjrkjunarframkvæmda í Laxá
' bezt staðsettu verzlanir bæjarins \ vinnur nú að því að kalla saman
allt í einu „settar hjá“, umferöar-
gatan var grafin niður, en verzl-
anirnar voru skyndilega svo hátt
uppi, að helzt var fyrir færustu
fjallgöneumpnn að verzla við þær.
— Sja bls. 9 í dag
fund meö þingmönnum kjördæmjS'
ins til þess að knýja á með sín
sjónarmið. Héraðsnefndin hefur nú
seni frá sér greinargerð, þar sem
efazt er um nauðsyn og heimild
til þeirrar virkjunar, sem áætlað
er að byggja í Laxá, en hún myndi
hnotskurn
— sjá bls. 8
hafa í för með sér eyðileggingu
talsverðs hluta Laxárdalsins.
— Viö teljum þurfa sterkari
rök, en hingað til hafa komið
fram, til þess að hætt verði við
þá virkjun, sem þarna er áætlað að
byggja. sagði Knútur Otterstedt
rafveitustjóri á Akureyri, við Vísi
í morgun. — Knútur hvað enga
breytingu hafa oröið á afstöðu for-
svarsmanna Laxárvirkjunar í
þessu máli. — Þarna á sem kunn-
ugt er að reisa 54 þúsund watta
virkjun, en 7 þús. wött verða virkj-
uð í fyfsta áfanga. Útboð hafa
þegar verið gerð og verða tilboð í
sjálfar byggingarframkvæmdirnar
opnuð i desember, en tilboð í út-
búnað stöðvarinnar í janúar.
— Tlermóður Guðmundsson í
Árnesi, talsmaður héraðsnefndar-
'nnar sagði við Vísi í morgun, að
það væri álit nefndarinnar að þarna
rnætti gera virkjun sem fullnægði
orkuþörfinni á þessu svæði í fram-
tíðinni, án þess að slík röskun yrði
gerð á byggðinni í Laxárdal.
Hermóður kvað bændur sizt
mótfallna slíkri virkjun. Hann
sagði ennfremur að bændur hefðu
ýmislegt að athuga viö greinargerð
þá, spm svonefnd „Laxárnefnd"
hefði sent frá sér núna nýlega, en
sú nefnd átti að fjalla um það
hvaða áhrif þessi virkjun hefði á
Laxá. Nefnd þessi var skipuð 65
mönnum.
— Við véfengjum bæði skipun
nefndarinnar og niðurstöður henn-
ar, sagði Hermóður. Orkumála-
stjóri skipaði þessa nefnd 1965 og
í henni eiga sæti starfmenn Orku-
málastofnunarinnar og verkfræð-
ingurinn, sem sér um virkjunar-
framkvæmdirnar og er hann þann-
ig settur til þess að dæma sín
eigin verk.