Vísir - 28.07.1971, Síða 6
VIS IR . Miðvikudagur 28. Jtm 1971.
4
■Qltirtaldar ótcerðir ojtaót }yrirliggjandi:
155-14/4 165-14/4 560-14/4
560-15/4 590-15/4 600-16/6
TÉKKNESKA
BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
ódýrustu hjólbaröarnir
veriö beztir?
Spyrjiö þá sem ekiö hafa
á BAR.UM.... .
Barum h|olborðarnir ero serstoklega geroir
fyrir okstur á molarvegum, cnda reynzf
mjög vel á islenzkum vegum, — alit að
75 — 80.000 km.
Barvm hjólbarðarnir byggja á 100 ára
reynslu Bata-Barum vorksmiðjanna.
Ceta
79000 KM
ENDING!
Röskir karlmenn
\
20—30 ára óskast til verksmiðjuvinnu.
Málningarverksmiðjan Harpa
Skúlagötu 42.
Laus staða
Staða lektors við lagadeild Háskóla íslands
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt 25. launaflokki.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu, sendist menntamálaráðu-
neytinu fyrir 26. ágúst 1971.
Menntamálaráðuneytið,
26. júlí 1971.
íbúð
3—4ra herb. íbúö óskast á leigu. Þrennt fulloröið
i heimili. — Uppl. í síma 40709 eftir kl. 19.
Með kúst og gólf
lista í stað ára
Feröalangur sagði eftirfarandi
gegnum símann:
„Ég get nú ekki orða bundizt
eftir að sjá stráka á hraðbáti um
helgina hjá Kjalamesi Vélin
drap á sér og báturinn steytti
á skeri. Það kom í ljós að pilt-
arnir máttu þakka fyrir að varia
nokkur andvari var, í aðeins smá
öldu hefði getaö farið illa. Þaö
kom í ljós að þeir höföu engar
árar til taks, bara strákúst og
gólflista (!), sem þeim tókst að
nota til að stjaka sér að landi.
Svo þegar ég fór að tala við þá,
gat ég ekki betur séð en þeir
væru allir nokkuð slompaðir. —
Væri ekki ástæða ti’. að einhver
löggæzla væri til úti á sund-
unum þar sem hraðbáta-
mönnum fjölgar? Eru annars
engin ákvæði til um bátamenn
og hestamenn varðandi prómill-
in?“
Ákvæði munu vera til um þetta
efni, — enda hefur lögreglan lát
ið tll skarar skríða f einstaka
tilfellum. Hitt mun ljóst að bíl-
eigendur munu vera meira í kast
ljósum lögreglunnar í þessu efni.
Þórsmörk
Framkvæmdastjóri Ferðafélags
íslands skrifan
„í Vísi sl. föstudag (23. 7.)
sendir einhver Bjartur, sem af
eðlilegum ástæðum kýs þó að
hafa sitt rétta nafn i skuggan-
um, Ferðafélaginu tóninn og lýs
ir vanþóknun sinni á ímyndaðri
einokunaraðstöðu og fégræögi
félagsins í Þórsmörk.
Að mestu Ieyti falla þessar á-
sakanir um sjálfar sig — a.m.k.
bendir ekki siaukin aðsókn í
Þórsmerkurferðir félagsins til
þess, aö um rándýra og óheilla-
vænlega starfsemi sé að ræöa.
En fyrir þá, sem ekki hafa
kynnzt hinu sanna aí eigin raun,
er rétt að skýra starfsemi Ferða
fé’.agsins með nokkrum oröum.
Ferðafélagið er með allmikla
og vaxandi feröastarfsemi og
rekur með ærnum kostnaði nokk
ur sæluhús, sem það hefur reist
án opinberra styrkja. og eðli-
lega reynir það að nýta sem
bezt séraðstööuna í sæluhúsum
sínum. Þátttakendur í ferðum fé
lagsins eru ekki krafðir um gisti
gjöld í sæluhúsunum, heldur eru
þetta hiunnindi, sem Ferðafélag
ið býður gestum sínum, hvort
sem þeir eru fé’.agsmenn eða
ekki.
Ferðafélagið heldur uppi reglu
bundnum ferðum til nokkurra
sæluhúsa sinna, og Þórsmerkur-
ferðir eru famar á laugardög-
um kl. 2 og standa til sunnu-
dagskvölds. Kostar ferðin þang-
að kr. 1000 fyrir félaga en kr. 50
meira fyrir aðra. Böm á náms-
aldri greiða hálft gjald, yngri
böm ekkert, og stórar fjölskyid
ur fá auk þess meiri afslátt.
Fólki gefst kostur á að dvelja
milli ferða f sæluhúsunum,' og
kostar vikudvölin og ferðin kr.
1900 fyrir félagsfólk. en kr. 100
1
meira fyrir aöra. 1 öllum sælu
húsunum eru húsverðir, sem leið
beina dva’.argestum á ýmsan
máta. í Þórsmörk eru famar
gönguferðir með gestum — auk
þess sem fararstjórar í helgar-
ferðum annast slíkt um helgar.
Reynt er að hafa lyf og annað
í lyfjakössum gestum til öryggis.
Á kamrana við sæluhúsin er
lagður til salernispappír handa
ferðagestum félagsins, og eðli-
lega njóta aðrir ferðaíangar, 6-
háðir fé’.aginu, þess einnig. —
(Margir þeirra gerast þó fingra
langir f þær pappírsbirgðir um-
fram notkun á staðnum).
Allmargir kjósa heldur að búa
í tjaldi en inni í skálum, þar sem
kannski er þröngt á þingi um
helgar. Samt njóta þeir flestra
hlunninda, sem félagið veitir í
og við sæiúhús sín — annarra
en sofa inni. Þegar veður versn-
ar njóta tjaldgestir skjóls í hús-
unum. ef þeir vilja eða þurfa,
og þá án aukagreiðs’.u auðvitað.
Þegar vikudvalargestur fer t.d.
til Þórsmerkur, er sæti hans
autt { bakaleið bflsins — nema
ef tilviljun ræður því, að annar
kemur f hans stað. Þegar þessi
sami gestur kemur til baka, þarf
að tryggja honum sæti ferðina í
bæinn, — og það iafnvel þótt
enginn farþeg; fylli það sæti á
leið upp eftir.
Stundum erum við heppin, og
sætin nýtast báðar leiðir, svo
að af fæst einhver haenaður,
sem gerir okkur kleift að
byggja og endurbæta sæluhúsin.
En oft eru sætin auð aöra ’.eið-
ina. — I verðlagningu viku-
dvalarferöanna förum við milli-
veg, og verðleesium einnig hina
úmsu bióntistu. sem aðeins að
litlu levti hefur verið getið að
framan.
Skógrækt ríkisins hefur yifir-
umsjón með Þórsmörk og inn-
heimtir 40 króna gjald af hverju
tjaldi, hvort sem það stendur
einn dag eða lengur. — Þessu
gjaldi er varið til hreinsunar
Þórsmerkur, og þarf þómeiratil.
Ferðafélagið hefur sfna að-
stöðu í Langadal með leyfi Skóg
ræktarinnar, og innheimtir fé-
lagið ekkert sérstakt tjaldgjald
af tjaldgestum sínum. En aðrir,
sem í Langadal tjalda, — og
þeir eru að sjálfsögðu margir, —
greiða 40 króna gjald Skógrækt-
arinnar, en njóta margra hlunn-
inda Ferðafé'agsins án sérstakr-
ar greiöslu til þess.
Sem betur fer hefir Ferðafélag
ið enga einkaaðstööu i Þórs-
mörk, og fél. vegna getur hver
sem er flutt þangað fólk til
lengri eða skemmri dvalar. En
Ferðafélaginu ber þá ekki ófrá-
víkjanleg skylda til að veita þvi
fólki þá þjónustu, sem að fram-
an greinir, nema greitt sé fyrir
sanngjarnlega. Aðrir aðilar eru
fjálsir að því, að veita þessa þjón
ustu, eða aðra — og þá endur-
gjaldslaust eða gegn einhverri
greiðslu ef þeim sýnist svo.
En það er einmitt vegna þess,
að Ferðafélagið er ekki gróðafé
lag með peningalykt)' nösum að
það getur veitt al!a þessa þjón-
ustu fyrir svo tftið fé. — Reyn-
ið sjálf og sarfhfærizt".
Einar Þ. Guðjohnsen.
HRINGID í
SÍMA1-16-60
KL13-15