Vísir - 12.06.1971, Side 4
4
VISIR . Laugardagur 12. júní 1971,
ÞETTfl Vlb
ÉG Sd4
Hinn vinsæli handboltaleik-
maöur Geir Hallsteinsson er
íþróttakennari og hefur umsjón
meö leikja- og íþróttakennslu
um 500 sex til sjö ára bama í
Hafnarfiröi. I sólskininu i gær-
dag brá blm. Vísis sér meö
sjónvarpsdagskrá næstu viku
suður f Fjörð og hitti Geir aö
máli, þar sem hann var viö
kennslu á Hörðuvöllum.
Við vorum elcki fyrr setztir
niður í grasbala með sjónvarps
dagskrána en Geir hóf má'Is á
því, hve sjónvarpið væri með
afbrigðum gott. Geir sagði: „Ég
hef ferðazt vítt og breytt um
Evrópu og þurft að eyða mörg
um kvöldunum við sjónvarps-
tæki á hótelherbergjum, þar
sem maður er skikkaður til að
sitja langtímum í keppnisferð-
um. Ég tel mig því hafa aðstöðu
til að bera dagskrá fslenzka
sjónvarpsins saman við dagskrár
erlendra sjónvarpsstöðva. Ég
vil halda því fram, aö islenzka
sjónvarpið beri tvfmælalaust af
i samanburöl viö þaer stöövar.
Það er vitanlega alltaf hægt að
deila um það, hvort ekki megi
gera betur, en eins og dagskrá
fslenzka sjónvarpsins er, er
hún virkilega ásjáleg. Hún tal
ar miklu meira til fjöldans en
þær erlendu."
Er Geir tók að fletta i gegn-
um sjónvarpsdagskrá næstu
viku, varð fyrst fyrir honum leik
ritið Dauöasyndirnar sjö, sem
er á dagskrá sunnudagsins.
„Þetta leikrit hef ég oftast nær
horft á og alitaf verið jafnhrif-
inn. Ég hef nefnilega mest
gaman af mannlegum myndum
og leikritum. Það er einmitt
slfkt efni, sem hittir f mark hjá
fjöldanum hér. Ekki þessar has-
ar- og drápsmvndir," sagði
Geir.
Á sunnudaginn kvaðst hann
„tvímælalaust" ætla að horfa á
kosningasjónvarpiö. „Það ætti
að geta orðið virkilega gott
núna, engu síður en í fyrra —
og sjálfsagt betra,“ sagði Geir.
MÁNUDAGUR
„Ég horfi þá eins og endra-
nær á fréttimar, þær eru alltaf
jafnvel framsettar," hélt Geir
áfram. „Annað er það nú ekki
á dagskrá sjónvarpsins, sem ég
gæti hugsað mér að sjá á mánu
daginn — nema þá ef vera
kynni „Svipmyndir af niannlíf-
inu í stórborginni“.
ÞRIÐJUDAGUR
„Af sömu ástæðum og ég gat
um áðan horfi ég gjaman á
Kildare lækni. Hann er ákaflega
mannlegur náungi.
Eiður Guðnason er líka ágæt-
ur. Sérstaklega er hann góður
sem spyrjandi og þvi set ég
mig ekki úr færi að sjá þáttinn
„Setiö fyrir svörum", en sá
þáttur er á dagskrá næst á
eftir Klldare. Því næst em svo
íþróttir á dagskrá og þar er jú
eitthvað við mitt hæfi. I’þróttir
eru nefnilega mitt svið, mitt líf.
Ég tel mig hafa lært geysilega
mikið á fþróttaþáttum sjónvarps
ins. Þeir hafa að mínum dómi
lyfzt geysilega upp eftir að
Ómar Ragnarsson tók við þeim.
AHa gagnrýni á íþróttaþætti
hans tel ég óréttmæta. Ómar
hefur komið til móts við flestar
eða allar íþróttagreinar og gert
þeim mjög sanngjörn skil með
hliðsjón af vinsældum íþrótta-
greinanna hverrar fyrir sig. I
meðförum Ómars finnst mér
iþróttaþættir sjónvarpsins verða
orðnir með bezta efni sjónvarps-
ins.“
MIDVIKUDAGUR:
Ekkert sé ég við mitt hæfi
í dagskrá miðvikudagsi-ns. Um
bíómyndir sjónvarpsins vil ég
segja það, að þær gömlu -'ogfe
mannlegu eru oft góðar, svo
mannlegar. Stríðsmyndirnar,,
eru hins vegar hrikalega leið-
inlegar og eiga ekkert erindi til
okkar Islendinga — ekki nema
þá einhverra sárafárra, sem hafa
yndi af hrottaskap.“
FÖSTUDAGUR:
„Mannix horfi ég á. Hann er
venjulega hress og skemmtileg-
ur og laus við alian hrottaskap
inn, þó að það komi náttúrlega
fyrir, að Iumbrað sé á honum.
Ot úr s-lagsmálunum kemur
hann þá alitaf ógreiddur — það
hefur han-n fram yfir Dýrlinginn
gamla. j
Erlend málefni er fremur mis-
jafn þáttur að gæðum, en ein-
staka sinnum kemur það þó fyr
ir, að þar séu tekin fyrir mál-
efni, sem ég hef áhuga á. Það
stendur ekki hér í dagskránni
um hvað hann f jailar næst ...“
LAUGARDAGUR:
„Eins og aiitof oft viil koma
fyrir á laugardögum er aðeins
einn ljós punktur I sjónvarps-
dagskránni, þar á ég við dag-
skrárlokin, þau eru það eina,
sem ég sé áhugavert í dagskrá
næsta laugardags — fyrir utan
fréttirnar auðvitað ...,“ 1 sagði
Geir að lokum. —ÞJM
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 81. tölublaði Lögbirtingablaösins
1969 og 2. og 4. tölublaði 1970 á eigninni Akurbraut
7, Innri-Njarðvík þinglesin eign Ara Jóhannessonar
fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar, hrl., Vil-
hjálms Þórhallssonar, hrl. og Tómasar Tómassonar,
hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 16/6 1971 kl.
5.00 e. h.
Sýslumaðurinn I GuIIbringu- og Kjósarsýslu.
Úrval úr dagskrá næstu viku
SJONVARP •
Mánudagur 14. júní
20.20 Kosningaúrslit. Yfirlit um
kosningarnar og viðtöl við tals
menn flokkanna.
21.10 Sænska söngkonan
Suzanne Brenning syngur óper
ettulög í sjónvarpssal.
Undirleik anna-st hljómsveit
undir stjórn Carls Billich.
21.35 Saga úr smábæ. Framhalds
mynda-flokkur frá BBC, byggð
ur á skáldsögu eftir George
Eliot. 4. þáttur. Heimkoman. !
22.20 Mannlíf i stórborg. Brugð- j
ið upp svipmyndum af mannlíf !
inu i stórborginni New York
og lýst kostum og göllum stór
borgarlífsins.
Þriðjudagur 15. júní
20.30 Kildare læknir. Húmar að
kveldi. Mynd þessi er í beinu
framhaldi af myndinni Með ást
arkveðju frá Nígeríu, sem sýnd
var sl. þriðjudag.
21.20 Setið fyriT svörum. Umsjón
armaður Eiður Guðnason.
21.55 Iþróttir. M.a. mynd frá
landsleik [ knattspyrnu milli
Dana og Skota.
Miðvikudagur 16. júní
20.30 Carmina Burana.
Kórverk með dönsum eftir
Carl Orff, einn af kunnustu
tónsmiðum og tónlistarfrömuð-
um Þýzkalands á tuttugustu
öld. Tónverkið Carmina Bur-
ana er samið seint á fjórða
tug þessarar aldar, en söngtext
arnir eru fengnir úr handritum,
sem skráð voru í klaustrum
miðalda.
Söngvarnir eru hér fluttir á
frummálunum, alþýöu-latínu
og gamalli þýzku og frönsku.
Flytjendur eru nemendur úr
skóia Hartvigs Nissens í Osló,
en formálsorð flytur Jón Stef-
ánsson.
21.20 Portúgal. Fylgzt mcö portú
gölsku þjóðlífi og svipazt um
í höfuðborginni Lissabon og
Lissabon og litlu fiskiþorpi i
héraðinu Algarve suður með
sjó.
21.45 Fær í flestan sjó. Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1961.
Leikstjóri Vincent Sherman. —
Aðalhlutv. Debbie Reynolds,
Steve Forrest og Andy Griffith.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
Ek-kja nokkur flyzt búferlum
frá New York til Arizona í
byrjun þessarar aldar. Þar lend
ir hún í ýmsum ævintýrum og
er loks falið að gegna valda
miklu embætti.
Föstudagur 18. júní
20.30 Tryggðarof. Finnsk mvnd
um víxlspor í hjónabandi og af
leiðingar þeirra. Kannað er við
horf almennings og brugðið
upp tölum úr bandarískum og
sænskum skýrslum um þessi
mál.
Þýðandi Gunnar-Jónasson.
21.l0 M'annix. Dauði í A-moll.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.00 Erlend málefni. Umsjónar
maður Ásgeir Ingólfsson.
Laugardagur 19. júní
18.00 Endurtekið pfni.
„Nú verður aftur hlýtt og
bjart um bæinn".
Flutt eru lög eftir Sigfús Hall-
dórsson. 1 þættinum koma
fram auk hans Tómas Guð-
mundsson, Sigurveig Hjálte-
sted. Guðmundur Guðjónsson
Kristján Kristjánsson, Ingibjörg
Björnsdóttir og fleiri.
Áður sýnt 6. maí 1968.
18.30 Réttur er settur. Laganem
ar setja á svið réttarhöld í
máli, sem rís út af sambýlis-
vandamálum í tvfbýlishúsi. —
Stjórnandi Magnús Bjamfreðs
son. Áður sýnt 31. jan. sl.
20.25 Smart spæjari. Djöflaeyjan.
20.55 Myndasafnið. Umsjónarmaö
ur Helgi Skúli Kjartansson.
21.25 Vængjaður sigur. Bandarfsk
bíómynd frá árinu 1944. —
Aðalhlutverk Lon McCalIister
og Jeanne Crain.
Þýðandi Jón Thor Haraldsson.
Hópur manna ákveður að ganga
í flugherinn og greinir myndin
frá undirbúningi þeirra f her-
skólanum og fyrstu þátttöku
þeirra í bardögum.
ÚTVARP •; j
—r1
w fl
19.35 Um daginn og veginn. —
F.ggert Jónsson hagfræðingur
talar.
19.55 Stundarbil.
Freyr Þórarinsson kynnir popp
tónlist.
20.25 Íþróttalíf.
Örn Eiðsson segir frá.
22.35 Hljömplötusafnið i umsjá
Gunnars Guðmundssonar.
Þriðjudagur 15. júní
19.35 Frá útlöndum.
Umsjónarmenn: Magnús Þórð-
arson, Elías Jónsson og Magnús
Sigurðsson.
20.15 Lög unga fólksins.
Gerður Guðmundsdóttir Bjark-
lind kynnir.
21.05 Iþróttir.
Jón Ásgeirsson sér um þáttinn.
21.45 „Sjakalar og Arabár", smá
saga eftir Franz Kafka. Ingi-
björg Jónsdóttir Þýddi. Þórunn
Magnea Magnúsdóttir les.
22.35 Harmonikulög.
Franconi og félagar hans leika.
22.50 Á hljóðbergi.
Miðvikudagur 16. júní
19.35 Á vettvangi dómsmálanna.
’ Sigurður Líndal hæstaréttarrit
ari talar.
20.20 Surriarvaka.
a. Nokkur orð um hinn fornnor
ræna Finnmerkurseið eða gald-
ur. Jón Norðmann Jónasson
bóndi í Selnesi á Skaga flytur
erindi.
b. Veðrahjálmur. Svei-nbjöm
Beinteinsson fer með kvæði
eftir séra Jón Hjaltalín.
c. Islenzk sönglög.
Engel Lund syngur þjóðlög, dr.
Páll Isólfsson leikur undir, Sig
urður S-kagfield syngur lög eftir
Jón Leifs, Fritz Weisshappei
leikurundir.
d. Eiríkur góði. Þorsteinn frá
Hamri tekur.saman þáttirtn og
flytur ásamt Guðrúnu Svövu
■Sýavarsdóttur.
Fimmtudagur 17. júní
19.30 Fánahvöt.
Ræða eftir Guðmund Finnboga-
son frá 1906. Finnbogi Guð-
mundsson flytur.
20.25 Milli steinsins og sleggjunn
ar. Sigrún Harðardóttir og Jón
Guðni Kristjánsson lesa ljóð.
20.50 Leikrit: „Dúfna<veizlan“ eft
ir Halldór Laxness.
Fluttur verður fyrsti þáttur og
fyrsta atriði annars þáttar. Leik
stjóri Helgi Skúlason.
Föstudagur 18. júní
19.30 Barnið sem vegfarandi.
Margrét Sæmundsdóttir fóstra
flytur þáttinn.
19.50 Krabbamein i lungum.
Hjalti Þórarinsson yfirlæknir
fijAur erindi.
20.30 Lundúnapistill.
Páll Heiðar Jónsson segir frá.
Laugardagur 19. júní
17.40 Valsar eftir Johann Strauss
Cleveland sinfóníuhljómsveitin
leikur, George Szell stjómar.
19.30 Mannlegt sambýli, — er-
indaflokkur eftir Jakobínu Sig
urðardóttur. Annað erindi nefn
ist Utangarðshluti fjölskyldunn
ar: Faðirinn. Sigrún Þorgríms-
dóttir flytur.
19.55 Hljómplöturabb.
Guðmundur Jónsson bregður
plötum á fóninn.
20.40 Smásaga vikunnar: „Jóla-
dagur" eftir Frank O’Connor.
Ingibjörg Jónsdótti-r íslenzkaði.
Jöhann Pálsson les.
Mánudagur |4% jýiy
Ferðafélagsferðir:
Laugardag 12. júní klukkan 2.
1. Þórsmörk.
2. Eyjafjallajökull.
Sunnudag 13. júni kl. 9.30 frá BSl
1. Brennisteinsfjöll.
2. Krísuvíkurberg.
Ferðafélag Islands, símar
19533 og 11798.
Farfuglar — ferðamenn:
Sunnudaginn 13. júní.
1. Hengill og Marardalur.
2. Hrómundartindur og Katt-
artjamir.
Farið verður frá Arnarhóli kl.
9.30.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer fram
opinbert uppboð að Borgartúni 3, mánudag 21. júní
1971 kl. 16.00 og verður þar seld gufupressa „Pros-
perity" talin eign efnalaugarinnar Lindin hf. Greiðsla
við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer fram
opinbert uppboð að Vesturgötu 53, mánudag 21. júní
1971 kl. 11.30 og verða þar seldar 2 fatapressur,
taldar eign Efnalaugar Vesturbæjar hf. Greiðsla við
hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.