Vísir - 06.11.1970, Page 3
VISIR . Föstudagur 6. nóvember 1970.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND É MORGUN ÚTLÖND
B Yl TIN6A RTIIRA UN
MISTÚKSTISÝRLANDI
Sýrlenzkir leiðtogar vilja sameiningu
við Egyptaland
MIKIL hreinsun hefur veriö í
Baathsósíalistaflokknum í Sýr-
landi og fjöimargir yfirmenn í
hemum líflátnir. Valdhafar í Sýr
landi telja sig hafa afhjúpað víð-
tækt samsæri. Jafnframt reyna
ýmsir leiðtogar Sýrlands að
stofna að nýju náið samband
milli Sýrlands og Egyptalands.
Nasser myndaði á sínum tfma
„Arabíska sambandslýðveldið“ sem
var sambandsríki Egyptalands og
Sýrlands. Sýrlendingar sögðu sig
úr þessu ríki eftir deilur við Nass-
er.
Nú hefur Nureddin Eil Atassi leið
togi Sýrlendinga lagt tií, að stofn-
að verði bandalag þessara tveggja
ríkja, en auk þess taki Líbía og
Súdan þátt í því. Tillögur um þetta
höifðu komið fram, áður en Nasser
lézt, þótt ekki væri frá þeim skýrt.
Jafnframt hefur í Sýrlandi orðiö
„uppgjör" mj'l'li stjómmálaforingja
//
BURT MEÐ BÍLANA
44
Það er sífellt algengara, aö miðhlutar stórborga séu lokaðir fyrir bílaumferð til dæmis um helg-
ar. Er þetta gert til varnar mengun og til þess að auka veliíðan fótgangandi, sem þykjast bera
skarðan hlut í viðureigninni viö bifreiðamar. — Myndin sýnir tvær stúlkur í Queens í New York,
sem kunna sér ekki Iæti, þegar bílaumferð var bönnuð á þessari götu um síðustu helgi.
Toöo sagðir hand-
TEKNIR í BRASILÍU
— Skæruliðar í borgunum hugðust koma af stað ógnaröld
Her og lögregla í Brasilíu
lauk í gær fjögurra daga
„handtökubylgju“, segja
fréttamenn. — Munu um
4000 hafa verið fangelsað-
ir þessa daga, en þessar að-
gerðir stjórnvalda eiga að
koma í veg fyrir „hryllings
viku“, sem skæruliðarnir í
. I borgunum hafa boðað. —
f. °
Hugðust skæruliðar skapa
ógnaröld í borgum lands-
skæruliðar ráðgerðu hryllings- ins með hryðjuverkum í
viku“ til að mmnast lærifoður _ _ 17 3
síns Marighela. eina VÍku.
Er sagt, að Medici forseta hafi
blöiskrað, hversu margir höfðu ver-
ið handteknir, og því stöðvað hand-
tökur í gær. Hafi hann óttazt á-
litshnekki stiórnar sinnar á erlend-
um vettvangi.
Þessa hryllingsviku ætluðu skæru
liðar að byrja á miðvikudag, til að
minnast þess, að Charles Marighela
skæruliðaforingi var drepinn. Virð-
ast hinar umfangsmiklu handtökur
hafa stöðvað framkvæmdina hjá
skæruliðunum, þar sem fátt segir
af óeirðum í landinu. Nú hafa yfir-
völd látið lausa aftur einhverja af
hinum handteknu.
Embættismenn hafa ekki fengizt
til að segja neitt um handtökurnar
og blöðum hefur verið bannað að
skýra frá þeim í Brasilíu. Eitt blað
í borginni Sao Paulo hefur þó birt
lista yfir nokkra hinna handteknu
og fordæmt handtökurnar.
og yfirmanna í hernum. Hafa stjóm
málamennirnir betur í þeirri viður-
eign. Sex yfirmenn í hernum voru
skotnir eftir misheppnaða sáttatil-
raun.
Herforingi einn reyndi síðan að
skipuleggja árás á Bagdad, en hann
var felldur..'
Sagt er, að herforingjar hafi ver-
ið kallaðir til fundar við ríkisstjóm.
Er þeir komu á fundinn var þeim
skýrt frá því, að þeir væru fyrir
herrétti, og þeir voru síðan skotnir,
er þeir reyndu að flýja.
Umsjón: Haukur Helgason.
Vopnahlé í gsldi
Nýtt þriggja mánaða vopnahlé gekk
í gildi við Súezskurðinn í morgun,
án þess að fréttir bærust af neins
konar átökum. Hersveitir beggja
eru við öllu búnar. Mikil óvissa
var hins vegar um framvindu
vopnahlésins, og egypzkir ráða-
menn vildu í morgun ekkert um
það fullyrða, hversu Iengi það
mundi sfanda í reyndinni.
Egyptar hafa samþykkt fram-
lengingu vopnahlésins með því skil-
yrði, að nú hefjist raunvemlegar
viðræður um frið undir stjóm
Gunnars Jarrings sáttasemjara Sam
einuðu þjóðanna. Anwar Sadat for-
seti Egyptalands hefur tekið skýrt
fram, að þetta verði í seinasta
sinn, sem hann fal'list á framleng-
ingu, ef ekki verði breyting á af-
stöðunni og ísraelsmenn sýni
„meiri friöarvilja". Israelsmenn
bera Egypta hins vegar þungum
sökum um rof vopnahléssamning-
anna.
T'iu franskir Kanadamenn
ákærðir fyrir samsæri
Tíu Kanadamenn af frönsk
um ættum, sem voru hand-
teknir fyrir þremur vikum,
voru í gær ákærðir fyrir
samsæri og tilraun til upp-
reisnar.
Hæstaréttardómari bar fram kær-
urnar í aðalstöðvum lögreglunnar
í Quebec. Meðal ákærðra er lög-
fraaðíngurinn Robert- Lemieux, en
hann var fulltrúi frelsisfylkingar
Quebec í viðræðum við stjpmvöld
forðum daga, þegar reynt var að
finna málamiðlun i mannránamál-
unurn. Meðal annarra, sem nú hafa
verið ákærðir, eru rithöfundurinn
Pierre Vallieres, féla'gsfraaðingurinn
Charfes Gagnon, verkalýðsteiðtog-
inn Miohel Chartrand og blaöamað-
urinn Larue-Langlois. Búizt er við,
að fteiri verði ákærðir.
Lemieux mótmælti málsmeðferð-
inni fyrir hönd hópsins, og var síð-
an farið með þá félaga aftur í fanga
klefa.
Menn þessir eru allir bendlaðir
við mannránin í Quebec.
AUs hafa 424 veriö teknir hönd-
um í Kanada sfðan 16. október,
þegar lýst var yfir nevðarástandi.
57 eru enn í fangelsi af þessum.
INNLENT LAN
RIKISSJÓÐS ÍSLANDS 1970.2.F1
VERÐTRYGGÐ
SPARISKIRTEINI
Fjármálaráðherra liefur ákveðið að nota heim-
ildir laga til þess að hjóða út allt að 50 millj. króna
innlent lán ríkissjóðs, vegna framkvæmdaáætlun-
ar f}a-ir 1970. Hefst sala skírteinanna þriðjudag-
inn 10. nóvember n. k.
Skírteinin eru lengst til 5. febrúar 1984, en frá
5. febrúar 1976 er handhafa í sjálfsvald sett, hve-
nær þann fær skírteini innleyst. Vextir eru 3% á
ári fyrstu 5
árin, en meðatalsvextir fýrir allan
Að öðru leyti eru skilmálar skírteinanna þeir
sömu og gilt hafa um undanfarnar útgáfur,þar með
talin verðtrygging miðað við breytingar á vísitölu
byggingarkostnaðar. Grunnvísitalan er sú vísitala
byggingarkostnaðar, er miðast við 1. nóvember
1970.
Sérprentaðir skilmálar liggja frammi hjá sölu-
aðilum, bönkum, sparisjóðum og nokkrum verð-
bréfasölum í Reykjavík.
Nóvember 1970
jy.iivi'L
^Si SEÐLABANKI
ÍSLANDS W,
i