Vísir - 25.05.1970, Page 10
¥ÍS18 . Mánudagur 25. maí 1970.''
Hugleiðingar um
hörmuleg slys
Hræðileg slysaalda að undan-
förnu hefur sett óhug að fólki,
því margt þessara slysa hefur
borið að á svo hörmulegan hátt.
Aðdraganda slíkra atburða verð-
ur aö rekja, ekki til að ásaka,
eða að reyna að ásaka einhvern
eða einhverja, heldur til að
reyna að draga af hverjum mis-
tökum þann lærdóm, að slikir
atburðir endurtaki sig ekki.
Það er alls ekki einstakt fyr-
irbrigði, að ferðafólk búi sig illa
til fjaHaferða. Það má meira að
segja álíta, að það sé þjóðar-
löstur, því svo margir búa sig
fremur með tilliti til hvernig
þeir líta út í ferðafötunum, og
hvernig þeir niuni verða ásýnd-
unt á þeim kaffi- og veitinga-
húsum, sem þeir kunna að
lenda inni á á leiðinni, heldur
en hvernig þeim rnuni verða við
ef vcður gerast válynd. Útlend-
um ferðamönnum er hins vegar
meirj vorkunn að því leyti, að
þeir þekkja ekki til aðstæðna og
gera sér ekki grein fyrir hve
fljótt geta skipazt veður í lofti.
Það er nær ómögulegt fyrir
hina ýmsu fararstjóra að kanna
hvort fólk það, sem þeir hafa
nteð í ferðum er nægilega vel
útbúið nema að litlu Ieyti, hins
vegar geta þeir auðvddlega vak
ið athygli á hvers má vænta og
hvaða nauðsynlegan útbúnað og
klæðnað verður að hafa með í
fjallaferö á Islandi.
Nýlegir hörmungaatburðir
sanna okkur einnig nauösyti
þess að aðkomufólki, sem hing-
að kemur og ætlar jafnvel að
ferðast eftir landabréfi og sofa
í tjöldum, og ætlar þetta jafn-
vel án leiðsögu kunnugra
manna verði kynntar þær
aðstæður, sem hér eru til
ferðalaga. Ekki þarf sizt að
vekja athygli á hinni óstöðugu
veðráttu, sem aldrei má treysta.
Þeir aðiíar sem hafa með hönd
um móttöku ferðamanna og
hafa með höndum feröir út um
landið, þeir ættu að vera skyld
ugir til að dreifa t.d. skriflegum
upplýsingum um ferðalög um ó-
byggöir og nauðsynlegan útbún
að í slíkar ferðir. Ef útbúnaður
er ónógur, þarf að vera hægt
að benda á, hvar nauðsynlegan
útbúnað sé að fá, svo að úr
verði bætt. I sambandi við út-
búnað til ferðalaga, þá er það
raunar furðulegt hversu erfitt
er að fá keypt ullarnærföt í
verzlunum, sem þó verzla með
allan hugsanlegan ferðaútbúnað
annan. Verzlanir sem hafa þaö
að sérgrein að verzla með ferða
vörur ættu að Iáta íslenzkar ull
arvörur skipa heiðurssess í hill-
um sfnum bókstaflega trana
þeim að viðskiptavinum sínum,
því auðvitað eiga kaupmenn að
geta hagnazt á slíkum vörum
sem öðrum nema sá er mun
urinn, að ullarvörurnar eru þær
sem henta í okkar miskalda
í landi.
Þrándur i Götu.
Auglýsið
í Vísi
Vilhjálmur Haraldur Vilhjálms-
son, Hagamel 25, andaðist 14. maí
sl., 61 árs aö aldri. Hann verður
jarösunginn frá Fossvogskirkju á
morgun kl. 10.30.
Ölafur StefánSson, bifreiðastjóri,
Flókagötu 56, andaðist 17. maí sl.
54 ára að aldri. Hann verður jarð
sunginn frá Fossvogskirkju á morg
un M. 13.30.
Sigurður Alexander Finnbogason
Bergstaðastræti 11B, andaðist 18.
maí sl., 78 ára að aldri. Hann verð
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju
á morgun kl. 15.
REIÐHJÓLASKOÐUN
í REYKJAVÍK
Lögreglan í Reykjavík og Umferöarnefnd
Reykjavíkur efna til reiðhjólaskoðunar og
umferðarfræðslu fyrir börn á aldrinum 7—
14 ára.
Mánudagur 25. maí
Melaskóli
Vesturbæjarskóli
Breiöagerðisskóli
Þriðjudagur 26. maí
Hlíðaskóli
Álftamýrarskóli
Hvassaleitisskóli
Miðvikudagur 27. maí
Austurbæjarskóli
Laugarnesskóli
Langholtsskóli
Fimmtudagur 28. maí
Vogaskóli
Árbæjarskóli
Breiðholtsskóli
Börn úr Landakotsskóla, ísaksskóla, Höfða-
skóla og Æfinga- og tilraunadeild Kennara-
skóla íslands mæti við þá skóla, sem eru næst
heimilum þeirra.
Þau börn, sem hafa reiðhjól sín í lagi, fá við-
urkenningarmerki Umferðarráðs fyrir árið
1970.
UMFERÐARRÁÐ REYKJAVÍKUR
LÖGREGLAN í REYKJAVÍK
Ki. 09.30—11.00
Kl. 14.00—15.30
Kl. 09.30—11.00
Ki. 09.30—11.00
Kl. 14.00—15.30
Kl. 16.00—18.00
Kl. 16.00—18.00
Kl. 14.00—15.30
Kl. 16.00—18.00
Kl. 09.30—11.00
Kl. 14.00—15.30
Kl. 16.00—18.00
I Í DAG t IKVÖLD
SÖFNIN
íslenzka dýrasafnið verður op-
ið alla daga frá 10—22 í Breið-
firðingabúð við Skólavörðustig
6 b.
Dýrasýning Andrésar Valberg
i Réttarholti við Sogaveg (móti
apótekinu) er opin öll kvöld frá
8—11 og laugardaga og sunnu-
daga frá 2—10. Aðgöngumiðar
eru happdrætti og dregið er vlku-
lega. 1. vinningur steingerður
fomkuðungur.
TILKYNNINGAR
BELLA
„Við getum ekki bara sagt
„halló!!“ blákaldar við einhverja
gjörókunnuga herra. — Við verð
um altént að fara til þeirra fyrst
og kynna okkur.“
VEÐRIÐ
i OAG
Austan gola í
dag, en kaldi i
nótt, skýjað og
lítils háttar rign
ing með köflum
einkum í nótt.
Kvennadeiid Slysavarnafélags-
ins Reykjavík heldur fund mánud.
25. maí kl 8.30 í Slysavarnafé-
lagshúsinu við Grandagarð. Til
skemfntunar: Karlakór lögreglu-
manna syngur nokkur lög og
leikþáttur sem félagskonur sjá
um. Stjórnin.
Kvenfélag Ásprestakalls. Fund-
ur í Ásheimilinu Hólsvegi 17 n.k.
miövikudagskvöld 27. mai k!. 8.
Guðrún Jóhannesdóttir fegrunar-
fræðingur leiðbeinir með snyrt-
ingu og val á snyrtivörum. Fé-
lagsmál, kaffidrykkja. Stjórnin.
SKEMMTISTAÐIR •
Þórscafé. Sextett Ólafs Gauks
ásamt Vilhjálmi.
TemplarahöIIin. Bingó í kvöld
klukkan 9.
Röðull. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar, söngvarar Einar
Hólm, Þuríður Sigurðardóttir og
Pálmi Gunnarsson.
VISIR
50
fíjrir
áruin
Tvö seglskip komu hingað um
hátíðirnar meö trjáviðarfarma.
Vísir 25. maí 1920.
FUNDIR ! KVÖLD •
Bræðrafélag Bústaöaprestakalls.
Fundur i kvöld kl. 8.30.
BIFREIÐASKOÐUN •
Bifreiðaskoðun: R-5851 — R-
6000.
a &QQ& &
í dag heimsækja
konurnar sýninguna saman
STANLEY
TÍZKUSÝNING klukkan 4.30
í veitingasal
ERINDI Jóns Biörnssonar, skrúð-
garðaarkitekts kl. 6, Heimilið og
garðurinn.
OPIÐ frá kl. 2 til 10
MUNIÐ ókeypis gestahappdrætti
ELNA SUPERMATICVÉLIN var dregin
út á laugardagskvöld — upp kom nr.
13535.
NÆSTI VINNINGUR:
MALLORKAFERÐ með Sunnu
HEIMILIÐ „'Veröld
innan
HEFLAR
HALLAMÁL
HJÓLSVEIFAR
HJÓLSMERGLAR
HURÐARISSMÁT
STÁLHAMRAR
SKERSTOKKAR
SPORJÁRN
SVEIFHNÍFAR
SPÓNHNÍFAR
TRÉBORAR
TAPPABORAR
TRÉRASPAR
MÁLBÖND
VINKLAR
Laugavegi 15, sími 1-33-33
I