Vísir - 08.05.1971, Blaðsíða 3

Vísir - 08.05.1971, Blaðsíða 3
VÍSIR. Laugardagur 8. maí 1971. Ákaflega undrandi yfír þeim móttökum sem söngur minn hefur fengið — rætt v/ð Erlu Stefánsdóttur eina kvöldstund Það var í júlímánuði fyrir fimm árum, að sá, er þetta rit ar, var meðal gesta í Sjálf- stæðishúsinu á Akureyri. Hljómsveit Ingimars Eydal iék fyrir dansi og hélt uppi feikna„stuði“, en það, sem vakti sérstaka athygli mína, var söng ur ungrar söngkonu, sem um þetta ieyti var nýráðin 1 hljóm sveitina. Þótt sviðsframkomunni væri nokkuö áhótavant_ þá fór ekki milli máia, að hér væri að mótast efnileg söngkona í orðsins fyllstu merkingu. Söng hæfileikar Erlu áttu eftir að blómstra á hljómplötum, þær eru orönar fjórar talsins og hafa allar náð hylli aimennings. Er tíðindamaður þáttarins komst að því, aö Erla Stefáns dóttir værj stödd hér „fyrir sunn an“, þótti honum það sérdeilis þú ákvaðst að takast á við dæg urlagasöng? — Byrjunin var þannig að hljómsveitastjórj _ Póló, Pálmi Stefánsson, hafði heyrt í mér á skólaballi, og mér til mikiMar undrunar fór hann ekki leynt með það að hann væri stórhrif- in af þessu rauli mínu og vildi umfram allt fá mig á æfingu með hljómsveitinni. Er það var yfirstaðið var ég ráðin söng- kona hljómsveitarinnar. — Hvernig var sálarástandið fyrsta kvöldið, sem þú söngst með umræddri hljómsveit á dansleik? — Auðvitað var ég taugaó- styrk, enda ekki nema 16 ára gömul. Siálfstraustið var ekki ýkja rriikið. en þær móttökur, sem ég fékk komu mér vægast sagt mjög á óvart. Þessi mynd vár tekin fyrir um það bil þremur árum. kærkomið tækifæri til að ræða við hana með það í huga að kynna hana fyrir lesendum þátt- arins. Það hefur flogið fyrir hér í höfuðborginni og víðar. að Þing eyingar líti allstórt á sig og séu ófeimnir við að láta það koma í ljós. Ef eitthvað er hæft í því, þá er Erla svo sannarlega ekkert gangandi minnismerki um dæmi gerðan Þingeying. Erla er 23 ára, alúðleg stúlka, þægileg viðræðu, en vill gera sem minnst úr hæfileikum sínum sem söngkonu. — Hvernig vék því við, að nægilega að röddin nyti sín sem allra bezt í viðkomandi lagi, eða iögum, en persónulega hef- ur mér þótt lagavalið á þínum plötum hafa tekizt mjög vel. — Það er ekki fjarri lagi, en þegar maður lítur til baka, kem ur maður auga á ótal galla, sem maður sá ekki á þeim t'ima. og þá á ég við fyrstu plötuna, sem ég söng inn á. — Nú voru þetta hljómsveit ir á svipaðri línu eins og mað- ur segir. UMSJON BENEDIKT VIGGÓSSON — Síðan kom aö því, að þú fórst að syngja með hljómsveit Ingimars Eydal. — Já, það var einu og hálfu ári . seinna, og ég söng með þeirri hljómsveit I rúmt ár, og sú breyting hafði góð áhrif á mig. Pálmi og Ingimar eru ákaf- lega ólíkir menn og gerðu mismunandj kröfur til mín, en einmitt þess vegna tel ég mig hafa haft gott af að fá tækifæri til að vera undir stjórn þeirra beggja. — Það hefur því miður komið fyrir. að hljómplötuútgefendur almennt hafi ekki gætt þess Það fer ekki á milli mála, að myndin er af móður og dóttur. Það er aldrei að vita nema hún Erla rauli fyrir dótturina „Góða nótt“, þegar sú litla er komin í rúmið. — Já að vissu leyti, en það var mikill munúf1 á hvernig tekizt var á við verkefnin, auk þess sem flestir söngvarar hafa gott af því að hafa tækifæri til að syngja ekkf of lengi með sömu hljómsveitinni. Ingimar var rólegur í tíðinni, ég tel mig hafa lært ákaflega mikið á þessu tímabili, "sem ég vann með honum. Pálmi er aftur á móti alger lega sér kapítulj 1 mínum söng ferli, því hefði hann ekki orðiö svona uppnuminn á skólaballinu forðum. þá er mjög hæpið, að ég hefði nokkurn tíma sungið inn á hljómplötu, og, vitaskuld er ástæðan meðal annars sú að hann er stofnandi Tónaútgáf- unnar. — Nú hefur þú ekki sungiö með hljómsveit um alílangan tíma, hefurðu lagt þá hugmynd alveg til hliðar, eða ætlarðu kannski að setjast að hér í höfuðborginni og syngja fyrir Sunnlendinga f staðinn? — Vissulega hef ég hug á að fara að syngja meö hljómsveit aftur, en það eru ýmis einka- mál, sem þar sninnast inn i. Égifer norður eftir páska, en ég hfef ful'an hug á að koma til Reykjav’ikur og jafnvel setj- ast hér að. Eins og málin standa núna er allt óákveðið um fram tíðina og bezt að fullyrða sem minnst. en ég vil frekar búa i Reykjavík og hefði áhuga á að syngja með hljómsveit, ef að- stæöur leyföu. — Þér hefur nú farið mikið fram í söngnum frá því að þú söngst inn á þessa fyrstu plötu þína fvrir fjórum árum. Mér segir svo hugur, að þú hafir sjállfsgagnrýni í ríkum mæli. — Sjálfsgagnrýni er nauðsvn- leg, þótt hún geti farið út í öfgar og verkað öfugt. En ég hef reynt að fara meðalveginn, en það er ekki mitt að dæma um hvernig til hafi tekizt, en þessar plötur, sem ég hef sung ið inn á eru í rauninnj ósköp lítið sýnishorn af því, sem ég hef sungið. og þótt þær hafi náð töluverðum vinsældum hef ég aldrej verið fullkomlega ánægð og eins og þú veizt þá fara gæði og vinsældir í fæst- um tilfellum saman, þó aö þetta sé mikið að breytast. — Hvernig líkar þér að vinna í upptökustúd’iói? — Frá upphafi hef ég kunnaö ákaflega vel við mig í plötu- upptöku, og það er lftið um það að ég fái snert af upptöku- „skrekk". Ég hef líka verið svo heppin að Pétur Steingrfmsson hefur tekið upp allar plöturnar mínar, og það er ómetan'egt að hafa alltaf sama tæknimanninn við plötuupptöku. Ég vil endilega koma því að hér I lokin að ég hef verið ákaf lega undrandi yfir þeim móttök um sem söngur minn hefur fengið og það er vissulega upp örvandj og þakklætisvert. MELiVÖLLUR í dag kl. 15.00 leika KR — Víldngur Mótanefnd Söiubörn Komiö og seljið mæðrablómiö á morgun klukkan 9.30. Blómin verða afgreidd á eftirtöldum stööum: Bama- skólum bæjarins, ísaksskóla, Menntaskólanum við Tjörnina (Miðbæjarskólanum) og skrifstofu Mæöra- styrksnefndar, Njálsgötu 3. — Góð sölulaun. Mæðrastyrksnefnd

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.