Vísir - 28.07.1971, Blaðsíða 1
/
Kvikmyndun Njálu frestað
• Islenzka sjónvarpiö og þaö
sænska hafa um nokkurt skeið
haft kvikmyndun Njálu í bígerð.
f febrúar 1970. var mikill hugur
í mönnum aö fara að komast af
stað með verkiö eftir bví sem Pét
ur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri
sjónvarpsins tjáöi Vísi í morgun,
en nú hefur veður skipazt í lofti,
var fallið t'rá öllu því sem gera átti
í Njálukvikmyndun í sumar.
„Senni'.ega verður engar fréttir
að hafa af Njálu-kvikmyndun fyrr
en að ári“, sagði Pétur, „þessu hefur
verið frestað um óákveðinn tíma“.
Sagði Pétur, að einhver undir-
búningsvinna heföi farið fram fyr
ir þessa kvikmyndun, „en það eru
nú aðallega S.víamir sem hugsað
hafa um hana. Þeir eru búnir að
skriía handrit að fyrsta þætti mynd
arinnar en svo strandaði þetta af
einhverjum ástæðum. Njála bíður
enn um sinn.“ —GG
Ætlar að ættleiða annað barn frá Suður-Kóreu:
Aukinn áhugi n ættleið-
ingu burnu frú ASÍU
Eitin af þeim fjórum
umsækjendum, sem
sóttu um ættleiðingu
svonefndra „Asíubarna“
á sínum tíma hefur nú í
hyggju að ættleiða ann-
að bam til viðbótar. Vís-
ir fékk þessar upplýsing
ar hjá Baldri Möller ráðu
neytisstjóra í dómsmála-
ráðuneytinu og sagði
hann að nú væri verið
að undirbúa þessa ætt-
leiðingu og aðra til.
Umsækjandinn, sem áður er
getið hefur áður ættleitt eitt
barn frá S.uður-Kóreu og mun
hitt barnið einnig koma þaðan.
Sótt hefur verið um ættleiðingu
tveggja annarra barna þaðan.
Eitt barn hefur verið ættleitt
frá Indlandi. Þessar ættleiðing-
ar fara í gegnum alþjóð'ega
stofnun í Seoul, og getur liðið
á annað ár frá því aö leitað er
eftir ættleiöingu þar til hún fer
fram.
— SB
Heimildar-
kvikmynd
á Júpíter
# Áhöfnin um borð í togaran-
um Júpiter var fremur ó-
venjuleg, þegar hann lagði frá
bryggju á mánudaginn var. Auk
þeirra venjulegu sjóara í gulum
stökkum, sprönguðu um dekkið
hollenzkir kvikmyndarar í an-
órökkum og Iágum stígvélum og
sögðust vera að gera heimildar-
kvikmynd fyrir bandaríska land-
fræðifél. (National Geography
Society). Fengu þeir svo lánaðan
bát frá hafnsögumönnum og
sigldu allt um kring Júpíter
gamla og filmuðu í bak og fyrir.
tJti á ytri höfninni stukku þeir
svo um borð og ætla að vera
með allan túrinn og kvikmynda
löndunina, á endanum, hvar svo
sem hún veröur — í Reykjavík,
Hull, Grimsby eða Cuxhaven.
— GG
Kaupmenn
undirbúa
breytingu
lokunartíma
Kaupmenn eru nú farnir að búa
sig undir nýju reglurnar um lok-
anartíma sölubúða, en þær eiga að
ganga í gildi 1. október Viða hef
ur starfsfólki verið raðaö í vakta
flokka.
Gert er ráð fyrir, að l>eir, sem
vinna á kvö'.din, fái venjulegt
ívöidvinnukaup samkvæmt. núgild-
mdi samningum, að sögn Magnús
ir Finnssonar hjá Verzlunarmanna
f^lagi Reykjavíkur. Þó munu ein-
hvefjxf liklþga fá kaupuppbótina
með lengrá orlofi.
Wm
■
mm
Júpíter leggur upp í veiðiferðina. Kvikmyndatökumennirnir mynda upphafið úr lóðsbátnum.
Brekkukotsannáll á filmu
— leikstjóri væntanlegur til landsins
„Ég á von á að hingað komi
2 menn að minnsta kosti þann
10. ágúst n. k. Það er leikstjóri
myndarinnar og maður með
honum“, sagði Halldór Laxness,
rithöfundur, þegar Vísir forvitn
aðist um það hjá honum, hvað
liði gerð kvikmyndar þeirrar
sem þýzka ríkissjónvarpið ætlar
að gera eftir Brekkukotsannál.
„Mennirnir tveir setlá' þér að
rannsaka eitthvað st'aðhætti" sagði
Laxness „annars hafa þeir verið
undanfarið í Portúgal. Kannski
ætla þeir að athuga líka hvaða
fó]k er hægt að fá til að vera 1
myndinni. Þeir eru víst vanir aö
vilja heldur óvant fólk til að leika
hjá sér heldur en atvinnuleikara".
— Hefur kvikmyndahandrit ver-
ið skrifað? ■
„Mér skilst að þeir geri stundum
ekkert handrit séu bara með ein-
hverjar nótur. Annars veit ég ekk-
ert um þetta. Gerð þessárar mynd-
ar er algjörlega í höndum „sjón-
varpsmannanna".
— Verður þá kannski ekkert gert
að ráði fyrr en næsta sumar?
Ætli það. Þaö eru nú engar
vetrarsenur í bókinni. Og mér
skilst að það eigi að reyna að taka
allar útisenur hér á landi. Innisen-
urnar geta þeir auðvitað gert hvar
sem er. En það er víst vont að gera
filmu að vetrarlagi úti.
Annars veit ég ekkert um þetta,
nema hvað ég var í Hamborg í vor
að gera plön meö mönnunum og
lauslegar áætlanir, og svo koma
þeir núna, 10. ágúst“ — GG
Leikur
Tottenham
ekki í
Reykjavík?
Eins og málin standa nú eru
litlar líkur á því, að Tottenham
’.eiki hér í Reykjavík gegn
Keflavfk í Evrðpukeppninni,
sagði Hafsteinn Guðmurrdsson,
formaður ÍBK. í gærkvöldi. Það
er Maupin snurða á þráðinn í
sambandi við Laugardalsvöllinn.
— sjá ihróttir bls. 5
Hvernig er
lífsbaráttan
í Ástralíu?
„Það er síður en svo auðveld
ara að draga fram lífið í Ástra
líu, segir ungur Keflvíkingur,
Vilhjálmur Skarphéðinsson, sem
er kominn heim tií íslands eft
ir dvöl í Ástralíu með konu og
tveim börnum. Viðtal er í blað
inu í dag við Vilhjálm og
reynslu hans og fjölskyldunnar
af Ástralíu.
Sjá bls. 9
„Við eigum
ekki
Mörkina"
Ferðafélag íslands fékk held-
ur betur ákúrur frá einum les-
anda blaðsins á dögunum. Lýsti
hann óánægju sinni yfir því sem
hann taldi vera einokun Ferða
félags Islands á Mörkinni „Við
eigum ekki Mörkina", segja þeir
Ferðafé'.agsmenn í svari í blað
inu í dag. Nánar í þættirrum
„Lesendur hafa orðið“, sem að
venju er á bls. 6. — Þar grein
ir lesandi frá piltum, sem hann
mætti f undarlegu ástandi á
hraðbáti uppi við Kjalames um
síðustu heigi.
Sjá lesendabréf bls. 6
' ........ i
Ekkja de
Gaulle í fjár-
hagsvand-
ræðum — en
aðrir græða
á manni
hennar
Ekkja de Gaulle skrimtir
varla af lífeyri sínum eftir að
maður hennar lézt, þrátt fyrir
að hann græddi milljón-
ir á sölu endurminninga sinna.
Hún hefur aðeins 6100 krónur á
mánuði sem ekkja hershöfðingja.
Á meðan raka þorpsbúar í Col-
ombeyþorpi saman fé, — á
minningunni um de Gaulle.
Sjá bls. 2