Vísir - 17.02.1971, Qupperneq 5
TAKMARKIÐ:
MUNCHEN
„Miinchen 1972“, var stutt
og laggott svar Gary Hall,
sundstfömunnar banda-
rískn, þegar hann var
spurður að því við innrit
un í Indíana-háskóla hvað
væri hans keppikefli í líf-
inu. Þetta þótti nokkuð
dæmigert svar fyrir þenn-
an 19 ára sundmann, sem
setti 3 heimsmet á síðasta
ári og er talinn ein skær-
asta stjama heimsins í
sundi um þessar mundir.
Metin, sem Gary HaH setti, eru
íí 200 og 400 metra fjórsundi og í
200 metra f-lugsundi. HaM befur 15
sinnum orðið Bandarfkjameistari
undanfarin 3 ár, — og ekki nóg
með það, því í námi sfnu syndir
hann af sama hraða gegnum aðai-
grein sína, stærðfræði, og hilýtur
ágætan námsárangur fyrir.
Á síðasta ári var Gary kjörinn
„sundmaður heimsins" af blaði
sundþjáifarasambandsins í Banda-
rikjunum. Samt hefur hann enn
ekki náð hátindinum segir þjálfari
hans, James Counsilman. Og þjáíf-
arinn ætti að vita það, en hann
þjáifaði áöur bezta sundmann
heims, Ohanles Hicko, sem vann tvö
gullverðlaun á Ólympíuleikunúm
1968, og vann þar afar nauman
sigur yfir Gary, sem varð annar
í 400 metra fjórsundinu.
Forráóamenn 'Handknattleiks-
ráðsins hringdu í íþróttaritstjórn
Visis seint í gærkvöldi. Var þá bú-
ið að ákveða að sala aðgöngumiða
að leikjunum í kvöld hefjist kl. 18.
Er þetta gert þar eð reiknað er
fastlega með aö nú verði uppselt,
en á sunnudagskvöldið munaði
litlu að svo yrði.
á sölu á síðustu stundu og eru
menn hvattir til að kaupa
sína fyrr en síðar.
F0RSALA I
LAUGARDAL
íþróttahöllin verður ekkert aprílgabb!
Það þykir vissara aö lofa nýju
iþróttahöllinni þeirra Hafnfirð-
inga þann 2. apríl, — því eins
og alkunna er, þá er ekkert að
treysta Ioforðum, sem hljóða
upp á 1. apríl, það getur reynzt
gabb.
Nú er vinna við iþróttahöllina
við Strandgötu að komast á
lokasprettinn, en mörgum Hafn-
firðingum hefur þótt seint ganga
og er það að vonum, því um
árabil hefur húsið staðið eins
og yfirgefið borgvirki þarna í
hjarta bæjarins. Nú fá tvö af
beztu handknattleiksliðum lands
ins, FH og Haukar, loksins að
leika leiki sína á heimavelli.
Verið er að leggja parket á
gólfið í salnum og flísaieggja
böðin. Þarna verður áhorfenda-
stæði fyrir 1200 til 1500 manns,
— sem er reyndar fulllítið, því
Hafnfirðingar haifa undanfarin
ár ,,trekkt‘‘ meira en nokkrir
aðrir, enda liö þeirra staðið sig
frábærlega vel.
TH þessa ‘hafa handknattleiks-
liðin verið á hálfgerðum ver-
gangi, ’hrökklazt til og frá. Við-
brigðin verða mikil, þegar að-
alæfingasalurinn stækkar úr
8x15 metrum upp i 20x40
metra.
Tveir trésmiðanna í íþróttahöll þeirra Hafnfiröinganna eru reyndar kunnir handknattleiks-
menn úr Haukum, þeir Sturla Halldórsson og Stefán Jónsson. „Maður hefur aldrei unnið við
eins ánægjulegt verkefni", sögðu þeir, „maður mundi jafnve-i gera þetta í sjálfboðrvinnu'1,
sagöi Sturla, um leið og hann negldi af kappi.
Guðmundur
Þórðurson
íþróttnmuður
órsins hjó UMSK
Svo furðulegt sem það er, þá er«
Kópavogsmenn og Garðhreppingar
tilheyrandi Kjailamesþingi í iþrótta
málum. Ungmennasambandi Kjalar
nesþings, en 8 félög skipa það sam-
band. Guðmundur Þórðarson, krvati
spyrnumaður úr Kópavogi var ný-
lega kjörinn fþróttamaður ársins
innan sambandsins á sambands-
þingi UMSK. Nýtt félag, Handknatt
leiksfélag Kópavogs gekk þá í sam
bandiö en aðalmái þingsins var
undirbúningur að glæsiilegri þátt-
töku í landsmóti UMFÍ á Sauðár
króki i sumar.
Auk þessa var rætt um ýmis
mál önnur, svo sem ýmis íþrótta-
mál, fjármál spurningakeppni,
sumarbúðir, varnir gegn eiturlyfja
neyziu í landinu o.fl.
Fráfarandi formaður Pétur Þor-
steinsson og varaformaður, Stefán
Ágústsson, báðust undan endur-
kosningu. 1 stjórn voru kjörnir Sig-
urður Skarphéðinss.. Aftureldingu,
formaður, Steinar Lúðviksson,
Breiðabliki, varaformaður, Guðm.
Gíslason, Dreng, gjaldkeri, Þórhall
ur Þórhallsson, Gróttu, ritari, Ein
ar Gunnlaugsson Stjörnunni, Ólaf
ur Friðriksson, Umf. Kjalnesinga,
Sveinbiörn Guðmundsson, Umf.
Bessastaðahrepps og Þorvarður Á.
Eiríksspn, Handknattleiksféiagi
Kópavogr. ineðstjórnendur.
Framkvæmdastjóri UMSK er Guð
mundur Guðmundsson.