Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Qupperneq 9

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Qupperneq 9
Hvaða hljómsveit Svör óskast send á mosfellsbladid@isl.is Rétt svar við síðustu getraun var Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona. Rétt svar barst frá Inga Má Gunnarssyni Grundartanga 44. Hann fær 5 kg af spriklandi ýsu Flugumýri 6 • 270 Mosfellsbæ Sfmi 566 6705/896 1705 Sfmboöi 846 1705 Fax 566 7726 ■ Oll almenn rennlsmíði og fræsunl ' Viðgerðir og nýsmíði úr járnl, áli og stáli! • Þjónusta og ráðgjöf við iðnaðar- og framleiðslufyrirtæki! Örugg og góð þjónusta - hafðu samband - Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali Fasteignasala Mosfelfsbæjar Sími: 586 8080 www.fastmos.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ íMín skgbun Allt á hvolfi allsstaðar! (Skítlegt eðli ???) Sú var tíðin að helsti vorboð- inn hér í sveit var sá að lóan tók að syngja, böm fengu nýja striga- skó og þvottur tók að hanga úti á snúrum. En nú má vart heyra sungið „dirrindí", fótatak bama né blakt í þvotti fýrir hávaða frá fjúkandi sorpi. Ýmist hangir sorp þetta í grein- um trjáa eða fýkur framhjá í líki úttroðinna plastpoka merktum allrahanda verslunum. Ein- stöku sinnum leggur jafnvel ein og ein ruslatunna land undir fót og staldrar við í stærstu trjám á leið sinni út í buskann. Fyrir utan ruslatunnur má fínna í trjá- num drykkkjarfernur, samloku poka, nammibréf, gos- og bjór- umbúðir, glerbrot, leikföng, fatnað, grillyfirbreiður, nær- fatnað, teppi, garðáhöld, matar- leifar, bleiur, sjampóbrúsa, leir- tau, golfkúlur, dömubindi, allra- handa afþreyingarefni og kló- settpappír,- sumpart notaðan. Þetta ber fýrir augu þegar farið er í gönguferðir um bæinn. Eru það vinsamleg tilmæli okkar að fólk vakti almennt ruslatunnur sínar, reyri þær niður eftir bestu getu, forðist að skreyta garða nágrannana með vellyktandi innihaldinu, kippi þvottinum inn efhvellur brestur á og verndi eigur barnanna og heimilisins. Við viljum líka benda hesta- mönnum, grasmótorsriðlum sveitarinnar á, að eins og það er nú sjarmó og rómó að stunda hestamennsku, þá verða þeir vandfundnir, Sjarmó og Rómó þegar beðið er eftir afgreiðslu í apótekinu, sjoppunni, bank- an- um eða þegar kaupa á í soðið eða á grillið með hestafýluna í nösunum. Elskurnar, það þykir flott að anga af hrossafýlu í hestaréttum Skagafjarðar, en ekki við kjötborðið í Nóatúni í Mosó. Við hin njótum ekki innkaupanna sem skyldi með téðan þef í nösum, blótum ykkur í sand og ösku og grillsteikin verður pönnusteiktur fiskbúð- ingur úr dós. Að lokum, þar sem hunda- eigendur þurfa að hirða upp eftir hunda sína, gætuð þið, þá ekki bara bundið poka undir taglið á hestunum, þannig að við hin þyrftum ekki að vaða skítinn upp í ökkla á gangstígunum? Virðmgarfyllst. G. Sumia Gwmarsdóttir. Ófært að útivistarsvæði Fyrir tveimur árum síðan var tekið í notkun svokallað útivist- arsvæði í Ullamesbrekkunni. Til háborinnar skammar er hversu slæm aðkeyrslan er að svæðinu. Vegurinn er nær ófær fólksbílum þar sem hann er brattur og stórgrýttur. Ekki þarf að ráðast til mikilla framkvæmda til að bæta úr þessu ástandi svo það sé mönnum bjóðandi og fólk geti stundað þar sína útiveru án þess að rústa pústkerfi bíla sinna. Hannes Grímsson Drög að svefnbæ ? Sem ungur Mosfellingur átti ég oft leið um Alafosskvos til þess að heimsækja „Alafosska." Þá var líf í Kvosinni, verksmiðjan í gangi og við bömin lékum við ána. Alafosshringurinn var genginn og hittist þá fólk tíð- um. Því var eftirsjá af Kvosinni þegar verksmiðjan hætti og hverfíð tók að grotna niður. Alafosshringurinn varð ekki samur, niðumídd hús og sálar- laust iðnaðarhverfí. Tíminn leið. Allt í einu varð Kvosin spennandi. Rætt var um að listamenn hefðu aðstöðu til að iðka sína list. Gamla hjartað tók kipp! Átti að gera listahverfi úr gömlu Kvosinni? Opna krá? Flytja verksmiðjusöluna? Því ekki? Þetta var útúr byggð og þama gæti orðið góð stemmning. Adam var ekki lengi í Paradís. Upp komu raddir um óþarfa krá og hávaða sem héldi vöku fýrir fólki. Hvaða fólki? Var þetta þá íbúðarhverfi? Er óhætt að stórar rútur aki um og stoppi í íbúðar- hverfí? Einhverjir bjuggu þarna, en voru það ekki bóhemískir listunnendur sem leiddu svona smáræði framhjá sér? Um hríð gekk allt vel! En gamlir djöflar kunna ekki að sofa, komið er nýtt fólk í Kvos- ina sem vill gera þessa flóru lista að steindauðu svefnhverfí snobbsins og drepa allt sem þar grær annað en hrotur þess sjálfs. Ég vil að þetta hverfi verði það sem til stóð. List, hverju nafhi sem hún nefnist, á að njóta sín í Kvosinni og vera Mosfells- bænum til sóma og um leið á hún að gæða fyrrum stærsta atvinnusvæði sveitarinnar lífi. Með því að útiloka list frá þessum stað er stuðlað að því að aftur verði Kvosin ekkert nema niðumídd hús. Ég vil skora á bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ að halda sig við upphaflega stefnu í sambandi við Kvosina og láta ekki öfga- full öfl sjúga allt líf úr perlu Mosfellsbæjar. Kvosin lifi! Hjördís Kvaran Einarsdóttir. Óforskömmuð hegðun Það hefur lengi tíðkast að taka tillit til þeirra sem minna mega sín í umferðinni. Nú er svo komið að engum er hlíft. Eftir áratugastarf hef ég ákveðið að láta hér við sitja. Stefnuljós til hægri eða vinstri virðast engu máli skipta og því síður bremsuljós. Fólk er sífelt á hraðferð um þjóðvegi landsins. Grjótkast er minna en áður í sveitum Skaftafellssýslna. Oskar Þ. G.. Eiríksson Fló og fjör Fló og fjör var haldið í fjórða sinn eins og flestum er kunnugt í maí s.l. Mikill fjöldi fólks lagði leið sína bæði á flóamarkaðinn og ballið í risatjaldinu um kvöldið. Margt góðra gesta heiðraði samkomuna með nærveru sinni t.d Reynir Pétur sem seldi kerti frá Sólheimum, Skúli Norðdahl sem lék tónlist af diskum, Hárgreiðsludömur frá Pílus, og Lúðrasveitin. Hljómsveitin Gildran ásamt Eiríki Haukssyni og Billa Start lék svo um kvöldið um upphitunina á ballinu sá hljómsveitin One night stand. Ljósmyndimar hér að neðan tók Gylfi Dalman. Fjölgar í Háholti 14 Nýlega opnaði að Háholti 14 ný stofa sem býður uppá mjög ijölþætta þjónustu m.a svæðanudd, trimform, heilun, tarrot spil, kristalkúlur og höfuð beina og spjaldhryggjarmeðferðir. Stofan er í eigu þeirra Gunnvarar Bjömsdóttur, Ingibjargar Sigurunnar og Öglu Bjarkar Einarsdóttur. Þær stöllur ættu að vera bæjarbúum kunnugar. Hægt er að ná í þær í síma: Ingibjörg 869 - 4650, Gunnvör 899 - 4726 og Agla Björk 891 - 9391 Gunnvör Björnsdóttir og Ingibjörg Sigurunn á nýu stofunni Veislugaröur ehf. • Háholt 2 • 270 Mosfellsbær Sími 566 6195 • Fax 566 6097 • hlegard@binet.is flleri einangrar bctur en hefðbundin 20 mm þykk rúða (4-12-4). Hotmelt Butyl rakaþétting tryflflir langan llftima rúðunnar. GLERTÆKNI ehf tS litift sýnishorn af framleiftslu Glertaskni. Þunnar ruður fyrir gömul hús. Glerift sem grætur ekki. Hverfandi varmaloiftni á köntum rúftu. VEISLll i:\ll IIIIII Veisluþjónustan Hlégarði

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.