Vísir - 15.04.1971, Qupperneq 8
8
VÍSIR . Fimmtudagur 15. apríl 1971.
VISIR
Otgefandí: KeyKjaprem nl.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R Cyjólfsson
Ritstfóri' Jónas Kristjánsson
Fréttastiðrl: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrói • Valdimar H. fóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b Simar 15610 11660
Afgreiðsla • Bröttugötu 3b Stmi 11660
Rltstjóm: Laugaveg) 178. Simi 11660 <5 Itnur)
Askriftargjald kr. 195.00 ð mánuöi innanlands
í lausasöiu kr. KL00 eintakiö
Prentsmiöja Visis - Edda hf
~3sammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Áratugurínn gerður upp
Rúmur áratugur er nú liðinn, síðan haftastefnan fékk
sparkið í efnahagsmálum íslands og við tók ný frjáls-
ræðisstefna, sem á sínum tíma var kölluð viðreisnar-
stefna. Þennan áratug hafa þjóðartekjur á mann auk-
izt um 3,7% á ári. Áratuginn þar á undan jukust þær
hins vegar aðeins um 2,5%.
Jóhannes Nordal seðlabankastjóri vakti athygli á
þessum tölum í ræðu á ársfundi bankans í dymbil-
vikunni. Benti hann á, að þjóðarframleiðslan á ára-
tugnum hefði í heild aukizt í svipuðum mæli og hjá
hinum iönþróuðu löndum heimsins. En áður hefur
það komið fram, að áratuginn þar á undan var hagþró-
unin töluvert hægari hér en í iðnþróuðu löndunum.
Til skýringar á hinum ánægjulega hagvexti ára-
tugsins sagði bankastjórinn: „Bendir þetta til þess,
að sú stefna frjálsræðis, bæði í innflutnings- og fjár-
festingarmálum, á grundvelli raunhæfrar gengis-
skráningar, sem fylgt hefur verið þetta tímabil, hafi
leitt til betri nýtingar framleiðsluþátta þjóðarbúsins
og því til aukinnar framleiðni."
Jóhannes Nordal taldi einnig í ræðu sinni, að á
þessum síðasta áratug hefði „tekizt að treysta betur
en áður stöðu þjóðarinnar út á við og vinna hepni
aukið fjárhagslegt traust meðal annarra þjóða.“ Enn-
fremur hefði „tekizt að koma á aukinni fjölbreytni í
atvinnuháttum, sérstaklega útflutningsframleiðslu,“
og ætti það væntanlega eftir „að draga úr þeim sveifl-
um í gjaldeyristekjum, sem átt hafa svo drjúgan þátt
í óstöðugleika íslenzkra efnahagsmála til þessa.“
Síðan sagði bankastjórinn: „Allt eru þetta svo mik-
ilsverð atriði, að á grundvelli þeirra á að vera óhætt
að fullyrða, að afkoma íslendinga hafi aldrei staðið
traustari fótum en nú. Hinum mégin á reikninginn
verður þó að telja einn vettvang, þar sem árangur í
stjóm efnahagsmála á undanförnum áratug hefur orð-
ið mun minni en vonir stóðu til. Ég á þar við þróun
verðlags og framleiðslukostnaðar. Hjá því verður ekki
horft, að verðbólga hefur verið hér á landi meira en
tvöfalt örari en í nokkru nálægu landi og einnig all-
miklu meiri en áratuginn á undan.“
Jóhannes Nordal ræddi verðbólguna nánar og taldi,
að hana mætti að verulegum hluta skýra með hinum
óvenjulegu tekjusveiflum útflutningsatvinnuveganna.
Benti hann á, að útflutningstekjur þjóðarinnar tvö-
földuðust fyrst á fjórum árum fram til ársins 1966
og lækkuðu síðan aftur niður í upphaflegt magn á
næstu tveimur árum. En einnig kvað hann skorta
„almennt viðurkennda stefnu í launa- og verðlags-
málum, er miði að því, að launahækkanir séu ætíð í
samræmi við framleiðsluaukningu þjóðfélagsins, þar
sem hækkanir umfram þau mörk hljóta eingöngu að
leiða til verðbólgu."
Þegar áratugurinn er gerður upp í heild má því
segja, að hagstjómin hafi lánazt einstaklega vel, að
hagvöxturinn hafi verið einstaklega mikill, og að nú
sé stríðið við verðbólguna mikilvægasta verkefnið.
NÚ MEGA FLUGVÉLA-
RÆNINGJAR VARA SIG
— 2000 varðmenn / dulargervi / bandariskum ^
flugvélum — bætt leitartækni — 273 handteknir > *" SaÉk
Ef við ferðumst á næst-
unni með bandarískum
flugvélum á einhverri
flugleið, er sennilegt, að
einhverjir tveir af far-
þegunum séu lögreglu-
menn í dulargervi. —
Bandaríkin munu í sept-
ember í haust hafa 2000
slíka „marskálka“ við
störf á flugleiðum bæði
innan Bandaríkjanna og
til annarra landa. Þess-
um mönnum er ætlað að
koma í veg fyrir flug-
vélarán.
manna til starfsins, segir, aö
margir sækist eftir starfinu
vegna tækifærisins til að ferö-
ast út um allar trissur. Einn
,,marskálkurinn‘‘ hafði til dæm-
is ferðazt meira en 160 þúsund
kilómetra á 32 dögum. Á þess-
um tfma hafði hann komizt til
Ziirich í Sviss, Tel Aviv í ísra-
el, Madrid á Spáni og Aþenu.
Þetta veldur því, að svo marg-
ir hafa keppt um stöðurnar til
þessa.
Umsækjendur verða að vera
við góða líkamlega og andlega
heilsu. Þeir mega ekki vera
yngri en 21 s árs, og þeir verða
að standast öll hin mörgu próf,
sem fyrir þá eru lögð á þjálfun-
artfmanum. T.d verða þeir að
hafa sömu færnj í meðferð
skotvopna og lífverðir Banda-
ríkjaforseta. Þeir læra meðal
annars júdó, aðferðir viö af-
Hinn 11. september í fyrra
kallaði Nixon 1200 „mar-
skálka“ til starfa til að
vemda farþegaflugið.
vopntm og handtöku, um gerð
flugvéla, lagasetningu, er þé
varðar, og margt fleira.
Sérhver „marskálkur" er
tvo mánuði í flugvél á móti
hverjum einum, sem hann starf-
ar á jörðu. „Stefna okkar er að
gripa ræningjann áður en hann
kemst upp í flugvélina," segjy
forstjóri eins bandarfsks ftog-
félags. „Við viljum komast hjá
átökum á fluginu, sem gæti
stofnað farþegum okkar og á-
höfn í hættu“.
„Marskálkarnir“ fá því sér-
staka þjálfun í .tækni við vopna-
leit, en margvísleg tæki eru
notuð víða um heim til að kom-
ast að þvf, hvort farþegar hafa
vopn. Flest hin stærstu flug-
félög nota slik tækj í einhverj-
um mæli.
273 handteknir
Þetta hefur þegar borið nokk-
urn ávöxt. Síðustu sextán mán-
uði hefur þessi leit leitt til
handtöku 273 manna. Ákærur
eru eða hafa verið bomar fram
gegn þessu fólki. Um 90 eru
sakaðir um að hafa vopn í fór-
um sínum, en hinir fyrir eitur-
lyfjasmygl, þjófnað og fleira.
Ekki er unnt aö ákæra neinn
fyrir flugvélarán, nema hann
hafi beinlínis reynt að breyta
stefnu flugvélarinnar með of-
beldi.
Farþegar amast sjaldac viö
leitartækjum eða öðru eftirliti.
Meirihluti manna virðist fagna
þv) að „leitað hafi verið í fór-
um sessunauts hans,“ segja
stjórnvöld.
Þessi leitartækni verður stöð-
ugt fullkomnari. Vonir standa
til, að hún gefi nær 100% ár-
angur í baráttunni til aö hindra
flugvélarán Komist einhveriir
í gegnum þetta eftirlit, þurfa
þeir næst að íhuga þann mögu-
leika, að einhverjir ferðafélagar
þeirra séu lögreglumenn. Þetta
samaniagt ætti aö skjðtn br<tn.
sem hafa áhusa á lugvélaráni,
nokkurn skelk f bringu.
Skjóta aðeins i neyð
Þeir líta ekki úi eins og lög-
regluþjónar. Þeir ferðast eins
og hverjir aörir farþegar og
sýna flugfélögum exki önnur
skilríkj en þau, nem gefa til
kynna, að þeir séu viðskipta-
erindum“ eða öðrum slíkum.
Þeir ferðast tveir saman, þótt
stundum kunni þeir að vera
fleiri í sömu vél. Þeim er bann-
að að fá sér blund á leiðinni,
og áfengis mega þeu- ekki neyta.
Ef einhver gerir síq líklegan til
flugvélaráns, eigs þeir að
reyna að yfirbuga hann, án
þess að skjóta, sé þess nokkur
kostur. Þeir eru hins vegar
vopnaðir, og eigi þeir ekki ann-
arra kosta völ, beita þeir
skammbyssum sínum, sem eru
þannig útbúnar, að skotið á
ekki aö geta valdiö verulegum
spjöllum á flugvélinni.
10 þúsund sóttu um
Margir hafa sýnt áhuga á
þessu starfi, síðan Nixon kali-
aði þessa varðmenn til starfa
11. september 1970. Tíu þúsund
menn sóttu um þau tvö þúsund
störf, sem í boði voru.
Nixon gerði í fyrstu út af
örkinni 1200 varðmenn. Síðan
hafa sérþjálfaðir menn smám
saman leyst hina upprunalegu
varðmenn af hólmi Valdir hafa
verið úr röðum umsækjenda
þeir menn, sem bezt virtust
fallnir til þessara stanfa, og þeir
hafa hlotið þjálfun í fjórar vikur
f Fort Belvoir skammf frá
Washingtonborg.
Þessir „marskálkar" eru í
förum á Evrópuleiðum, flugi yf-
ir Karabíska hafið og Suður-
Amerfku og til Austurlanda.
„Þeir lfkjast ekki lögregluþjón-
um. Þeir eru á ýmsum aldri, á
þrítugs- fertugs og fimmtugs-
aldri. Við stefnum að því að
skapa nægilega vörn gegn flug-
vélaræningjum, þar sem nú
munu þeir. sem ráðgera slík
rán, verða að reikna með þvf,
að meðal farþeganna sé ein-
hver okkar rnanna".
Fór 160 þúsund
km á mánuði
Eugene T. Rossides, aðstoð-
arfjármálaráðherra, sem hefur
yfirumsjón með valj og þjálfun
ar væru naktir, svo að eng-
inn geti falið byssu eða
sprengju? Þannig spyr einn
skopteiknarinn.
iiiiiiimn
■■■■■■■■■■■■
Umsjón: Haukur Helgason
IVIargur verður flugvélaræn-
ingi til að komast f sviðs-
ljósið.