Mosfellsblaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 15
Bjarki þjalfar
og Beggi í FH
Eins og llestir vita þá beið Aftureld-
ing lægri hlut fyrir Haukum 2-1 í 4-
liða úrslitum íslandsmótsins í hand-
knattleik ekki alls fyrir löngu. Ég ætla
ekki að fara tíundu upp einhverjar töl-
ur úr leikjunum en síðasti leikur lið-
anna fer sennilega í sögubækumar sem
ótrúlegasti og jafnframt sorglegasti
leikur Aftureldingar frá upphafi. Úr-
slitin vom sanngjöm en grátleg, Hauk-
ar unnu síöan Fram í úrslitum 3-1.
Miklar hræringar hafa verið á leik-
jiiatinamarkaðnum að undanfömu og á
jugglega margt enn eftir að gerast.
^að helsta sem hefur gerst í herbúðum
okkar manna er að Skúli Gunnsteins-
son sem var að ljúka þriggja ára samn-
ing sínum við félagið hefur ákveðið að
hvfla sig á þjálfun í bili.
Bjarki Sigurðsson var því ráðinn en
óvíst er hver verður aðstoðarþjálfari
hans en Siggeir Magnússon sem að-
stoðaði Skúla verður að öllum líkind-
um ekki við hlið Bjarka á næstkom-
andi tímabili. Litháamir Savukynas
Gintaras og Galkauskas Gintas hafa
ákveðið að leika áfram með liðinu á
næstu leiktíð en þessir menn hafa stað-
ið sig afburðavel fyrir félagið. Gintaras
var meðal annars kosinn besti sóknar-
maður Nissandeildarinnar á lokahófi
HSÍ sem haldið var fyrir skemmstu.
Einar Gunnar gekkst fyrir stuttu undir
aðgerð á liðþófa í vinstra hné, en
meiðsli plöguðu Einar nær allt nýliðið
tímabil. Vonast er til að Einar verði
klár og kominn á skrið í haust.
Sterkasti línumaður landsins í dag
Magnús Már hefur gert tveggja ára
samning við félagið og má því segja að
það sé mikill hugur í stjómarmönnum
félagsins að halda liðinu á toppnum
þar sem það á heima. í kjölfar þess að
Bergsveinn leikur ekki meira með Aft-
ureldingu þá ákvað stjórnin að fá
Reynir Þór Reynisson frá KA en
Reynir hefur sýnt það og sannað að
hann getur varið og nú er bara að vona
að hann nái að fylla það djúpa skarð
sem Beggi skilur eftir
sig.
Astsælasti leikmað-
ur Aftureldingar
farinn
Bergsveinn Berg-
sveinsson hefur ákveðið
að leika með sínu gamla
félagi FH á næstu leik-
tíð en Beggi eins og
hann er kallaður er bú-
inn að vera stoð og styt-
ta liðsins í rúm 6 ár.
Beggi er búinn að vera
leiðtogi liðsins í gegn-
um súrt og sætt en þegar
hann kom til liðsins þá
var grunnurinn steyptur
og eftir það var hægt að
byggja upp það meist-
aralið sem vann allt í
fyrra.
Jóhann Guðjónsson
formaður handknatt-
leiksdeildarinnar fékk
Begga í Aftureldingu á
sínum tíma, ég talaði
við Jóhann fyrir stuttu
og hafði hann þá þetta að segja um
Begga. „Ég vill þakka Begga vel unn-
in störf fyrir félagið í gegnum árin og
óska honum velfarnaðar á nýjum eða
öllu heldur gömlum vettvangi,“ sagði
Jóhann Guðjónsson.
MosfellsblaAlð ©