Vísir - 25.05.1970, Blaðsíða 2
Njósnaforinginn starfaði í
þágu dönsku þjónustunnar
*
Yfirmaður austurþýzka njósnarans
Holm Haase, vann í þrjú ár í
þógu Vesturlanda
Austur-þýzki njósnarinn Holm
Haase, í réttarhöldunum. Hann
var sér gersamlega ómeðvit-
andi um að stjórnandi hans var
tvöfaldur njósnari og starfaði
einnig í þágu Dana.
Þrjú ár bárust dönsku leyni-
þjónustunni stööugt upplýsingar
um nöfn austur-þýzkra njósnara
sem störfuðu á Noröurlöndum,
og danska gagnnjósnadeildin
fékk í hendurnar dulmálslykla og
boðsendikerfi þeirra jafnframt.
Leyniþjónustan haföi komizt
yfir „Gullfugl" sem fékk líka þáð
dulnefni, en hélt að réttu lagi
Fritz Ruchert og var yfirmaður
njósnarans, Holm Haase, sem
handtekinn var á Hovedbanegárd
en í Kaupmannahöfn vorið 1968.
Hinn 35 ára gamli verkfræöing
ur, Holm Haase, starfaði sem
njósnari í Danmörku um þriggja
ára skeiö — frá 1965 til marz
1968, þegar hann var handtekinn.
Hann starfaði í þjónustu austur-
þýzku njósnadeildarinnar MFS,
þegar hann sótti um ferðaleyfi til
Norðurlanda í upphafi.
1 byrjun njósnaferi'ls síns
reyndi Holm Haase að fá Dani,
sem sóttu kaupstefnuna í Leipzig
eða Eystrasaltsvikuna f þjónustu
sína, og geröi til þess ítrekaðar
tilraunir, en án árangurs eftir
þvf sem næst verður komizt.
Steve McQueen
verður ekki með
í Le Mans
Hinn vmsæli kvikmyndaleikari,
Steve McQueen, hefur lengi ver
ið mikill áhugamaður um kapp-
alcstur, og tekið sjálfur þátt í
þeim ýmist á sportbílum eöa
mótorhjölum.
Kvikmyndafélög þau, sem
hann hefur starfað fyrir í hvert
sinn hafa þó jafnan haft horn i
síöu þessa áhugamáls hans,
vegna áhættunnar. Þvf komi eitt
hvað fyrir McQueen eftir að
myndataka hefur hafizt, mundi
það tákna langa töf og milljóna-
tjón fyrir félagið.
Þau hafa því stundum lagt
blátt bann við þvf, að hann tæki
þátt í kappaksturskeppnum, —
nema þá hann fengi sig tryggðan
með ofannefnt í huga, en ekkert
tryggingafélag tekur ó sig slíka
áhættu.
Af svipuðum orsökum varð
hann að hætta við þátttöku f 24
stunda kappakstrinum í Le Mans
en þar hafði hann látið skrá sig
og ætlaði að aka Porsche 917 og
Honum var veitt ferðaleyfi til
Danmerkur og Svíþjóöar, og
flutti þá með sér þangað lítil
senditæki, svipuð þeim, sem
skemmdarverkamenn notuðu á
stríðstímum. Allan tímann, sem
hann starfaði í Danmörku stóð
hann í stöðugu sambandi við yfir
mann sinn, Fritz Riicheit, sem
bjó f leigufbúö í Halsingborg.
Heimsótti Riidhert reglulega
Holm í Kaupmannahöfn.
Þau þrjú ár, sem Haase stund
aði njósnir í Danmörku, kom
hann sjö sinnum til landsins —
en var eltur í öll skjpti, frá því
að hann steig fæti á land þar
til hann fór aftur, af dönskum
leyniþjónustumönnum. Á ferðum
hans um Khöfn og nágrenni
komst leyniþjónustan að því, að
hann gróf á nokkrum stöðum
niður lítil hraðvirk senditæki, og
lagði ýmiss konar böggla í svo
kallaða „dauða póstkassa“ —
felustaði, sem aðeins njósnahring
urinn átti að þekkja. Seinna kom
í ljós að þetta voru aðeins æfing
ar, til þess aö undirbúa og ganga
úr skugga um að boðsendikerfið
Danska leyniþjónustan tók þessa mynd með aðdráttarlinsu af
Holm Haase við póstkassa, sem merktur hafði verið hvítum
krossi — en það var tákn njósnahringsins fyrir meðlimina um,
hvar þeir skyldu leggja boð sín.
verkaði óhindrað, áður en til
alvörunnar kæmi.
Það hefur aldrei fengizt upp-
lýst, hvemig danska leyniþjón-
ustan náðf tökum á Fritz Riich-
bert. Annað hvort hefur hann
verið afhjúpaður og „kristnaður"
aðstoðarökumaður hans átti að
vera enginn annar en Jackie Stew
art, ökuþórinn frægi.
Fyrir dyrum stendur nefnilega
gerð kvikmyndar um Le Mans
kappaksturinn, þar sem Steve
McQueen á að fara með aðalhlut
verkið og nefnilega leika sig
sjálfan. Það er hans eigið félag,
Solar Productions, sem ætlar að
gera myndina.
En annað kvikmyndafélag, sem
lagt hefur sex milljónir dollara
í þetta fyrirtæki, lagði bann viö
því, að Steve æki I keppnum áöur
en kvikmvndatakan hæfist.
Myr'' ‘O'i'can fer fram og uppi
staða myndarinnar verður Le
Mans-kappaksturinn sem Steve
hafði látið skrá sig í. Bíll hans,
Porsche 908, sem er með inn-
byggðri myndavél, mun aka, en
hinn bíllinn, sem er Porsche 917
verður ekki með. Jackie Stewart
mun einnfg vera með í kvikmynd
inni, en hins vegar ekki aka sem
keppandi í kappakstrinum.
eða þá hann hefur boðið sig sjálf
viljugur fram sem „tvöfaldur
njósnari“. Árangurinn varð alla
vega sá, að hann fóðraði leyni-
þjónustuna á öllum þeim upplýs-
ingum, sem hann bjó yfir.
Þannig komst PET (Politiets ef
terretningstjeneste) að þvi,
hvenær nákvæmlega Haase kæmi
til Danmerkur og hverra erinda.
Holm Haase valdi sér venju-
lega ódýr hótel á Vesterbro, með
an hann bjó í Kaupmannahöfn,
og af einu slíku fór hann morg
unn einn til þess að hitta Fritz
Ruchert. Þann sama dag ætlaði
hann úr landi til þess að snúa
heim til Austur-Þýzkalands.
En af því varð þó ekki, því á
Hovedbanegárden var hann hand-
tekinn svo lítið bar á. En í aðeins
nokkurra metra fjarlægö stóð
Fritz Ruchert og horfði á hand-
tökuna. Hann var látinn í friði.
Þegar uppvíst varð um hand-
töku austur-þýzks njósnara í Dan
mörku, og að hann hefði lengi
verið vaktaður, undruðust menn
hvers vegna hann hefði verið
handtekinn einmitt þenna marz-
dag i stað þess að leyfa honym
að ganga lausum lengur, þar til
hann hefði vísaö mönnum á
yfirmann sinn og stjómanda.
En núna nýlega hefur sannleik
urinn veriö leiddur í Ijós. Það var
einfaldlega vegna þess, að mönn
um lék enginn hugur á að hand-
sama yfirmann hans, sem starf
aði nefnilega í þágu Dana.
Það sem fyrir mönnum vakti,
með því aö framkvæma handtök
una svona, þegar þeir gátu auð
veldlega gengið að Haase á hóteli
hans eða öðrum stöðum, var ein-
faldlega að blekkja Haase. Þannig
að hann stæði i þeirri trú, að
Ruchert hefði sloppið með naum-
indum við handtöku á elleftu
stundu. Þannig hugðust menn
tryggja sér, að hinn tvöfaldi
njósnari þeirra yrði ekki afhjúp-
aður.
Það var óhætt að birta sann-
leikann í málinu núna að ári
liðnu frá þessum atburðum, því
að Fritz RUchert hefur verið kom-
ið fyrir á öruggum stað einhvers
staðar á Vesturlöndum. Hans var
ekki lengur þörf, þegar hann
hafði veitt Dönum allar þær upp- •
lýsingar, sem hann gat látið í té. •