Vísir - 20.11.1970, Page 8

Vísir - 20.11.1970, Page 8
8 V í SIR . Föstudagur 20. nóvember 1970. VISIR Otgefandi: Reykjaprent ht. Framkvæmdastjóri: Sveinn R Eyjólfssoo Ritstjóri- Jónas Kristjánsson Fréttastjöri: Jón Blrgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi ■ Vaidimar H. Jóbannesson Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660 Afgreiösla Bröttugötu 3b Simi 11660 Ritstjóra: Laugaveg) 178 Sími 11660 <5 llnur) Áskriftargjald kr. 195.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 12.00 eintakið Prentsmiðja Vlsis — Edda hf. Safnað kröftum Flest bendir til þess, að þetta ár verði eitt af allra beztu ár im í efnahagsmálum íslendinga. Það lýsir sér á ýmrium sviðum. Þjóðartekjurnar verða um 10% meiri en þær voru í fyrra. Viðskiptin við útlönd hafa verið svo hagstæð, að skuldir landsins hafa minnk- að þrátt íyrir mikla fjárfestingu innanlands. í stað atvinnuleýsis undangenginna ára er nú orðið erfitt að fá fólk til starfa í mörgum atvinnugreinum. Gengislækkanimar og ýmsar ráðstafanir, sem fylgdu þeim, voru lykillinn að þessum ánægjulegu umskiptum í efnahagslífinu. Þær leiddu af sér rýrð lífskjör þjóðarinnar árin 1968 og 1969, en um leið kom atvinnureksturinn undir sig fótunum á nýjan leik eftir áföllin, sem á honum höfðu dunið. Þessi nýja velgengni í atvinnulífinu gerði svo aftur á móti kleifar vemlegar, og í þetta skipti varanlegar, lífs- kjarabætur við kjarasamningana í vor. Þannig hefur eitt verkað á annað. Atvinnulífið er undirstaða góðra lífskjara og fullrar atvinnu. Á mestu veltur því, að það standi traustum fótum. Þá öðlast það styrk til að standa undir góðum og bættum lífs- kjörum. Ef stöðugt er í ótíma þrengt að því með launahækkunum, sem það getur ekki staðið undir, er boðið heim samdrætti í efnahagslífinu og síðan rýmun á lífskjörum. Launahækkanirnar reynast þá blekking ein, og verðbólgan sér um að eyða þeim. Efnahagsmálin á síðari hluta þessa árs einkennast af viðleitni til að tryggja, að lífskjörin, sem náðust í vor, rými ekki aftur, og að atvinnulífið haldi jafn- framt áfram að eflast. Verðstöðvunin er þungamiðjan í þeirri viðleitni. Hún á að tryggja áframhaldandi kaupmátt launanna og hindra þann hallarekstur í útflutningsatvinnuvegunum, sem ella var fyrirsjáan- legur á miðju næsta ári. Um leið og verðstöðvunin tryggir kaupmátt laun- anna, gefur hún atvinnulífinu aukinn tíma til að tryggja hag sinr. A~ visu er fyrirsjáanlegt, að hag- vöxturinn veróur ekki eins mikill á næsta ári og á þessu ári og að viðskiptin við útlönd verða ekki eins hagstæð, því að mun meira fé fer þá í einkaneyzlu alls almennings. En verðstöðvunin hindrar alténd, að hin bættu lífskjör leiði til kollsiglingar í atvinnu- lífinu. Atvinnulífið fær tíma til að laga sig að hin- um bættu lífskjörum. Það þýðir ekki að leita að varanleika í verðstöðv- unum. Sagan sýnir, að þær haldast aðeins skamman tíma í senn. Kosturinn við þær er hins vegar sá, að þær gefa aðlögunartíma. Þær jafna út óþægilegar sveiflur, sem annars yrðu í efnahagslífinu, víxlhækk- anir launa og verðlags. í haust hafa einmitt verið réttu skilyrðin til að framkvæmda verðstöðvun, rétt áður en þessar sveiflur færu ella að magnast að ráði. Verðstöðvunin skapar jafnvægi um sinn og ætti að gera atvinnulífinu kleift að safna kröftum á þeim tíma. ) ) ) ) ), . ».4.» I ' mté** immwM, *«»* ***!!«*** m**m*i** mm #«t £*» *Um m**: +*»**rm *u* ÍPÍlgP; Ipl *#>*• mr ' ## iii; Þetta er yfirlýsingin, sem Strauss og félagi hans gáfu Geldner þingmanni um umbun, ef hann hætti stuðningi við stjórn Brandts. Karl Geldner, þingmað- ur frjálsra demókrata í V-Þýzkalandi, hefur skýrt frá því, að forystu menn kristilegra demó- krata hafi með mútum reynt að fá sig til að yfirgefa flokk sinn og ganga í flokk kristilegra. Fyrir vikið átti að tryggja honum öruggt sæti á þingi í framtíð- inni og gott embætti. Þingmenn frjálsra demókrata eru „dýrir" um þessar mundir. Meirihluti ríkisstjórnarinnar i Bonn er aðeins sex þingmenn, og þyrftu aöeins þrír þingmenn frjálsra demókrata að skipta um flokk til þess að stjóm Brandts félli. Áður hafa þrír þingmenn frjálsra demókrata gengið yfir í flokk kristilegra. Bakaranum boðin ráðgjafastaða Karl Geldner þingmaður seg- ir, að hinn 6. nóvember ldukkan níu að morgni hafi hann hitt tvo fulltrúa flokks þess, sem óá- nægðir menn úr frjálsa demó- krataflokknum hafa nýlega stofnað. Fulltrúarnir buðu hon- um ráðgjafastöðu í panpírsfyrir- tækinu.Beyer OHG í Westfalen. Á fjórum árum átti þingmaður- inn, sem er bakarameistari að iðn, að fá um tölf milljónir ís- lenzkra króna fvrir þetta emb- ætti. Hálfri klukkustundu síöar sátu herramir þrír fund með Frans Josef Strauss, einum aðal- leiðtoga kristilegra. Þar voru fleiri forystumenn kristilegra viðstaddir. Umræðuefnið var, meö hvaöa hætti þingmaðurinn skyldi segja skilið viö flokk frjálsra demókrata og taka hönd um saman við kristilega í stjóm arandstööu í Bonn. Geldner tók þátt í leiknum. Hann þóttist al- búinn að skipta um flokk, og sagði eitthvað á þessa leið: „Ég er bara einfaldur iðnaðarmaður. pú .yprðpr,. að. gefa mér þetta skriflegt." Lagði gildru fyrir Strauss Þannig hafði Karl Geldner lagt gildru fyrir Strauss. Strauss Strauss. undirritaöi síðan ásamt öðrum foringja kristilegra, Richard StUcklen, yfirlýsingu um það, hvað þingmaðurinn fengi fyrir snúð sinn: Þessi yfirlýsing átti að vera Ieyndarskjal, sem Geldn er skyldi geyma og ekki sýna öörum. Þar stendur meðal ann- ars: „Ef þingmaðurinn gengur í flokk kristilegra, sbal séð um það, að hann eigi þess kost að veröa kjörinn á þing í næstu kosningum, annaðhvort með því að honum verði tryggt kjör- dæmi eða sæti á landslista eöa hvort tveggja". Þessi samning- ur skyldi gilda til ársins 1977. Þetta plagg varð stjóm WiMv Brandts kærkomið, þar sem rík- isstjórnin hefur Iengi reynt að færa sönnur á þær fullyröingar, að -'kveðnir aðilar í stjórnarand- stöðu reyni að múta stuðnings- mönnum ríkisstjómarinnar til að hafa pólitísk buxnaskipti og með því fella stjóm Brandts. Meö þessu varð hinn áður ó- kunni Geldner á einni nóttu frægur um gjörvatlt landið, og spurningin um áhrif þessarar uppljóstrunar varð efst á baugi. Geldner lagði gildru sína í sam- ráði við forystumenn frjálslynda flokksins og jafnaðarmanna. Strauss og félagar hans uggöu ekki að sér. Þeir höföu hugsað sér að tilkynna skoðanaskipti þingmannsins á blaðamanna- fundi i Núrnberg. Samtímis sem þeir undir- bjuggu blaöamannafundinn, til- kynnti Geldner foringjum frjáls- lyndra um niöurstöður brellunn- ar og milljónimar tólf. „I einelti síðan í júní“ Geldner segir, að strax í júní- mánuöi síðastliðnum hafi ýmsir aðilar tekið að leggja sig i ein- elti. „Ég haföi ekki stundlegan frið í sumarleyfi mínu,“ segir hann. Þá strax, segir hann, að sér hafi verið boðnar um tólf miMjónir í nýju eoibætti, ef hann skipti um flokk. Það var einnig í júni, að Geldner lofað» foringjum frjálsra demókrata, að hann skyldi útvega sannanir. Geldner tók nú að útlista fyrir mönnum, að hann „gæti ekki sætt sig við utanríkisstefnu Brandtstjómarinnar. Hann mundi hætta stuðningi við sam- steypustjóm jafnaöarmanna og frjátera demókrata. Umsjón: Haukur Helgason. Nú í nóvemberbyrjun voru mikilvægar kosningar til fylkis þings í Hessen. Talið var, að fylgistap frjálsra demókrata f þeim kosningum kynni aö valda því, að ýmsir þingmenn þeirra hættu stuðningi við rfkisstjóm- ina. Bæði Strauss annars vegar og Geldner hins vegar töldu því, að hagstætt væri, aö niður- staða fengist tveimur dögum fyrir þessar kosningar. Strauss vildi sýna alþjóð enn einn þing- mann, sem hefði yfirgefið Brandtstjórnina. Geldner vildi af hjúpa mútustarfsemi Frans Jos- efs Strauss. „Pólitísk glæpa- mennska“ Viðskiptin fóru fram. Geldner tilkynnti þingflokki frjátera demókrata, að hann væri geng- inn úr flokknum. Hann tilkynti forseta þingsins, kristilega demókratanum Kai-Uwe von Hassel, hið sama. Aðeins helztu foringjar frjálsra demókrata vissu, hvers kyns var. Á móti þessu fékk Geldner skriflegt plagg frá Strauss og StúcMer, sem að framan greinir. Strauss hrósaði sigri. Fufltrú- ar kristilegra á kosningafundum tóku að gefa f skyn, að „þeir vissu, að fleiri þingmenn væru að yfirgefa frjálsa demókrata". Það kom þeim í opna skjöldu, þegar framkvæmdastjóri kristi- legra í Múnchen skýrði frá þvi, sem hann kallaði „pólitíska glæpamennsku" Geldners. Frans Josef Strauss hefur lít- ið haft fvrir því að bera til baka sögu þingmannsins af skiptum þeirra. Því er almennt álitið í Vestur-Þýzkalandi, að hér hafi verið rétt frá skýrt, enda hefur Geldner í höndunum undirritaö plagg frá Strauss.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.