Vísir - 14.11.1969, Blaðsíða 16
Minning um ekkju höfundar fajóðsöngsins
Ríkisstjórn íslands stendur aö
minningarathöfn um frú Eleanor
Sveinbjörnsson, ekkju Sveinbjöms
Sveinbjörnssonar, tónskálds, í Dóm-
kirkjunni í dag kl. 14.
Við athöfnina flytur Jón Auðuns
Dómkirkjuprestur minningarorð,
María Markan syngur þrjú lög eftir
Sveinbjöm Sveinbjörnsson.
Eleanor Sveinbjörnsson lézt 2.
september s.l. í Kanada og fór
jaröarför hennar fram þar.
Aska hinnar látnu verður jarð-
sett í Gamla kirkjugarðinum í graf-
reit þeim, sem Sveinbjörn Svein-
björnsson, höfundur þjóðsöngsins
hvflir f.
Hœtt við að Húsvíkingar
fái jólavörurnar seint
— Bilar á annan sólarhring að brjótast að
norðan — Leiðin getur lokazt á fáeinum min.
Það getur orðið erfitt að
koma jólavörunum norður á
Húsavík. Færð þangað norð-
ur er mjög þung og ófært er
landleiðina til Raufarhafnar,
Þórshafnar og Vopnafjarðar
og vöruflutningar hafa legið
niðri á þessa staði núna f
viku.
— Þetta getur lokazt á nokkr-
um mínútum, sagði Aðalgeir
Sigurgeirsson, bílstjóri frá Húsa
vík, í viðtali við Vísi í morgun,
en hann kom í bæinn frá Húsa-
vík í gærkvöldi. Frá Húsavík
lagði hann af stað á þriðjudag
klukkan 4.
— Það gekk seint og fast frá
Húsavík til Akureyrar, sagði
Aðalgeir, við vorum ejkki komnir
til Akureyrar fyrr en klukkan
átta um morguninn, eða eftir 16
tíma ferð, þrír bílar með veg-
hefil í fararbroddi. Þetta er erfið-
ur snjór, jafnfallinn og blautur.
Þessi ferð tekur venjulega 2—
2'/2 tíma í sumarfæri.
Þaö kemur að því hjá okkur
Húsvíkingum aö við verðum að
hætta ferðum. Leiðin frá Akur-
eyri til Húsavfkur er ekki rudd
nema einu sinni í viku, og þá
ekki nema verður leyfi. Þannig
gæti svo farið að ég vrði að
bíða á Akureyri fram á mánu-
dag, ef leiðin lokaðist. Það er
ekkert samræmi milli þess, hve
nær rutt er frá Akureyri og
suður og svo aftur frá Akureyri
til Húsavíkur Okkur þykir
þetta bágborin þjónusta.
Sunnudagsmatur
hjá Síid & fiski
Síld & fiskur hel'ur ákveðið að
hlaupa undir bagga mcð húsmæðr-
um í hádeginu á sunnudögum og
hafa þá opna verzlunina að Berg-
staðastræti 37, þar sem seldir verða
heitir og kaldir rétí'r. Er verzlunin
opin frá kl. 11 fyrir hádegi til kl.
1.30, eða í matartímanum.
Sem dæmi um rétti er verða til
sölu má nefna forréttina, graflax,
rækjukokkteill, fiskur í híáúpi,
sn'ttur og súpa, sem kostar frá 45 —
100 krónur skammturinn, kjötréttir
með öllu tilheyrandi t. d. grillað
lambslæri á 110 krónur skammtur-
inn grillaður kjúklingur á 155 kr.,
svínasteik á kr. 135 skammturinn,
hamborgarhryggur á sama verði,
kínverski rétturmn Tjá-tjá á 100
kr. skammturinn. Þá verða einnig
seldar heitar samlokur á 40—50 kr.
stykkið og réttur dagsins.
Maturinn verður afgreiddur í
plastílátum, en fólk getur komið
sjálft með ílát undir súpuna, ef það
kýs það.
Það birti heldur betur yfir sjómönnum við nýju verðákvörðunina. Enda þýðir það nærri þrefalda
kauphækkun fyrir þá. Hásetarnir á Asberginu, sem landaði 40 tonnum í Reykjavík í gær, hafa
haft 15—20 þúsund krónur eftir nóttina, miðað við nýja verðið, ef allur aflinn hefði verið tekinn
I sait. — Myndina tók Ijósm. Vísis B. G., þegar byrjað var að landa úr skipinu um sjöleytið í gær.
Barnið skauzf
heint fyrir bifreið
Fimm ára drengur lærbrotnaði,
þegar hann varð fyrir bifreið í gær-
kvöldi á Laugarnesveginum.
Eftir á skýrði ökumaöurinn svo
frá, að hann hefði ekki séð barnið
fyrr en um seinan. Hann hafði ver-
ið á leið norður Laugarnesveginn,
en á móts við hús nr. 72 hljóp
drengurinn út á götuna og kom
framundan kyrrstæðri bifreið, svo
að ökumaðurinn sá hann ekki fyrr
en drengurinn stóð á götunni fyrir
íraman bifreiðina.
Drengurinn var lagöur inn á
sjúkrahús, en hann hafði auk lær-
iirotsins, hlotið áverka á höfði, sem
þó voru ekki taldir alvarlegir.
AUSTURRISK
STJÓRN í 20 ÁR
0 Blóm, blóm,. blóm ... f
nokkrar mínútur voru þrjár
stúlkur á þeytingi við aö bera
upp á svið Háskólabíós blóm-
vendi, sem Lúðrasveit Reykja-
víkur og stjómanda hennar,
Pálj Pafnpichler Pálssyni, bárust
að loknum afmælistónleikunum.
0 Ejörugir marsar, léttir óper-
. ettuforleikir og heilar syrp-
ur úr söngleikjum, auk nokkurra
-------------------------------
íslenzkra laga (sum þeirra sam-
in af stjórnandanum sjálfum),
ómuðu í Háskólabíó í gærkvöldi,
en húsið var fullsetið áheyrend-
um, sem komu til þess að heyra
Lúðrasveitina minnast 20 ára
stjórnandaafmælis Páls Pam-
piclers, en í dag b'rtir Vísir viö-
tal við Pál.
Sjá bls. 9.
Búizt við skipum heim úr Norðursjó
hlít skýring. Sænskir síldarkaup
endur iðka nú sumir ýmislegt í
því skyni aö knésetja smærri
keppinauta og ná einræðisað-
stööu á markaðnum. Og það eru
þeir, sem staðið hafa fyrir hin-
um gífurlegu verðsprengingum.
Skip, sem voru að veiöum í
Breiöamerkurdýpi og ætluðu í
söluferð til Færeyja og þaðan í
Norðursjó, sneru við og lönd-
uðu aflanum heima, þar sem ís-
stæðara en skiptiveröið í Fær-
eyjum, sem er 13.80 kr. ísl. —
Söluverðiö þar er um 23 kr.
íslenzkar. Nú vona menn að
einhver ending verði í veið-
inni hér heima, þar sem tilfinn-
anlegur skortur er á saltfsíld
ytra. — Auk þess sem tilfinn-
legur beitusíldarskortur kemur
til meö að stöðva haust- og
vetrarvertíöina, ef ekki verður
hægt að frysta meira.
— Gifurlegar verðsveiflur i Danmórku, frá 23
upp i 60 krónur fyrir kilóið
til 2,20 kr. danskar hvert kg.
og Gideon seldi einnig í gær
fyrir 2,80 til 3,10.
Þetta veröhrun á markaðnum
ytra stafar ekki af of miklu
framboði því veiði hefur ekki
verið það mikil þessa dagana.
Hér mun vera um lélegri síld aö
Mörg íslenzku skipanna, sem
verið hafa við veiðar í Norð-
ursjó eru nú að búast til heim
ferðar, þar sem síldarverðið
hér heima er orðið mun trygg
ara en veðrið á sölumarkaði
erlendis, þar sem það hefur
,rokkað‘ frá tæpum sex krón-
um dönskum niður í 1,90 kr.
danskar. Akurey RE seldi í
Danmörku í gær fyrir 1,92