Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Síða 16
Leirmótun í Alafosskvos
2. vikna námskeið fyrir 7-12 ára
hefst 18. júní kl. 9 - 12 og 13 - 16.
Leiðbeinandi
Helga Jóhannesdóttir leirlistakona.
S 5668228, 5668587 og 6956694
Á leið til Eyja á Pæjumót
Fótboltastelpur úr Aftureldingu voru að selja vörur í
Kjamanum nú á dögunum. Þær eru á leið á Pæjumótið í sumar
og var salan m.a. vegna ijáröflunar á það mót.
Börnin
flykkjast í
Kjósina
Á hverju vori flykkjast böm úr
leikskólum á höfuðborgarsvæðinu í
sveitina. Þessara árlegu ferða er
ávallt beðið með eftirvænt-
ingu, enda kynnast börnin
mörgu skemmtilegu í
sveitinni. 1 sveitinni fá þau
að sjá öll helstu húsdýrin
okkar og umhverfi þeirra.
Ungviðið s.s. lömb, kálfar
og kettlingar fá jafnan
mikla athygli. Kristján
Finnson og Hildur Axels-
dóttir bændur að Grjóteyri í
Kjós voru þau fyrstu hér á
landi til að bjóða til sín
leikskólabömum. I samtali
við þau hjón á Grjóteyri
kom fram að þetta hafí
byrjað þegar Hildur lauk
námi í Fóstruskólanum
fyrir rúmlega 25 árum
síðan. Þau hafí þá fljótlega
byrjað að taka á móti
börnum frá fóstrum sem
höfðu verið með Hildi í skólanum.
Fljótlega hafi þetta undið upp á sig
og væri nú svo komið að þangað
kæmu börn frá leikskólum af öllu
höfuðborgarsvæðinu og frá leik-
skóluni sunnan með sjó. Þá taka
þau einnig á móti krökkum frá
Félagsmiðstöðvum og fatlaðir koma
einnig í heimsókn í sveitina.
Síðastliðinn 14-15 ár hefur þessi
starfsemi verið skipulögð í
tengslum við Upplýsingarþjónustu
bænda, sem m.a. styrkir þessa
starfsemi á ýmsan hátt. Kristján og
Hildur sögðu að þessar móttökur
hæfust í byrjun maí og lykju um
miðjan júní. Það kom fram að því
fylgdi jafnan mikið líf að fá þennan
skara í heimsókn og að áhuginn
væri mikill. Hildur sagði að bömin
sem kæmu drykkju mikla mjólk,
mun meira en heima hjá sér, en
m.a. er boðið upp á ískalda,
gerilsneydda mjólk frá Mjólkur-
samsölunni. 1 vor voru nokkrar
blikur á lofti varðandi heimsókn-
imar þar sem hræðslan við sjúk-
dóminn gin- og klaufaveiki lá í
loftinu. Málið var leyst með því að
koma fyrir sótthreinsimottum, sem
allir urðu að stíga á sem heimsóttu
búið. Þess má að lokum geta að
hjónin á Þorláksstöðum og í Miðdal
í Kjós taka einnig á móti
skólabömum. Það má því segja að
Kjósin sé að verða "sveit" flestra
bama á höfuðborgarsvæðinu.
Þingvallasveit
Sauðburður í Þingvallabæjum hefur almennt gengið
vel, en hjá Jóhanni í Mjóanesi er gífurleg frjósemi,
þar koma rúmlega tvö lömb undan hverri á, en
þær eru um 200 sem bera. Fleiri eru þrilembdar
en einlembdar, 23 á móti 18, hinar allar
tvílembdar. llla hefur gengið fyrir skyttur að ná ref
í vetur vegna snjóleysis, en nóg er af refnum og
bændur bera kvíðboga fyrir að sleppa fé vegna
þess.
Tún koma vel undan vetri að sjá, útjörð er sein til.
Veiði í Þingvallavatni hefur ekki verið mikil, enda
kalt að undanfömu, sagði Jóhann Jónsson í
Mjóanesi að lokum.