Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Page 11

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Page 11
Bæjarstjórn í kröppum dansi við umsækjendur Vandræði bæjarstjórnar vegna lóðaúthlutunar í desember s.l. ætla engan enda að taka. I framhaldi af úrskurði félags- málaráðuneytisins um miðjan apríl s.l. sendi bæjarstjórn umsækjendum sem hlunnfarnir voru við úthlutunina með hinum umdeildu viðmiðunarreglum "sáttabréf' eins og ráðuneytið lagði lil að gert yrði og var þeim gefinn kostur á að lýsa óskum, eða kröfum á hendur bænum. Frestur var gefinn til 18 maí s.l. Með bréfinu tókst bænum ekki betur til en svo, að þeir hafa fengið umsækjendur enn meir upp á móti sér. Eftir að hafa viðurkennt ámælisverð vinnu- brögð og brot á meginreglum stjómsýsluréttar við lóðaúthlutun sem fram fór 27. desember s.l., klikkir bærinn út með því að þetta sé þó ekki viðurkenning á bótaskyldu gagnvart bænum. Síðan lætur hann undir höfuð leggjast að greina frá því að hann hafi einnig framið stjórnarskrárbrot á umsækj- endum. Hann virðist síðan komast að þeirri niðurstöðu að ekki sé heimilt að leiðrétta lögbrotið eða bæta þeim sem misgert var við. í framhaldi af þessu hefur fjöldi umsækjenda sent bæjarstjórn bréf þar sem þess er krafist að úthlutunin verði tafarlaust aftur- kölluð og framkvæmd að nýju og þá löglega. Ella að ráðist verði tafarlaust í að gera byggingarhæfar lóðir til úthlut- unar og dregið úr umsækjendum sem voru með fullgilda umsókn. Fjöldi lóða verði miðaður við að sama hlutfall verði uppi og við útdrátt í desember s.I., þannig að allir hafi sama möguleika. Þá áskilja einhverjir sér allan rétt til bóta af hálfu bæjarins og benda á að þeir haldi öllum leiðum opnum til þess að leita réttar síns fyrir dómsstólum. Þegar þetta er skrifað hafa umsækjendur engin viðbrögð fengið frá bænum. I síðasta blaði var vikið að því að skrifa mætti um þátt ráðu- neytisins í þessu máli. Þar er fyrst fyrir að taka afglöp þess við meðferð kærumáls Axels Inga Eiríkssonar. Hann krafðist þess m.a. að réttaráhrifum lóðaút- hlutunarinnar yrði frestað á meðan kæra hans var til með- ferðar í ráðuneytinu. Ráðuneytið lét undir höfúð leggjast að taka þessa kröfu sjálfstætt fyrir eins og því bar að gera. Með þessu hefur ráðuneytið sjálft brotið ákvæði stjómsýslulaga við meðferð málsins sem verður að telja ámælisvert. Fengi umboðsmaður Alþingis málið til meðferðar er eins víst að embættið myndi láta frá sér heyra um svona málsmeðferð. Lagatúlkun ráðuneytisins sem það byggir niðurstöðu sína á í málinu er einnig ekki vafalaus og yrði tekist á um hana fyrir dómstólum ef málið endar þar. Sé það hins vegar niðurstaðan að beita þessari lagatúlkun er ljóst að stjórnsýslulögin eru meingölluð og almenningi alls ekki sú réttarbót sem hann hefur staðið í trú um að þau væm til þessa. Nýtt hringtorg á Vesturlandsveginn Skyndilega kom upp mikill ákafi hjá meirihlutanum í bæjar- stjórn að flýta tengingu Baugs- hlíðar við Vesturlandsveginn en það á að gerast með hringtorgi þar sem Skarhólabraut og Baugshlíð koma inn á Vestur- landsveginn. Heildarkostnaður verksins er áætlaður 125 mill- jónir króna og mun hlutur Mos- fellsbæjar í þeim kostnaði verða 60 milljónir króna, auk þess sem Mosfellsbær mun taka lán að upphæð 30 milljónir króna til þess að lána Vegagerðinni vaxta- laust í eitt til tvö ár. Ekki var gert ráð fyrir þessum miklu ijárframlögum í IJárhagsáætlun ársins 2001 né í þriggja ára ljárhagsáætlun bæjarins. Stæsti hluti kostnaðar Mosfellsbæjar er við uppbyggingu Skarhóla- brautarinnar og þar með er verið að festa þá stefnu í sessi að hún verði framtíðar tenging íbúa Hlíðartúnshverfisins við Vestur- landsveginn. Hvort það verður gert með því að íbúamir þurfi á leið sinni að heiman og heim að fara í gegnum hið fræga iðnaðar- hverfi liggur ekki Ijóst fyrir. Meirihlutinn vill að rokið verði í þessar framkvæmdir strax og svo virðist sem íslenskir aðalverktakar þrýsti á að fá þessa vegtengingu vegna íyrirhugaðrar uppbyggingar þeirra í Blikastaðalandi. Ljóst er að Islenskir aðalverktakar eru að verða sífellt áhrifameiri í skipulagi og uppbyggingu bæjarins og þá forgangsröðun sem viðhöfð er við ráðstöfún fjár úr bæjarsjóði og ekki stendur á meirihlutanum, sem skipar Framsóknarmenn og Samfýlkingarmenn (eða eru þeir vinstri grænir?) að þjóna þeim herrum. Stríð í r Alafosskvosinni Fyrir nokkrum ámm var svæðið í Alafosskvosinni deiliskipulagt sem þjónustu og verslunarsvæði, auk þess sem gert var ráð fyrir léttiðnaði. Svæðinu væri jafnframt ætlað að vera útivistar- og skemmti- svæði bæjarbúa. Gert var ráð fyrir að á þessu svæði væm vinnustofur listamanna og að kvosin yrði eins konar vettvangur þeirra og almennings. I deiliskipulaginu var gert ráð fyrir 5-6 stúdío- íbúðum í tengslum við vinnu- stofur listamannanna og hafa tvær slíkar verið samþykktar af hálfu bæjarfélagsins. Aðrar íbúðir á svæðinu hafa ekki verið samþykktar. A sínum tíma vom uppi efasemdir um samþykkt slíkra íbúða. Undanfarið hefúr borið á deilum í kvosinni vegna hávaða og em það tveir íbúar í ósamþykktum íbúðum sem kvarta. Kvartað er undan hávaða frá starfsemi krárinnar Alafoss föt bezt og hávaða frá starfsemi listamanna. Kom til kasta lögreglu vegna þess að hljómflutningstæki höfðu verið skilin eftir í gangi. Lögregla var fengin til að fara inn í íbúðina og skrúfa niður í tækjunum. Samkvæmt upplýs- ingum Mosfellsblaðsins var hér um gleymsku eiganda vinnu- stofúnnar að ræða, en listamað- urinn býr ekki á staðnum. Hann hafði bmgðið sér ffá og ætlað að koma aftur, en síðan breytt út af áætlun og farið lieim. Svona uppákomur em þó merki um spennt ástand. I rúman áratug hefur ríkt sátt og samlyndi í kvosinni, sem nú virðist fyrir bí. Rótin að erjum þessum eru breytingar á vinnustofum. Þannig hafði einn þeirra sem mest kvartar fengið leyfi annarra eigenda í Alafosshúsinu um að hann mætti byggja svalir samkvæmt ákveðinni bráða- birgðateikningu. Maðurinn byggði síðan svalir sem litu allt öðru vísi út án þess að hafa samband við byggingarfulltrúa eða aðra eigendur hússins. Teikn- ingar voru því ekki samþykktar né burðarþol. Gamla Álafosshúsið hefur sögulegt gildi og ekki er sama á hvem hátt því er breytt. Bærinn og íbúar Mosfellsbæjar eiga þetta útivistarsvæði og er það svo samkvæmt deiliskipu- lagi. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að þarna skuli vera þjónustu-, verslunar- og úti- vistarsvæði fyrir bæjarbúa. Gera verður ráð fyrir að slíkt standi. lbúar sem í dag eru að kvarta hljóta að hafa vitað um yfirlýstan tilgang svæðisins og þar með um þau óþægindi sem fylgja, þegar þeir fluttu í hverfið og innréttuðu stúdíóíbúðir. Þá hlýtur það að vera krafa að farið sé að lögum og reglum a.m.k á ekki að hefja fram- kvæmdir fyrr en tilskilin leyfi liggja fyrir. r Arsreikningur Mosfellsbæjar og stofnana hans árið 2000 Bæjarstjórn Mosfellsbæjar afgreiddi á fúndi sínum í gær 9. maí ársreikning bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árið 2000. Heildarskatttekjur bæjarsjóðs á árinu 2000 fóru í fyrsta sinn yfir milljarðinn og voru 1.106 milljónir og jukust um 17% milli ára. Þar af voru útsvarstekjur ársins 897 milljónir. Rekstur málaflokka án lífeyrisskuldbindinga tók til sín 884 milljónir og hækkaði um tæp 12% milli ára. Hlutfall af skatttekjum lækkar því úr 83,6% 1999 í 80% 2000. Stærsti einstaki kostnaðarliður bæjarsjóðs er launakostnaður. Var hann 743 milljónir á árinu 2000 sem er um 58% af heildarkostnaði bæjarsjóðs. Hækkar launakostnaður um 13% milli ára. Stærsti einstaki málaflokkurinn í rekstri bæjarsjóðs eru fræðslumál en rekstrarkostnaður vegna hans var 546 milljónir á árinu eða 49,3% af skatttekjum. Framlag rekstrar var 225 milljónir á árinu 2000 og hækkað um 67 milljónir á milli ára eða 43%. Er það í fyrsta skipti sem framlag bæjarsjóðs fer yfir 200 milljónir. Vaxtagjöld ársins umfram vaxtatekjur voru 70 milljónir í árslok. Greiðslubirði lána nettó er áfram lág eða 36 milljónir samanborið við 45 milljónir á síðasta ári. Heildarijárfestingar á árinu 2000 námu samtals 424 milljónum á árinu eða 38% af skatttekjum. Var gjaldfærð fjárfesting 102 milljónir, en eignfærð fjárfesting 321 milljón. Stærstu framkvæmdirnar eru framkvæmdir við nýbyggingarsvæði og bygging grunnskóla á Vestursvæði en til hans fór 251 milljón á árinu. Greiðsluafkoma bæjarsjóðs á árinu 2000 var neikvæð um 233 milljónir og voru tekin ný lán á árinu fyrir 232 milljónir. Nettóskuldir bæjarsjóðs voru í árslok 1.379 milljónir og jukust um 240 milljónir milli ára. Ársreikningur bæjarsjóðs er í samræmi við fjárhagsáætlun ársins. í árslok voru íbúar Mosfellsbæjar 6.096 og fjölgaði þeim um 4,2% milli ára. Ný stj ómmálafélög stofnuð I síðasta Sveitunga voru tvær auglýsingar sem boðuðu til stofnfunda tveggja stjórnmálafélaga í Mosfellsbæ. Stofnfundimir fóru fram með dags millibili á sama staðnum í sal Alþýðubandalagsins sáluga í Urðarholtinu. Þann 30. maí var stofnfundur stjórnmálafélags Samfylkingarinnar. Lög fyrir félagið voru samþykkt og kosið í stjóm. Formaður var kjörinn Þóra Guðmundsdóttir, en með henni í stjórn voru kjörin Valdimar Leó Friðriksson og Olafur Guðmundsson. Þann 31. maí var stjómmálafélag Vinstri Grænna stofnað í sama salnum. Samþykkt voru lög félagsins og kosin stjórn. Formaður var kosinn Ólafur Gunnarsson, en með honum í stjóm eru Bjarki Bjarnason og Jóhanna B. Magnúsdóttir. Samþykkt var að þessi stjórnmálafélög væru aðilar að bæjarmálafélaginu Mosfellingi. Nýlega var Guðbjöm Sigvaldason kjörinn fonnaður þess félags og tók hann við af Valdimari Leó Friðrikssyni. Mótorhjólaslys Betur fór en á horfðist þegar maður á mótorhjóli sem var á leið til Reykjavíkur á móts við Mosraf lenti í ákeyrslu við bíl sem beygt var niður í áttina að 11 - 11. Bílstjóri bílsins varð ekki hjólsins var fyrr en um seinan og beygði í veg fyrir það. Meiðsl voru lítilsháttar að sögn lögreglu. Viltu selja... - hafðu samband - Einar Páll Kjasrnestcd • Laggittvr tastagnasjli Fasteignasala Mosfeflsbæ/ar Simi: 586 8080 www.fastmos.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ

x

Mosfellsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.