Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Síða 12
Tónleikaferð Skólahljómsveitar
Mosfellsbæjar til VestQarða
Aðmorgni sumardagsins fyrsta þann 19. apríl sl. hélt
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í velheppnaða tón-
leikaferð til Vestfjarða. Tilgangur ferðarinnar var m.a.
að styðja við bakið á nýstofnaðri skólahljómsveit sem
starfar á ísafirði og Bolungarvík. Vestfírðingar höfðu
því undirbúið komu hljómsveitarinnar vel og
skipulagt bæði æfingar og tónleika á ísafírði og í
Bolungarvík. Það var yngri deild Skólahljómsveitar
Mosfellsbæjar sem fór að þessu sinni, en það eru
krakkar á aldrinum 10 til 13 ára. Aðaltónleikamir,
sem haldnir voru á Bolungavík, voru vel sóttir. Þar
glímdu ungir spilarar frá Isafirði, Bolungavík og
Mosfellsbæ við metnaðarfulla dagskrá. Stjórnendur
voru tveir:. Tómas Guðni Eggertsson frá Vestfírðing-
um og Birgir D. Sveinsson frá Mosfellingum. Þó
ekki hefði gefíst mikill tími til æfínga og þetta væri í
fyrsta skipti sem krakkarnir spiluðu öll saman, var
eins og þau hefðu ekki gert annað. Og þegar ekki var
verið að spila hafði Soffla Vagnsdóttir tónlistarkennari
á Bolungarvík undirbúið skemmtidagskrá. M.a. var
farið í sund, náttúrugripasafn Vestfjarða heimsótt og
krökkunum boðið á diskótek. Auk þess voru haldnar
kvöldvökur þar sem farið var í leiki og sungið við
raust. Stemningin var svo góð að menn tóku jafhvel að
yrkja ljóð:
Vestur við fórum í víðfrœga ferð
vorum í rutu af einhverri gerð,
blésum í lúður og borðuðum nammi
bannsettan hávaða höfðum í frammi.
Allt nú þó endar á ágætan hátt,
allir á diskó og höfum nú kátt!
og svo var sungið:
Lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína
777 Bolungarvíkur í boði við komum
og blíðari móttökur vart höfum séð.
Því þar ræður lífsgleðin lögum og lofum
og Ijómandi gestrisni bætir hvertgeð.
Með tárum við kveðjum og klökk erum nú
en mjög mun hún verma 'okkur minningin sú.
Tra, la...
I þessa ferð var farið á langferðabifreið frá hinum eina
sanna Jónatan. Það var því langt ferðalagið vestur.
Margar heiðar og margir fírðir sem ekið var um. Allir
stóðu sig samt eins og hetjur, en bíltúrinn tók nærri
níu tíma hvora leið. Sennilega var þetta lengsta rútu-
ferð flestra hljómsveitarmeðlima. Þess má geta að
nokkrir foreldrar voru með í för. Þau þurftu ýmsu að
sinna. M.a. varð tvisvar að leita læknis, bílveiki hrjáði
nokkra og krakkarnir vildu ekki fara í háttinn nema
að heyra krassandi draugasögur. En allt fór vel að
lokum. Heim kom hópurinn og hlakkar til að leggja
af stað á nýjan leik.
Ævar Aðalsteinsson
kattaeigendur
Nú að undanfömu hafa borist
auknar kvartanir til dýraeftir-
lits vegna mikils óþrifnaðar af
völdum hunda og katta, þ.e að
ekki er hirt upp eftir þá. Af þessu tilefni beinir
dýraeftirlitið þeim eindregnu tilmælum til eigenda
dýranna að hirða ávallt upp skítinn eftir þitt dýr.
Auk þess óskum við eftir því að dýraeigendur
skipti sér af öðrum dýraeigendum sem láti hjá
líðast að hreinsa upp eftir dýrið.
Það er mjög mikilvægt að allir
hunda og katta eigendur þrífí
upp skítinn og haldi umhverfmu
snyrtilegu, fáir sóðar eyðileggja
fyrir hinum sem eru til fýrir-
myndar. Einnig er eigendum
hunda og katta bent á að taka
tillits til fuglalífs á varptíma,
m.a með því að vera með hunda í bandi og hengja
bjöllu á ketti og takmarka útiveru þeirra.
Dýraeftirlit
Hunda og
Slett úr klaufunum
Blaðamaður Mosfellsblaðsins var á ferðinni um Kjósina á dögunum.
Honum til mikillar ánægju varð hann vitni af því þegar kúnurn í Miðdal
var hleypt út eftir veturdvöl á básum sínum. Kýrna slettu svo sannarlega
úr klaufunum og kæmi það ekki á óvart að harðsperrumar hafí verið
talsverðar daginn eftir og nytin ekki sem skildi.
Þessir krakkar eru í íþrótta- og tómstundaskóla Mosfellsbæjar.
Nemendumir vom í reiðhjólatúr með kennumnum sínum.
r
Alafosshlaupið
Frændumir Ólafur Karlsson og Kári Steinarsson blésu vart úr nös
eftir að hafa hlaupið 9 km í Álafosshlaupinu. Þeir sögðust samt
hafa verið orðnir talsvert lúnir þegar líða tók á. Þorstinn gerði þeim
helst erfítt fyrir en þeir fengu eins og aðrir keppendur drykk á
miðri leið. Svitinn bogaði af þeim frændum þegar í markið kom.
Það er gaman til þess að vita að þetta fornfræga hlaup skuli nú
hafa verið endurvakið. Það hafa margar kernpur hlaupið
Álafosshlaupið.
- auglýsingastofa -
HötNíNun, a.uglýstngárv
fasKlmgar, logo,
nafnspjöld o.fl.
HeiUarlaosritr
Karl Tómasson
Hilmar Gnniwsson
\ t’luppb stir(ú' isl.is
8‘)7-7ó64 • 694-6426