Vísir - 28.07.1971, Blaðsíða 3
VlSIR . Miðvikudagur 28. júlí 1971.
*r------------ ——*--------
I MORGUN UTLONDI MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND I MORGUN UTLOND
Leysa geimfararnir gátuna?
— Þöglustu geimfarar sógunnar rannsaka dularfulla Ijósbletti
Geimfararnir í Apollo 15
aru þeir þöglustu, sem
nokkru sinni hafa farið í
geimferð. Þeir láta sér
nægja að horfa þegjandi á
Ijós og ljósbletti, sem þeir
sjá utan farsins. Frétta-
menn segja, að þetta stafi
af því, að þessir geimfarar
séu „öðruvísi en aðrir“.
Þeir séu fyrst og fremst vís
indamenn og ekki jafn
„léttlyndir“ og fyrirrennar-
ar þeirra voru, sem voru
sítalandi.
Geimfararnir þurfa nú ekki leng
ur aö óttast, að eitthvað sé í ólagi
í aðalvél. Þetta kom í ljós í gær
Stöðvun sykurinnflutnings
frá S-Afriku féll á tvehnur
— „Móðgun v/ð bandariska svertingja", segir Kennedy
Öldungadeild Banda-
ríkjaþings felldi í gær-
kvöldi tillögur Edwards
Kennedys um að stöðva
allan innflutning á sykri
frá Suður-Afríku.
Kennedy vildi útiloka Suður-
Afríku, þegar settir voru kvótar
um sykurinnflutning til Bandaríkj-
anna frá 32 ríkjum. TiMagan var
felld með aðeins tveggja atkvæða
meirihluta 47:45. Kennedy sagði í
umræðunum, aö stjórn Suður-
Afríku hefði „þrælarfki" og vitnaði
þar tiil stefnu stjórnvalda gagnvart
þeldökkum.
Fulltrúadeildin hefur áður fellt
tillögur svipaös eðlis Öldungadeild
in ’ hefur ákveðið, að árlega skuli
flutt inn frá S-Afríku 57.745 tonn
af sykri, næstu þrjú ár.
Kennedy sagöi, að þessi innflutn.
ingur væri móðgun við affla svert-
ingja í Bandaríkjunum og kapn
væri til tjóns tilraunum Banda-
ríkjanna til að bæta sambúðina við
Afríkulönd. öldungadeildarþing-
maðurinn Russel Long frá Louisi-
ana, sagði, að Bandaríkin ættu ekki
að byggja ákvarðanir um sykurinn-
flutning á skoðunum sínum á innan
ríkismálum annarra ríkja.
' :■........................................ : - " >■ ■
við athugun vélarinnar. Einn
spennubreytir er ekki í fullkomnu
lagi, en’ sagt er, að það geti engu
skipt um ferðina. .
Með því geta geimfararnir ein-
beitt sér aö tilraunum, sem eiga að
hjáipa vísindamönnum að finna
Iausn „gátunnar um Ijósblettina“
sem geimfarar hafa áður séð á ferð-
um sínum. David Scott og Alfred
Worden eiga að nota augnhlífar og
tilkynna geimvísindamönnum í
Houston jafnóðum um allt, sem fyr
ir augu ber. Áhöfn Apollo 14 til-
kynnti, að hún hefði séð Ijósbletti.
Umsjón: Haukur Helgason
Sumir sögöu þá likasta neistum,
en aðrir töluðu um „stjörnur, sem
spryngju".
Vísindamenn eru helzt á því, að
þessir ljósblettir stafi af geislum í
himingeimi. Ástæðulaust sé að ótt-
ast, að nokkur hætta stafi af þeim.
Scott og Irwin könnuðu tungl-
ferjuna í gær, og var það sýnt í
sjónvarpi. Sjónvarpsáhorfendur á
jörðu gátu séð jafnvel smæstu bók-
stafi á mælaborðum, en menn
kvörtuðu vfir þegjandaleik geim-
faranna, sem varla sögðu neitt
utan að gefa nokkrar tæknilegar
upplýsingar.
Enginn geimfarinn hefur enn
sagt brandara af neinu tagi og hefur
slíkt ekki gerzt fyrr í geimferðum
Bandaríkjamanna.
McGovern ætlar að
verða á undan Nixon
McGovem öldungadeildarþing-
maður, sem býður sig fram við
forsetakjör í Bandaríkjunum næsta
ár, vonast til að verða á undan
Nixon til Kína.
Eihn starfsmanna þingmannsins
segir, að æðstu menn í Kína fhugi
nú urnsókn þingmannsins um vega-
bréfsáritun og hafi McGovern góða,
ástæðu til að búast við, að hann
geti farið til Kína innan skamms.
McGovern er einn þeirra þing-
manna, sem hefur mælt með þvl,
að Kínverska alþýðulýöveldið fái
sæti Kína hjá Sameinuöu þjóðunum,
jafnvel þótt fulltrúar þjóöemissinna
stjórnarinnar á Formósu þyrftu að
víkja af fundum S.þ.
Svertingjaríkin í Afríku hafa hatazt viö S-Afríku, en þó hefur
Malawi nú tekið upp stjórnmálasamband við S-Afríku. Banda
þjóðarleiðtogi Malawis sést hér með Vorster forsætisráðherra
S-Afríku.
Fjórir arabískir
kommúnistaflokkar
mótmæla aftökum
Fjórir arabískir kommúnista-
flokkar skoruðu í gær á alla „fylgj-
endur friðar og réttlætis um heim
allan að fordæma aftökumar á
frelsishetjum í Súdan“, eins og það
er oröað.
Kommúnistaflokkar í Jórdaníu,
Sýrlandi, írak og Libanon sendu
sameiginlega yfirlýsingu frá fundi
i Beirut vegna þess, aö stjórn Súdan
hefur látið lífláta fjölmarga af for-
ustumönnum kommúnista eftir mis-
heppnaöa tilraun kommúnista og
vinstrisinna til byltingar.
í yfirlýsingu kommúnistaflokk-
anna er sagt, að kommúnistar um
allan heim muni standa við hlið
„framfarasinnaðra og lýðræöissinn-
aðra sona Súdan“
Kommúnistaforinginn Abdel
Khalek Mahgoub var dæmdur til
dauða í Súdan í gærkvöldi, og á að
hengja hann í dag.