Vísir - 02.03.1971, Page 16
VISIR
I>riðíuiáagm‘~2.'inarz WW.
1,1 milljón
komin upp
geirfuglinn
— A6alsöfnunar-
dagurinn i dag
— framl'óg skattfrjáls
Talið er að um 1.1 milljón
króha séu nú komnar í geir-
fuglssöfhunina þó að mjög
erfitt sé að fá um það ná-
kvæmar upplýsingar, að sögn
forráðamanna geirfuglssöfn-
unarinnar. Aðeins hér á höf-
uðborgarsvæðinu eru hátt í
200 söfnunarlistar í gangi,
en víða annars staðar um
landið er safnað af miklum
eldmóði, sérstaklega á útgerð
arstöðum. Heyrzt hefur að
mikill kraftur sé í söfnunar-
mönnum t. d. á Suðumesjum
ag í Vestmannaeyjum.
Ríkis&katitstjóri hefur gefið
.eyfi til þess að framlög til
öfnunarinnar séu frádráttar-
hæf til skatts, sem ætti að
/erka mjög hvetjandi, sérstak-
ega á stór fyrittæki, sem á-
mga hafa á að gefa stórar upp
hæðir. Dr. Finnur Guðmunds-
son segir að vísu, að áberandi
;é, hvað maðurinn á götunni
'iafi sýnt þessu máli mikinn á-
huga, en hann sagðist vonast
til að stóru fjárthaeði'mar kæmu
3innig inn.
Aða'lsöfnunardagurinn er í
iag. Allir bama- og gagnfræða
skólar Reykjavfkur og Kópa-
vogs að Kvennasikólanum með
töldum verða opnir kl. 17—22
og verður þar tekið á móti fram
iögum. Þá geta menn hringt og
látið sækja framlög heim til
siín. Á Seltjamamesi verður
skölinn opinn kl. 20 — 22. —VJ
GEIRFUaHW
2stm
imm
17So.cn
■ Í5oo.o»
1150.000
Lögreglan leggur hald á
kynstrin öll af tímaritum
— Talið að 210. greinin hafi verið brotin
— klámi dreift
Sakadómur hefur hafið
rannsókn á meintum
brotum á prentlögunum
og 210. gr. hegningarlag
anna, sem fjalla um
dreifingu á klámi.
Að undanförnu hafa rann-
söknarlögreglumenn gengið í
bókaverzlanir og sjoppur i
Reykjavík og lagt 'hald á hvers
konar bókmenntir, sem gefa til-
efni til grunsemda um brot á
klámá'kvæðum laganna.
Hafa lögreglumenn lagt hald
á allt upplagið í þeim tilvi'kum
sem fundizt hafa í verzlunum
rit eða bæklingar. er hafa á sér
klámsnið. Meðal 'þeirra rita, sem
þannig hefur verið lagt hald á,
eru ritin „Eplið“, „Tígulgosinn“
og „Nátthrafnfnn‘‘.
Enn 'hafa ekki verið rannsak-
aðar allar sjoppur eða bóksölwr
í Reykjavík en fyrir dyrum
stendur leit í þeim öHum.
Svipuð rannsókn hefur þegar
verið gerð í Hafnarfirði og hafa
nannsóknarlögreglumenn þar
farið í attar bók- og blaðasöiur
bæjarins og atts staðar lagt
hald á þau rit, sem þykja Mkleg
ttt þess að heyra undir klám.
Þar hefur lögreglan látið fleiri
rjt til sín taka, heldur en í
Reykjavik, og auk hinna þriggja
ofaimefndu eirniig lagt hald á
„Giaumgosann ‘ ‘, táningablaðið
„Samúel & Jónínu“.
Rannsóknin í Reykjavík er
þehn mun skemmra á veg kom-
in, sem þar eru fleiri bóksölur,
en í Hafnarfirði er rannsóknin
langt á veg komin og þess að
vænta bnáðlega að gögn og upp-
lýsingar hennar verði send sak-
sóknara rikisins til ákvörðunar
um, hvort til málshöfðunar
kemur á hendur útgefendum
þessara rita. — GP
„Allra veðra von
hvenær sem er
— segir Hannibal
Valdimarsson, forseti
ASI vegna yisitölu-
skerðingarinnar
□ Við höfum ekki að neinu
leyti breytt afstöðu okkar og
teljum okkur að engu leyti
bundna við samninga, sem þriðji
aðili hefur gripið inn í og breytt,
sagði Hannibal Valdimarsson,
forseti Alþýðusambands Islands,
í viðtali við Vísi í morgun. „20
manna kjaranefndin" hélt fund
í gær vegna neitunar atvinnu-
rekenda, að hækka grunnlaun,
sem svarar vísitöluskerðingunni
og var ákveðið að vísa málinu
tii miðstjórnar ASl.
Ég get ekki fjölyrt um það
núna, til hvaða ráðstafana kann
að verða gripið/ en ailra veðra er
von, hvenær sem er, sagði Hanni
bal.
Eims og Vísir hefur áður skýrt
frá, krafðiist kjaranefnd ASl, að
atvinnurekendur hækfcuðu grunn-
laun um 2,6% til að vega á móti
vísitöluskerðinigu eins og ASÍ taldi
hana vera. — Atvinnurekendur
tóku málið til athugunar, en kom
ust að þeirri niðurstöðu, að ekki
væri rétt að fara þannig í kring
um verðstöðvuna'riögin og vinna
þar með gegn markmiðnm efna-
hagssitefnunna'r. — VJ
//
• Svo virðist sem farþegum hafi fjölgað með nýja kerfinu.
KERFIÐ" HEFUR AUKIÐ
FARÞEGASTRAUMINN
Fjöldi farþega með SVR hef
ur aukizt talsvert, en 51 þús-
und manns munu nú ferðast
með strætisvögnunum daglega.
Eiríkur Ásgeirsson forstjóri
SVR sagði í viðta'H við Vísi, að
fjölgun farþega næmi 10—15%
miðað við fjö'ldann, sem ferð-
aðist með stræbisvögnunum,
þegar eldra kerfið var í notíkun.
Farþegafjöldi á árunum 1968
og ’69 að degi til hefði verið
kringum 45 þúsund manns, en
væri nú 51 þúsund. Þar með
væru taldir farþegar á skipti
miðum, þannig að verulegur
hluti aukningarinnar væri
þeirra vegna.
„Þess vegna hefur aiukningin
því miður ekki í för með sér
auknar tekjur", sagði Eirfkur,
„en sýnir okkur hins vegar að
þetta er veruliega bætt þjónusta
við farþega. Af því drögum við
þá á'lyktun, að nýja kerfið henti
mun betur en það gamla“.
Þá sagði Eiríkur, að f þessari
viku verði teknir í notkun 5
nýir strætisvagnar. Einn þeirra
mun aka á nýrr; strætisvagna-
leið, sem verður te'kin upp
næstu daga. /Heitir sú leið
Hlemmur-Fell og er númer 12.
Ekur vagninn í Breiðholt IH frá
klukkan 7 á morgnana einu
sínni á klu'kkusitund til að byrja
með. Liggur leiöin um vestur-
hluta Breiðholtshverfis. — Var
ek’ki taiin ástæöa til að hafa
ferðir á nýju leiðinni örari í
byrjun, meðan ibúar eru ekki
ffieiri. — SB
Umræður um eyðij'órðina Holt / Dyrhólabreppi:
FJÖGUR ÁR TIL UMRÆÐU
- NÚ FYRST FELLT
Efri deild felldi í gær með 10
atkvæðum gegn 9 að selja eyði-
jörðina Hoit í Dyrhólahreppi í
Mýrdai. Þetta frumvarp hafði
legið fyrir Alþingi fjögur ár í
röð, en jafnan áður dagað uppi
Nú var það fellt í fyrsta sinn.
Stjórnarsinnar í Iandbúnaðar-
nefnd deildarinnar lögðu til, að
frumvarpið yrði fellt en stjórnar-
andstæðingar vildu samþykkja
það. Málið er þannig vaxið, að rík-
ið keypt, fyrir 34 árum jörðina
Hoit af bónda, er þar bjó, Nú vilja
ekkja bóndans og sonur kaupa
Holt aftur, en þau hafa búið á öðr-
um bæ leigt af ríkinu afnot Holts-
lands fyrir rúmar 100 krónur á ári.
Jarðeignadeild ríkisins telur ríkið
raunu skaðast á sölunni. meðal
annars vegna þess, að bóndinn í
Álftagróf, næsta bæ, sem einnig
er ríkisjörð, hyggst flytja burt, ef
Holt yrði selt, og mundi það baka
rfkinu tjón. — HH