Vísir - 06.08.1971, Síða 3

Vísir - 06.08.1971, Síða 3
ft SI R. Föstudagur 6. ágúst. 3 í MORGIIN ÚTLÖNDÉ MORGUN UTLOND i MORGUN UTLOND í MORGUN UTLÖND Umsjón: Haukur Helgason Flýðu í farangurs geymslu flugvélar Tveir menn frá Tékkóslóvakíu földu sig í farangursgeymslu flug- vélar tékkóslóvakíska flugfélagsins Slov-Air og komust undan til Dan- merkur, þar sem þeir hafa beðið um hæli sem pólitískir flóttamenn. Blaðið Berlingske Tidende skýrir frá þessu í dag. Flóttamennirnir eru 21 og 22 ára. Þeim tókst að klifra upp í flug- vélina, þegar hún var á flugvellin um í Prag. Talið er hugsanlegt, að eftirlitsmenn á vellinum hafi „lokað öðru auga“ þegar þeir félagar flýðu. i Flugvelin millilenti í Austur-Berl ín og kom til Kastrupflugvallar um áttaileytið á miðvikudagskvöld. Jafnskjótt og flugvélin hafði lent stukku þeir út og gáfu sig fram við dönsku lögregluna. - Kínverskar kjarnorkuflaugar gætu dregið til borga Indlands og Japans — til Ameríku arid 1975 Mnverska alþýðulýð- veldið hefur sennilega nú þegar komið sér upp meðal drægum eldflaugum, sem ?ætu dregið um 1600 kíló metra, að sögn bandaríska varnamálaráðuneytisins. Með eldflaugum þessum gætu Kínverjar væntan- lega skotið kjarnorkuodd um á Japan og Sovétríkin. Stórborgir Sovétríkjanna munu þó enn utan skot- máls Kínverja. Talsmaður ráðuneytisins Jerry Friedheim vildi ekkert um þaö segja hvar í Kína bandaríska leyniþjón ustan hefði orðið vör við eldflauga stöðvar þessar. Hann sagði að samkvæmt upplýs ingum ráðuneytisins ynnu Kínverj ar að gerð mun fleiri eldflauga og mundu þeir væntanlega hafa yfir að ráða talsverðu magni af þeim um miðbik næsta árs. Þá mundu Kínverjar væntanlega ráða yfir fyrstu eldflaugunum, sem gætu borið kjarnorkusprengjur mil'Íi heimsálfa árið 1973 og í árs- byrjun 1975 mætti gera ráð fyrir að þeir muni eiga um tuttugu lang drægar eldflaugar, sem nota mætti í þessu skvni. Kínverjar hafa haldið áfram kjaworkutilraunum á undanfömum árum. Annað veifið hafa borizt fréttir um tilraunir þeirra, en þetta er í fyrsta sinn, að bandarískt ráðu neyti gefur svo nákvæmar upplýs- ingar um upplýsingar. sem leyni- þjónustan hefur aflaö um styrk Kín verja í þessum efnum. Þegar talað er um langdrægar eldflaugar, er átt við eldflaugar, sem gætu náð frá meginlandi Kína til Bandaríkj- anna. „Mér var fislið að fá flugvél fyrir stríðsfanga11 — dularfullur Þjóðverji kemur til sögunnar Formaður vestur-þýzkrar ferða- skrifstofu segir í gær í viðtali við bandaríska sjónvarpsmenn, að hann hafi í júlí fengið það verkefni á vegum „alþjóðlegrar sto-fnunar“ að hafa samband við SAS og fá flugvél til að flytja „stóran hóp manna lfklega stríðs fanga frá Austurlöndum til Bandaríkjanna“. Maöurinn bannaöi sjónvarps mönnum að birta nafn sitt og hann sneri allan tímann baki f sjónvarpstækin þegar viötallð var tekið. Opinberir aðilar hafa neitað fréttinni um tilraunir tii aö fá SAS-flugvél til að flytja 183 stríðsfa-nga frá Norður-Víetnam tii Bandaríkjanna. BÖRN ERU ALLTAF BÖRN... Meðan David Sc ott og James Irwin voru á tunglinu, teiknuðu dætur Irwins myndir af pabba sínum þar, um leið og þær fylgdust með þeim í sjónvarpi. Jan, sex ára sýnir „tunglmenn“ horfa á þá, og Jill, 10 ára teiknar þá og bílinn og tunglferjuna. Sex handteknir vegna járnbrautarslyssins Sex járnbrautarstarfs- menn hafa verið handtekn ir í sambandi við járnbraut arslysið í fyrrakvöld, þeg ar 35 fórust og 77 slösuð- ust. Opinberir aðilar í Bel- grad hafa skýrt frá hand- tökunum. Slysið varð, þegar lest með 300 farþegum ók beint á flutningalest. Fjórir hinna sex handteknu eru starfsmenn við stöðina Lipe, þar sem flutningalestin hefði átt að nema staðar. Hinir tveir, sem tekn ir voru fastir eru stjórnandi flutn ingalestarinnar og aðstoðarmaður hans. Sérfræðingar sem hafa athugað slvsstaðinn, segja að annað hvort hafi þeir brugðizt sem áttu að beina lestinni ínn á annað spor eða þá að lestarstjórinn hafi verið kærulaus. „Lykill fundinn að raunverulegu ástarlyfi44 Brezkir vísindamenn þvkjast hafa fundið „Iykilinn aö raun- verulegu ástarlyfi" eftir aö þeim hefur tekizt að framleiða í rann- sóknarstofu lyf sem örvar apa til kynlífs. í grein í vísindatímaritinu Nat ure, sem út kom í morgun, segir einn af fimm lífeðlisfræðingum, sem að þessu störfuöu, frá þvi að þeim hafi tekizt að framleiða í rannsóknastofu efni sem eru í kynfærum kvenapa og örva karlapa vegna lyktarinnar. Þeir félagar munu nú færa út rann sóknir sínar og athuga, hvort svipuð efni hafi grundvaliarþýð ingu hjá öðrum æðri dýrum, svo sem mönnum. Mikið er til af „ástarlyfjum" í veröld en framleiðsla brezku læknanna er einn þátturinn í miklum framförum sem orðió hafa að undanförnu i tilbún- ingi margra líffæra og efna líkamans í rannsóknarstofum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.