Mosfellsblaðið - 01.01.2001, Qupperneq 15
BÆJARLEIKHUSSBRAGUR
Bláa húsið stendur hér og skemmtir bæði mér og þér
en við verðum að fara, það er ekkert bara.
Kirkjan vill hér taka völd, það verður snemma á þessari öld
því verðum við að hlýða
byijuð strax að kviða
því hér er okkar bú og ból
komin verðum við á ról um næstu jól,
en hvar við verðum veit nú enginn
bæjarstjómin löngu gengin upp að hnjám að finna
handa okkur húsið frítt
það þarf samt ekki að vera nýtt
öll viljum við leika,
látum hugann reika
um hvað Leikfélagið setti upp
það var bæði rabb og rupp,
grín og glens, nú er ég lens.
Best að tala um leikara þeir em að meika það,
þarna em Herdís stjóri og líka Gunni stóri,
Gunna, Harpa og Maja hún er engin pæja,
Gunny, Biddi og Lalli
og okkar fyrrum Palli,
Bogi, Hrena og Dóra
öll munu þau tóra
og flytjast svo í nýja húsið
við viljum ekki drekka búsið
heldur skála í malti
aldrei gleymist Hjalti.
Elsku góða bæjarstjóm
er það voða mikil fóm
að láta húsið standa
vanda branda gætið ykkar handa,
við sendum ykkur þúsund kossa og sorgartár
og segjum saman gleðilegt ár.
Dissararnir í Leikhúsinu
Einn stærsti kjúklingastaður í heimi
Hér er Helgi Vilhjálmsson í Góu í Hafnarfírði við nýtt hús sem hann
er að reisa við Vesturlandsveginn hér í Mosfellsbæ. Húsið er jarðhæð
um 500 ferm. og kjallari 350 ferm. Þarna verður starfræktur
kjúklingastaður, Kentucy Fried Chicken (KFC), sennilega einn sá
stærsti í heimi. Þar verður sérstakt leikland fyrir böm, einstakt alla
vega í Evrópu og verður myndarlegt, 100 fenn. með 6 m. lofthæð.
Þama getnr fólk borðað í ró og næði meðan bömin leika sér.
Opnað verður með glæsibrag með vorinu, en Helgi kvaðst vinna þetta
stig af stigi, þetta heföi gengið mjög vel með afar góðu samstarfi við
Áhaldahús Mosfellsbæjar, byggingarfuiltrúa og starfsfólk á skrifstofu,
sem hann langaði að senda kveðjur.
Vínartónlist í Hlégarði
Það verður létt stemning í Hlégarði sunnudaginn 28. janúar
næstkomandi en þá mun Sigrún Hjálmtýsdóttir flytja síunga
Vínartónlist ásamt fjögurra manna hljómsveit.
Á efnisskránni verða valsar og polkar, vínarljóð og aríur m.a.
eftir Johann Strauss yngri, Franz Lehár, Emmerich Kálmán
Robert Stolz og fleiri. Hljómsveitin er skipuð Sigrúnu
Eðvaldsdóttur, fiðluleikara og konsertmeistara, Sigurði Ingva
Snorrasyni, klarínettuleikara, Önnu Guðnýju
Guðmundsdóttur, píanóleikara og Páli Einarssyni,
kontrabassaleikara og jarðskjálftameistara. Það verður
tónlistarveisla í Hlégarði þann 28. janúar kl. 17.00 þar sem
margar góðar perlur munu hljóma og em Mosfellingar hvattir
til að fjölmenna.
Einangrunargler
a l la r ge rð i r
litið sýnishorn af framleiðslu Glertækní.
Þunnar rúður fyrir gömul hús. Glerið sem
grætur ekki. Hverfandi varmaleiðní á
köntum rúðu.
Mattur einangrandi
millilisti úr silikon
gúmmii sern inni-
heldur rakadrægt
efní. Öslitinn á
hornum, aðeins
ein samskeytí
á rúðu.
11 mm þykk rúða
með háeinangrandi
gleri eínangrar betur
en hefðbundín 20
mm þykk rúða
(4-12-4>.
Hotmelt Butyl rakaþétting
tryggir langan líftima
rúðunnar.
GLERTÆKNI ehf
GRÆNAMÝRI3 • 270 M0SHEUS8Æ • StMI 5668888 • FAX 5668889
Fasteignamarkaðurinn ^
Vantar eignir í Mosfellsbæ
vegna mikillar sölu.
Komum og skoðum samdægurs.
Frekari upplýsingar
er hægt að fá hjá Páli
í síma 5704500 og 698-8175
%