Vísir - 16.02.1970, Qupperneq 8
8
Utgefandi: Keyiqaprerjc n.».
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólísson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoöarritstjóri: Axei Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðaistræti 8. Simar 15610, 11660 og lí
Afgreiösla: Aðalstræti 8. Sfmi 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 165.00 á mánuöi innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðia Vlsis — Edda h.f.
í
Sjónvarpið í skólana
gkólakerfið okkar mun vafalaust breytast verulega á
næstu árum til samræmis við erlendar nýjungar og
til samræmis við nýjan skilning á þörfum þjóðfélags-
Jns. Nýjar hugmyndir eru hvarvetna að gerjast og að
• síast inn í þetta höfuðvígi tregðulögmálsins. Nú síð-
ast hefur verið gerð vönduð og skynsamleg áætlun
' um eðlis- og efnafræðikennslu í barna- og gagnfræða-
' skólum, og á að hefja framkvæmdir hennar í haust.
í allri slíkri nýbreytni þarf að sigrast á ýmsum erf-
iðleikum. Einn mesti vandinn er að fá í einu vetfangi
marga tugi sérmenntaðra kennara í hinum nýju grein-
um, ekki sízt þegar um greinar eins og eðlis- og efna-
,fræði er að ræða. Þess vegna er ráðgert að taka 115
kennara 11 og 12 ára bekkja á námskeið, áður en
skólar hefjast næsta haust, og búa þá undir að tak-
ast þessa nýju kennsluskyldu á herðar.
Mönnum er ljóst, að þetta er ekki nóg. Þar kemur
sjónvarpið til skjalanna. Það er tæki, sem getur orðið
til mikillar hjálpar á þessu sviði sem öðrum sviðum
skólamála. í því geta færustu fagkennarar notað full-
komin kennslutæki og einfaldar tilraunir til að veita
börnum innsýn í leyndardóma þessara vísindagreina
nútímans. Þá reynir minna á bekkjakennarana. Þeir
geta einbeitt sér að uppeldishliðinni og nánari útskýr-
ingum að útsendingu lokinni.
Þetta skólasjónvarp í eðlisfræði mun hefjast þegar
í haust^En það er ekki vonum fyrr, að slík starfsemi
byrjar. Um langt skeið hafa framsýnir menn verið að
klifa á skólasjónvarpi og sumir beinlínis haldið því
fram, að það ætti að vera meginverkefni íslenzka
sjónvarpsins. Áhrif þessara tillagna hafa því miður
verið mjög lítil. Bæði skólayfirvöld og Ríkisútvarpið
hafa miklað fyrir sér erfiðleika framkvæmdarinnar.
Sérstök ástæða er til að vara við þeirri stefnu að
framkvæma sjónvarpskennsluna með sendingum ut-
an skólatíma, er börnin eigi að taka við heima hjá sér.
Matthías Jónasson prófessor benti nýlega í blaða-
grein á hætturnar, sem þessu eru samfara. Mörg
heimili hafa ekki sjónvarp og kæra sig ekki um það.
Þá er kennari barnanna við slíkar aðstæður kominn
úr tengslum við sjónvarpskennsluna. Einnig munu
börn gjarna skrópa úr þessum heimatímum. Loks
hafa mörg þeirra ekki næði til að hafa fullt gagn af
sendingunum. Matthías varaði réttilega við slíku káki.
Það gagnar ekki að afsaka þetta heimasjónvarp
með því að bera við tæknilegum örðugleikum í skól-
um. Vissulega þarf að kaupa sjónvarpstæki í margar
stofur í hverjum skóla, og það kostar fé. En önnur
vandamál eru aðeins skipulagsleg og getur letin ein
hindrað lausn þeirra. Skólasjónvarpið í haust má ekki
verða neitt kák. Það er of mikið í húfi til þess; Þess-
ar nýju greinar eru of mikilvægar til þess. Skóla-
sjónvarpið sem nýjung er of nauðsynlegt til þess.
Skólasjónvarpið á hvergi heima nema í skólunum
sjálfum, sem mikilvægasta kennslutæki þeirra og sem
lífrænn hluti námsins.
/
I
IIBBSIHðllll
M) MfMÍ
Umsjón: Haukur Helgason
Yngri menn hefjast nú
til valda í Rauða hern-
um, jafnframt sem hann
hefur mikinn liðsafnað
við landamæri Kína. All
ur hefur herinn verið
endurskipulagður síð-
ustu tvö ár.
j^auði herinn tryggði sigur
bolsévikka í Sovétríkjunum
árin eftir 1917 og vann bug á
andstæðingum sínum sem hann
kallaði hvítliða. Hann tók Ber-
lín. Sovétborgarar eiga aö trúa
því að Rauði herinn hafi haldiö
innreið sína í Ungverjaland árið
1956 og Tékkóslóvakíu árið
1968 til þess að frelsa þjóðimar
undan oki fasismans og heims-
valdastefnu Þjóðverja. Rauði
herinn er sveipaður dýrðarijóma
f Sovétríkjunum.
Krustjev vildi grafa auðvalds-
ríkin með bví að Sovétríkin
fæm fram úr þeim um fram-
leiðslu og lífskjör. Sá draumur
er enn fjarlægur Sovétborgaran-
um. Máttur Sovétríkjanna er
Rauöi herinn,
Eldflaugasérfræðingur
tekur við
Fréttimar um endurskipulagn-
ingu hersins sýna bezt tivar‘J
mæðir á Sovétríkjunum Smám
saman milil áranna 1967 op
1969 var herstyrkurinn viö
landamæri Kina aukinn úr 15
21 herdeild. Þar er kominn nýr
foringi. Fyrri yfirmaður hersins
var sérfræðingur í skrið-
drekahemaöi. Hann hefur nú
verið fluttur til, og f hans stað
kemur sérfræðingur í eld-
flaugahemaði Vladimir F.
Tolubko. 55 ára.
Tolubko varð yfirmaður hers-
ins f Síberfu árið 1968 og fór
með Sovétleiðtogum til Hanoi á
dögunum. Næsta ár var breyt-
ingin á „austurvígstöðvunum"
fullkomnuð. Nú skyldi áherzlan
lögð á eldflaugar til sóknar og
vamar gegn Kína.
Þá hefur verið sett á fót sér-
stök herstjóm fyrir Mið-Asfu,
sem einkum beinist að eflingu
hersins í Turkestan, sem er rétt
fyrir norðan hið hemaðarlega
mikilvæga hérað Sinkiang í
Kína.
Mongólía
styður Moskvu
Rússar hafa tryggt aðstöðu
sfna í Ytri Mongólfu, sem ligg-
ur millj Sovétríkjanna og Kfna
og hallast að Moskvu f hugsjóna
baráttunni. Þar hafa hermenn úr
Rauða hemum búið um sig síö-
ustu tvö árin. Skýrt var frá því
f höfuðborg Ytri Mongóliu,
Ulan Bator, árið 1967, að tug-
þúsundir sovéthermanna væru
þar komnar. Fréttir herma, að
Rússar hafi komið fyrir eld-
flaugum í Mongólfu, sem beint
er gegn Kína.
Bak við hinn aukna styrk
Rauöa hersins við landamæri
Kfna liggur sá ótti, að ágrein-
ingur landanna i him=,í'ri!.ioo
um efnum muni leiða til úrslita-
átaka á vfgvellinum áður en
lýkur. Kínverjar eru margfalt
fjölmennari og eflast nú af kjam
orkuvopnum og eldflaugum.
lagður
Fjölgað úr 15 /27 herdeild við ausfurlanda-
mærin — Eldflaugum /
oð Kina
Áhyggjuminna á
„vesturvígstöðvunum“
Á „vesturvígstöðvunum" eru
Rússar áhyggjuminni. Þeir
þykjast að þvl komnir aö Ijúka
aðgerðum sínum f Tékkóslóvakíu
og ekkj þurfa að bera kvíðboga
fyrir úrslitum þar. Hersveitir
þær. sem standa andspænis her-
sveitum Atlantshafsbandalags-
ins eru svipaðar að styrk og hef-
ur verið.
Varsjárbandalagið hefur þegar
samið áætiun um hernaðarmál
þessa árs. Eina óvissan, eins og
sakir standa, er spumingin
hvort Sovétríkin muni krefiast
þess af Rúmenum. að heræfingar
verði á rúmenskri grund. Þar
hefur bandalagið ekki haft æf-
ingar síðan 1962, enda grunnt
á þvf góða með Rússum og
Rúmenum. Þá telja æðstit menn
Rauða hersins, að lítið verði
unnt að treysta á her Tékkó-
slóvakíu. ef á byrfti að halda
Þurfi nú að koma til endurskipu-
lagning og „endurunneldi" i
Tékkóslóvakíu til bess að
tryggja ..siöferöisiega byggingu
hersins".
Kyrrahafsfloti Sovétríkjanna
Ytri Mongóliu beint
er miklu öflugri en var. Nýr '
yfirmaður flotans, Smirnov, tók >
nýlega við af Amelko, sem þó j
haföi átt að sitja i tvö ár enn. ,
Uppköllun æskumanna
Fréttir hafa borizt um það *
síöustu daga, að Kínverjar hafi *
enn sett her á eyjar í Ussuri- ,
fljóti, þar sem barizt var um
þetta leyti í fyrra. Þeir saka
Rússa um að hafa rofið gerða
samninga og ekki dregið úr við-
búnaði sínum fast við landa-
mærin Um gjörvallt Kína búast
menn til bardaga. „Alþýðuher-
inn“ á að reka hvern innrásar-
segg af höndum sér. Hinum
megin við landamærin eflist
Rauði herinn, og jafnframt er
fólk flutt til áður lítt byggðra
svæöa við landamærin til bess
að styrkja þau efnahagstega.
Æskufólk i Sovétríkjunum er
hvatt til að gerast landnemar f
eyðilegum Asíusveitum i þágu
föðurlandsins og kommúnista-
flokksins. Æskufólk f Kína er
skioulega sent norður f sveitir
Sinkiang. — Þá mun jörð skjálfa.
ef tröllin takast á.
m
tua