Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Síða 19

Mosfellsblaðið - 01.06.2001, Síða 19
U[þJEn. UlfiDmmŒLtUDr Atlantamótið í karate Sunnudaginn 13. maí hélt Ung- mennafélagið Afturelding At- lantamótið í karate. Mótið var haldið í íþróttahúsinu í Mos- fellsbæ og var þátttaka mjög góð þar sem 2/3 hluti þeirra sem æfa karate í Mosfellsbæ tóku þátt í mótinu. Keppt var bæði í einstaklingskata og hópkata. Kata er ímyndaður bardagi, þar sem sýnd eru ýmis brögð með höndum og fótum. Þar reynir á samhæfíngu líkamans, einbeit- ingu og kraft. Karate er jú sjálf- varnaríþrótt, sem gott er að kunna þegar á reynir. Einstak- lingskeppni í kata skiptist í 7 aldurshópa: Kata krakka, fædd 90-91, Kata krakka B, fædd 92 og eldri, Kata barna, fædd 92 og yngri, Kata barna, fædd 92-93, Kata barna B, fædd 93 og yngri, Kata barna, fædd 94 og yngri og að lokum, Kata opinn flokkur, þar sem unglingar og fullorðnir kepptu saman. Að síðustu var keppt í hópkata, þá keppa þrír saman í liði. Þá reynir verulega á samhæfíngu. Margir þátttak- endur voru að taka þátt í móti í fyrsta sinn. Þar mátti sjá marga efnilega karateiðkendur, sem eflaust munu verða áberandi á karatemótum í framtíðinni. Dómarar á mótinu voru Vicente Carrasco, Þorleikur Karlsson og Gerard Chinotte. Mótið tókst einstaklega vel. Flugfélagið Atlanta í Mosfellsbæ styrkti mótið höfðinglega. Allir kepp- endur voru leystir út með gjöfum og fóru glaðir heim með verðlaunapeninga, íþróttatöskur, húfur og flöskur. Vill Karate- deild Aftureldingar þakka félaginu góðan stuðning. Viðtal við Jóhann Guðjónsson formann handknattleiksdeildar ítrekuð dómgæslubrot "Ég bjóst við meiru í upphafi leiktíðar en liðið sýndi. Þegar leið á kom liins vegar í ljós að mikill stígandi var í liðinu og hvað bjó í þessu einu sterkasta og öllugasta liði landsins. Mestu vonbrigði vetrarins voru að falla út úr undanúrslitum í bikarkeppninni fyrir HK hér að Varmá. Liðið var andlaust á heimavelli í þessum mikilvæga leik. Vissulega var sárt að komast ekki í úrslitaleikinn um íslandsmeistaratitilinn, en ekki við strákana í liðinu að sakast, við vorum hreinlega flautaðir útaf af dómurum í leiknum við KA. Sú dómgæsla sem þar var framkvæmd á síðustu 15 sekúndum fyrri framlengingar var algjör óhæfa. Ég get aldrei sætt mig við að betra liðið, Aftur- elding, falli út vegna ítrekaðra dómgæslubrota. Þrátt fyrir brokkgenga byrjun í fyrrahaust hefði liðið átt að enda sem íslandsmeistari nú á vordögum. Vissulega verða umskipti með nýjum þjálfurum, en þeir hafa sýnt og sannað að Bjarki Sigurðs- son og Ásgeir Sveinsson eru fullfærir um að þjálfa eitt besta handboltalið á íslandi og skila því í fremstu röð. Breytingar á leikmannahóp Ákveðnar breytingar hafa verið gerðar á leikmannahópnum, Litháarnir Gintas og Gintaras eru farnir með fjölskyldum sínum til Litháen. Þeir settu mark sitt verulega á íslenskan handbolta, sérstaklega miðju- maðurinn Gintaras. Þeim er sérstaklega þakkað fyrir þátt sinn í handboltasögu Aftureld- ingar, svo og öðrum frábærum leikmönnum sem liðið hefur haft á að skipa, s.s. Jóni Andra Finnssyni og fleirum. Skarð margra fyrri leikmanna verður vandfyllt, en fyrir næsta keppn- istímabil kemur inn í liðið örvhenta skyttan Daði Haf- þórsson frá Danmörku og örv- henti hornamaðurinn Valgarð Thoroddsen, jafnframt rétthenta skyttan Sverrir Björnsson. Tíminn rennur áfram og vissu- lega er framtíðin björt. Fjórði flokkur karla eru nýkrýndir bikarmeistarar. Þriðji flokkur spilaði til úrslita um íslands- meistaratitilinn og það er fullt af efnilegum strákum í 2. flokki. Þarna er á ferð undirstaða framtíðarinnar í merkum hand- boltabæ, sem vonandi kemur til að vera. Slæm aðstaða í nýju íþróttahúsi Vissulega er löngu tímabært að bæjaryfírvöld skapi félagslega aðstöðu á íþróttavettvangi bæjar- ins, glæsilegt nýtt íþróttahús stendur nánast lamað gagnvart keppnisíþróttum, áhorf- endapallar ekki í sjónmáli, tekjuötlun handknattleiksdeild- arinnar í óvissu. Aðstaða deilda innan UMFA er háð góðvild heimilanna. Handboltadeildin heldur stórhátíð seinna í surnar og handknattleikslið Aftur- eldingar fer í æfingabúðir til Þýskalands þann 17. ágúst n.k. Mín lokaorð eru þau að ég og kona mín sem foreldrar biðjum aðra foreldra að hvetja böm sín til athafna á íþróttasviöinu, það er markmiðið og það verndar æskuna," sagði fonnaður hand- boltans að lokum. Holta kjúklipgur Uppskeruhátíð handboltans Handknattleiksdeild UMFA hélt lokahóf meistaraflokks að Ásláki laugardaginn 19. maí s.l. Þar var margt manna, leikmenn og fólk sem kemur að starfseminni á ýmsan hátt. Það var grillað ofan í mannskapinn úti, haldnar ræður og fólk skemmti sér hið besta. Veitt var viðurkenning fyrir besta leikmann ársins, sem að þessu sinni var Bjarki Sigurðsson. Jón Davíð Ragnarsson (Jóndi) afhenti bikarinn fyrir hönd stuðningsmanna liðsins, en þeir velja besta leikmanninn. Farandbikar þessi var gefinn af Reykjagarði h/f í upphafí og fyrstur til að öðlast þessa viðurkenningu var Róbert Sighvatsson árið 1996 - Bjarki Sigurðsson 1997 - Bergsveinn Bergsveinsson 1998 - Bjarki Sigurðsson 1999 - Bergsveinn Bergsveinsson 2000 - Bjarki Sigurðsson 2001. F.v. Jóhann Guðjónsson, Haraldur Guðjónsson, Júlíus Jónsson og Agnes kona hans og þá Kjartan Björnsson. F.v. Júlíus Jónsson, Alex Trufan og Ragnar Björnsson.

x

Mosfellsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellsblaðið
https://timarit.is/publication/1

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.