Vísir


Vísir - 26.01.1971, Qupperneq 6

Vísir - 26.01.1971, Qupperneq 6
VÍSIR Ungmennafélögin lögðu drýgst starf til landvemdar Ungmennafélögin í landimi hafa að undanfömu látiö land- vemd mjög til sfa taka. I fyrra- sumar fóm ungmennafélagar margar landgraeösluferöir og áttu félagamir hivað stærstan þátt í landg ræ ð s lustörtfum sum- arins, en yfirumsjón haföi Landvernd, hin nýju samtök. Samkvæmt bráöabirgöas'kýrslu Landvemdar var í sumar dreift samtals 223.9 tonnum af áburði og 20 lestum fræs á vegum samtakanna. Verðmæti þess er liðlega 2.6 milij. króna. Ung- mennafélagar dreifðu af þessu magni 123 lestum áburðar og 10 lestum af fræi. Myndin er af einni landgræðsluferöinni hjá ungmennafélögunum. Höfnuðú kokkteilnum . Suöurland segir frá því á dög unum að Þingeymgum, sem komu til Reykjavíkur vegna Laxárstríðsins mikla. hafi ver- ið boðið tii kokkteilsboðs á- samt Akureyringum. Hafi það verið talin rétt leið til að jafna eitthvaö sakimar. Segir blaðið aö Þingeyingar hafi allir sem einn sýnt fyrirlitningu sína á þessum samningsháttum, — og hafi ekki snert við kokkteiln- um. Póstmenn brýna „koll- efja“ í Bretlandi Reynir Ármannsson, formað- ur Póstmannafélags íslands sendi fyrir helgina hvatningar- skeyti til starfsbræðra f Bret- landi, en þeir eiga f verkfalli um þessar mundir. Sendir Póst mannafélag íslands heillaðskir og kveðst vona að brezkum starfsbræðrum gangi allt í hag- inn f deilunni. Góðir gestir hjá Hótel Loftleiðum Rúmlega 7 ár voru liðin frá því Hamborg, þegar flugvélin sótti að Loftleiðavél lenti síðast í hópinn nú fyrir helgina. Það var ekki amalegt fyrir Loftleiðir að fá hingaö rúmlega 120 félaga Skál-klúbbsins 1 Ham borg og eiginkonur og eigin- menn þeirra. Þetta er yfirleitt lytólfólk í ferðamálum sinna borga og eftir vel heppnaða helgi á íslandi má það heita öruggt að Loftleiðir og íslenzikur ferðaiðnaður fá pantanir, sem rekja má til dvalar þessa fólks hér á landi. Skál-klúbburinn frá Hamborg hélt hér aðalfund sinn og er þetta í fyrsta skipti, sem slfkt fer fram utan Þýzkalands. Ingibjörg Sigurðardótt- ir vinsælust í Keflavík Halldór nóbelsstoáld Laxness nær aðeins 8. sæti á vinsælda- listanum hjá bókasafni Keflavík ur á síðasta ári, að því er segir í Suöurnesjatiðindum. Ingibjörg Sigurðardóttir var vinsælasti höf. þar, 271 sinni var lánuð út bók eftir hana, Guðrún frá Lundi varð önnur meö 213 út- lán, Stefán Júlíusson með 207, Ármann Kr. Einarsson meö 207 útlán og fimmti Ámi Ólafsson frá Blönduósi með 152 útlán. — Næstar koma þær Rúna Gísla- dóttir og Ingibjörg Jónsdóttir og loks Laxness í 8. sæti listans með 126 útlán. mmm // Fáum ekkert bréf frá pabba" Þetta bréf barst okkur utan af landi frá 13 ára gamalli telpu, sem nefnir sig „Vísisstelpu“: „Ég las um pabbana, sem skrifuðu þér í blaöið, og þá skrif aði ég þetta bréf strax. Ég hef alltað verið að hugsa um að senda það 1 Vísi. Ég á pabba, sem sendi okkur krökkunum ekki jólakort og ekki pakka. Við sendum honum jóla og nýárskort. Getur nokk- ur gleymt að láta hann fá kort in hans? — Við höldum það, því pabba þykir vænt um okkur, og okkur leiddist að pabbi vildi gleyma okkur. Vxsir viltu skrifa um þetta í blaðið þitt. Þá sjá þeir allir, að það eru líka mörg böm, sem pabbarnir vilja ekki svara. — Okkur þykir öllum vænt um hann pabba.“ Við vonum fyrir hönd „Vísis- stelpu", að faðir hennar reki aug un í þetta bréf og hripi henni nokkrar línur, eða athugi hvort fyrri bréf hans til Vísisstelpu" og systkina hennar hafi kannski ekki komizt til skila. □ Hráir snúðar Kona ein kom að máli við okk- ur og sagði: „í bakaríinu, sem ég verzla oftast við, keypti ég nokkra snúða I gærmorgún (mánudag). Þeir Htu gimilega út, en þegar við ætluðum að borða þá, kom upp úr dúmum, að þeir voru aðeins bakaðir yzt. Þeir voni hráir, þegar maður beit í þá. Ég fór með snúðana aftur í bakaríið. því að þeir voru óæt- ir. En það kom ekki til mála að fá snúðunum skipt eða pen- ingana til baka, og mér var tek ið með hálfgerðri fyrirlitningu, og á endanum var ég rekin út. En finnst ykkur þessir snúð- ar vera mannamatur?" Þriðjudagur 26. janúar 1971. Konan sýndi blaðam. Vísis snuo ana, og það varð að svara spurn ingu hennar með fullri hrein- skilni: „Afdráttarlaust, nei“. — Henni var ráðlagt að snúa sér til Neytendasamtakanna og vekja athygli þeirra á þessum viðskipt um. □ Um viðvörunar- kerfi almanna- vama. „Síðan farið var að setja upp viðvörunarkerfi almannavama í Reykjavík og einkum eftir að allsherjarprófanir þess hófust 10. desember sl. hafa komið fram ýmsar athugasemdir f dag blöðunum varðandi kerfið. Margar athugasemdimar virð- ast sprottnar af ókunnugleika al mennings á þessu kerfi og við- vörunarkerfi almennt. Þess er skemmst að minnast að eitt dag blaðið gerði fyrirspum til nokk urra manna af handahófi. hvort þeir hefðu kynnt sér viðvörunar merkin, og aðeins einn af sex hafði kvnnt sér, hvað merkin þýddu. Hér skal rifjað upp að upp- lýsingar um merkin er að finna í sfmaskránni 1971 bls. 530. — Varðandi val kerfis skal tekið fram að valið var kerfi eins og notað er í Svfhióð og Noregi, og raunar f mör<nim öðrum lönd um. Forst.öðumaður danskra al- mannavama mælti eindr með vali bessa kerfis og saeði að Dan ir mundu kaupa sér bet.ta kerfi, ef beir væra ekki með sírenu- kerfi. sem væri of dýrt að fleygja. Loftflautukerfið er að því levti fulkomnara, að hægt er að gefa maras konar merki, en með sfrenu aðeins tvenns konar. Loftflautumar era virkar þótt straumrof verði, en sírenur ekki. Varðandi „6þarfa“ flaut í tíma og ótíma skal þess getið, að samkvæmt reglugerð um við vörun verður kerfið f heild próf- að fyrsta laugardag f hverjum ársfjórðungi kl 12, og verður trlkynnt i útvarpinu um þær prófanir. Hins vegar má búast við, aö fyrst i stað þurfi að framkvæma stillingar og mæl- ingar á einstökum flautum, og verður þá einungis gefið merki frá einni flautu f einu og þá merkið hættan liðin hjá. F. h. almannavarna Rvíkur Rúnar Bjamason. HRINGIÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.