Vísir - 14.11.1969, Page 8
8
V1SIR . Föstudagur 14. nóvember 1969.
Útgefandi: Reykjaprent h.t.
"ramkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Kxcsrtfóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099
Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 165.00 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakiö
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f._____________________________
Hverjir missa aivinnu?
Xalið er, að um fimmti hluti íslenzks iðnaðar sé toll-
verndaður að einhverju ráði. í þessum greinum starfa
um eða tæplega 4000 manns. Bent hefur verið á, að
búast megi við, að mestu erfiðleikarnir við væntan-
lega aðild okkar að Fríverzlunarbandalaginu muni
verða í þessum tollvernduðu greinum. Þessi staðreynd
hefur valdið þeim misskilningi hjá Kristjáni Friðriks-
syni iðnrekanda og raunar fleiri, að þessi 4000
manns muni verða atvinnulaus, þegar við göngum í
samtökin um fríverzlunina.
Margar þessára tollvernduðu greina og þær fjöl-
mennustu búa nú við svo háa tolla á hráefnum og
vélum, að tollverndin, sem þær njóta, mun ekki
minnka neitt fyrstu f jögur árin. Það er nefnilega ráð-
gert að láta lækkun hráefnis- og vélatolla jafna upp
lækkun tolla á innfluttri iðnaðarvöru. Það verður ekki
fyrr en eftir fjögur ár, að tollverndin fer að minnka,
og mun sú breyting taka sex ár til viðbótar. í þess-
um hópi iðngreina eru fatagerð og smíði húsgagna og
innréttinga, sem hafa til samans helminginn af öll-,
um mannafla í þessum tollvernduðu greinum.
í hópi hinna tollvernduðu greina eru ennfremur
greinar eins og skinna- og leðuriðnaður, sem munu
örugglega ekki bíða neitt tjón, þótt tollverndin hverfi.
í slíkum greinum mun þvert á móti verða mikil út-
þensla. Útflutningur skinnavöru og pelsa er nú að
byrja fyrir alvöru og hann mun vaxa enn hraðar,
þegar búið er að fella niður tolla á þessum vörum
okkar í löndum Fríverzlunarbandalagsins á næsta ári.
Svipað má einnig segja um ullariðnaðinn, þar sem
uppgötvazt hafa miklir möguleikar á útflutningi. I
slíkum greinum eru það hrein öfugmæli að tala um,
að atvinnuleysi sé væntanlegt. Þvert á móti munu
þær soga til sín mikið vinnuafl.
Það er aðeins í brauðgerð, kexgerð, gosdrykkjagerð
og sælgætisgerð, að tollverndin minnkar raunveru-
lega við inngöngu okkar í Fríverzlunarbandalagið.
En margt vegur þar á móti. Ö1 og gos verður ekki
hægt að flytja inn, því að flutningskostnaðurinn er
of mikill. Einnig er mjög erfitt að hugsa sér, að brauð-
gerð dragist saman við aðildina. Kexgerðin mun varla
dragast meira saman en þegar er orðið. Eina fjöl-
menna iðngreinin, sem segja má, að geti beðið um-
talsverðan hnekki af aðildinni, er sælgætisgerð, en
þar hafa 257 manns, aðallega konur, vinnu í 32 fyrir-
tækjum. Þess vegna mun líklega verða gripið til þess
ráðs að fresta innflutningi sælgætis fram til ársins
1972 til þess að gefa greininni betra ráðrúm til að-
lögunar.
Það er því út í bláinn að halda því fram, að starfs-
fólk hinna tollvernduðu greina verði atvinnulaust. I
ö'rfáum greinanna mun atvinna dragast eitthvað sam-
an, en í ö'örum þeirra mun hún aukast að sama skapi.
Og í öðrum iðnaði mun aðildin að fríverzluninni yfir-
leitt hafa mjög hagstæð áhrif. Það verður því rriikil
aukning atvinnu í iðnaði á næstu árum.
Uppdráttur af „Tunglgöngunni“ og fyrirkomulagi rannsóknartækjanna. — Vegalengdir mæld-
ar í fetum (ft): a = geimfarinn með tunglsviðsmæli sinn, b = sólvindmælir, c = tunglferj-
an, d = orkugjafi, e = stöð fyrir söfnun upplýsinga, f = tunglskjálftamælir, g = segul-
mæiir, h = „andrúmslofts“-mælir. — Þannig eru 300 fet frá tunglferjunni að upplýsinga-
stöðinni og annað sést mælt í fetum, og áttirnar eru sýndar neðst til hægri.
Kjarnakljúfur á tunglinu
veitir orku í eitt ár
— til rannsóknartækja,
Áætlað var í gærkvöldi,
að Apollo 12. yrði skotið
á loft klukkan 4.23 í dag
og ferðin byrja til hins
hringlaga marks á tungl
inu, um mílu í þvermál
á Hafi stormanna. Það
er 830 mílum frá Hafi
kyrrðarinnar, þar sem
Neil Armstrong og Aldr
in löbbuðu um í fyrstu
tunglferðinni í júlí.
Gangi allt aö óskum, munu þeir
Charles Conrad og Alan Bean
lenda tunglferju sinni aðeins
nokkur hundruð metrum frá
eldgígnum, þar sem hinn ó-
mannaði Surveyjor 3. lenti fyrir
ir tveimur og hálfu ári.
Hápunktur feröarinnar veröa
tilraunir tunglfaranna að klifra
niður í gíginn og taka á brott
með sér hluti úr Surveyor, sem
síðan verða athugaðir á jörðu
niðri.
Sjónvarpað í litum.
Þeir eiga að dveljast i um
31 stund á yfirborði tungls, tíu
sem eftir verða
stundum lengur en Armstrong
og Aldrin. Tvívegis munu þeir
fara úr tunglferjunni í þriggja
og hálfrar stundar .tunglgöngu'
í hvort sinn, sem sjónvarpað
verður á jörðu í litum.
Þriðji i áhöfninni er Richard
Gordon, sem flýgur umhverfis
tungl og bíöur þeirra félaga.
í fjöldamörgum smáum en þó
mikilvægum atriðum verður
ferð Apollo 12. merkilegri en
ferö Apollo 11. Eitt slíkt er,
að Apollo 11. átti þess kost aö
snúa aftur til jarðar, ef bilun
yrði í aöalvél, allt þar til hann
komst á braut um tungl. í ferð
Apollo 12. munu á miðri leið
veröa ieiðréttar skekkjur, ef
meö þarf, en síðan verður slík-
ur útbúnaður ekki notaður.
Apollo 12. verður í rúma tíu
daga á ferð í stað rúmra átta
daga Apollo 11. Eftir lendingu
munu tunglfararnir ljósmynda
hvem þann stað, sem hugsan-
legur er til lendingar í fram-
tíöinni.
Þá era þær sjö stundir, sem
þeir ganga um tunglið, miklu
meiri þrekraun en hin stutta
gönguferö fyrirrennara þeirra.
Conrad og Bean ættu líka
að sofa betur. Þeir hafa mun
þægilegri aðstöðu til svefns, og
var þess minnzt, að Armstrong
og Aldrin urðu andvaka á tungl
inu.
Kjarnakljúfur á tungli.
Lendingin á tunglinu á sam-
kvæmt þessari áætlun að verða
klukkan 7.58 á miðvikudag, 19.
nóvember, og fjóram stundum
síðar á Conrad að klifra niður
stigann. Hann kveikir á mynda-
vél og myndin af honum sést
í litum I sjónvarpi, er hann stíg
ur sitt fyrsta skref á tunglinu.
Þá koma tunglfaramir fyrir
fjöldamörgum vísindatækjum.
Meðal þeirra er kjamakljúfur,
sem halda mun öðram tækjum
í gangi eitt ár. Þar er geisla
virku plútónium breytt í raf-
magn. Bean fær það erfiða verk
efni að koma fyrir þessum
kljúf, sem er gífurlega heitur
viðkomu, þótt varinn sé. Ti!
þess notar hann tæki. að
brenna sig ekki og búning sinn.
Önnur tunglgangan verður
næsta dag klukkan 6.30 árdeg
is. Þá eiga þeir að skoða leif-
arnar af Surveyor 3. Síödegis
þann dag, 20. nóvember, eiga
þeir að skjóta sér upp aftur
frá tunglinu og tengjast móður
skipinu, þar sem Gordon er.
Lending er áætluö klukkan
10.03 síödegis, mánudaginn 24.
nóvember.
Peir segja...
Brezka stjórnin
stöðvi hungur-
dauðann
„Knýja ættj á hvern einasta
þingmann að fá brezku stjórn-
ina, sem sér Lagosstjórninni
fyrir vopnum, til þess aö krefj-
ast þess sem gjalds fyrir vopnin.
að hætt verði að nota hungriö
sem leið til fjöldamorða á sak-
lausum borgurum. Hversu al-
varlegar sem deilur þeirra hers-
höfðingjanna Gowons og
Ojukwu kunna að vera, ætti
vissulega að takast að sætta þá,
ef Bretland legði á það þunga á-
herzlu að koma vitinu fyrir þá.
Minna nægir ekki.
Vilji Stewart ekki láta minn-
ast sín í mannkynssögunni sem
ómannúðlegasta utanríkisráð-
herra, sem Bretland hefur átt,
ætti hann aö hugsa gang sinn,
hvort ekki sé rétt að gera út
hjálparleiðangur flughers eða
f!ota“,
Sunday Telegraph (London).
Sigur Nixons
„Eftir kosningarnar nú ræður
flokkur Nixons öllum stóru iðn-
aðarfylkjunum í Bandaríkjunum
.. N;ðurstaða þeirra er fram-
hald þróunarinnar til hægri, en
þessi þröun er ekki jafnskýr
og menn kynnu að hafa ðttazt.
Engu síður eru kosningarnar
augljós sigur Nixons ... Samt
er vafasamt að túlka sigurinn i
ríkjunum tveimur (New Jersev
og Virginíu) sem traustsyfirlvs
ingu við hina höröu stefnu Nix-
ons í Víetnam. Hann fluttj ræou
sína kvöldið fyrir kosningar.
sem var of seint til þess að hún
hefði áhrif á fólk.“
France-Soir (París).
ani