Vísir - 06.12.1969, Síða 11
V í SIR . Laugardagur 6. desember 1969.
I I DAG I IKVÖLD | I DAG B í KVÓLD B Í DAG
SJÓNVARP
Laugardagur 6. desember.
15.50 Endurtekiö efni: Karlakór-
inn Vísir syngur. Stjórnandi
Geirharöur Valtýsson.
16.15 Jón Sigurðsson. Sjónvarpið
hefur gert kvikmynd um líf og
störf Jóns Sigurðssonar forseta
í tilefni þess að 25 ár eru liöin
frá stofnun íslenzka lýðveldis-
isins. Lúövík Kristjánsson rit-
höfundur annaöist sagnfræði-
hlið þessarar dagskrár og leið-
beindi um myndaval. Umsjón-
armaður Eiður Guðnason.
17.00 Þýzka f sjónvarpi.
17.40 Húsmæðraþáttur. Um þess-
ar mundir fara húsmæöur að
huga að jólabakstrinum. Mar-
grét Kristinsdóttir leiðbeinir
um kökugerð.
18.00 íþróttir. M.a. leikur Úlf-
anna og Sunderlands I 1. deild
ensku knattspymunnar og ann-
ar hluti Norðurlandameistara-
móts kvenna f fimleikum.
Hlé
20.00 Fréttir.
20.25 Dísa. Dísa gengur í herinn.
20.50 Um víða veröld III. Fransk
ir vísindamenn heimsækja
frumbyggja á Nýju-Gíneu og í
Pólýnesíu. Þýöandi og þulur
Óskar Ingimarsson.
2.1.15 Majórinn og barnið. Gaman
mynd frá árinu 1942. Leikstjóri
Billy Wilder. Aðalhlutverk:
Ginger Rogers og Ray Milland.
Ung stúlka hyggst halda heim
úr stórborginni þar sem hún
hefur dvalið í ár og unnið fjöl-
mörg mismunandi störf. Þegar
til kemur, á hún ekki.fyrir far-
gjaldinu, og grfpur til þess
ráös að dulbúa sig sem tólf
ára stúlku.
22.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur 7. desember.
■ 18.00 Helgistund. Séra Þorsteinn
L. Jónsson, Vestmannaeyjum.
18.15 Stundin okkar. Ágústa
Rósmundsdóttir og Kristján
Stefánsson leika á harmoikur.
Á Skansinum, mynd úr dýra-
garðinum f Stokkhólmi. 4. þátt-
ur. Þýðandj Höskuldur Þráins-
son.
Nemendur dánsskóla Sigvalda
sýna dansa.
Heimsókn í Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði.
Kynnir Kristín Ólafsdóttir.
Umsjón Andrés Indriðason og
Tage Ammendrup.
18.55 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.20 Skemmtiþáttur. Umsjón
armaður Svavar Gests. Mánar
frá Selfossi, Bessi Bjarnason,
Inga Þórðardóttir og Ingibjörg
Guðmundsdóttir skemmta. —
Gestur þáttarins: Enok Ingi-
mundarson.
21.05 Barbara. Norskt sjónvarps-
leikrit. — Þýðandi Ðóra Haf-
steinsdóttir. — Kvæntur blaða
maöur er tekinn að þreytast í
hjónabandinu, og þrá eftir til-
breytingu gerir óþyrmilega
vart við sig hjá honum.
21.50 Veröld vélanna. Mynd án
orða um líf nútímans í heimi
háþróaörar tækni.
22.25 Dagskrárlok.
HEILSUGÆZLA •
SLYS:
Slysavarðstofan 1 Borgarspítal-
anum. Opin allan sólarhringinn.
Aðeins móttaka slasaöra. Sfmi
1212.
SJÚKRABIFKEIÐ:
Sími 11100 1 Reykjavfk og Kópa-
vogi. Simi 51336 i Hafnarfiröi
LÆKNIR:
Kvöld- og helgidagavarzla lækna
hefst hvern virkan dag kl. 17 og
stendur til kl. 8 aö morgni, um
helgar frá kl. 13 á laugardegi til
kl. 8 á mánudagsmorgni, slmi
2 12 30.
1 neyöartilfellum (ef ekki næst
til heimilislæknis) er tekið á móti
vitjanabeiðnum á skrifstofu
læknafélaganna í síma 1 15 10 frá
kl. 8—17 alla virka daga nema
laugardaga frá kl. 8—13.
Almennar upplýsingar um lækn
isþjónustu i borginni eru gefnar I
símsvara Læknafélags Reykjavfk
ur, sími 1 88 88.
Lækna /akt I Hafnarfirði og Garða
hreppi: Upplýsingar 1 lögreglu
varðstofunni, sfmi 50131 og
slökkvistöðinni 51100.
LYFJABÚÐIR:
6.—20. des.: Holtaapótek —
Laugavegsapótek. — Opið virka
daga til kl. 21, helga daga kl.
10-21.
Kópavogs- og Keflavíkurapótek
eru opin virka daga kl. 9—19,
laugardaga 9—14, helga daga
13—15. — Næturvarzla lyfjabúða
á Reykjavíkursvæðinu er 1 Stór-
holti 1, sími 23245.
| m
laugardag kl. 17.40:
og enginn þeirra dó!
Húsmæðraþáttur sjónvarpsins í
dag er með lengsta móti — þrír
stundarfjóröungar — enda um-
ræðuefnið á þann veg, að það
verður ekki tæmt á stuttum tíma.
„Það er jólabaksturinn, sem
ber á góma“, sagði Margrét Krist
insdóttir, stjómandi þáttarins,
húsmæðrakennari, ráðunautur
Osta- og smjörsölunnar, hótel-
stýra o. fl. Hún á eitt sameigin-
legt með skipskokknum, sem
hafði verið 30 ár matsveinn til
sjós, og hreykti sér af því, „að
hafa aldrei misst mann.“
„Nei, þaö hefur enginn dáið af
minni matseld", fullyrðir Mar-
grét og hlær að sögunni.
„Hvað komstu yfir margar
kökutegundir f þessum 3ja
stundarfjórðungaþætti?
„Fjórar kökur.“
„Er þetta ekki mesta vitleysa
hjá húsmæðrum, sem em sig
hreint að sprengja á þvi að baka
tugi kökutegunda?“
„Ég læt það vera. Jólin eru sá
tíminn, sem gjarnan má baka fall
egar og góöar kökur“, sagði Mar-
grét.
„Hvaða kökur ertu meö í
þessum þætti?“
„Það em spesíur (smákökur),
piparkökur, siffon-kaka, sem er
formkaka fyllt með ís og ávöxt-
um, og púðursykurterta, fyllt
með döðlum, möndlum og fleira
góðgæti.“
Umm ... namm, namm. Starfs
menn sjónvarpsins slógu upp
veizlu, þegar upptöku þáttarins
var lokið, og enn f dag — að
viku liðinni — tala þeir um
siffon-kökuna.
MINNINGARSPJÖID •
Minningarspjöld Menningar og
minningarsjóös kvenna. fást á eft
irtöldum stööum: skrifstofu sjóðs
ins aö Hallveigarstöðum Túngötu
14, Bókabúð Braga Brynjólfsson-
ar, Hafnarstræti 22, hjá Valgerði
Gísladóttur, Rauðalæk 24, hjá
Önnu Þorsteinsdóttur, Safamýri
56, hjá Guðnýju Helgadóttur,
Samtúni 16.
TONABÍÓ
Ósýnilegi njósnarinn
M3ISMSS5”
ITEBHícpi’
núnÍMA li'iiii ufin iiB.nwía I
TNItTII
Hörkuspennandi og bráð-
skemmtileg, ný, amerísk—
ítölsk mynd I litum. Islenzkur
texti. Patrich O’Neal, Ira
Furstenborg, Henry Silva.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuö börnum.
STJÖRNUBIO
Milljón dollara smyglið
Afar spennandi ný ítölsk-ame
rísk gamanmynd í Technicolor
og Cinemascope.
Vittorio Gassman,
Joan Collins
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NYJA BIÓ
íslenzkur texti.
Grikkinn Zorba
Heimsfræg grísk-amerisk stór
mynd gerð eftir skáidsögu Nik
os Kazantzakis. Anthony Qu-
inn, Alan Bates, Irene Papas,
Lila Kedrova.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 5 og 9.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Hryllingsherbergið
Sérstaklega spennandi, ame-
rfsk mynd í litum. ísl. texti.
Sesane Danova
Patric O’Neai
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
WÓÐLEIKHÖSIÐ
betur má ef duga SKAL
f kvöld kl. 20.
FIÐLARINN A ÞAKINU
sunnudag kl. 20. Tvær sýning
ar eftir.
Aðgöngumiðasalan opin frá
kl. 13.15 til 20. Sími 1-1200.
Iðnó-revían í kvöld.
Tobacco Road sunnudag.
Sá sem steiur fæti, er heppinn
í ástum miðvikud. sfðasta sinn
Aðgöngumiðasalan I Iðnó er
opin frá kl. 14. Sími 13191.
KOPAVOGSBIO
Dáðadrengir
Óvenju vel gerö og hörku-
spennandi amerísk mynd í lit-
um og Panavision. — Mynd í
flokki með hinni snilldariegu
kvikmynd „3 liðþjálfar.‘‘ ísl.
texti.
Tom Tryon
Senta Berger
Endursýnd kl. 9.
Bönnuð innan 14 ára.
mm
Flughetjan
Raunsönn og spennandi, ame-
rísk stórmvnd l litum og Cin-
emascope, er fjallar um flug
og loftorrustur i lok fyrri
heimsstyrjaldar.
Aöalhlutverk:
GeOrge Peppard
James Mason
Ursula Andrews
tslenzkur t^xti — hækkað verð
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
Ath. aðeins sýnd fram yfir
helgi.
Leikfélag Kópavogs
Lina langsokkur
Laugard. kl. 5. Sunnud. kl. 3.
Miðasala I Kópavogsbíói alla
daga frá kl, 4.30-8.30.
Sími 41985.
LAUGARÁSBÍÓ
Sovézka kvikmyndavikan:
Svanavatnið
Glæsileg ballettmynd á breið-
tjaldi frá Lenfilm — viö sí-
gildatónlist eftir Pjotr Tsjæ-
kovski. Leikstjórar Apollinari
Dúdko og Konstantín Sergéjev
í aðalhlutverkum eru listdans-
aramir Élena Évetééva, John
Markovski og Makhmud Ess-
ambæév, ásamt ballettflokki
Stóra leikhússins í Moskvu.
Aukamynd:
Ferð Islenzku þingmannanefnd
arinnar utn Sovétríkin á sl.
sumri.
Sýnd kl. 9.
VÍSIR