Vísir - 25.05.1970, Síða 9
9
/ 1 S I R . Mánudagur 25. maí 1970,
52. skoöanakönnun VÍSIS: Eruð þér samþykkur eöa
andvígur aögerðunum í íslenzka sendiráöinu
í Stokkhólmi 20. april s.l.?
Rauði fáninn blaktir á svölum sendiráðsins í Stokkhólmi.
„Þeir, sem svívirða íslenzka fánann, eiga ekkert
gott skilið.“ — „Þeir hafa auðvitað nokkuð til síns
máls, en svona aðgerðir eru þeim ekki vænlegar."
— „Ég er því algjörlega mótfallinn, að stúdentar
séu með frekju í garð ríkisstjórnar, sendiráða og
almennings. Við kostum þá.“
„Hvem fjandann eru þeir að herma eftir erlend-
um stúdentum." — „Ég er algjörlega á móti þeim
og hef enga samúð með þessu dóti.“ — „Þeir eru
allt of róttækir, þessir ungu menn. Þeir ná engu
fram með þessu.“ — „Æ, er þetta ekki bölvuð vit-
leysa í þeim greyjunum?“
— „Þeir fóru illa út úr gengislækkunum. Á því er
lítill vafi. En þetta er ekki rétta leiðin.“ — „Það
hefði áreiðanlega mátt fara öðruvísi að.“ — „Þeir
eiga auðvitað rétt á að koma mótmælum sínum á
framfæri, en í þessu tilfelli var aðferðin ekki rétt.“
„Ég er algjörlega á móti öllum meiri háttar mót-
mælaaðgerðum. Aðgerðir stúdentanna 20. apríl
hafa aðeins orðið til að skaða málstað þeirra.“ —
„Þetta er stúdentum til ævarandi skammar. Ég get
ekki fyrirgefið þeim meðan ég lifi.“ — „Mér finnst
vera hægt að réttlæta aðgerðirnar miðað við þær
kröfur, sem gerðar eru.“
„Hvað halda þeir eiginlega, að þeir séu þessir
stúdentar?“—„Það er ómögulegt að úthúða krakka
greyjunum. Þau lifa víst sultarlífi.“ — „Þessar að-
gerðir, — voru þær ekki bæði jákvæðar og nei-
kvæðar?“
„GET
ÞEIM
EKKI FYRIRGEFIÐ
MEÐAN ÉG LtF/
Rí i •>( > . |
Aöeins tivisvar áður hafa
skoðanakannanir Vísis sýnt
eindregnara almenningsálit en í
þessarj spumingu. Það var í
fyrsta lagi, þegar spurt var,
hvort menn vildu, að neyzla
á hassi væri bönnuð, en það
vildu 92% hinna spurðu. í öðru
lagi var það, þegar spurt var,
hvort viðkomandj mundi viija
flytjast til útlanda, ef betri
lífskjör byðust þar, en þá kváð-
ust 88% vilja sitja hér sem
fastast. 1 þetta sinn vom það
81%, sem vom andvíg aðgerð-
um stúdentanna í Stokkhólmi.
Mikill hiti
HlutfaMstölumar gefa þó ekki
til kynna þann tilfinningahita,
sem bjó að baki mörgum svör-
unum. Sýnisihomin hér að ofan
gefa betrj mynd af honum. I
sjálfu sér kemur þessi andúð
ekki á óvart, því að tilskrif tii
Niðurstöður úr skoðanakönnuninni urðu þessar:
Samþykkir.......... .17 eða 7%
Andvígir....... 194 eða 81%
Óákveðnir.....; .29 eða 12%
Ef aðeins eru taldir beir, sem afstöðu tóku,
litur taflan þannig út:
Samþykkir....;.. 8%
| Andvígir ........ 92%
dagMaðanna og viðtöl þeirra við
fólk úti í bæ höfðu áður gefiö
til kynna, að mörgum mislíkuðu
mjög atburðimir í Stokkhólmi.
Rétt er að geta þess hér, að
Vísir spurði um leið um álit
fólks á lánakröfum stúdenta.
Lítur út fyrir að þar hafi al'lt
annað verið uppi á teningnum
í almenningsálitinu. Verður
sagt frá svömnum við þeirri
spumingu á mánudaginn kemur,
ef rúm verður í blaðinu fyrir
kosningafréttum.
Það er orðið langt síðan við
höfum skýrt frá aðferðinni, sem
Vísir beitir til að fá rótt úrtak
af þeim hluta þjóðarinnar sem
er á kosningaaldri. Hringt er
eftir símaskránni eftir ákveðnu
kerfi, t.d. í efsta nafn í miðdál'ki
á annarri hverri síðu. Þess er
gætt, að jafnmargar konur séu
í hópi hinna spurðu og karlar.
Einnig er þess gætt, að svörin
dreifist á öll horn landsbyggð- að því leyti verið nokkuð
arinnar I samræmi við íbúa- heppnir með gildi niðurstaða
fjölda viðkomandi svæða. okkar.
Skekkjur
Á þessu eru að sjálfsögðu
ýmsir vankantar. Hinir stærstu
em, að við höfum ekki tryggt
sömu aldursskiptingu í úrtakinu
og er með þjóðinni. Tilfinningin
segir okkur þó, að þetta geti
ekki verið alvaríegur skekkju-
valdur. Hinn stórj gallinn er, aö
könnunín er bundin við þá, sem
hafa aðgang að síma. Þótt nærri
allir hafj aðgang að síma hér
á landi, verður alltaf ákveðinn
hópur útundan.
Þegar tekið er tillit til þess-
ara vankanta og ýmissa smá-
vægilegri höfum við treyst okk-
ur til að fullyrða, miðað við
stærð úrtaksins að skekkjan í
prósentutölum okkar sé ekki
meiri en 5 stig í báðar áttir.
Þegar við segjum nú, að 81%
hafi verið andvíg aðgerðunum í
Stokkhólmi, eigum við raun-
verulega við að 76 - 86% hafi
verið andvíg. Þessi óná'kvæmni
er töluvert meiri en hjá Gallup
og öðrum slíkum stofnunum og
byggist fyrst og fremst á þvi,
að O'kkar úrtak er l'ítiö.
Þar á móti kemur, að munur-
inn á fjölda þeirra, sem eru
með og á mótj á'kveðinni skoð-
un, hefur yfirleitt verið meiri
en svo, að skekkjan skipti máli
í fullyrðingum um, hvor skoð-
unin sé í meirihluta með þjóð-
inni. 'Eif munurinn hefur verið
minni en 10 prósentustig, höfum
við tekið fram, að ekkj megi
taka mark á honum. en það hef-
ur sárasjaldan gerzt. Höfum við
Skrif stúdenta
Atburðirnir I sendiráðinu í
Stokkhólmi eru enn í svo fersku
minni fólks, að óþarfi er aö end-
urtaka það hér. Flestum bar
raunar saman um hvað gerzt
hafði. Virðist nú aðeins eitt at-
riði vera umdeilt, hvort sendi-
ráðsritarinn hafi verið færður út
eða hvort hann hafi farið sjálf-
ur út. Um þetta stendur full-
yrðing gegn fullyrðingu.
Síðan atburðimir gerðust hafa
dunið yfir blöðin yfirlýsingar
frá íslenzkum námsmönnum
annars staðar útj I heimi. Hafa
þær yfirieitt fjallað um lána-
kröfur stúdenta. í sumum
þeirra hefur verið Iýst yfir
stuðningi við aðgerðimar. Á
einstaka stað hafa þær verið
fordæmdar og hjá mörgum hef-
ur ekki verið tekin afstaða.
Hjá námsmönnum hér heima
virðist andstaðan gegn aðgerð-
unum vera mun meiri eins og
yfiriýsingar ' frá háskólastúd-
entum benda til. En alténd er
ljóst að stúdentar í heild Ifta
miklu mildari augum á aðgerö-
irnar en almenningur hér heima
gerir.
Að lokum nokkur orð um töl-
urnar I könnuninni. Lftill mun-
ur virðist vera millj kynja og
milli dreifbýlis og þéttbýlis.
Helzt má merkja, að karlmenn
úti á Iandsbyggðinni séu ekki
eins harðir í andstöðunni gegn
aðgerðunum f Stokkhólmi. en
upp úr þeim ,mismun er ekki
nógu raikið leggjandi.
- jk/vj.
TÍSIBSPTB:
Eruð þér samþykkur
eða andvígur aðgerðun-
um í íslenzka sendiráð-
inu í Stokkhólmi 20.
apríl sl.?
Vilhjálmur Hafberg, nemi f
Réttarholtsskóla: „Andvfgur.
Ég er á móti aðgerðum sem
þessum og skiptir mig þá engu
máli, hver málstaðurinn er.“
Sigríður Halblaub, húsmóðir:
„Alla vega mæli ég nú ekki með
slfkum aðgerðum. Mér finnast
þær fremur vanhugsaðar."
Elsa Björnsdóttir, iðnverka-
kona: „Andvíg. Mér finnst
þetta ósköp heimskulegt af
þeim, að haga sér svona og
ekkj sæma menntuðu fólki.“
Herbert Marínósson, skrif-
stofumaður: „Eitthvað veröur
að gera ekki satt. Fólk hefur 1
það minnsta vaknað við þetta.
Kannski ekki af mjög vondum .
draumi, en ég tel aö þetta beri
tvfmælalaust jákvæðan árang-
ur, þaö er það vel um hnútana
búið. Vegna þessa eiga slíkar
ur á Skattstofunni: „Andvigur. ‘
Það á að taka alla styrki af
svo-na mönnum — Eða setja
þá öaK við lás og slá.“