Vísir - 15.04.1971, Qupperneq 7
VlSIR . Fimmíudagur 15. apríl 1971.
7
cyMenningarmál
Bréf frá Póllandi:
nar leiðir
ausiur og vestur
■yðARSJÁ, höfuðbcxrg Póllands,
er í klukkustu.ndar þotu-
fjarlægð frá Búdapest. Það er
freistandi að skreppa þessa
bæjarleið og dveljast eitthvað
í Póllandi til að öðlast saman-
burð við Ungverjaland. Okkur,
sem búum í vestri, hættir um
of tii alhæfinga um löndin í
Austur-Evrópu, bundnir i far-
vegi fyrirfram ákveðinna skoð-
ana.
Það fer vel á að ferðast meö
opin augu og gleyma þeim
J>ólverjar eru þrisvar sinnum
fjölmennarj þjóö en Ung-
verjar. Urn sögu þessa lands
þarf ekki að fjölyrða, þar hefur
gengið á ýmsu og þjóðin orðiö
að taka örlögum sínum. Erfið-
leikar sögunnar hafa þróað
sterka þjóðarvitund hjá Pól-
verjum og þessa „þjöðartilfinn-
ingu“ veröur maður ákafiega
mikið var við.
Varsjá, með um 1.3 milljón
íbúa, Varð ákafiega iiia úti í
stríðinu. Yfir 80 af hundraði
Ein af perlum Evröpu: Maríukirkja í Krakow.
myndum sem maður hefur mál-
að fyrirfram i huga sér. Fæstar
af þeim fá staðizt, þegar sam-
anburður er gerður á tveim
iöndum innan hins sósíalistíská
kerfis, hvað l'ffsvenjur, menn-
ingu og ýmis ytri einkenni
snertir
borgarinnar lá í rústum þegar
eyðingaræöi nasismans var um
garð gengiö. En ekki eingöngu
höfuðborgin, allt landið var
lamað, samgöngur lágu niðri,
lifsneistinn virtist úrkula.
Polverjar hristu, eins og
Ungverjar, af sér ógnir eyði-
leggingarinnar skjótar en nokk-
ur hafði þorað að vona. Varsjá
var endurbyggð, meira að segja
gamli borgarhlutinn var endur-
reistur stein af steinj f sinni
upprunalegu miðaldamynd. Aö
öðru leyti er Varsjá nýtízkuleg
borg, mörg borgarhverfi minntu
mig á Breiðholt, eitt allsherjar
byggingaræði í úthverfum. Þetta
„nýja“ er reyndar oft heldur
lífvana, vantar sjarma hins
eðlilega borgarvaxtar og fegurð
umlykjandi landslags eins og
Búdapest getur státað af.
Aberandi mikið af ungu, vel
útlitandj og vel klæddu fólki
þræðir göturnar. Maður undrast
hve vel fólkiö er klætt, þvi
kaupið er lágt. En menningin
kostar lítið. Það er sameigin-
legt öllum Austur-Evrópu-
löndum.
Eins og
ast bækur
ur lesturs,
hávegum
fjölbreytt
gegna enn
í Póllandi.
í Ungverjalandí virð-
ekki til skrauts held-
hið ritaða orð er í
haft, leikhúslifið er
og kvikmyndahúsin
menningarhlutverki
í tónlistarsviðinu er Pólland
^ aðallega merkilegt fyrir
þær sakir í dag, að þar er einn
af mikilvægustu aflgjöfum sam-
tímatónlistar. Nægir að nefna
nöfn eins og Lútoslawski,
Penderecki og Serocki. Þaö er
eins og nýr sköpunarkraftur
hafi risið úr rústum styrjaldar,
og framlag Póllands er virt og
viðurkennt um allan heim.
Samt er hér í tónlistinni
merkilegf ósamræmi. Annars
vegar framúrstefna í bezta
skilningi orðsins, hins vegar
heldur hefðbundið efnisval á
tónleikum. Annars vegar skóla-
tónleikar fyrir öll skólastig, frá
leikskóla til háskóla, hins vegar
hálftómir tónleikasalir á venju-
legum tónleikum.
Annars vegar ágætt skipu-
lagskerfi ríkismúsikskóla fyrir
hin ýmsu skólastig, frá barna-
skóla upp í tónlistarháskóla,
hins vegar innihald kerfisins og
kennsluaðferðir íhaldssamar.
Vitanlega eru alhæfingar
hættulegar, en > heild held ég
að óhætt sé að fullyrða, að
Ungverjalandi standi Póllandi í
flestu framar hvað almennt
tónlistaruppeldi í skólum snert-
ir.
En Pólland á fleira en mikils
virt tónskáld. Hljómplötufram-
leiöslan er athyglisverð vegna
úrvals og gæða, og nótur eru
prentaðar i miklu og góðu úr-
vali. Þrátt fyrir framúrstefnu í
skapandi starfi væri ekki rétt
að segja, að samtimatónlistin
hljótj almennan hljómgrunn í
Bohdan Wodiczko.
tónleikasölum landsins. Þar,
eins og annars staðar, er hald-
ið upp á gamla dýrlinga. Ekki
má gleyma þvi að Chopin er
enn það tónskáld sem oftast
heyrist ásamt Liszt og öðrum
meisturum rómantismans.
/Ýperuhúsið i Varsjá verð-
skuldar sérstaka at-
hygli. Byggingin sjálf er nánast
sagt ævintýralega glæsileg ytra
og innra. Hér er aftur á móti
gott samrænij ytri ramma og
listræns innihalds. því óperu-
flutningur er með afbrigðum
góður.
Er ekki annað sýnt 'en aö
listrænt uppbyggingarstarf
Bohdan Wodiczkos hafj haft
tilætluð langvarandi áhrif, en
músikalskt brautryöjendastarf
þess ágæta manns hefur skilið
eftir varanleg spor í pólsku
tónlistarlífi, við Varsjáróperuna,
sem hann byggði upp frá 1961,
viö Philharmoniuhljómsveitina
í Varsjá, sem hann stjórnaði á
árunum 1955—58 og einnig við
sinfóníuhljómsveitina í Krakow,
sem Wodiczko stjórnaði um
tíma.
Óhætt er að segja, að nafnið
Bohdan Wodiczko sé nokkurs
konar menningarinnsigli á
þræðinum Pólland—ísland. Yfir-
leitt liðu ekki nema nokkrar
mínútur í samtali við tónlistar-
menn, þangað til hin óumflýjan-
lega spuming kom: Þekkið þér
Bohdan Wodiczko?
l>ólland er meira en Varsjá
og rangt værj að halda þvá
fram, að hin pólska menning
búi aðeins í höfuðborginni. í
Póllandi eru 7 stórar borgir,
sumar hverjar nýjar með
blómstrandi iðnað og fjölhæft
atvinnulíf, t.d. Kattowice, aðrar
með ævaganúa sögu að baki, t.
d. Krakow. Hin síðamefnda er
ein af perlum Evrópu: falleg
miðaldaborg með stórkostleg-
um kirkjum, höllum og öðrum
byggingum, og ævafornt menn-
ingarsetur. Háskólinn í Krakow
er einn hinn elzti f Evrópu,
stofnaður árið 1365. Hinn frægi
stjömufræðingur Kopernikus
kenndi við þennan skóla.
Krakow er horg upp á rúma
hálfa milljón manna, þar starfa
2 sinfóníuhljómsveitir og þar er
einn af hinum 7 tónlistarháskól-
um landsins.
Stefna Póllands eftir stríðið,
að forðast of mikla „menningar-
mettun'1 í Varsjá á kostnað alls
landsins, en gæta þess, að jafn-
vægi héldist í þessum efnum,
hefur reynzt landinu heillavæn-
leg. Þannrg ríkir viss sam-
keppni milli borganna, og þessi
EFTIR
STEFÁN
EDELSTEIN
Krzysztof Penderecki.
Witold Lutoslawski,
samkeppni orkar sem lyftistöng
á menningarlífið i öllu landinu.
Pólland er hlutfallslega möt-
tækilegt land fyrir vestrænum
menningaráhrifum, enda menn-
ingartengslin við Frakkland t.d.
gömul og rótgróin. Maður verð-
ur var við þessa gagnkvæmu
menningarstrauma í tónlistinni,
kvikmyndalistinni, málaralist-
inni og einnig >i bókmönntum.
Opnar leiðir í ;vesturátt og
náin samvinna við nágrannana
i austri stangast ekki á í.Pól-
Igndi: hvort tveggja frjóvgar
þeirra eigin menningu og sterku
þjóðarvitiiTvd.