Vísir - 25.05.1971, Blaðsíða 3
V1SIR. Þriðjudagur 25. maí 1971
I MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Í MORGUN UTLÖND
■■HHRRtfóR'.' ■>' ■. V' v;.-V" -• • • ' «• 'v' ,i*A ":r ." ■"" &».•■• -• .
3
I
Franski forsætisráðherran Chaban-Delmas, tekur á móti Heijíh, er hann kom til Parísar til við-
ræðna við Pompidou, forseta.
Umsjón: Gunnar Gunnarsson
30 ÞORP
SAMBANDSLAUS
— jarðskjálftinn i A-Tyrklandi var hressilegur
Óhætt mun nú aö segja með vissu
að kringum 800 manns hafi farizt
’í tyrkneska þorpinu Bingol í Austur
Tyrklandi, er jarðskjálfti gekk þar
yfir á laugardag. Ástand er allt
mjög alvarlegt, hiálparliðar eiga 6-
hægt um vik, þar sem vont er að
komast um landið sökum aurbleytu.
800.000 Sviar
með lausa
samninga
Áttahundruð þúsund sænskir laun
þegar eru nú með lausa samninga,
eftir að fyrri samningur fór úr gildi
á miðnætti í nótt. Þar með er frið
urinn aftur úti á sænskum vinnu-
markaði og óttast er að ófriður geti
orðið langvarandi og flókinn.
í gær hætti samninganefnd verka
lýðsfclaga viðræðum til þess að
leggja tilboð fyrir félagsmenn sína
eða fulltrúa hinna ýmsu verkalýðs-
félaga.
,Ekki talað um neitt sérstakt
— segir Harold Wilson um
viðræður Heath og Pompidou
Edward Heath er kominn
heim frá viðræðum við
Pompidou og fleiri franska
ráðamenn um væntanlega
ifin/y-tinoni.j
tlilOKi ÍflUIUU
inngöngu Breta í Efnahags
bandalagið. Hann hélt í
gær ræðu yfir þéttsetinni
Neðri deild, og sagði þá, að
afstaða Pompidou gagn-
vart heiztu spurningunum
sem á leituðu í sambandi
Brenna sig enn
í baigon
Átfca bandaríski r hermenn l étu líf
ið og níu særðust illa, þegar noröan
menn réöust með brauki og bramli
á bandarístoa herstöö sem er í 37
km fjarlægð í norövestur frá Sai-
gon. Beittu norðanmenn sprengju-
vörpum og öllu mitolum usla meðal
Bandaríkjamanna, brenndu meöal
‘annars upp kringum 6 milljónir lítra
af flugvélaeldsneyti.
Sextán ára piltur brenndi sig til
bana í Saigon í mótmælaskyni við
Víetnamstríðið. Hann heilti yfir sig
bensíni og kveikti síðan í. Drengur
inn var hinn niundi sem slfkt gerir
síðan á hátíðisdegi Búddatrúar-
manna í Víetnam 9. maí.
við inngöngu Breta, væri
jákvæð og eðlileg.
Sagði Heath f þingræðunni, að
nú væri ekkert það til sem stöðvaö
gæti inngöngu Breta í bandalagið,
þar sem sáttfýsi ríkti nú í hjörtum
Breta bg Frakka.
Wilson, leiðtogi stjómarandstöð
unnar, svaraði ræöu Heath og sagði
aö í viöræðum þeirra Pompidou og
Heaths hefði ekkert þlutlægt kom
iö fram— eða þannig kæmu við-
ræðumar stjórnarandstööunni fyrir
sjónir.
Danir eru nú famir að hugsa sér
til hreyfings að semja um inn-
göngu í EBE, þar sem Bretar em
nú að síga yfir þröskuldinn, og verð
ur lfka einhverra frétta að leita af
því máli eftir fund Efnahagsbanda
lagsríkja sem haldinn verður 7. júlí
n.k. í Luxemburg.
Pompidou brá sér til Brussel eftir
viðræðurnar við Heath og átti viö-
rægur við Efnahagsbandalagið.
Þúsundir manna eru særðir og
heimilislausir.
Tveim dögum eftir að jarðskjálft
arnir skóku fjallaþorpið Bingol sem
er í 1600 km fjarlægð í austur
frá Istanbul, reyndu hjálparliðar að
setja sig í samband við um 30 þorp,
sem allt samband hafði slitnað við
eftir jarðskiáiftann. Aðeins 180 af
4000 byggingum í Bingol sluppu að
mestu við afleiðingar jarðskjálft-
ans, þ.e. þær stóðu uppi.
17000 manns bjuggu í Bingol eða
svæöi þar um kring og reikar fólk
nú um rústirnar og leitar að týnd-
um ættingjum.
andstæður íslenzkrar náttúru
mál og myndir eftir
Hjálmar R. Bárðarson
sérútgáfur á íslenzku cg ensku
Podgorny
Sönn og djúpslæc vinátta
✓/
— segir Al Ahram um samband Kairó og Moskvu
Nikolai Podgorny, forseti
Sovétríkjanna kom í gær
til Kaíró og mun þar strax
eigi viðræöur við Anwar
Sadat. Þetta er óopinber
heimsókn Podgornys til
Egyptalands, og er greini
lcgt að Rússum er nrikið í
mun að kanna hver áhrif
hreinsanir Sadats hafi haft
á egypsk/rússnesk sam-
skipti, þar sem það voru
aðallega Rússavinir og
vinstrisinnaðir menn sem
Sadat sendi út í yztu myrk
ur.
Meðal þeirra sem Sadat rak frá
sér, var Ali Sabry, varaforseti
j Egyptalands, Gamaa innanríkisráð-
herra og Fawsi.
Reiknað er með að Podgomy vilji
fá eins konar skýrslu frá Sadat um
hverjir það eru í landinu, sem eftir
hre'nsanirnar hafa raunverulega
völdin— en Sadat mun að sjálf-
sögðu reyna að sannfæra Rússann
um að hreinsanirnar muni engin á-
hrif hafa á samband Egyptalands og
Sovétríkjnna.
Mörg Kaíró dagblöð hafa skrifað
um þetta atriði, og stjórnarmálgagn
ið, AI Ahram skrifaði í gær, að það
væri vonlaust að reyna að reka
fleyg í sambandi það sem er miili
Kaíró og Moskvu, þar sem sambönd
landanna tveggja væru sönn og
stæðu diúpum rótum. í leiðara
sama dag varaði A1 Ahram allar
j þjóðir við því að bland sér ’i innan-
ríkismál Egypta.
Tilboð óskast í byggingarframkvæmdir við
Lagarfossvirkjun fyrir Rafmagnsveitur ríkis-
ins.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn
5. júlí n. k., kl. 14.00.