Vísir - 05.11.1970, Side 13

Vísir - 05.11.1970, Side 13
Vi s IR . Fimmtudagur 5. nóvember 1970. 13 Látiö ykkur líða betur með aldrinum — heilsuvernd og eldra fólk JTeilsuvernd er eitt þeirra mála, sem ofarlega eru á Waugi i nágrannalöndunum. — Undanfarið hefur heilsuvernd t.d. verið mjög á dagskrá hjá einu stærsta blaði Danmerkur Politiken. Þar er málið tekið frá þeirri hlið, sem snýr að fólk- inu sjálfu, hvað það geti sjálft gert til þess að halda heilsu og lifa lífinu hress'ara og glaðara. í einni greininni um þessi mál er fjallað um heilsu og aldurinn. Þar stendur m.a.: „Það er fyrst, þegar maður er kominn yf ir áttrætt, að aldurserfiðieikar gera vart við sig. Bf maður ætlar sér að láta sér líða vel fram að þeim tíma væri heilla- ráð að klippa út það, sem stend ur hér á eftir og lesa þbð annað veifið." Svo koma nokkur heilræði. Verðið hægt frísk. Takið þvi rólega þegar þið hafið verið veik. Eldra fólk er oft meira veikburða en hitamælirinn sýn- ir. Fyrir hvem tug ára, sem líð ur, þarf maður tveim dögum meira til þess hð jafna sig. Það, sem tekur hinn sextuga 12 daga tekur hinn sjötuga 14 daga o. s. frv. Liggið eins lítið í rúminu og hægt er. Jafnvel þótt maður sé veikur og með hita á maður að reyna að setjast upp í rúminu nokkrum sinnum á dbg. Að öðru leyti reyna að vera eins mikið á fötum og hægt er. Þreyta getur stafað af sjúk- dónri. Talið við lækninn um það: Þreyta getur einnig stafað af þvi, að miaður vinnur meira en maður þolir. Hægið því á ykkur, hvílið ykkur og snúið vkkur að öðrum hlutum inn á mi'lli. Verkir gera ekki eins mikið vart við sig, þegar aldur færist yfir fólk. Það má náttúrlega iíta á það sem gróða, en þar sem verkir getia verið merki um sjúkdóma ættuð þið að leita læknis, þótt ykkur finnist ekki að nýtilkomnir verkir valdi ykk ur neinum teljandi óþægindum. Húðin verður þurrari, og blóðstraumur til hennar minni með árunum. Verndun húðarinn ar getur forðað ykkur frá húð sjúkdómum. Tl/Teö aldrinum innihalda bein- ■L’J‘ in smámsaman minna kalk og brot koma oftar fyrir. En þrátt fyrir það hefur jafnvel nirætt fólk komizt aftur á fæt ur eftir mjarðarbrot. Hugsið um fyrirbyggjandi 'aðgerðir. Gætið ykkar við að fara upp á stóla eða tröppur meðan verið er að gera hreint, gætið ykkar á bón- uðum gólfum, lausum teppum og hálum baðherbergisgólfum. Fætumir. Látið tíaka burtu Iíkþom. Notið inniegg í skóna, ef þess þarf. Fariö til læknis, ef þið verðið vör við fótaveiki. Eftir því sem maður eldist þarf maöur að velja skó sína betur. Veljið fremur góða reimaða skó með hæl heldur en inniskó og töfflur. Gætið tannánna. Ef þið hafið misst tennumar verðið þið að hafa góðan gervigóm, sem hæf- ir. Annars er hætta á að maður fari að lifa á mjúku fæði, sem veikir mann, þeglar til lengdar lætur, ef það er eina fæöan. — Munið að fara til tannlæknis reglulega, bursta tennur reglu- lega og nota tannstöngla. Borðið mlat, sem er léttur fyr- ir meltinguna. Drekkið vatn með og borðið grænmeti. Það hefur góð áhrif á hægðir. Ef matarlystin er slæm borðið þá þriðju hverja klukkustund. Með því getur maður tryggt sér nauö synlega næringu. Borðið rétt. Látið vera aö borða brauð, graut, vínar- brauð, kökur og sykur. — Leggið fremur áherzlu á að borða kjöt, fisk, mjólk, ost, grænmeti og ávexti. Vítamín- þörf hinna eldri er tvöfalt meiri en yngra fólks. Mjólkur- vömr styrkja beinin. Eggja- rauða, magurt kjöt, lifur, græn- meti og grófara brauð innihalda jám, þið þarfnizt jáms. Hreinlæti. Skiptið oft um nær föt. Forðizt ertingu húðarinnar. Notiö milda sápu og volgt vatn. Þurrkið ykkur vel en varlega. Vinna. Starf og hreyfing er uppspretta þess að vera ungur í anda. Hafið eitthvaö fyrir stíafni bæði andlega og líkam- lega. Það er betra að hafa of mikið að gera heldur en of lítið. Þvagteppa sækir stundum á eldra fólk. Forðizt kulda, gætið hreinlætis og farið til læknis. Hann getur hjálþað. Allar stærðir rafgeyma í allar tegundir bifreiða, vinnuvéla og vélbáta. Notið aðeins það bezta. p JÖN LOFTSSON h/f hringbraut 121, s/m/ /osoo s Hann er sprækur þessi — að hafa eitthvað fyrir stafni and- lega og líkamiega heldur fölki ungu í anda. Miklar annir geta gert mann taugaveiklaðan. Eldra fólk ætti að haga deginum þannig, lað það þurfi ekki að vera á spani. — Manni líður bezt með því að viðurkenna takmörk sín og haga tilverunni samkvæmt því. í lokin er bent á þlað, að fólk leiti til opinberra stofnana ef það er hjálpar þurfi. „Þið hjálp ið þjóðfélaginu, ef þið biðjið um hjálp. Þaö er hagkvæmara fyrir alla aðila, 'að sem flestir geti séð um sig heima.“ VELJUM ISLENZKT <H> ÍSLENZKAN IÐNAÐ þaS borgar sig ; : • $ ... v ”í Plinfal - O F N A R H/F. : ■ Síðumula 27 . Reykjavík Símar 3-55-55 og 3-42-00 : JAPÖNSK EIK VALIN VARA HAGSTÆTT VERÐ Hannes Þorsteinsson, hei!dverziun Hallveigarstíg 10. — Sími 24455 — 24459

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.