Vísir - 06.12.1969, Blaðsíða 7

Vísir - 06.12.1969, Blaðsíða 7
VI S I R . Laugardagur 6. desember 1969. NYJUNG WÓNUSIA Sé hringt fyrir kf. 16, sœkium við gegn vœgu gjaldi, smáauglýsingar á tímanum 16—18. Staðgreiðsla. Allar máltíðir með Husqvarna rafmagnspönnu unnar. ~^4óyeir5ion Suffurlandsbraut 16. Laugaveg-L 33. . Sími 35200. íf. AUGLÝSINGÁR AÐALSTR>CTI 8 SÍMAR 1-16-40 1-56-10 og 1-50-99 cTMenningarmál Hjörleifur Sigurösson skrifar um myndlist: Hollenzk myndlist CÚM hefur fengið hingað lista- verk frá Hollandi í svartasta skammdeginu. Fyrri samsýning þeirra með erlendum hreim var bæði kostuleg og lífleg um margt. Aftur á móti getum við sagt um þessa með bærilegri samvizku, að hún stand; fastari fótum bæði í nútíð og fortíð og sýni okkur persónurnar, svið þeirra og leikbrögð í skýrara ljósi. Sjálfum þykir mér mest koma til verka Lei Molin, er fæddist 1927 og hefur því tvo eða þrjá um fertugt. Er hann ekki samgrónari upphafi sínu en félagar hans á sýningunni, auk þess búinn að finna tón, sem verður ekki tortryggður — hvernig svo sem menn líta á kenjar búanna í kýrhausnum? Ég trúi því, að jafn beinni und- irstöðu verði ekki raskað til muna, jafnvel þótt einhver okk- ar kunni að bera brigður á smit- unareld hennar. Efniviður þessa klipputeiknara er fátæklegur en tjáningaræðin þeim mun inni- haldsríkari. Samt held ég það geti verið þreytandi að horfa á mörg verka hans í einu, af því að léttu strikin hefur stundum áður borið fyrir augu okkar. Jaap Wagemaker er annar Stefán Edelstein skrifar um tónlist: Bravó! 6. tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands s.l. fimmtudags- kvöld voru meö hinum ánægju- Iegustu það sem af er. Til aö byrja með var efnisskráin vel samansett og í góðu jafnvægi, þó e.t.v. í lengra lagi. Fyrsta verkið var Sinfónía K 318 eftir Mozart, meinlaust verk en aðlaðandi, reyndar eiginlega „forleikur“ í þremur atriðum (sem sinfónía upprunalega var). Hljómsveitinni tókst hér að mynda mjög samstilltan og fín- gerðan hljöm undir nærgætinni stjórn Alfred Walter. 17 ára unglingur frá Suður- Afríku, Marc Raubenheimer, lék einleikshlutverkið i píanókon- sert eftir tékkneska tónskáldið Kalabis. Sinfónía no. 2 éftir Kalabis er mér enn mjög minn- isstæð, en hún var flutt f maí s.l. Er píanókonsertinn öllu grynnri og veigaminni sem tón- smíð, en samt ánægjulegur á að hlusta og þakklátt verk fyrir einleikarann, sem fær tækifæri til að sýna kunnáttu sína og leikni. Raubenheimer hefur að- eins stundað píanónám í 5 ár og má það kallast óvenjumikill ár- angur, að geta leikið jafnerfitt verk og þetta á svo öruggan og afslappaðan hátt. Einnig má telja það vel af sér vikið af þessum æskumanni að leika tvo píanókonserta sama kvöldið, þvf eftir hlé iék hann einleikshlutverkið í hinum fræga konsert Schumanns. Einnig hér einkenndi öryggi og rólyndi leik Raubenheimers, tæknileg nákvæmni og mikil fingrafimi. En eins og vænta mátti, vantaði töluvert upp á, að Raubenheim- er tækist að ná yfirburðatökum á verkinu, og væri ósanngjarnt að ætlast til þess: hér vantar enn þroska og reynslu, túlkunin var elskuleg, en hiti og þungi verksins komust ekki til skiía nema að litlu leyti. Á mælikvarða hinna „stóru“ á Marc Raubenheimer enn margt ólært. Á mælikvarða ára sinna stóð hann sig með miklum yfirburöum. Samleikur hljóm- sveitar og einleikara var til fyr- irmyndar, þökk sé þeirri alúð, sem Alfred Walter sýndi verki og einleikara. Nokkur lýti voru, að 2 eða 3 nótur, sérstaklega tvistrikað C, voru áberandi falskar á flyglinum. Síðasta verkið var Sinfóniskar myndbreýtingar um stef eftir Weber eftir þýzka tónskáldið Hindemith. Verk fullt af þrötti, brilliant orku og úthverfri lífs- gleði, sem gerir háar kröfur til hljómsveitarmanna. Hinir 56 hljóðfæraleikarar kvöldsins sönnuðu með leik sinum, aö þeir eru færir í flestan sjó tónahafs- ins, ef þeir vilja á annað borð róa. Flutningur þeirra á verki Hindemiths, svo og^allur spila- máti kvöldsins vár þeim og, stjórnandanum til sóma. Áberandi mörg sæti voru auð ] þetta kvöld. Veit ég ekki hvort, kenna megi veðrinu um eða' dvínandi áhuga. Spáir það ekki \ góðu. mjög'svo áhugaveröur þátttak- andi. Honum er eiginlegt að flækja málið, blanda duglega saman aðferðum og síefnumið- um. Wagemaker dýrkar múr- verkið til jafns við málninguna og er hvorki hræddur við lyft- ingar né uppgrefti. Mér kæmi ekki allskostar á óvart, þótt hann vendist bezt þessara höf- unda. Stundum gerir hann helzti mikið af því að bregða einni og sömu slæðunni yfir myndina alla. Sú árátta hreykir sér á kostnað frjálsari vinnubragða. Rooskens þekkjum við af verk- um hans á Listasafni íslands og sýningum í Reykjavik . .. vönd- uöum og heilum í byggingarstíl en ekki að sama skapi tilfinn- ingaríkum. Myndir hans hjá SÚM eru of þurrar og ástriðu- snauðar að dómi undirritaðs nema ef vera skyldi sú litta gula undir risinu. Pierre van S»>est- teiknar af list hjartans og að þvi er virðist eðlislægri smámuna- semi. Erfiðast á ég með að sam- þykkja verk Latasters og Huigs. l>eir eru hvorugur neinir felumálarar en í þessari lotunni felli ég mig tæplega v.ið brögð þeirra í málverki, sem kenna mætti við riss og barnslega trú. Hafi Gallerí SÚM þökk fyrir merkilegt framtak og góða, lær< dómsríka sýningu. Mér þykir sennilegt, ,,að hún feli í sér þann anda eða hugsunarhátt, sem er og hefur verið einna mest ein- kennandi fyrir hollenzka mynd- list í dag og að undanfömu“ eins og stendur í formála sýn- ingarskrár. Nýjar bækur • Stjúpsysturnar eftir Margit Ravn, sem kunn er fyrir ástarsögur sínar. Þýð- ingin er eftir Helga Valtýsson. Útgefandi: Hildur. Bókband Fé- lagsbókbandið. Prentun: Setberg Bókin er 160 bls. Verð í verzlun- um: 236.50. • Tveir vinir barnabók eftir R. Friis. Saga um lítinn dreng, sem fer strokuferö tii Frakklands. Þýðandi Þor- valdur Kolbeins. Útgefandi HiM ur. Prentun Lithoprent. 126 bls. Verö í verzlunum 199.00. Ann Landers talar við táninga um kynlifið. Höfundurinn sér um lesendadálk blaðsins Sun Times í Chicago og gefur ráð- leggingar til lesenda, en þessi bók er sérstaklega skrifuð fyrir táninga og byggð á bréfum frá þeim. Knútur Kristinsson þýddi. Útgefandi Bjarki. Prentun og dreifing Lithoprent. 128 bls. — Verö í verzlunum: 258.00. • HÚSGAGNAVERZLUNIN Opið til klukkcm 10 í kvöld og sunnudagskvöld DÚN/ l AUfiBREKKU 5, k SÍMI: 42400 % KÓPAVOGI NÝJAR GERDIR SOFASETTA - NY AKLÆÐI ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ, MIÐAÐ VIÐ GÆÐI HUSGAGNAVERZLUNIN DÚNA AUÐBREKKU 59 SÍMI: 424 00 KÓPAV0GI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.