Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Page 14

Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Page 14
OlprjrUDŒŒnrr Umsjón: Pétur Berg Matthíasson, þeir sem vilja koma upplýsingum og fréttum á íþróttasíðuna geta haft samband í síma: 861-8003 Hilmar er mikilvægur hlekkur í keðjunni Hilmar Stefánsson er ungur piltur að norðan sem kom til Aftureldingar haustið 1998 þá aðeins 18 ára gamall. Hilmar er uppalinn á Akureyri og býr fjölskyldan hans þar. Mamma Hilmars er hjúkrunarfræðingur, og pabbi hans vinnur sem sölumaður yflr dekkjum. Hilmar á einn eldri bróðir og svo tvö hálfsystkini. Hilmar er gríðarlega efnilegur handknattleiksmaður og hefur staðið sig afbragðsvel þar sem af er vetri. Hann er örvhentur og leikur því í hægra horninu með meistaratlokki Aftureldingar, fyrsta árið sem hann var hjá félaginu þá fékk hann ekki mikið að spila enda var liðið þá gríðarlega sterkt méð leikmann á borð við Sigurð Sveinsson sem spilar sömu stöðu. Á síðasta tímabili þá fékk Hilmar æ fleiri tækifæri og á þessu tímabili hefur hann byrjað inn á flestum leikjum liðsins. Þegar það kom í ljós að Sigurður Sveinsson myndi ekki spila með í vetur vegna meiðsla þá héldu margir að hægri mjög góður vinur, ég hef fengið mjög hlýjar móttökur og er mjög ánægður með það. Þar sem Sigurður Sveinsson er meiddur þá hefur mætt meira á þér, hefur þú fundið fyrir mikilli pressu og ef svo er hvernig hefur þú meðhöndlað hana? Jáaaaa neiiiii alls ekki, það fylgir alltaf ákveðin pressa manni þegar maður er að spila, en maður má bara ekkert vera að hugsa of mikið um það. Þetta er eitthvað sem maður verður að höndla og ég held ég hafi gert það ágætlega. Ég hef fengið góðan stuðning frá leikmönnum og þá Bjarka sérstaklega, einnig hafa stuðningsmenn sýnt mér mikinn stuðning. Þetta er reynsla en pressan er alltaf að minnka við hvem leik. Það eru gerðar til mín kröfur eins og annarra og maður verður bara að standa sig. Maður verður að útiloka alla neikvæðni því ef maður gerir mistök sem koma oft fyrir, þá fer fólk að öskra eða eitthvað en maður verður að útiloka allt svoleiðis því annars fer allt í lás og maður gerir jafnvel en fleiri mistök. Hverjir eru kostir og gallar Hilmars sem handknattleiks- manns? Ég er ekki hár í loftinu, það væri ekki slæmt að vera aðeins stærri. Þar sem ég er ekki mjög hár þá hefiir það áhrif er ég mæti mönnum á ferð sem eru stærri því þeir getað notað þyngd sína. Hins vegar hef ég mjög mikið keppnisskap og er mikill baráttumaður og gefst aldrei upp. Ég er þokkalega snöggur sem hjálpar mér mikið og ef ágætis skotkraft. Hvernig heldur þú að Aftureldingu muni vegna á síðari hluta tímabilsins? Eitt af markmiðunum er úrslita- leikur í bikar, en undan- úrslitaleikurinn við HK verður mjög erfiður. Vonandi náum við í bikarúrslit en ég held við eigum ekki eftir að gera mikið í deildinni, 4. sæti kannski þar væri gott fyrir úrslitakeppnina þar sem allt getur gerst. Ég held að við eigum eftir að koma mjög sterkir út úr þessari pásu, í fyrra vorum við sterkir íyrir jól en slakir eftir en ég held að það verði öðruvísi í ár. Það er mikill vilji í hópnum að gera betur, Palli, Savuska og Galka þessir menn eru eftir að koma miklu sterkari að ég held og fleiri. Hverjar eru framtíðar- horfurnar? Ég klára minn samning nú í vor, ég hef aldrei þorað að skrifa undir nema eins árs samning en svo hef ég verið hér í þrjú ár. Ég hef alltaf ætlað heim en svo hefur það breyst, en ég býst alveg eins við því að vera áfram hjá Aftureldingu eftir þetta tímabil. hornið yrði akkilesarhæll liðsins. Ég vinn upp á Teigi við Annað hefur komið á daginn og kjúklingaræktina, ég er búin að hefur Hilmar sýnt að hann er vinna þar síðan ég kom haustið sterkur hlekkur í keðjunni. 1998. Ég vinn þar sem aðstoðar- bústjóri og það er mjög gaman. Ég Hér má sjá Hilmar ásamt Kela inn í búningsklefa eftir góðan sigurleik Af hverju valdir þú Aftureldingu þegar þú komst suður til að spila handbolta? Bara áhugi, ég þekkti Nilla og eitt leiddi af öðru. Ég hafði kynnst Nilla í gegnum yngri landslið auk þess sem hann hafði verið á Akureyri í skóla og því vorum við í góðu sambandi. Ég hafði ekkert planað að koma suður og ætlaði upphaflega bara að vera þar og vinna og æfa. Nilli vissi að ég vildi koma suður og svo hafði handknattleiksdeild Aftureldingar samband við niig og ég ákvað að slá til. Hvar ertu að vinna? hef alltaf verið mikill sveitamaður og ef ég væri að hugsa um einhvem skóla þá færi ég líklega í Bændaskólann. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á bústörfum og kjúklingaræktin á því vel við mig. Ég er einnig að þjálfa unglinga- flokk hjá Aftureldingu. Hefur þú eignast marga vini hérna? Já, þetta er alveg búið að vera meiriháttar. Ég vill kannski ekki segja að ég eigi marga vini en ég þekki mikið af fólki. Það er mikið af fólki í kringum handboltan, áhorfendur jafnt sem aðrir og maður hefur kynnst mikið að góðu fólki í kringum það. Nilli er náttíimlega Katrín Dögg Hilmarsdóttir kylfingur íþróttamaður Mosfellsbæjar árinu. íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2000 er Katrín Dögg Hilmarsdóttir kylfingur úr golfklúbbnum Kili. Katrín vann Ijöldan allan af verðlaunum á árinu en glæsilegasta stund hennar var án efa þegar hún hafnaði í öðru sæti á Landsmóti kvenna í golfi. í öðru sæti í valinu var Savukynas Gintaras handknattleiks- maður úr Aftureldingu og í því þriðja var Kristján Magnússon hestamaður úr Herði. Katrín Dögg umkringd ungum aðdáendum er hún sker í sigurtertuna. íþróttamaður Mosfellsbæjar var valinn 14. janúar síðastliðinn í Hlégarði að viðstöddu fjölmenni. Ævar Sigdórsson sá um að stýra athöfninni í ár eins og svo mörg undanfarinn ár. Mosfellsbær var að heiðra íþróttamann bæjarins í níunda skipti ásamt öðrum íþróttamönnum sem höfðu staðið sig vel á Hér má sjá Sögu dóttir Magga Más línumanns ásamt mömmu sinni Katrínu Jónsdóttir, en eins og sjá má þá er Saga mjög hrifin af verðlaunagripnum sem pabbi hennar fékk. Knattspyrnutímabil yngri flokkanna komið á skrið Eftir rúmlega tveggja mánaða keppnishlé hjá yngri flokkum knattspyrnudeildarinnar þá virðist hvert mótið reka annað og því nóg að gera hjá ungum fólboltasnillingum í Mosfellsbæ. Svokallað Lego heimsmeistaramót var haldið að Varmá í desember. Fyrstu sunnudagarnir í desember voru notaðir til keppnishalds og komust fæni að en vildu. Tæplega 800 hundruð strákar tóku þátt í mótinu sem var bæði skemmtilegt og vel heppnað í alla staða. Hafa meðal annars stjórnendur tekið til umhugsunar þann möguleika að stækka næsta heimsmeistaramót, en það fer allt eftir aðstæðum og aðstöðu. Bjarki Már þjálfari hafði i nógu að snúast í lok desember er 6., 5. og 4 flokkur Aftureldingar tóku þátt í jólumótum. Gengi flokkanna var misjafnt og stóðu sumir sig betur en aðrir eins og gengur og gerist. Keppt var i glæsilegri Reykjaneshöll og kom 6. flokkur karla heim með silfur eftir erfiðan úrslitaleik. Mörg mót eru framundan og ber hæst að nefna íslandmótin innanhúss og svo Faxaflóamótið sem hefst í febrúar. Auk þessara móta verður án efa mikið um æfingaleiki en hjá llestum liðum stendur undirbúningur fyrir komandi keppnissumar sem hæst. Með 14. stig í pásuna Afturelding fór með 14. stig í vetrarpásuna og er í ó.sæti í deildinni jafnt FH að stigum en með lakari markatölu eftir þau afhroð sem liðið þurfti að þola gegn þeim á Strandgötunni rétt fyrir jól. Leikurinn við FH átti upphaflega að fara fram 17. des. en var færður til 15. des. af einhverju ástæðum sem mér þætti gaman að heyra einhvem tíman. Ég nefni þetta út af því að Afturelding lék við Stjömuna í bikamum 13. des. og því fáránlegt svo vægt sé tekið til orða að aðeins skuli líða einn dagur á milli leikja. FH var ekki að spila 13. des. því við vomm búnir að slá þá út úr bikarnum og þeir því í fríi. Leikurinn við FH var síðasti leikur liðsins fyrir jól svo það var engin ástæða fyrir því að flýta leik sem átti að vera á sunnudegi yfir á fostudag. Nóg um þessa vitleysu innan Handknattleikssambandsins í bili. Eins og flestir vita er handboltinn búinn að vera í langri pásu út af heimsmeistaramótinu sem fram fer í lok janúar í Frakklandi. Þar em engir leikmenn Aftureldingar en þó vom fjórir valdir í undirbúningshóp fyrir mótið. En allir afþökkuðu boð landsliðsþjálfara sökum anna. Svo er það bikarinn en Afturelding spilar gegn HK í 4 liða úrslitunum að Varmá 7. febrúar klukkan 20, en í hinum leiknum mætast Selfoss og Haukar. Mikilvægt er að allir Mosfellingar mæti á næstu leiki liðsins.

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.