Vísir - 25.05.1970, Blaðsíða 3
' V I S I R . Mánudagur 25. maí 1970.
3
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Ný Kúbudeih / uppsiglingu?
FRÉTTIR herma, að ean á
ný séu eldflaugar á Kúbu,
sem skjóta megi inn vfir
. meginland Ameríku. —
Bandaríska leyniþjónusfan
hefur því til athugunar þá
spumingu, hvort Rússar
ætli nú að vígbúast á Kúbu
í annað sinn, og nú eigi
megináherzla að veröa
lögð á sprengjuflugvélar.
Sovézkar flugvélar hafa
verið í stöðugum flutning-
um milli Sovétríkjanna og
Kúbu. Tvær stórar vé!ar
komu til Havana hinn 18.
apríl og tvær í viðbót viku
síðar og loks tvær nú fyrir
viku.
Nú óttast margir í Bandaríkjun-
um, að í undirbúningi sé, að mikill
fjöldi stórra sprengjuflugvéla lendi
á Kúbu, sem síöan gæti, ef til kæmi
gert árás frá stöðvum þar á Banda-
ríkin. Þessar flugvélar gætu flogiö
lágt og þannig, að til þeirra sæist
ekki á ratsjá, fyrr en þær væru
komnar alllangt inn yfir Bandarík-
in. Flugvélar þessar af gerðinni
„Bear“, geta flogið 8000 mílur, án
þess að taka eldsneyti og hver
þeirra getur borið tvær vetnis-
sprengjur.
Myndir, sem bárust til Spánar
um Tékkóslóvakíu, sýna, aö meðal
drægar eldflaugar eru á Kúbu,
segja Bandaríkjam. en hins vegar
er taliö, að þessar eldflaugar geti
ekki borið kjarnorkuvopn.
Menn rifja nú upp Kúbudeiluna
gömlu, sem skapaöi á sínum tíma
gífurlega spennu og stríðsótta uni
nokkurra daga skeiö. Bandaríkja-
menn höfðu komizt að því, að á
Kúbu voru langdrægar sovézkai
eldflaugar, sem skjóta mátti inn
yfir Bandaríkin. búnar kjarnorku-
vopnum. Kennedy, þáverandi for-
seti, knúði Rússa til að fivíja eld-
flaugarnar aftur til Sovétrikjanna
það sinn.
Nú gæti svo farið, að Nixon
hefði við svipaðan vanda aö glíma.
Umsjón: Haukur Helgason
Fidel Castro.
Vilja hafa Bandaríkja-
menn unz striðinu lýkur
hafa her í landinu, þar til
styrjöldinni lýkur. Þetta
sagði utanríkisráðherra
Kambódíu, Yem Sambaur,
í morgun á fundi með
blaðamönnum.
„Við viljum, að bandaríski her-
inn verði hér, einnig eftir lok júní-
mánaðar," sagði hann. Hann sagði,
að tilmæli um þetta hefðu enn ekki
verið borin fram við bandarísku
stjórnina. Kambódíustjórn vildi
einnig, að hermenn frá Suöur-Víet-
nam yrðu áfram í Kambódíu, ef
Bandaríkjamenn kysu að hverfa úr
landinu innan tföar.
Utanríkisráðherrann fór til Sai-
Ríkisstjórn Kambódíu mun
biðja Bandaríkjamenn að
Thieu og Nixon — hersveitir í
Kambódfu til langs tíma?
gon í morgun til viöræðna við
stjórnina þar.
Nixon Bandaríkjaforseti hefur
lýst því yfir, að bandarísku her-
mennirnir f Kambódíu eigi að fara
úr landinu fyrir 1. júlf næstkom-
andi. Hinn vegar hefur stjórn Suð-
ur-Víetnam ekki ákveðið neinn sér-
stakan tíma fyrir heimköllun her-
liðs síns í Kambódíu.
Suður-Víetnamar láta mjög ti!
sfn taka, og nær daglega gera þeir
innrasir á nýjum svæðum. í morg-
un náðu þeir ásamt stjórnarher
Kambódíu bæ úr höndum kommún-
ista.
NATO-
fundur
í Róm
• Ráðherrar rikja Atlantshafs-
bandalagsins munu sitja á fundi
i Róm næstu daga. Rogers, utan
rikisráðherra Bandaríkjanna,
sagöi í morgun, að hann mundi
gera tillögur um frekari samn-
inga við Sovétríkin um afvopn-
un.
# Annars er búizt viö, aö Grikk-
landsmálin verði ofarlega á
baugi á þessum fundi.
>--- ■ ------- ■ —-
„Brezkar
veðreiðar"
■ Bretar eru sportmenn miklir.
Hvers konar veðmái eru þeim
einnig kær, knattspyrnugetraunir
og veðmál um kappreiðar, hunda
veöhlaup og síðast en ekki sízt —
kosningar.
■ Nú er kosningaslagurinn haf-
inn i Bretiandi og verður þar
mjótt á mununum. Um helgina veðj
uöu menn fremur á sigur Wilsons
og Verkamannafiokksins í hlutfall-
inu tveir á móti einum.
■ Hér sýnir skopteiknarinn hina
æsandi keppni Wilsons og He-
ath, foringja Ihaldsflokksins, i kosn
ingunum.
Enginn veit hvar
óvinur er fyrir
—■ Óljós vígstaða / Kambódlu
Nokkrir bandarískir blaðamenn
sögöu i gær frá handtöku sinni
í Kambódíu. Þeir voru á ferð
skammt frá Phnom Penh höfuð-
borg landsins og óku eftir þjóð-
veginum, er þeir komu allt 1
einu að varðstöð Norður-Víet-
nama. Tókst þeim að telja her-
mönnunum trú um, aö þeir væru
þýzkir biaðamenn, en einn
þeirra var þýzkur. Eftir það
fengu þeir að fara aftur til hþf-
uðborgarinnar um þrjár varð-
stöðvar kommúnista. Hins veg-
ar hafa fjórtán blaðamenn ti)
þessa fallið í hendur kommún-
ista í Kambódiu, og er ekki vit-
að frekar um örlög þeirra.
Blaöamennirnir segja, að ring-
ulreiö sé slík í Kambódfu, að
aldrei sé unnt að vita fyrir hvar
eru hermenn stjórnarimar eða
Bandaríkjanna og Suður-Víet-
nam og hvar hermenn kommún-
ista. Sé þetta með allt öðrum
hætti en í S-Víetnam, þar sem
yfirráðasvæði herjanna séu
skýrt afmörkuð. I Kambódíu geti
menn hvergi farið, svo að þeir
viti, hvort við næsta vfgi eru
kommúnistar eða hinir.
W« afslátfup
fyrir einstaklinga með áætlunarferðum.
Þér veljið brottfarardag með Gulltaxa um
Glasgow eða London áleiðis til sólarstranda
og hagið ferðalaginu eftir eigin geðþótta.
Það borgar sig að fljúga með Flugfélaginu.
Hvergi ódýrari fargjöld.
FlUGFÉLAG ÍSLANDS
ÞJÓNUSTA - HRAÐI - ÞÆGINDI
1