Mosfellsblaðið - 01.05.2000, Page 2
Góðar
fréttir frá
dómsmála-
ráðherra
LEIÐARI:
GYLFI GUÐJÓNSSON
^MFesturlandsvegurinn hefur löngum verið baggi á Mosfellingum vegna tíðra óhappa, slysa og dauðsfalla.
Nú er loks svo komið að menn eru sammála um nauðsyn þess að leggja fram fjármagn til aðgerða á
veginum sem lækkar slysatíðnina verulega. - Annað hefur gerst nú fyrir skömmu, að dómsmálaráðherra,
Sólveig Pétursdóttir kallaði fólk saman til fundar í Borgarleikhúsinu varðandi umferðarmál og lýsti hún því
yfir að umferðarlögreglan í Reykjavík yrði efld og umferðarmál hefðu nánast forgang í sínu ráðuneyti. Þetta
eru góðar fréttir því þessi mál hafa verið afskipt á undanförnum árum. - Nú nýlega var haldinn borgara-
fundur um samgöngumál í Hlégarði að tilhlutan Sjálfstæðisfélags Mosfellsbæjar. Þessi fundur var afar vel sótt-
ur og sýndi hve þetta málefni brennir á bæjarbúum. Þarna mættu nokkrir þingmenn, samgönguráðherra og
fulltrúi fráVegagerðinni.Á þessum fundi varð mjög góð samstaða með þingmönnum.fulltrúa vegagerðar og
reyndar samgönguráðherra, að fjármagna þyrfti tvöföldun vegarins hið fyrsta. - Nú hafa verið veittar 400
milljónir til verksins árin 2003 til 2004. Hins vegar meturVegagerðin málið svo að hönnun vegarins taki 2
ár, vegstæði er ekki Ijóst og mat á umhverfisáhrifum þarf að fara fram. Útboð getur hugsanlega farið fram
árið 2002. Hins vegar þarf að fylgja þessu máli vel eftir, en það hefur SigríðurÁnna Þórðardóttir alþingis-
maður gert. Blaðið hefur heimildir fýrir því að hún hefur unnið í máli þessu inni í þingmannahópi Reykja-
ness frá því fyrir síðustu alþingiskosningar og á stóran þátt í þessum framgangi. Fundurinn í Hlégarði var
vendipunktur.
Nýjar tillögur frá nefnd skipaðri af SSH um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hafa verið
kynntar í fjölmiðlum. Þessi aðferð við umfjöllun á stórmáli er ámælisverð. Mosfellsbær átti ekki fulltrúa í
þessari nefnd og það eitt gerir málið ótrúverðugt. Niðurstöður nefndarinnar voru ekki kynntar sveitar-
stjórnarmönnum áður en þær voru birtar í fjölmiðlum og Mosfellingar kæra sig ekki um að láta innlima sig
einhversstaðar án sinna afskipta.
Hugbúnaðarfyrirtækið Net-albúm.
net hefur nýlega komið sér fyrir á efstu
hæð Kjarnans. Fyrirtækið hefur til
þessa verið til húsa á Frumkvöðlasetri
Impru á Iðntæknistofnun og varð fyrst
þeirra aðila sem þar hafa slitið bams-
skónum til að flytja út. í glæsilegum
húsakynnum Kjamans situr nú á annan
tug manna og kvenna sem leggja síð-
ustu hönd á forritið Net-albúm. Þessi
alíslenska hugsmíð býður nýstárlegar
og mikilvirkar lausnir í geymslu og
umhirðu margmiðlunarefnis; rnynda,
tónlistar, teikninga, skannaðra skjala
og hreyfimynda. Markhópurinn er al-
mennir tölvunotendur. Ekki síst er litið
til eigenda skanna og stafrænna
myndavéla og þeirra sem nota Inter-
netið í einhverju mæli. Ófáir Mosfell-
ingar tilheyra þessum hópi og ættu þeir
að fylgjast grannt með framvindu
mála.
Útgefið af
Samtökum óháðra i
Mosfellsbæ.
Ritstjórar, ábyrgðarm.,
blaðam.: Helgi Sigurðsson
og Gylfi Guðjónsson,
s. 696 0042, fax 566 6815
íþróttir: Pétur Berg
Matthíasson, s. 861 8003
Dreifing:
Niels Hansen, s. 566 6446
3. tbl. 2000 - 3. árgangur
Af litlum neista
Net-albúm er hugarfóstur Kolbeins
Sigurjónssonar og Tryggva Scheving
Thorsteinssonar, sprottið af útskriftar-
verkefni þeirra frá Töivuháskóla Versl-
unarskóla fslands. Dr. Ólafur Amalds,
jarðvegsfræðingur við RALA á
Keldnaholti hafði spumir af kunnáttu
þeirra félaga og tjáði þeim vandkvæði
sín varðandi skráningu og vistun staf-
rænna mynda sem tengdust yfirgrips-
miklu verkefni hans um jarðvegseyð-
ingu. Verkefnið hlaut Umhverfisverð-
laun Norðurlandaráðs árið 1998 og má
sjá meira um það á http://www.rala.is
en það er önnur saga.
Innan tíðar kemur neytendaútgáfa
forritsins fyrir almennings sjónir. Hún
þykir lofa góðu og jafnvel rúmlega
það.
Góðir hlutir gerast hratt
Fyrirtækið Net-albúm fæddist árið
1998 eftir að Kolbeinn og Tryggvi,
sem báðir em Mosfellingar, höfðu
samband við Þorvald Inga Jónsson
viðskiptafræðing með áralanga
reynslu úr tölvugeiranum. Markið var
sett hátt og stefnt að heimsmarkaðs-
setningu forritsins á Netinu. Fyrst
þurfti þó að sanna tilverurétt hug-
myndarinnar og viðskiptaáætlun hins
unga félags hlaut 3. verðlaun í Ný-
sköpun 99, samkeppni um viðskiptaá-
ætlanir á vegum Nýsköpunarsjóðs,
KPMG og Morgunblaðsins.
F.v.: Gústaf Guðmundsson, Kristján Kristjánsson, Kolbeinn Sigurjónsson, Lárus Elíassort
Áslaug Björk Eggertsdóttir, Þorvaldur Ingi Jónsson, Ingibjörg Edda Haraldsdóttir, Valg^r !
Guðjónsson og Tryggvi Scheving Thorsteinsson. Á myndina vantar: Svein R. Sigurðsson, Helgtr
Rúnar Theódórsson og Gunnar Einarsson.
Bjartsýni á árangur
Hlutafé Net-albúms er alfarið komið
frá einstaklingum sem með þátttöku
sinni hafa sýnt trú sína á verkefninu og
höfundum þess í verki. Eigendur fé-
lagsins em í dag nflega 70 talsins og
hefur orðsporið farið dagvaxandi. Þá
hefur Atvinnuþróunarsjóður Mosfells-
bæjar stutt við bakið á hinu unga fyrir-
tæki með myndarlegu framlagi. Bær-
inn mun veita fyrstu eintökum forrits-
ins viðtöku innan tíðar sem viðurkenn-
ingarvotti á þeim skilningi og tiltrú
sem hann hefur sýnt fyrirtækinu.
Ahugi manna á foritinu Net-album
er reyndar engin tilviljun því lausnirn-
ar sem forritið býður þykja bæði ný-
stárlegar og vel útfærðar. Ymsir halda
því hikstalaust fram að Net-albúm
standi öðram sambærilegum forritum
langt framar og hafa öflugir íslenskir
og erlendir aðilar sýnt áhuga á sam-
starfi um þróun og dreifingu þess.
Hröð framþróun
Mjög er litið til þess að tölvur renna
nú óðfluga saman við aðra miðla, sjón-
varp, síma, dagblöð o.s.frv. Þessi þró-
un hefur m.a. í för með sér að tölvur
em í sívaxandi mæli notaðar til vistun-
ar og geymslu margvíslegra skjala;
mynda, tónlistar, hreyfimynda og
skannaðra skjala svo fátt sé nefnt.
Reynslan sýnir að sé ekki hugsað fyrir
skráningu og flokkun alls þessa efnis,
megi búast við tíðum umhverfisslys-
um í tölvum, þar sem erfitt verður að
finna efni. Eru þess þegar dæmi að
mikla vinnu hefur þurft að leggja í að
hafa upp á skjölum sem á þurfti að
halda og því bíða margir þess að ein-
föld, skilvirk lausn komi fram á sjónar-
sviðið. Þeir sem skoðað hafa telja Nel-
album standa undir merkjum í þeim
efnum. Hægt er að kynna sér forritið á
www.net-album.net og sækja reynslu-
útgáfu til skoðunar.